Morgunblaðið - 22.11.1980, Page 24

Morgunblaðið - 22.11.1980, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 JMtogtmÞlftfrft Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Askriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. V erðbólgubyssur á stjórnarkafbáti Það hriktir í öllum innviðum stjórnarsamstarfsins þessa dagana. Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn eru komin í hávaðarok, bæði á Alþingi og í leiðaraskrifum, um verðbólguskriðið og nauðsynleg viðbrögð við því. Tíminn, málgagn Framsóknarflokksins, krefst þess dag eftir dag að ríkisstjórnin leggi ráðstafanir sínar fyrir ASÍ-þing. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, segir þvert nei við þeirri kröfu og virðist njóta til þess stuðnings kommúnista. Tómas Arnason, viðskiptaráðherra, lýsir því réttilega yfir, með rökum úr spá Þjóðhagsstofnunar, að við blasi „holskefla" nýs verðbólguskriðs þegar eftir 1. desember nk. — og að . stefni í 70% verðbólguvöxt í lok næsta misseris. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins, ræðst á Alþingi að viðskiptaráðherra fyrir marklitlar yfirlýsingar. Auk þess farist Framsóknarráðherrum ekki að tala um verðbólgubyssur — sagði Ólafur — því þær eru eingöngu hlaðnar í þeim málaflokkum, sem undir þá heyra í ríkisstjórninni. Lúðvík Jósepsson, fráfarandi formaður Al- þýðubandalagsins hnykkti á þessu hálstaki á Framsóknar- ráðherrum, í setningarræðu á landsfundi kommúnista. Ritstjórar Tímans hafa undanfarna daga og vikur talað á sömu lund og Tómas Árnason, viðskiptaráðherra, um nauðsyn samræmdra efnahagsaðgerða, er taki á öllum þáttum verðlagsins, samhliða ráðgerðri myntbreytingu um áramót, ef treysta eigi stöðu nýkrónunnar og hamla gegn annars fyrirsjáanlegri óðaverðbólgu á árinu 1981. Þá hafa þeir dag eftir dag krafizt þess að ráðstafanir ríkisstjórnar- innar verði kynntar á ASÍ-þingi, og þannig tekið undir kröfur stjórnarandstæðinga. Gunnar Thoroddsen.forsætisráðherra hefur sagt þvert NEI við þessum tilmælum stjórnarandstöðu, Tímans og fjölmargra forystumanna launafólks, og nýtur til þess stuðnings Alþýðubandalagsins. Það vakti athygli á Alþingi sl. fimmtudag að forsætisráð- herra valdi þann dag til að svara tveimur fyrirspurnum frá þingmönnum sjálfstæðismanna, varðandi væntanlegar efna- hagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar. Ekki einungis vegna þess að ríkisstjórnin neitaði að leggja þessar ráðstafanir fyrir ASÍ-þing. Ekki fyrst og fremst vegna þess að ríkisstjórnin gat ekki tímasett framsetningu þeirra fyrir áramót, þó þær hljóti að tengjast afgreiðslu fjárlaga, lánsfjáráætlunar og myntbreytingu. Og heldur ekki vegna þess — þó það stingi vissulega í augu — að ríkisstjórnin virðist jafn ráðalaus og sjálfri sér sundurþykk í helztu viðfangsefnum sínum og þegar hún var mynduð fyrir 10 mánuðum. Forsætisráðherra var í lófa lagið að fresta þessum svörum, ef honum bauð svo við að horfa, enda fimmtudagar ekki venjulegir starfsdagar til að svara fyrirspurnum á Álþingi. Svo virðist sem hann hafi látið hér undan þrýstingi kommúnista, þann veg, að þeim gæfist tækifæri til að stilla framsóknarráðherrum upp í hlutverkum kjaraskerðingarpostula, og sjálfum sér í gervi hins andstæða, bæði á landsfundi Alþýðubandalagsins og ASÍ-þinginu. Árás Ólafs Ragnars Grímssonar á viðskiptaráðherra Framsóknar- flokks, og setningarræða Lúðvíks Jósepssonar, sem vó óþyrmilega að Framsóknarflokknum, styðja þetta. Þögn ráðherrans um væntanlegar ráðstafanir bendir annað tveggja til þess að enn sé ekki samstaða í ríkisstjórn um aðgerðir, sem er líklegt, eða til hins að ríkisstjórnin hyggist geyma þessi feimnismál sín fram yfir ASÍ-þingið. Til þess bendir grein Þrastar Ólafssonar, aðstoðarmanns fjármála- ráðherra Alþýðubandalagsins, í Þjóðviljanum í gær. Þar er greinilega verið að undirbúa jarðveg fyrir efnahagsráðstaf- anir í þá veru, sem Tómas Árnason talar opinskátt um en Alþýðubandalagið vill koma með aftan að almenningi. Þar segir að vísu réttilega að verðbólga þýði ekki einungis verðfall peninga og kjararýrnun, heldur sé hún tilræði við menningarlegan uppruna og brenglun á sjálfskennd þjóðar- innar. Hér er hins vegar talað í aðra átt en Ólafur Ragnar Grímsson og Lúðvík Jósepsson gera. Þeir síðarnefndu eru líka í tímabundnu hlutverki leikstjóra á landsfundi eigin flokks og að leggja Ásmundi Stefánssyni, flokksbróður sínum, línu til að dansa á á ASÍ-þingi. Hagfræðingur Alþýðubandalagsins er hins vegar að horfa lengra fram og til aðgerða, sem óvinsælar kunna að reynast, og eiga ekki að sjá dagsins ljós fyrr en leikar á ASÍ-þingi hafa gengið um garð. Þá kemur kafbátur úr kafi, hlaðinn verðbólgubyssunum, ef rétt er skilin vísbending hagfræðingsins. Landsfundur Alþýðubandalagsins: I>að sem vantar er erlend stóriðja „ÞESSI nýja atvinnumála- stefna, sem Svavar kallar svo, er byggð á rányrkju, offjár- festingu í landhúnaði og sjáv- arútvegi, innflutningshöft- um, undanlátssemi launa- fólks og íhaldssemi... Það sem vantar er erlend stór- iðja,“ sagði Ilrafnkell Jóns- son, Reyðarfirði, í almennum umræðum um lífskjör og at- vinnuþróun á landsfundi Al- þýðubandalagsins í gær. Svavar Gestsson. félagsmála- ráðherra, hafði framsögu um málið og eftir að hafa m.a. rakið tillögur Alþýðubanda- lagsins frá í vetur um atvinnumál mælti hann fyrir því, að Alþýðuhandalagið setti fram kröfur „um ítar- lega og skýrt útfærða at- vinnumálaáætlun til 10 ára“. Áætlunina sagði Svavar eiga að byggjast á því að íslendingar hefðu „öruggt forræði yfir at- vinnulífi í landinu, en hafni er- lendri stóriðju, eins og álverið í Straumsvík er lýsandi dæmi um“, að lögð verði áherzla á raunveru- lega áætlunarstjórn í atvinnulífi og aukin áhrif verkafólks á vinnu- stöðum og að atvinnuvegirnir geti tryggt sambærileg lífskjör á við það sem best gerist í grannlöndum okkar. „Um þessi atriði er póli- tískur meginágreiningur í land- inu, en okkar flokkur hlýtur að taka mið af þeim,“ sagði Svavar. Rakti hann síðan nokkur dæmi um atvinnuuppbyggingu og mótun auðlindastefnu til næstu áratuga. Hrafnkell A. Jónsson sagði ræðu Lúðvíks Jósepssonar kvöldið áður hafa valdið sér vonbrigðum. Hitt þætti sér þó enn lakara, að ræða Svavars, „sem mér skilst að sé sá, sem landið á að erfa“ hefði einnig verið íhaldssöm ræða. Rakti Hrafnkell síðan ástand fisk- stofna og aðstæður í landbúnaði og sjávarútvegi og um iðnaðarmál sagði hann, að þótt Alþýðubanda- lagið hefði átt iðnaðarráðherra í 5 ár sæjust engin teikn björgunar atvinnulífsins frá honum, heldur héldi hann aðeins áfram því stefnumiði að íslenzkur iðnaður skyldi ekki þrífast nema 1 skjóli innflutningshafta. Um undan- látssemi launafólks sagði Hrafn- - sagði Hrafnkell Jónsson Reyðar- firði um atvinnu- málastefnu flokksins kell, að Alþýðubandalagsmenn hefðu talið, að með því að gefa sínum mönnum svigrúm, þá „kæmi þetta allt saman". En reyndin væri önnur. „Jafnvel stjórn Geirs Hallgrímssonar ’77 var ekki svo bölvuð miðað við það, sem hefur dunið yfir okkur að undanförnu," sagði Hrafnkell og kvað gaman að heyra ráðherra flokksins segja til um það, hvort ganga ætti í vísitöluskerðingu 1. desember eða 1. janúar. „Það vantar erlenda stóriðju. Ég kem ekki auga á aðra leið,“ sagði Hrafnkell. Sagði hann það of stóran bita að byggja upp orku- frekan iðnað samfara uppbygg- ingu orkuvera og því væri óhjá- kvæmilegt að fá inn erlenda fjár- festingu. Sagðist Hrafnkell óhræddur fyrir hönd íslenzks verkafólks að leggja til kjarabar- áttu við „erlent auðvald". „Verri - unnið fyrir Þröst Olafsson á lands- fundinum Alþýðubandalagsmenn í Reykja- vík unnu í gær að því að fá Þröst Ólafsson, aðstuðarmann fjár- málaráðherra, til að gefa kost á sér til varaformennsku í flokkn- um og þá gegn Kjartani ólafs syni, ef Kjartan sækti að vera varaformaður áfram. Þröstur Ólafsson sagði í samtali við Mbl. í gær, að það væri rétt, að á þetta hefði verið minnzt við hann, en hann kvaðst ekki hafa tekið neina ákvörðun um málið. Talið var líklegast í gær, að ef eru vinir sem við völdin eru oft á tíðum. Það er sorgarsaga," sagði hann. Tryggvi Sigurbjarnarson sagð- ist telja „millibilsleiðina — hóf- legan hraða í virkjunarmálum og eitthvert hæfilegt magn af orku- frekum iðnaði", affarasælustu leiðina, eins og lagt væri til í samþykktum Alþýðubandalagsins. „í mínum huga er stóriðja ekkert bannorð. En stóriðja eins og í Straumsvík, það er bannorð," sagði Tryggvi. Umræðum um atvinnurnál var svo frestað og teknar aftur á dagskrá í gærkvöldi. Þá talaði m.a. Erlingur Sigurðsson og mælti gegn stóriðjuhugmyndum Aust- firðinga og nafngreindi hann Hrafnkel Jónsson og Berg Sigur- björnsson í því sambandi. Hjör- leifur Guttormsson, iðnaðarráð- herra, var meðal þeirra, sem töluðu í gærkvöldi, en ræðutíminn var svo knappur, að ráðherrann náði ekki að ræða iðnaðarmál og lét hann þá bóka sig á mælenda- skrá á morgun, en umræðum var enn frestað og framhaldsumræð- um skotið inn í dagskrána fyrir hádegi í dag. málið kæmi þannig fyrir uppstill- inganefnd, þá myndi hún leita eftir þriðja manninum til varafor- mennsku og voru þá tilnefndir Helgi Seljan og Hjörleifur Gutt- ormsson, ef Helgi reyndist ófáan- legur til varaformennskunnar. Talið er, að hvorki Guðrún Helgadóttir né Tryggvi Þór Aðal- steinsson vilji gegna áfram störf- um ritara og gjaldkera. í stað Guðrúnar voru einkum tilnefndar þrjár konur; Álfheiður Ingadóttir, Elsa Kristjánsdóttir og Guðrún Hallgrímsdóttir. I gær var búist við því, að tillaga yrði lögð fram á landsfund- inum í dag um að loka honum fyrir blaðamönnum meðan kosn- ing fer fram. Varaformennska Alþýðubandalagsins: Helgi Seljan eða Hjörleifur? „Lúðvík hefur alltaf verið láta vatnið renna „Lúðvík Jósefsson hefur nú ailtaf verið snillingur i að láta vatnið renna upp á móti hrekk- unni,“ sagði Tómas Árnason viðskiptaráðherra i samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, er hann var spurður álits á ummælum Lúðviks um að ágrein- ingur væri milli framsóknar- manna og alþýðubandalags- manna. um hvort telja ætti niður verðlag eða laun í landinu. „Mér sýnist Lúðvík vera enn með viðleitni í þá átt með þessu tali,“ sagði Tómas ennfremur, „því laun eru milli 70 og 75% af þjóðartekj- um, þjóðarframleiðslunni. Þess vegna eru launin auðvitað gfurlega mikill þáttur í öllu verðlagi í landinu. Um leið og laun hækka, hækkar öll útseld vinna og ótal- margt annað." — En Lúðvík heldur því fram, að vsitöluhækkun launa komi til vegna verðhækkana þriggja mánaða á undan, en ekki öfugt? „Ég hef oft sagt það, að verðbæt- urnar eigi að vera vörn fyrir launþega, en þær virka einnig þann- ig að þær viðhalda snúningnum. Þá hef ég tekið skýrt fram og undir- strikað að stefna okkar framsókn- armanna er að gera samræmdar ráðstafanir þannig að tekið verði á öllum helstu kostnaðarþáttum verð- lagsins og þeir færðir niður. Þá höfum við sérstaklega nefnt verð á vörum og þjónustu, vexti, landbún- aðarvörur, fiskverð, verðbætur á laun og gengi. Síðan höfum við bætt því við, að við viljum viðhalda kaupmætti lægri launa með skatta- lækkunum. Þetta er það sem við höfum verið að tala fyrir og ég hef undirstrikað sérstaklega." — En þetta hefur ekki mætt skilningi innan Alþýðubandalags- ins? „Ja, þú sérð hvernig Lúðvík lítur á upp a m — segir Tómas Árnason um um- mæli Lúðviks Jósefssonar um niðurtalninguna þessi mál.“ — En alþýðubandalagsmenn í ríkisstjórn? „Það hefur að minnsta kosti ekki náðst samkomulag um það ennþá, að gera þetta á þann hátt sem ég var að lýsa.“ — Ólafur Ragnar Grímsson hef- ur einnig gagnrýnt þig vegna fram- göngu þinnar í þessum efnahags- málum. Hvað vilt þú segja um það? „Ég get sagt það, að hann nefndi þrjú atriði. Hann nefndi að verð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.