Morgunblaðið - 18.12.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 18.12.1980, Síða 1
72 SÍÐUR 283. thl. 68. árg. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Anna Piernicka, móðir 16 ára pilts sem beið bana í óeirðunum í Gdynia 1970, afhjúpar minnisvarða i borginni um þá sem biðu bana. W alesa kveðst ekki vilja steypa kerfínu Rabin fram gegn Peres Jerúsalrm. 17. drsember. AP. ÁRSÞING ísraelska Verkamanna- flokksins, sem er spáð sigri i þingkosninKunum á næsta ári samkvæmt skoðanakönnunum. hófst i dan og hafin cr hörð barátta milli Shimon Peres og Yitzhak Rabin fyrrum forsætis- ráðherra um völdin í flokknum. Rabin heldur því fram að hann njóti meiri vinsælda en Peres og sé því betur hæfur til að leiða Verka- mannaflokkinn til sigurs á Likud- bandalagi Menachem Begins for- sætisráðherra í kosningunum í nóv- ember 1981. Peres segist hafa þvívegis fengið stuðningsyfirlýsingu frá flokknum og telur allar spár sýna að hann fái öruggan tvo þriðju meirihluta á flokksþinginu. Stuðningsmenn Rabins hafa kært misferli, sem þeir segja að hafi átt sér stað í kosningunum til þingsins. Þeir hóta að ganga af fundi og kljúfa flokkinn ef meirihluti svín- beygi þá á þinginu. Fá flugvélar Nýju Delhi, 17. des. AP. PAKISTANAR fá bráðlega herflugvélar frá Bandaríkjun- um, Frakklandi og Kína og vinna á laun að því að koma sér upp 12 nýjum flugstöðvum og endurbæta 28 aðrar stöðvar að sögn indversku fréttastofunnar í dag. Sex fangar hætta föstu Belfast, 17. des. - AP. SEX DÆMDIR skæruliðar mót- mælenda úr Varnarsamtökum Úlsters (UDA) urðu í dag við áskorun leiðtoga samtakanna og hættu fimm daga hungurverk- falli. Fjörutíu kaþólskir fangar halda áfram hungurverkfalli sínu og einn þeirra, Sean McKenna, er aðframkominn eftir 52 daga föstu og að því kominn að missa sjón- ina. Fangarnir úr UDA kváðust áskilja sér rétt til að hefja mót- mælin að nýju, ef enginn áhugi kæmi fram á kröfu þeirra um að verða meðhöndlaðir eins og póli- tískir fangar og aðskildir frá kaþólskum skæruliðum. (■dansk. 17. des. AP. LECH Walesa sagði i dag að verkalýðshreyfing hans, Sam- staða. stefndi ekki að því að kollvarpa kerfi kommúnista í Póllandi og þúsundir vottuðu verkamönnum, sem lögregla og hermenn felldu i matvælaóeirð- unum fyrir 10 árum, virðingu sína. Walesa og Mieczyslaw Jagielski varaforsætisráðherra voru meðal fjölda manna, sem voru viðstaddir messu í Gdynia í morgun og afhjúpun minnisvarða um þá sem féllu í óeirðum í borginni 1970. í Szczecin lögðu verkamenn blóm- sveiga að leiðum félaga sinna. Eftir athöfnina í Gdynia hvatti Walesa enn til rósemi og þjóðar- einingar í von um að atburðirnir 1970 endurtaki sig ekki. Orð hans bergmáluðu hvatningar ríkis- stjórnarinnar og trúarleiðtoga. „Þjóðfélagið vill röð og reglu," sagði hann. „Við verðum að læra að semja í stað þess að gera verkföll." Um leið og hann kvaðst ekki vilja kollvarpa kerfinu, sagði hann „sérhvert kerfi gott sem þjónaði vel hagsmunum fólksins". Walesa virtist vilja svara gagn- rýni frá öðrum kommúnista- ríkjum, þar sem Samstaða er sökuð um að vera leynileg mót- spyrnuhreyfing undir stjórn „and- sósialistískra afla“ og vestrænna leyniþjónusta. Blöð í Tékkóslóvakíu ítrekuðu í dag ásakanir um, að vestrænar útvarpsstöðvar sendu út fyrirmæli á dulmáli til „óvina sósialisma" í Póllandi og sökuðu Walesa um náið samband við „ríka vini" í Vestur-Þýzkalandi. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði í dag að minningarhátíðarhöldin í Gdansk væru „jákvæð bending" og sönnun þess að Pólverjar gætu leyst vandamál sín friðsamlega án utanaðkomandi afskipta ef þeir væru látnir í friði. Á öryggisráðstefnunni í Madrid gagnrýndu Frakkar Rússa fyrir liðssafnað umhverfis Pólland og sögðu að hvers konar árás yrði skoðuð sem brot á grundvallar- reglum í gagnkvæmum samskipt- um. , . Þetta er ein skylausasta viðvörun sem Rússar hafa fengið á ráðstefnunni. Beirút, 17. des. At*. KHOMEINI trúarleiðtogi aí- lýsti í dag landsherferð gegn Abolhassan Bani-Sadr forsætis- ráðherra og stuðningsmönnum Útilokar íhlutun í Póllandi París, 17. des. AP. BORIS Ponomarev. ritari í miðstjórn sovézka kommúnistaflokksins, sagði í dag að Rússar hefðu engin áform uppi um ihlutun í innanríkis- mál Póllands að sögn franskra emha'ttismanna. Ponomarev, sem er gest- ur á 60 ára afmæli franska kommúnistaflokksins, átti einnar og hálfrar klukku- stundar einkafund með Jacques Chaban-Delmas, forseta franska þingsins. Ponomarev sagði að Pól- verjar væru nógu þroskað- ir til að leysa mál sín sjálfir. Chaban-Delmas sagði Ponomarev að hvers konar íhlutun Rússa í Póllandi mundi „mölbrjóta détente" (slökun spennu). Hann sagði að annað skilyrði fyrir varðveizlu détente væri brottflutningur Rússa frá Afghanistan. Nýr ráðherra WashinKlon, 17. des. AP. JAMES B. Edwards, fyrrverandi ríkisstjóri í Suður-Karólínu, hefur þegið boð Ronald Reagans næsta forseta um að verða orkuráðherra. Reagan hefur að mestu lokið við að velja menn í stjórn sína. hans til að afstýra nýjum opin- berum árekstrum milli hóf- samra manna og ofsatrúar- manna. Þetta er önnur íhlutun Khom- einis á tæpum sex vikum í valdabaráttu hófsamra stuðn- ingsmanna Bani-Sadr og ofsatrúarmanna. Stuðningsmenn klerka hugð- ust mótmæla herferð, sem hefur verið haldið uppi gegn trúar- ofstækismönnum í nokkrum borgum írans undanfarna daga. Nýjar fréttir um mótmælaað- gerðir gegn klerkum bárust í dag frá Isfahan, Tabriz, Qom og Shiraz, þótt embættismenn bæru þær til baka. Khomeini talaði um þörfþjóð- areiningar í stríðinu við Iraka og sagði að ekki mættí’ leyfa að innbyrðis sundrung írana væri sýnd opinberlega, „jafnvel þótt ég og myndir af mér séu van- virtar". Myndir af Khomeini og arf- taka hans, Ayatollah Hossein Ali Montazeri, hafa verið rifnar niður af veggjum í borginni Hashad. Hua játar á sig stórfelld mistök Peking, 17. des. AP. HUA Guofeng formaður kín- verska kommúnistaflokksins, hefur játað á sig stórfclld mis- tök i stjórnmálum og cfna- hagsmálum og játningin er greinilega undanfari brottvikn- ingar hans að sögn diplómata i dag. Hua sætti ávítum á fundi í aganefnd flokksins í nóvember- lok samkvæmt þessum heimild- um og hann svaraði með meiri- háttar sjálfsgagnrýni, þótt ekki sé vitað um efni hennar. Æðstu leiðtogar flokksins sáust koma til fundar í Peking í gær og fjölmiðlar gerðu mikið veður útaf grein með kröfu um breytingar á flokksforystunni. Ráðherra þeim er fer með mál bygginganefndar ríkisins, Gu Mu hefur verið vikið úr þeirri stöðu, þótt ekki sé vitað hvort hann hafi einnig misst stöðu varaforsætisráðherra og fleiri embætti sem hann hefur gegnt. Þetta fylgir í kjölfar gagnrýni um að Kínverjar eyði meiri fjármunum en þeir hafi efni á til meiriháttar byggingafram- kvæmda. Deng Xiaoping vara- formaður, forvígismaður nú- tímabreytinga í Kína, mun beita sér fyrir brottvikningu Hua til að tryggja að slíkum fram- kvæmdum verði haldið áfram. Sumir telja að Hua hafi sam- þykkt að hætta á næsta ári gegn Hua Guofeng loforði um að nafni hans verði haldið utan við réttarhöldin gegn ekkju Maos og stuðnings- mönnum hennar. Aðrar fréttir herma að hann hafi þegar sagt af sér. JÆótmælum í Iran aflýst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.