Morgunblaðið - 22.11.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
19
Atlantshafsbandalagið árið 1949,
og Einar Karl Haraldsson og
Ólafur R. Einarsson skrifuðu bók
eftir þvílíkri forskrift um Gúttó-
slaginn. Það sem gerir það hins
vegar að verkum að bók þeirra
Anders Hansen og Hreins Lofts-
sonar sker sig úr, er að hún fjallar
um atburði dagsins í dag. Höfund-
arnir njóta þess hvorki né gjalda
að langt sé frá þeim atburðum
liðið, er þeir hafa að viðfangsefni.
Fyrir bragðið verður bókin for-
vitnileg, en um leið má búast við
harðari viðbrögðum þeirra er við
sögu koma. Allir telja sig vita best
hvernig einstakir atburðir gerð-
ust, þótt vitað sé, að varla mun
vera til sá fundur er tveir menn
geti sagt nákvæmlega eins frá,
nokkrum dögum eftir að hann var
haldinn. — Jafnvel þótt mennirnir
tveir hafi báðir setið hann. Svo
misjafnar áherslur leggja menn á
það sem er að gerast, og svo
misjafnar ályktanir draga menn
af því sem þeir verða vitni að.
Athyglisverð og
vönduð bók
Að öllu samanlögðu tel ég, að
Anders Hansen og Hreinn Lofts-
son hafi skrifað athyglisverða og
vandaða bók. Þrátt fyrir að hún er
unnin á skömmum tíma, óvenju
skömmum tíma, þá er hún vel
unnin, málfar yfirleitt gott og
villur ekki til baga. Bókin er
efnismikil, og hefur talsvert heim-
ildargildi ekki aðeins fyrir sjálf-
stæðismenn, heldur einnig fyrir
aðra áhugamenn um stjórnmál
hér á landi. Höfundar geta heim-
ilda í sérstakri heimildaskrá eftir
því sem kostur er, og er slíkt til
fyrirmyndar. Þá er birt í bókinni
skrá yfir kjörna þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins frá upphafi, og
einnig skrá yfir ráðuneyti og
ráðherra hérlendis frá 1904 til
1980. Hvort tveggja eykur gildi
bókarinnar að mun, og gerir hana
að handhægu uppsláttarriti. Þá
eru hinar fjölmörgu myndir í
bókinni einkar skemmtilegar, og
margar hverjar hafa mikið sögu-
legt gildi. Auka þær tvímælalaust
á gildi bókarinnar, gera hana
læsilegri og þær persónur er við
sögu koma, meira lifandi. Af
kostum bókarinnar má enn nefna
nafnaskrá aftast í henni, sem
gerir auðveldara að fletta upp í
henni, bæði á meðan á lestri
stendur og síðar, er lesendur
kunna að þurfa að gá að einhverju
atriði.
Niðurstaðan er sú, að mínu
mati, að hér sé góð bók á ferðinni,
þó sjálfsagt verði hún mjög um-
deild. Þátttakendur í Valdataflinu I,
munu vafalaust telja sinn hlut §
affluttan. Þeir munu oft líta |
atburðina öðrum augum en höf-
undarnir. Við því er ekkert að
segja. Höfundarnir hafa orðið að
velja og hafna. Þeir hafa þurft að
leggja mat sitt á hluti, sem voru
og eru umdeilanlegir og afstæðir.
Slíkt hlýtur að orka tvímælis og
því þarf engan að undra, þó að
ýmsir reki upp ramakvein við
útkomu bókarinnar.
- EKG
HEYGÐU
HITT HUARTA
VIÐ _
UNDAD HNÉ
SAGA AMERÍSKA VESTURSINS
FIJÁ SJÓNARHÓLI INDfÁNA
Leiðrétting
í FORMÁLA að viðtali við Svein
B. Valfells, sem birtist í Morgun-
blaðinu sl. fimmtudag, 20. nóv-
ember, er mishermt, að hann sé
elztur þeirra manna, sem útskrif-
ast hafa frá Verzlunarskólanum.
Sveinn er meðal elztu nemenda
skólans, en nokkrir munu þó vera
jafngamlir og eldri. Biðst Morgun-
blaðið afsökunar á þessum mis-
tökum.
Flautukonsert Atla Heimis
vekur aðdáun í Danmörku
DEE BROWN
Saga vesturs-
ins frá sjón-
arhóli indíána
HEYGÐU mitt hjarta við undað
hné, er titill bókar. sem nýlega er
komin út hjá Máli og menningu.
Þetta er saga ameríska vestursins
frá sjónarhóli indíána. og er
höfundur hennar Dee Brown.
sagnfræðingur. Bók hans _Bury
my Ileart at Wounded Knee“ kom
fyrst út árið 1970 og i henni
breytir Brown nokkuð hugmynd-
um um margrómað tímabil i
bandarískri sögu. sjálft landnám-
ið.
I formála sínum að bókinni segir
höfundurinn m.a.: ... Þótt þeir
indíánar, sem lifðu þessi ragnarök
menningar sinnar, séu horfnir af
jörðinni, hafa orð þeirra varðveist
milljónum saman í opinberum
skjölum. Skýrslur um margar þýð-
ingarmestu ráðstefnurnar voru
gefnar út af hinu opinbera.
Ég hef reynt að setja saman
frásögn um landvinninga í amer-
íska vestrinu eftir þessum hálf-
gleymdu heimildum munnlegrar
sögu, frásögn þolendanna ... Þetta
er ekki upplífgandi lesning, en
staðreyndir sögunnar hafa til-
hneigingu til að þröngva sér upp á
nútíðina og máski öðlast einhverjir
lesendanna betri þekkingu á hinum
ameríska indíána eins og hann er í
dag.
I bókinni eru ljósmyndir af
helstu indíánaforingjum sem koma
við sögu og henni fylgja kort og
nafnaskrá. Þýðingu annaðist
Magnús Rafnsson. Bókin er 413 bls.
og prentuð í Prentsmiðjunni Odda.
J0RGEN Falck, sem að jafn-
aði skrifar um hljómplotur í
Politiken, sagði nýlega frá
útgáfu íslenzkrar tónverka-
miðstöðvar á plötu með
flautukonsert Atla Ileimis
Sveinssonar og fiðlukonsert
eftir Leií Þórarinsson. Falck
bendir á að hér sé á ferð svo
merk plata, að helztu hljóm-
plötuverzlanir í Danmörku
eigi ekki að láta hjá líða að
hampa henni, svo hún komist
á almennan markað en verði
ekki innlyksa í því sjálfvirka
og lokaða dreifikerfi, sem
aðaiiega annist sölu á upptök-
um norrænnar nútíma-
tónlistar.
Falck segir m.a.:
„Sjálfvirkni plötuviðskipta er
sorglegt fyrirbrigði. Ef José Carr-
era kemur til Kaupmannahafnar
til að syngja þar nokkur stutt og
velþekkt óperuatriði fyllast allir
búðargluggar á samri stundu af
andlitsmyndum, sem tyllt er ofan
á plötustafla, en þeim er aftur
ætlað að ganga í augun á væntan-
legum kaupendum, einkum þar
sem maðurinn er staddur í bænum
í eigin persónu. Það er feitan gölt
að flá, en þar sem klassísk tónlist
er annars vegar vill niðurstaðan
oft verða sú, að það frægasta sé
það bezta. Sama er að segja um
rokk-jazz, en um hann gegnir þó
nokkuð öðru máli því að sú tónlist
endurspeglar yfirleitt nútímann.
Flautukonsert Atla Heimis
Sveinssonar endurspeglar líka
nútímann en frá öðrum sjónarhóli
þó. Tónverkið er samið 1973. Það
vakti slíka hrifningu dómnefndar
Lukkudagar/vinningar í október
ósóttir vinnlngar í SEPTEMBER 1980
4 KODAK Pocket A1 Myndavei ........................NR. 1713
7 HENSON Æfingagalli ..............................NR. 6003
8 KODAK EK100 Myndavel ............................... 8177
15 HENSON Æflngagalli ..............................NR. 4141
16 KODAK Pocket A1 Myndavel ..........................NR.27605
17 KODAK Pocket A1 Myndavel ........................NR. 16263
19 Vöruuttekt að eigin vali fra LIVERPOOL ............NR.21677
22 BRAUN Harliðunarsett RS67K ........................NR.24067
23 Hljomplötur aö eigin vali fra FALKANUM ............NR.12082
24 HENSON Æflngagalli ..............................NR. 543
26 MULINETTE Kvörn ................................NR. 136
28 HENSON Æflngagalll .............................NR. 9455
30 SHARP Vasatölva CL 8145 .........................NR. 5669
Vlnningar í OKTÓBER 1980
1 SHARP Myndsegulband VC 6300 .......................NR.29348
2 KODAK EK100 Myndavel .............................NR.26231
3 Sjonvarpsspil ...................................NR.12076
4 KODAK Pocket A1 Myndavel ..........................NR.14517
5 KODAK EK100 Myndavel .............................NR.26231
6 SHARP Vasatölva CL 8145 ...........................NR.18979
7 MULINETTE Kvörn ...................................NR.11080
8 TESAI Ferðautvarp ............................
9 SHARP Vasatölva CL 8145 ......................
10 Hljomplötur aö eigin vali fra FALKANUM ...
11 Vöruuttekt að eigin vali fra LIVERPOOL ....
12 HENSON Æflngagalli ..........................
13 KODAK EKTRA 12 Myndavel .....................
14 Vöruuttekt aö eigln vali fra LIVERPOOL ............
15 BRAUN LS 35 Krullujarn ............................
16 -SHARP Vasatölva m/klukku og vekjara ..............
17 SKALDVERK Gunnars Gunnarssonar 14 bindi fra A.
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
KODAK EKTRA 12 Myndavel ...............
MULINETTE Kvöm ........................
SHARP Vasatölva m/klukku og vekjara ..
MULINETTE Kvöm ........................
KODAK Pocket A1 Myndavel ..............
KODAK EKTRA 12 Myndavel ...............
Hljomplötur aö eigin vali fra FALKANUM
SHARP Vasatölva CL 8145 ...............
Vöruuttekt að eigin vali fra LIVERPOOL
Hljomplötur að eigin vall fra FALKANUM
Hljomplötur að eigin vali fra FALKANUM
KODAK EK100 Myndavel ..................
HENSON Æfingagalli ....................
SHARP Vasatölva CL 8145 ...............
NR.21819
NR. 2974
NR. 5593
NR.26226
NR.15858
NR.15827
NR.28391
NR.11142
NR.28831
B......
. NR.26954
. NR.20596
. NR.10845
. NR.11095
. NR.13089
. NR.11450
. NR.26231
. NR.11434
. NR. 9528
. NR. 8112
. NR.19812
. NR.13639
. NR. 7984
. NR.23067
. NR.23219
Norðurlandaráðs, að fyrir það
fékk höfundurinn tónlistarverð-
laun ráðsins árið 1976, en þau eru
hliðstæð bókmenntaverðlaunun-
um. Atli Heimir Sveinsson er sem
sé kunnur, en þó er hann ekki
víðkunnur.
Verk sem þetta hefur þann
annmarka að það lýtur framandi
lögmálum fremur en öll önnur
tónlist, sem hafa má til hliðsjónar.
Það dregur ekki dám af sígildri
tónlistarhefð svo heitið geti og
enn síður er það í ætt við
„rytmiska" tónlistarhefð. Þessi
tónlist hefur hreiðrað um sig á
ótroðnum slóðum, þar sem hún
lifir og dafnar á eigin vegum, og
verður til þess að vekja sömu
tilfinningu og hinar miklu og
ósnortnu víddir íslands og ann-
arra svæða þar sem landslag er
tilkomumikið. Þaðan býr Atli
Heimir til brú, sem tengir mis-
munandi tónmenningu í austri og
vestri, líkt því og gerzt hefur hjá
þeim tónsmið dönskum, sem um
þessar mundir er hvað athyglis-
verðastur, Per Norgárd, og Éng-
lendingnum Peter Maxwell Davies
í Stóru sinfóníunni.
Sinfóníuhljómsveit íslands
gæðir þetta „náttúruverk" Atla
Heimis lífi. í upphafi koma áslátt-
arhljóðfærin dúndrandi tryllingi á
móti manni, líkt og í Sacre
Stravinskis. Slagverkið dofnar
síðan og deyr út í kristalglitrandi
og tælandi samleik einleiksflaut-
unnar og blásturshljóðfæra
hljómsveitarinnar."
Síðan segir:
„Þessa tónlist getur hver og
einn skynjað, sem telur tónlist
lífsnauðsynlega. Hér sameinast í
einu og sama verkinu mismunandi
tónlistarstefnur, svo hvort sem
menn eru músíkalskir náttúru-
unnendur, aðdáendur Pink Floyd,
Mahlers eða Sacre ættu þeir að
kunna að meta það.
Hinum megin á plötunni er
fiðlukonsert Leifs Þórarinssonar.
Tilfinningaleg barátta voldugrar
hljómsveitar og leitandi fiðluleik-
arans, sem fer einn saman, er eins
og ákall þess sem leitar frelsisins.
Það frelsi virðist Atli Heimir hins
vegar hafa fundið."
Fræðslufund-
ur um starann
Á NÆSTA fræðslufundi Fugla-
verndunarfélags Islands, sem
haldinn verður í Norræna húsinu
nk. miðvikudag kl. 20.30, heldur
Skarphéðinn Þórarinsson líffræð-
ingur erindi um lifnaðarhætti
starans og sýnir litskyggnur
tengdar efninu.
Öllum er heimill aðgangur að
fundinum.
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÖTA HF
Basar fyrir kristniboð
ÁRLEGUR basar Kristniboðs-
félags kvenna í Reykjavík verð-
ur haldinn í dag, laugardag 22.
nóvember, í Betaníu, Laufásvegi
13 í Reykjavík. Hefst basarinn
kl. 14 og um kvöldið kl. 20.30
verður samkoma á sama stað.
Allur ágóði af basarnum rennur
til íslenska kristniboðsins í
Konso í Eþíópíu og Kenýa.
t *
Skatthol
5 tegundir
OPIÐ TIL KL. 5 í DAG, LAUGARDAG.
JBtasfeóaar
„Sjmar: 86080 og 86244
Húsgögn
Armúli 8
»