Morgunblaðið - 18.12.1980, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 18.12.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980 5 Ritnefnd bókarinnar „Konur skrifa“, Anna Sigurðardóttir og forseti Sögufélagsins Einar Laxness voru saman komin á blaðamannafundinum. Talið frá vinstri: Svanlaug Baldursdóttir, Guðrún Gisladóttir, Anna Sigurðardóttir, Einar Laxness og Valborg Bentsdóttir. Ljósm. Emilia. „Létt í röðum ný hljómplata með Skagfirzku söngsveitinni SÍÐASTLIÐINN sunnudag gaf Skagfirzka söngsveitin í Reykja- vík út sína 3. hljómplötu. „Létt i röðum“. Á plötunni eru eingöngu innlend tónverk öðru megin, en erlendar óperur og óperettur á hinni hliðinni. Einsöngvarar með Skagfirzku söngsveitinni nú eru Hjáimtýr Hjálmtýsson, Jón Kristinsson, Margrét Matthías- dóttir, Friðbjörn G. Jónsson og Snæbjörg Snæbjarnardóttir, sem jafnframt er stjórnandi kórsins. Undirleikari er Ólafur Vignir Albertsson. Platan er skorin í New York og pressuð hjá Alfa í Hafnarfirði. „Útgáfa þessarar plötu er aðal- lega í tilefni þess að um þessar mundir á Skagfirzka söngsveitin 10 ára afmæli og einnig í tilefni þess að í júní á næsta ári er ætlunin að fara í söngferðalag til Kanada og Bandaríkjanna og við viljum gjarnan hafa eitthvað með í farangrinum, sem gæti skilið eitthvað meira eftir sig en góðar minningar hjá væntanlegum gestgjöfum," sögðu þau Sigmar Jónsson og Snæbjörg Snæbjarnar- dóttir í samtali við Morgunblaðið. „Þetta er önnur platan sem kórinn gefur út á þessu ári, hin kom út í haust og heitir „Heill þér Drangey," en fyrsta platan kom út 1972 og er nú með öllu ófáanleg. Þessar plötur eru ekki gefnar út til gróða, heldur fyrst og fremst til varðveizlu starfs sveitarinnr. Enn fremur hefur kórinn lagt áherzlu á kynningu skagfirzkrar tónlistar, en plöturnar gefum við út á eigin kostnað," sögðu þau Snæbjörg og Sigmar ennfremur. Ritnefnd bókarinnar skipa þær Svanlaug Baldursdóttir, Valborg Bentsdóttir og Guðrún Gísladótt- ir. Á fundi sem þær héldu með fréttamönnum, ásamt fulltrúum Sögufélagsins, kom það fram að bókin „Konur skrifa" er fyrsta bókin sem skrifuð er hér á landi til heiðurs konu. Upphaflega átti bókin að vera afmælisrit því Anna varð sjötug fyrir þremur árum. En vegna þess að útgáfudagur tafðist var horfið frá því og bókin ekki tengd neinum ákveðnum degi. Anna Sigurðardóttir var aðal- hvatamaður að því að Kvenna- sögusafnið var stofnað í byrjun kvennaárs Sameinuðu þjóðanna árið 1975 og hefur verið forstöðu- maður safnsins frá upphafi. Sigmar Jónsson og Snæbjörg Snæbjarnardóttir með nýju plötuna. Fyrsta íslenska bók in til heiðurs konu Sögufélagið gefur út bókina „Konur skrifa“ til heiðurs Önnu Sigurðardóttur SÖGUFÉLAGIÐ heíur gefið út bokma „Konur skrifa“ tii heiðurs Önnu Sigurðardóttur forstöðu- manni Kvennasögusafns íslands. Tuttugu og tvær konur eiga efni í bókinni, sú yngsta 18 ára og sú elzta á tíræðisaldri. Flestar greinanna eru skrifaðar fyrir Nýr sveitar- stjóri ráð- inn í Garðinn Garði, 17. desember. STEFÁN ó. Jónsson hefir verið ráðinn sveitarstjóri Gerðahrepps frá og með 1. janúar nk. Var hann meðal 8 umsækjenda um starfið og tekur hann við af oddvitanum, Jens Sævari Guð- bergssyni, sem gegnt hefir starfi sveitarstjóra frá 18. september sl. er þáverandi sveitarstjóri Þórður Gíslason lézt. Stefán A. Jónsson er 25 ára gamall og býr í Brattholti 6A í Mosfellssveit. Hann er Samvinnu- skólagenginn, giftur og tveggja barna faðir. Arnór bókina en nokkrar eru eldri. Meðal höfunda má nefna fræði- mennina Elsu E. Guðjónsson og Margréti Guðnadótturr félags- frömuðina Aðalheiði Bjarnfreðs- dóttur, Sigríði Thorlacius og Soffíu Guðmundsdóttur og rithöf- undana Jakobínu Sigurðardótt- ur, Oddnýjar Guðmundsdóttur og Svövu Jakobsdóttur auk fjórtán annarra kvenna. Enn fremur er birt í bókinni ritskrá Önnu Sigurðardóttur og sagt frá því hvað ber á góma í Kvennasögusafninu þegar talið berst að kvennasögu og málum sem tengjast henni. Þrjár sölur NOKKUR fiskiskip lönduðu afla sínum erlendis í gær. Helga Guð- mundsdóttir seldi 89 tonn í Cuxhaven fyrir 49,5 milljónir króna, meðalverð á kíló 555 krón- ur. Drangey seldi 153 tonn í Hull fyrir 121 milljón króna, meðalverð 790 krónur, 2. flokkur. Sólborg seldi 154 tonn í Grimsby fyrir 131,3 milljónir króna, meðalverð á kíló 852 krónur. Kveikt á jólatré í Haf narf irði KVEIKT Á jólatré í Hafnarfirði. Frederiksberg, vinabær Hafnar- fjarðar í Danmörku. hefur fyrir hver jól I rúman aldarfjórðung gefið Hafnarfjarðarbæ veglegt jólatré. Jólatré því sem sent var í ár hefur verið komið upp á Thors- plani við Strandgötu. Ákveðið hefur verið að kveikja á jólatrénu nk. laugardag, þann 20. desember, kl. 16:00. Við athöfnina leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir syngur jóla- lög. Sendifulltrúi Danmerkur, Hans H. Liljenborg, afhendir tréð og dönsk stúlka tendrar ljósin á jólatrénu. Einar I. Halldórsson, bæjarstjóri, veitir trénu viðtöku fyrir hönd Hafnfirðinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.