Morgunblaðið - 18.12.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
13
sendu fyrir því að hægt sé að
stjórna landinu. Um þetta eru
svo deildar meiningar og þær
svo atgerandi, aö þaö eitt gæti
orðið til að Alianca democratica
yrði stofnaö í hættu, að sögn
sérfróðra hjá PSD. Slíkt væri
skaði og gæti haft ófyrirsjáan-
legar afleiöingar. Þar sem Eanes
nýtur ótvíræðs fylgis þjóðarinnar
veröur það að vera skilyrði fyrir
stöðugleika, aö milli forseta og
stjórnar sé ekki meira eöa minna
dulbúinn fjandskapur eða van-
traust. Pinto Balsemao vill bera
klæöi á vopnin. Hann er að allra
dómi lýöræöissinni, vel gefinn og
líklegur til að ná hylli fólks. Hann
er gamansamur og hress í
bragði, spilar golf í frístundum.
Hann hefur sjálfsagt fullan metn-
að til að stjórna en það er
spurning hvort honum veröur
gefinn sá vinnufriður sem þarf.
Hvort þaö reynist honum fjötur
að vera sveigjanlegur og fús aö
sjá fleiri hliðar en eina eða tvær.
Francisco Pinto Balsemao er
fæddur í Lissabon 1. september
1937. Hann er kvæntur og fjög-
urra barna faðir. Hann lauk prófi
í lögum frá Lissabonháskóla,
stundaði um hríö lögfræöistörf.
Hann var einn af stofnendum
dagblaðsins Diario Popular 1961
og vakti fljótlega athygli og þótti
snjall þenni. Ariö 1973 hleypti
hann af stokkunum vikuritinu
Expresso, sem hefur löngu áunn-
ið sér þann sess að vera
merkasta vikurit Portúgals. Hann
hefur verið ritstjóri þess þar til í
janúar 1980. Hann telur að
blaðamennskan hafi gefiö sér
góða undirstöðu og hann er
metnaðarsamur fyrir hönd blaöa-
manna. Hann hefur skrifað
nokkrar bækur einkum um
fréttamennsku og fjölmiðla.
Hann var varaforseti stjórnlaga-
þingsins sem var kjörið 1975 og
var fulltrúi Portúgals á fundum
hjá Atlantshafsbandalaginu og
EFTA. Hann var kjörinn á þing
1979 fyrir Oporto.
Það liggur enn ekki fyrir, hvaöa
ráðherrar muni gegna starfi í
nýrri ríkisstjórn. Margir vonast til
að E Silva fjármálaráðherra —
sem er PSD maöur — verði
áfram, en Miödemókratar hafa
ekki látiö uppskátt um hvaöa
menn þeir hyggjast tilnefna.
Balsemao hefur undanfarna
daga átt marga fundi með Freit-
as do Amaral. Þaö er engum vafa
undirorpiö, að hann leggur sig í
framkróka viö að milda do Amar-
al og reyna að fá hann til
almenns samstarfs þótt það
verði ekki í ríkisstjórn. Þaö verö-
ur Balsemao eiginlega að takast.
Ella er hætt við aö Alianca
democratia, — það bezta sem
orðið hefur í portúgölskum
stjórnmálum í sex ár, liðist smátt
og smátt í sundur.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Á.
millilandagufu-
850 brl. seld-
Fairtry II. Salvesen hvalveiðiféiagið í Leith í Skotlandi
hafði forustu um smíði fyrstu skuttogaranna upp úr I950.
Þeir smíðuðu þá þrjá Fairtry-togara 2000—2500 lestir. þar
sem varpan var dregin inn um rennu í skut. Þessi aðferð
reyndist frábærlega vel og þar með hófst skuttogaraæðið.
þróun Víkingaskipa og Hansa-
kugga, Krossferðasiglingar og
hvernig skipsgerðirnar Karr-
aggi og Karavella þróuðust og
urðu undirstaða hinna miklu
landafundasiglinga Portúgala
og Spánverja.
Lýst er flota- og verslunar-
veldi Feneyja og Genúa, Flotan-
um ósigrandi, flotaveldi Hol-
lendinga, Frakka og Breta. Bar-
áttunni milli Dana og Svía um
flotaforræði á Norðurlöndum.
Þar er rakin þróun hinna miklu
orlogsflota, sem náðu hámarki
með Nelson, en þá gufuskipa og
hvernig seglskipin, klipperarnir
og skonnorturnar, náðu há-
marki að stærð og glæsibrag,
þegar þær kepptu við gufuaflið.
Síðan eru sérstakir þættir um
öll hin risavöxnu hafskip Atl-
antshafsins, ítarlegir kaflar um
allar sjóorustur í báðum heims-
styrjöldum, um þróun kafbáta
og flugmóðurskipa og inn á milli
kaupsiglingasagan um dísilmót-
ora, gufuhverfla og gashverfla
upp í þúsundgrósku hverskyns
sérnotaskipa, hin risavöxnu
olíuskip, tilraunir með kjarn-
orkuskip, skuttogarar, ryk-
sugu-fiskiflotar Rússa og gám-
flutningaskip. Þá koma sérstak-
ir kaflar um herskipaflota nú-
tímans, bandaríska kjarn-
flugmóðurskipið Enterprise,
flotavæðing Rússa, eldflauga-
skip, þyrlumóðurskip, kjarn-
orkukafbátar, en einnig skíða-
skip, svifnökkvar, olíuborpallar,
ísbrjótar og djúpköfunartæki.
Islenska siglingasagan rekur
með sama hætti alla þróunar-
hætti. Sagt er frá þróun ára-
báta, frá skútuöld, mótorbáta-
öld, togaraöld, frá línuveiðurum,
nýsköpunartogurum, Svíþjóðar-
bátum, asdikk og kraftblökk,
skuttogurum, loðnubátum og
svo saga varðskipa, íslenskra og
erlendra farþegaskipa og flutn-
ingaskipa, þróun íslenskrar
stálskipasmíði og nú síðast
plastbátasmíði.
Aftan til í Skipabókinni koma
svo tæknilegar töflur, registur
og nafnaskrár. Bókin er sett í
prentstofu G. Benediktssonar en
prentuð hjá Arnoldo Mondadori
á Italíu.
(Úr fréttatllkynninxu)
AÐEINS MOÐIR
Bókin, AÐEINS MÓÐIR, er skrifuó af
sex barna móóur, sem lýsir á hríf-
andi hátt samskiptum sínum viö
börn og eiginmann. Hann fellur frá í
blóma lífsins og hún stendur ein eftir
með börnin. Hugrenningar og tilfinn-
ingar hennar koma skýrt fram, og
umhyggja hennar fyrir öllu er lýtur
aö heimilislífi og uppeldi barnanna.
Gjöfin handa mömmu...
.... og pabba
Bókaútgáfan MLl
Freyjugötu 27, sími 18188
Kr. 13.400. — Nykr. 134,00