Morgunblaðið - 22.11.1980, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
Verkalýðsfélagiö Rangæingur:
Lausn hitaveitu-
málsins forsenda
samningsins
Stjórn KPrðardómsins. f.v. Guómundur Péturssun. löjífræðinKur, Gunnar Peterscn, stórkaupmaóur,
Jóhann J. Ólafsson, stórkaupmaóur, Sveinn Snorrason, löKfræðinKur. formaður stjórnar Kerðardómsins,
Gunnar ÁsKeirsson, stórkaupmaður, Baldur Guðlaugsson, löKfræðinKur ok Sigvaldi Þorsteinsson.
löKÍræðinKur Vcrzlunarráðsins. sem er ritari dómsins.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsinK írá Verka-
lýðsfélaKÍnu RanKæinKÍ veKna
þeirra kjaradeilu. sem félaKÍð
hefur staðið i:
I framhaldi af árangurslausum
viðræðum Verkalýðsfélagsins
Rangæings við fulltrúa VSI vegna
kjarasamnings Rangæings, þá
boðaði verkalýðsfélagið til vinnu-
stöðvunar við Hrauneyjafoss frá
18. nóvember sl.
Jafnframt sendi Verkalýðsfé-
Gerðardómur Verzlunar-
ráðs íslands tekinn til starfa
VERZLUNARRÁt) íslands hefur nú nýverið sett á stofn
gerðardóm í viðskiptamálum. ReKlugerð fyrir dóminn hefur verið
staðfest af stjórn Verzlunarráðsins og er stjórn hans þannig
skipuð: Sveinn Snorrason hrl., formaður, Guðmundur Pétursson
hrl., ok Gunnar Ásgeirsson, stórkaupmaður. Varamenn eru
Jóhann J. Ólafsson, stórkaupmaður, Baldur Guðlaugsson, hdl. og
Gunnar Petersen, stórkaupmaður. Stjórn dómsins er nú tilhúin að
hefja störf.
Aðilar geta samið um, að komi
til ágreinings vegna tiltekinna
viðskipta skuli gerðardómur VÍ
skera úr. Sé ekki samið um slíkt
fyrirfram geta aðilar einnig vísað
ágreiningi til dómsins, verði þeir
ásáttir um það.
Mál þau, sem dómurinn kemur
væntanlega til með að fjalla um
eru þau mál, sem annars væru
rekin fyrir sjó- og verzlunardómi
eða sættu úrlausn erlendra gerð-
ardóma. Má þar nefna hverskonar
vanefndir viðskiptasamninga, svo
sem vanskil, seinkun afhendingar
eða viðtöku, galla á vöru, ósam-
ræmi sýnishorns og afhentrar
vöru, svo að nokkur dæmi séu
nefnd. í mörgum tilvikum hafa
íslenzkir kaupsýslumenn orðið að
Olympíuskákmótið:
íslendingar
unnu Kínverja
ÍSLENDINGAR hefndu ófar-
anna frá 1978 og sigruðu Kín-
verja á olympíuskákmótinu hér
á Möltu og höfum við nú þrjá
vinninga og Kínverjar engan,
en einni biðskák er ólokið,
sagði Margeir Pétursson í sam-
tali við Mbl. í ga>rkvöld. Ung-
verjar og Svíar eru efstir með
sjö og hálfan vinning og íslend-
jjear í þriðja sæti ásamt fleir-
um með sei' L'£ hálfan vinninK
og hiðskák.
Helgi Ólafsson, Jón L. Árna-
son og Margeir unnu sínar skák-
ir, en skák Jóhanns Hjartarson-
ar fór í bið og er hún jafnteflis-
leg. Kvennasveitin íslenzka
tefldi við Kolumbíu ojg fékk einn
og hálfan vinning. Aslaug tap-
aði, Ólöf gerði jafntefli og Sigur-
laug vann. Biðskákir Áslaugar
og Ölafar frá í gær við banda-
rísku sveitina voru tefldar í
gærmorgun og töpuðu þær báð-
ar. Margeir Pétursson kvað lé-
lega frammistöðu rússnesku
sveitarinnar hafa komið á óvart
er ÍIL'J1 vann Venezuela. naum-
lega 2,5 gegn i,5.
Félagar í Lionsklúbbnum Keili pakka dagatölunum.
sæta ákvæðum í viðskiptasamn-
ingum um lögsögu gerðardóms í
landi gagnaðilans, vegna þess að
ekki var kostur á íslenzkum gerð-
ardómi. Á þetta einkum við um
viðskipti við lönd Austur-Evrópu,
en rekstur mála fyrir gerðardóm-
um þar getur verið ýmsum ann-
mörkum háður. Tilvist íslenzks
gerðardóms réttlætir a.m.k. að
máli sé vísað til gerðardóms
hlutlauss lands, geti hvorugur
aðili fallizt á gerðardóm hins.
Málsmeðferð gerðardóms tekur
að jafnaði skemmri tíma en al-
mennra dómstóla. I reglugerð
gerðardóms VI er t.d. tekið fram,
að úrskurður skuli felldur eigi
síðar en hálfu ári eftir að dómarar
voru tilnefndir, nema sérstakar,
ríkar ástæður séu fyrir hendi.
Urskurðir gerðardóms eru end-
anlegir og bindandi fyrir málsað-
ila, að því er snertir efni máls, og
verða ekki bornir efnislega undir
almenna dómstóla. Hinsvegar eru
úrlausnir gerðardóms ekki aðfar-
arhæfar, og getur þurft að leita
aðstoðar dómstóla við fullnustu
þeirra, inni dómþoli ekki af hendi
greiðslur, sem hafa verið úrskurð-
aðar. Dómstóll myndi hinsvegar
byggja á úrskurði gerðardómsins,
þar sem hann er endanlegur og
bindandi.
Hlutverk stjórnar dómsins er að
taka við beiðnum um úrskurði og
ákveða hvort dómurinn hafi lög-
sögu í málinu. Gerðarbeiðni þarf
að fylgja skrásetningargjald, en
einnig þurfa málsaðilar að setja
tryggingu, sem stjórnin ákveður,
fyrir greiðslu málskostnaðar, áður
en mál er tekið fyrir í dómi. Sé
úrskurðarbeiðni runnin frá báðum
málsaðilum tilnefnir stjórnin
dómara án tafar, annars að liðn-
um fresti, sem gagnaðili fær til að
sig um málið. Verði málsaðilar
ásáttír um aÖ íjnn dómari úr-
skurði málið, er hann tn'iiíf.’ldur
Jóladagatöl
Lionsklúbbs-
ins Keilis
SUÐURNESJABÚAR! Um
helgina og næstu daga munu
Lionsfélagar úr Lions-
klúbbnum Keili ganga í hús
á Suðurnesjum og selja jóla-
dagatöl eins og undanfarin
ár, og mun ágóðinn af söl-
unni renna til líknarmála á
Suðurnesjum.
Fréttatilkynning
af stjórninni. í öðrum tilvikum
tilnefna málsaðilar jafnmarga
gerðardómsmenn, en stjórnin til-
nefnir einn, sem verður formaður
dómsins.
Jóladagatöl
Lionsklúbbs-
ins Freys
ÞESSA dagana stendur yfir árleg
sala á jóladagatölum, sem
Lionsklúbburinn Freyr flytur inn
frá Vestur-Þýzkalandi. Auk þeirra
útsölustaða, sem áður hafa verið
nefndir í fréttum blaðsins, fást
dagatölin á éftirtöldum stöðum:
Austurbæjar apóteki, Garðs
apóteki, verzluninni Iðufelli, verzl-
uninni Straumnesi, verzluninni
Þrótti og stórmarkaði KRON.
lagið Rangæingur félagsmálaráð-
herra bréf dags. 9. nóv. sl., rakti
þar gang þessa máls, lagði fram
rök félagsins fyrir hinni sérstöku
kröfu vegna orkumála og fór fram
á aðstoð ríkisvaldsins til lausnar
kjaradeilunni.
Lausn kjaradeilu þessarar dróst
á langinn og viðræður hófust
vegna samninga við Hrauneyja-
foss. Þær viðræður sigldu fljótlega
í strand og málinu vísað til
sáttasemjara.
Til verkfalls við Hrauneyjafoss
kom 18. nóv. sl. og verkbanns 19.
nóv.
Viðræður stóðu siðan yfir hjá
ríkissáttasemjara með litlum hlé-
um.
Kl. 14.00 í gær, 20. nóvember,
boðaði ríkissáttasemjari til fund-
ar sem stóð fram á kvöld.
Kl. 18.30 boðaði forsætisráð-
herra Sigurð Óskarsson, fram-
kvæmdastjóra Verkalýðsfélagsins
Rangæings, til fundar í forsætis-
ráðuneytið og afhenti honum bréf
þar sem ríkisstjórnin heitir því að
stuðla að framkvæmd hitaveitu
fyrir Rauðalæk, Hellu, Hvolsvöll
og nágrenni svo fljótt sem verða
má og muni taka fjármagn í því
skyni upp í lánsfjáráætlun fyrir
árið 1981.
Þá þegar tilkynntu fulltrúar
Rangæings ríkissáttasemjara og
fulltrúum VSI að ekkert væri því
til fyrirstöðu, að aðalkjarasamn-
ingur félagsins gengi í gildi
samkv. samningi VMSI frá 27. okt.
sl.
Skömmu síðar voru samningar
undirritaðir vegna Tungnaár-
svæðissamnings af fulltrúum VSI,
Rangæings og viðk. landssam-
banda.
Fulltrúar Rangæings í samn-
inganefnd félagsins voru Sigurður
Óskarsson og Öskar Jónsson.
Hafnarfjarðarbær
krafinn um 40 millj.
LOGÐ HEFUR verið fram 40
milljóna króna skaðabótakrafa
frá Valgarð Briem hrl. fyrir hönd
Assurance foreninKen Skuld í
Kaupmannahöfn ok skipadeildar
SÍS á hendur bæjarsjóði Hafnar-
fjarðar vegna slyss sem varð um
borð í m.s. Disarfelli i Hafnar-
fjarðarhöfn 1978.
Mun þessi stefna vera tilkomin
með þeim hætti, að deilt er um sök
og telja eigendur skipsins, að
orsakir slyssins megi rekja til
vanrækslu hafnarstarfsmanna.
Skipafélagið hefur þegar greitt
þeim sem fyrir slysinu varð,
skaðabætur og er nú komið í
endurkröfumá! við Hafnarfjarðar-
bæ.
Að sögn Einars Halldórssonar,
bæjarstjóra í Hafnarfirði, telja
bæjaryfirvöld sig ekki skaðabóta-
skyld, og telja þau að skipafélagið
hafi þegar viðurkennt sök sína
með því að greiða þeim slasaða
skaðabætur.
Annað kvöld lýkur sýningu á llst- og nytjamunum úr tré í
kjallara IIúss iðnaðarins við HallveigarstÍK. Rúmlega 150 munir
eru á sýningunni eftir 33 höfunda.