Morgunblaðið - 22.11.1980, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
41
fclk í
fréttum
Brúð-
kaup í
Lux
+ HENRI Luxemborgarprins,
sem nú er 25 ára og er
ríkisarfi þar, hefur nýlega
opinberað trúlofun sína. Sú
lukkulega er 24 ára gömul
„alþýðustúlka" frá Sviss, af
kúbönskum ættum. — Faðir
hennar flúði frá Kúbu árið
1959, þegar Kastró var að
brjótast þar til valda. Fyrst
flúði fjölskyldan til Banda-
ríkjanna, en síðan flutti hún
til Sviss. Ákveðið hefur verið
að hjónavígslan skuli fara
fram með hækkandi sól, vorið
1981. Prins Henri kynntist
kærustunni, sem heitir Terese
Mestre, í háskólanum í Genf.
Þar las hann stjórnmálafræði.
Gamli maðurinn pabbi Terese
er bankamaður og er sagður
eiga eignir suður á Spáni.
Þegar hún giftist Henri prins
mun hún hljóta titilinn prins-
essa. Þess má geta hér að
íbúatala Luxemborgar er
350.000. Stórhertoginn heitir
Jean og hertogaynjan Kar-
lotta.
+ ÞESSI 23ja ára enska stúlka, sem er dansmær og
danskennari í heimabæ sínum Huyton á Englandi
varð hlutskörpust í samkeppni 19 stúlkna þar í landi,
sem um það kepptu hver væri fótleggjafegurst í
Bretlandi. Hún heitir Tricia Liedel. Fór keppnin fram
í London og þar er myndin tekin. Engum munu koma
úrslitin á óvart þegar grannt er skoðað, eða hvað?
Hún tók
við
kórónunni
+ ÞESSi 19 ára gamla
stúlka frá Kyrrahafseyj-
unni Guam Kimberly
Santos — „Ungfrú Gu-
am“, hefur verið útnefnd
„Ungfrú Alheimur", eftir
að Berlínar-stúlkan Gis-
ella Brum afsalaði sér
kórónunni og þessum titli.
Fröken Kimberly starfar
á ferðaskrifstofu. Hún var
í öðru sæti fegurðarsam-
keppninnar. Var hún
stödd í Los Angeles er
„valdaafsal" Gisellu hinn-
ar þýsku fór fram. Þar er
þessi mynd tekin af frök-
en Kimberly. — í þriðja
sæti var „Ungfrú Frakk-
land“, sem er 17 ára stúd-
ína.
Fræðslustarfsemi
í fiskiðnaðinum
stórlega vanrækt
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun frá Fiskiðn.
fagfélagi fiskiðnaðarins:
Félagsfundur í Fiðskiðn, fagfé-
lagi fiskiðnaðarins haldinn á Ak-
ureyri 8. nóvember hefur sam-
þykkt svohljóðandi ályktun:
Fundurinn vill vekja athygli
landsmanna á því ástandi sem
skapast hefur í sambandi við
tregan útflutning á íslenskum
sjávarafurðum og stöðugt harðn-
andi samkeppni íslendinga við
stærri þjóðir sem reka ríkisstyrkt-
an fiskiðnað.
Ein ástæðan fyrir því hve höll-
um fæti við stöndum nú á erlend-
um mörkuðum er áð þrátt fyrir
mikilvægi fiskiðnaðar fyrir lífs-
afkomu þjóðarinnar þá hefur öll
fræðslustarfsemi í þessari at-
vinnugrein verið stórlega van-
rækt.
Skýrasta dæmið um þessa van-
rækslu er fiskvinnsluskólinn sem
á samkvæmt lögum að gegna
mikilvægu fræðsluhlutverki í fisk-
iðnaði. AUt frá því skólinn hóf
starfsemi sína fyrir 9 árum hefur
hann þurft að notast við ófull-
nægjandi leiguhúsnæði víðs vegar
á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Á
tæpum áratug hafa aðeins útskrif-
ast 120 fiskiðnaðarmenn frá skól-
anum og í dag er meiri þörf fyrir
sérmenntað fólk í fiskiðnaði en
nokkru sinni fyrr.
Fundurinn skorar á stjórnvöld
að hlutast nú þegar til um bygg-
ingu skólahúsnæðis fyrir Fisk-
vinnsluskólann sem búið verði
fullkomnum vélum og tækjum
f.vrir verklega og bóklega kennslu.
Fundurinn telur að besta fjár-
festing sem hægt er að gera i
fiskiðnaði í dag sé stóraukin
fræðslustarfsemi.
FréttatilkynninK
Landvernd:
Stofnað verði sjálfstætt
umhverfismálaráðuneyti
Á fulltrúafundi Landverndar,
sem haldinn var i Munaðarnesi
fyrir skömmu voru meðal annars
samþykktar eftirfarandi álykt-
anir.
Að skora á skólayfirvöld að láta
endurskipuleggja og auka um-
hverfisfræðslu í öllum skólum
landsins. Fundurinn fagnar þeirri
ákvörðun stjórnar Landverndar
að efna til ráðstefnu um umhverf-
isfræðslu á fyrri hluta næsta árs.
Telur brýnt að frumvarp að
löggjöf um umhverfismál, sem
fyrst var lagt fram á alþingi 1977
en ekki afgreitt, verði lagt fyrir
alþingi á nýjan leik og afgreitt.
Fundurinn telur núverandi ástand
óviðunandi, þar sem náttúru-
verndar- og umhverfismál heyra
nú undir nær öll ráðuneytin, en
slíkt veldur ýmsum vandræðum
við ákvarðanatöku í' umhverfis-
málum. Fundurinn telur að stefna
beri að því að stofna sjálfstætt
umhverfismálaráðuneyti með
hliðstæðu valdsviði og slík ráðu-
neyti hafa á öðrum Norðurlönd-
um.
Að leggja beri áherslu á bætt
skipulag landnýtingarmála. Enda
þótt áhugi á þeim málum hafi
aukist og unnið hafi verið að
margvíslegum umbótum síðustu
árin, skortir víða á að hófs sé gætt
við nýtingu landsins. Halda þarf
markvisst áfram á þeirri braut að
efla rannsóknir, kennslu og leið-
beiningar um skynsamlega land-
nýtingu svo og eftirlit á þessu
sviði.
Með landgræðslu- og landnýt-
ingaráætlun 1974—1979 voru
mörkuð tímamót í þeim málum.
Þvl lýsir fundurinn yfir eindregn-
um stuðningi við tillögur að nýrri
landgræðsluáætlun fyrir árin
1981 — 1985, sem um þessar mund-
ir er verið að leggja fram á
alþingi.
Stjórn og starfsfólk Landverndar.
Zontakonur með kökubasar
FÉLAGSSKAPURINN Zonta hefur í dag, laugardag,
kökubasar í Blómavali við Sigtún og hefst hann klukkan
2. Þar eru á boðstólum kökur af ýmsu tagi, m.a. hafa
Zontakonurnar bakað mikið af piparkökum til jólanna,
t.d. til að nota með jólaglögginu hjá þeim, sem það hafa.
Zonta er alþjóðlegur félagsskap-
ur kvenna, sem um áratugi hefur
starfað á Islandi og sérstaklega
stutt heyrnarskerta. Er kökubas-
arnum ætlað að afla tekna í
svonefndan Margrétarsjóð sam-
takanna, sem kenndur er við
Margréti Rasmus, skólastjóra
Heyrnleysingjaskólans og fyrsta
formann samtakanna. Hefur sjóð-
urinn einkum reynt að styðja
starfsemi í sambandi við herta
heyrn og talmein, gaf nú síðast
nauðsynlegt tæki í nýju Heyrnar-
og talmeinastöðina. En þar er
mikil þörf fyrir ýmisskonar
tækjabúnað.