Morgunblaðið - 18.12.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
3
Sendiráðsheimsókn nazista-
foringjans tengd fréttum af
stuðningi við Gervasoni
- segir Einar Benediktsson sendiherra
VEGNA fregna um komu lcið-
toga franskra nýnazista i ís-
lenzka sendiráðið í París i fyrra-
da« hefur Einar Benediktsson
sendiherra látið Morgunblaðinu i
té eftirfarandi upplýsingar:
„Marc Frederiksen kom í sendi-
ráðið í gaermorgun til að leita
upplýsinga um það hvort og með
hvaða hætti unnt væri að fá hæli
sem pólitískur flóttamaður á Is-
landi. Rétt er að taka fram að
hann óskaði ekki eftir hæli, heldur
spurði einungis um möguleika á
því. Þessi maður hefur verið for-
sprakki nýnazistahreyfingar, sem
kallar sig FANE (Federation
d’Action Nationale Européenne).
Frederiksen er þekktur fyrir
pólitíska athafnasemi og var í
október sl. dæmdur í átján mán-
aða fangelsi, þar af sex mánuði
óskilorðsbundið. Var hann dæmd-
ur fyrir æsiskrif um kynþáttamál
og fyrir að ala á hatri í garð
Gyðinga og þeldökkra, en einnig
fyrir að æsa til ófriðar gegn
stjórnvöldum hér í landi.
Síðan dómur féll í október hefur
Frederiksen enn orðið uppvís að
lögbrotum, en dómi sínum hefur
hann áfrýjað og verður væntan-
lega dæmt í máli hans í febrúar
nk. Hreyfing hans starfar í tengsl-
um við sambærilega smáflokka í
nágrannalöndunum, sem taldir
eru mjög öfgafullir.
Fréttin um að Frederiksen hefði
komið í sendiráðið í framan-
greindum erindagjörðum hefur
vakið mikla athygli hér í Frakk-
landi. Skýrt var í gær frá atburð-
inum í aðalfréttum sjónvarps-
stöðva og í útvarpi, og einnig í
seinni fréttum. Þá segja öll París-
arblöðin frá málinu í morgun. La
Liberation skýrir frá því að
fréttastofan AFP hafi náð sam-
bandi við foreldra Frederiksens.
Hafi hann að þeirra sögn íhugað
möguleika á því að undanförnu að
komast til útlanda til að flýja
réttvísina og í því sambandi nefnt
Spán, Ítalíu, Belgíu og ísland. Nú
síðdegis hefur Le Monde það hins
vegar eftir lögmanni Frederiksens
að hann ætli ekki að flýja réttvís-
ina, heldur muni hann mæta fyrir
rétti hinn 4. febrúar nk.
Eftir að sá hópur stuðnings-
manna Gervasonis, sem nefnist
O.P. 20 tók íslenzka sendiráðið í
París á sitt vald í síðasta mánuði
og óskaði eftir pólitísku hæli fyrir
sjálfan sig og fleiri, var ákveðið að
lofa þeim, sem þarna voru komnir,
að tjá sig munnlega og skriflega,
en leyfa ekki að setzt væri upp í
sendiráðinu. Fólkið kvaðst ekki
vilja yfirgefa sendiráðið fyrr en
íslenzk stjórnvöld hefðu afgreitt
beiðni þess og þrátt fyrir marg-
ítrekaðar tilraunir til að fá það til
að fara með góðu, þurfti að fá
aðstoð lögreglu til að koma fólkinu
héðan út. Sú ákvörðun var í fullu
samráði við utanríkisráðuneytið
heima, en hér háttar þannig til að
Einar Benediktsson
sendiráðið er ekki starfhæft þegar
svo stór hópur, sem hér var um að
ræða, er hér innandyra.
O.P. 20-hópurinn var með sína
eigin fjölmiðlamenn, sem tóku
myndir af því sem fram fór, og
hópurinn sá sjálfur um að koma
þessu efni í sjónvarp sama kvöld
og atburðurinn átti sér stað. Það
fer því ekki á milli mála að þetta
fólk vildi fyrst og fremst vekja
athygli á þeim möguleika á póli-
tísku hæli á Islandi, fyrir sig og
Gervasoni, sem það virtist telja
fyrir hendi.
Ég tel að þessi fjölmiðlaumfjöll-
un hafi verið mjög óheppileg fyrir
okkur Islendinga og að ekki sé
hægt að álíta annað en að þessi
nazistaforingi hafi fengið hug-
mynd um að koma til Islands
vegna þess stuðnings við Gerva-
soni, sem þarna kom fram. Ég vil
iíka taka fram að margir pólitískir
smáhópar hér í Frakklandi eru
mjög ofbeldisgjarnir og þeir gætu
hæglega fengið þá hugmynd að
lausn þeirra vandamála, þar sem
frönsk stjórnvöld eru hins vegar,
sé fólgin í því að fá pólitískt hæli á
Islandi. Þær hugmyndir stafa að
sjálfsögðu af fáfræði, en geta engu
að síður haft hinar alvarlegustu
afleiðingar fyrir okkur.
Ég vil taka fram að þetta er ekki
persónuleg skoðun mín, heldur
þeirrar deildar Parísarlögreglunn-
ar, sem fjallar um mál af þessu
tagi, eins og m.a. má sjá af því, að
nú hefur í fyrsta skipti í sögu
þessa sendiráðs, mér vitanlega,
verið talið nauðsynlegt að taka
upp sérstaka og mjög stífa örygg-
isgæzlu við sendiráðið. Um þessar
mundir er verið að kanna með
hvaða hætti öryggi sendiráðsins
verði bezt tryggt til frambúðar.
Hættan sem augljóslega er yfir-
vofandi er sú, að þessir hópar, sem
eru til alls líklegir, reyni að beita
valdi til að fá vilja sínum fram-
gengt, s.s. þeim að komast til
Islands sem pólitískir flótta-
menn,“ sagði Einar Benediktsson.
Guðmundur
aðstoðar
Hiibner gegn
Korchnoi
Á LAUGARDAGINN hefst í ít-
ölsku borginni Merano skákein-
vígi stórmeistaranna Viktors
Korchnoi og Róberts Hubners, en
sigurvegarinn i einviginu öðlast
rétt til þess að skora á heimsmeist-
arann Ánatoly Karpov.
Guðmundur Sigurjónsson stór-
meistari verður sem fyrr aðstoðar-
maður Hubners en hann kemst ekki
utan fyrr en 2. janúar, en þá verða
væntanlega búnar nokkrar skákir.
Guðmundur sagði að reynt hefði
verið að fá einvíginu frestað í
nokkra daga en það ekki tekist.
Verðlaunin í mótinu eru 110
þúsund svissneskir frankar, jafn-
virði tæplega 36 milljóna íslenzkra
króna og skiptast þau milli kepp-
enda eftir ákveðnum reglum.
Gott útlit í
samningum
undirmanna
á farskipum
UNDIRMENN á farskipum voru
á sáttafundi með viðsemjendum
sinum útgerðum skipafélaganna
í gærkveldi og var búizt við að
fundurinn stæði eitthvað fram
eftir nóttu. Alls ekki var talið
útilokað, að samningar gætu tek-
izt, að því ér Morgunblaðið hafði
spurnir af. Aðilar unnu i gær að
mestu sjálfir að samningaviðræð-
um og þurfti sáttanefnd lítil
afskipti að hafa af gangi mála.
Þá átti að hefjast sáttafundur
með bensínafgreiðslumönnum í
gærkveldi.
í dag klukkan 16 hefjast sátta-
fundir með leikstjórum hjá sjón-
varpi og útvarpi, en þeir hafa
boðað verkfall. Leikarar hafa um
alllangan tíma verið í verkfalli
gagnvart útvarpi og sjónvarpi, en
nú hafa hafizt viðræður við
menntamálaráðuneytið um kjara-
deilu þeirra. Ekki hefur verið
boðað til sáttafundar með sjó-
mönnum á bátaflotanum, en fund-
ur er boðaður í ríkisverksmiðju-
viðræðunum á föstudag og á þá að
liggja fyrir svar ríkisstjórnarinn-
ar um það, hvort hún heimilar
samninganefnd ríkisins að hefja
viðræður við starfsmennina um
samræmingu samnings við
Grundartangasamninginn.
Gjöfin sem
bjargar (f>\
unglingagjafa-
vandamálinu
vörumerkjunum, ^
sem tryggja
„ekta“ rjj,
kúrekastemmningu wr
c-g svíkja engan
fmtm
L#Pæí Iffi