Morgunblaðið - 18.12.1980, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.12.1980, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980 29 Við skiptingu landsins í kjör- dæmi verði þéttbýli og strjálbýli að hafa gagnkvæman skilning á högum og aðstöðu hvors annars. Um kosningar til fjórdungsþinga Staða fjórðungsþinganna þyrfti að vera ákveðin í stjórnarskránni. Fjórðungsþingin ættu að vera kosin beinum, almennum kosning- um. Þau ættu að vera skipuð minnst einum fulltrúa, fjórðungs- þingmanni, fyrir hvert sýslufélag og kaupstað. Tölu þeirra mætti ákveða út frá meðalfjölda kjós- enda í kjördæmum hvers lands- fjórðungs. Kjördæmin eru þessi (tala kjós- enda innan sviga). 1. Til fjórðungsþings Vestfirð- ingafjórðungs: Borgarfjarðarsýsla (909), Akraneskaupstaður (3033), Mýrasýsla (1536), Snæfellsnes- sýsla (2616 j, Dalasýsla (696), Austur-Barðastrandarsýsla (262), Vestur-Barðastrandarsýsla (1185), Vestur-ísafjarðarsýsla (1011),, Bolungarvíkurkaupstaður (707),' ísafjarðarkaupstaður (1997), Norður-ísafjarðarsýsla (322), Strandasýsla (726), alls 12. Alls á kjörskrá 15000 : 12 = 1250. Akra- nes og Snæfellsnessýsla fengju 2 fulltrúa hvort kjördæmi. Full- trúar því alls 14. 2. Til fjórðungsþings Norðlend- ingafjórðungs: Vestur-Húna- vatnssýsla (962), Austur-Húna- vatnssýsla (1543), Sauðárkróks- kaupstaður (1292), Skagafjarðar- sýsla (1414), Siglufjarðarkaup- staður (1326), Ólafsfjarðarkaup- staður (692), Dalvíkurkaupstaður (759), Eyjafjarðarsýsla (1592), Ak- ureyri (8041), Húsavíkurkaupstað- ur (1379), Suður-Þingeyjarsýsla (1832), Norður-Þingeyjarsýsla (1122), alls 12. Á kjörskrá 21954 :12 = 1830. Akureyri fengi 4 fulltrúa. Fulltrúar því alls 15. 3. Til fjórðungsþings Austfirð- ingafjórðungs: Norður-Múlasýsla (1435), Seyðisfjarðarkaupstaður (606), Suður-Múlasýsla (2760), Neskaupstaður (1022), Eskifjarð- arkaupstaður (630), Austur- Skaftafellssýsla (1295). Kjördæmi 6. Á kjörskrá 7748 :6 = 1291. Suður-Múlasýsla fengi 2 fulltrúa. Fulltrúar yrðu 7. 4. Til fjórðungsþings Sunnlend- ingafjórðungs: Vestur-Skafta- fellssýsla (895), Rangárvallasýsla (2139), Selfosskaupstaður (1962), Árnessýsla (3965), Vestmannaeyj- ar (2822), Gullbringusýsla (1602), Grindavíkurkaupstaður (1023), Njarðvíkurkaupstaður (1136), Keflavíkurkaupstaður (3925), Hafnarfjörður (7485), Garðabær (2708), Kópavogskaupstaður (8440), Seltjarnarneskaupstaður (1796), Kjósarsýsla (1924). Kjör- dæmi 14. Á kjörskrá 41822 : 14 = 2987. Hafnarfjörður og Kópavogur fengju 2 fulltrúa hvort kjördæmi. Fulltrúar alls 16. Þetta yrðu eins og myndarlegar sýslunefndir eða sæmilega sóttur þingfundur í Efri deild, nema á Austurlandi. Kæmi til greina að hafa fleiri þar. Athugandi væri, hvort kosn- ingar til fjórðungsþinga ættu að fara fram um leið og alþingiskosn- ingar eða samhliða bæjar- og sveitastjórnarkosningum og eins, hvort kjörtímabil ætti að vera hið sama. Fjórðungsþing kæmu saman til reglulegs þinghalds einu sinni á ári á þingstað fjórðungsins. Þar þyrfti að búa vel að starfsemi þingsins með húsnæði o.fl. Ár- legur þingtími þyrfti ekki að vera mjög langur. Heppilegur þingtími væntanlega að hausti til, strax eftir setningu Alþingis. Svo sem fyrr segir, hugsa ég mér fjórðungsþingin ráðgjafar- þing að því er tekur til löggjafar- atriða í málefnum viðkomandi landsfjórðungs. Fjórðungsþingin mundu beina samþykktum sínum fyrst og fremst til Alþingis. Einn- ig gæti Alþingi leitað álits fjórð- ungsþings um löggjafaratriði í sambandi við þingmál varðandi fjórðunginn eða mál, sem snertu hagsmuni fólks þar sérstaklega. Fjórðungsþingin færu með vald og ákvarðanatöku í ákveðnum málum landsfjórðunganna. í því væri fólgið aðalgildi þeirra fyrir stjórn fjórðunganna og veitti þeim sem stjórnfarslegum heildum visst sjálfstæði innan ríkiskerfis- ins. Þau færu með stjórn í sérmál- um fjórðungsins. Þetta ætti aðal- lega við um stjórn fjármála, fjár- veitingar til opinberra fram- kvæmda og reksturs í þeim lands- hluta, og í því sambandi nauðsyn- leg samskipti við sveitastjórnir, sem aftur mætti haga með ýmsu móti. Alþingi setur þak á fjárlög ríkisins, ákveður ramma þeirra fyrir málaflokka hinna ýmsu ráðuneyta. Síðan úthlutar Alþingi landsfjórðungunum árlega ákveðnu fjármagni af upphæð fjárlaga eftir vissum reglum, sem setja þyrfti með lögum. Einnig kæmi til greina að landsfjórðung- arnir fengju ákveðna tekjustofna, t.d. hluta söluskattsins eða aðra sjálfstæða tekjustofna. Þetta fjár- magn fengju fjórðungsþingin til að leysa þau verkefni og stjórna þeim málefnum, sem þeim yrði falið með lögum að fjalla um og tækju endanlegar ákvarðanir um ráðstöfun þess. Þeir málaflokkar, sem til greina kæmi að fela fjórðungsþingunum að annast, eru t.d. skóla- og fræðslumál, heil- brigðismál, samgöngumál (vega- mál, hafnir, flugvellir), orkumál, vissir þættir atvinnumála, land- búnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar, félagsmál, sveitastjórnarmál í fjórðungnum og almennt þau mál, sem gætu skoðast staðbundin og beinlínis í þágu landshlutans. Fjárhagsáætlanir fyrir þessa málaflokka fyrir hvern lands- fjórðung yrðu svo felldar inn í fjárlög ríkisins við endanlega af- greiðslu fjárlaga á Alþingi. Aftur á móti hefðu fjórðungsþingin ekk- ert með að gera stjórnun „alrík- is“mála, svo sem lögreglu- og dómsmála, tryggingamála o.s.frv. Síðast en ekki sízt ætti fjórð- ungsþingin að hafa alfarið með höndum stjórn byggðamála í fjórðungnum. Það á að leggja Framkvæmdastofnun ríkisins niður og skipta starfsemi hennar að byggðamálum niður á lands- fjórðungana. Restina af starfsem- inni gætu þeir í Seðlabankanum haft í horninu hjá sér. Verkefni, sem lúta að byggðamálum, á að leysa heima í héraði undir stjórn kjörinna fulltrúa fólksins í við- komandi landshluta og ráðunauta þeirra, en ekki undir stjórn „póli- tískra spekúlanta" í höfuðborg- inni. Það er hvort sem er fólkið úti á landsbyggðinni, sem á að verða aðnjótandi þess, sem að er stefnt með stuðningi við byggðaþróun út um landið. Til þessara mála ætti Alþingi að ráðstafa árlega ákveð- inni prósentutölu af upphæð fjár- laga og skipta niður á landshlut- ana. Síðan veldur hver á heldur. Öll þessi störf ættu hin kjörnu fjórðungsþing að vinna í nánu samstarfi við sveitastjórnir í fjórðungunum, forystumenn byggðarlaganna og frammámenn í atvinnulífinu. Ég hugsa mér, að fjórðungsþingin í þessari mynd tækju við af því byrjunarstarfi, sem samtök sveitarfélaga í kjör- dæmum landsins hafa þegar unnið í þessa átt með árlegum þinghöld- um og margvíslegri starfsemi í þágu byggðarlaganna, m.a. í sam- starfi við alþingismenn kjördæm- anna. Það er hvort sem er óhjá- kvæmilegt, ef í alvöru er ætlunin að flytja vald í héraðsmálum út á land, eins og ég hef rætt hér að framan, að með það vald fari stofnun, sem kosið er til í almenn- um kosningum, þ.e. sækir umboð sitt til kjósenda. Ljóst er, að landsfjórðungarnir þyrftu á að halda ákveðinni fram- kvæmdastjórn fyrir þau verkefni, sem fjórðungsþingin mundu ann- ast, líkt og gerist nú hjá kjör- dæmasamtökum sveitarfélaganna. Nú kann einhver að segja sem svo, að með þessu væri aðeins verið að bæta óþarfa millilið inn í stjórnkerfið. Svo er ekki að mínu áliti. Fjórðungsþing og sjálfstæði landsfjórðunganna er eitt brýn- asta mál fyrir hinar dreifðu byggðir landsins um ókomna framtíð. Ef horfið yrði að því að taka upp Ur brotnu mælikeri einmenningskjördæmi og fækka alþingismönnum, þá mundi sú fækkun lenda fyrst og fremst á kjördæmum vestanlands, norðan- lands og austanlands. Ég hugsa mér fjórðungsþingin sem mótvægi gegn því og um leið sem lið í dreifingu hins pólitíska valds í landinu. Með fjórðungsþingunum fengju fámennu umdæmin úti á Iandi, sem einu sinni voru sérstök kjördæmi, til Alþingis, kjörinn fulltrúa á fjórðungsþing, sem færi með flest þau héraðsmál, sem mestu máli skiptu fyrir fólkið í þessum byggðarlögum. Jafnframt mundi þungu fargi vera létt af alþingismönnum, sem þá þyrftu ekki bráðnauðsynlega að sitja í nánast hverri nefnd eða ráði sem hefur með úthlutun peninga að gera, heldur gætu þeir af því meiri djörfung og snerpu einbeitt sér að sjálfu löggjafarstarfinu á hinu háa Alþingi og æðstu stjórn lands- ins. Það er hlutverk þeirra nr. 1. Alkunna er að undanfarin ár hefur verið til umræðu að lögfesta landshlutasamtök sveitarfélaga í stjórnkerfinu. Ég er á móti því. Ég tel að þessi lausn eigi að koma í staðinn og þá sem stjórnarskrár- ákveðin skipan., Sveitastjórnar- menn og forystumenn um málefni landsbyggðarinnar eiga að knýja á um þetta mál einmitt nú í sam- bandi við endurskoðun stjórn- arskrárinnar. Hugmyndir um sameiningu sveitarfélaga virðast ekki vera raunhæfar, eins og nú standa sakir. Nær væri að breyta skipan sýslunefnda á þann veg, að þar ættu sæti oddvitar hreppanna í viðkomandi sýslu. Þannig gætu sýslunefndir orðið heppilegur vettvangur fyrir samstarf sveitar- félaga á breiðari grundvelli. Þegar ég átti sæti á Alþingi um skeið árið 1975 hreyfði ég þessu máli í þingræðu. Síðan hefi ég sannfærst betur um að þetta er sú lausn, sem ber að koma á jafnhliða endur- skoðun á verkefnum sýslunefnda. Ekki geri ég ráð fyrir að alþing- ismenn, margir hverjir, verði hrifnir af þessum hugleiðingum mínum, sérstaklega þessu með fækkun alþingismanna og dreif- ingu valdsins. Verði niðurstaðan í stjórnarskrárnefnd sú að viðhalda beri núverandi kjördæmaskipan og fjölga alþingismönnum, þá verða kjördæmin úti á lands- byggðinni auðvitað að halda nú- verandi þingmannafjölda. En hollt er að hafa í huga, að reynslan hefur sýnt, að byggða- þróun í fámennum landshlutum nærist ekki á þingmannatölunni einni saman, fremur en maðurinn lifir á brauðinu einu saman. Patreksfirði, 10. desember 1980, Jóhannes Árnason Gísli K. Sigurkarlsson: Af sjálfsvígum. Útgefandi: Skákprent 1980. Af sjálfsvígum er frumraun Gísla K. Sigurkarlssonar á sviði skáldskapar og ber þess víða merki. Aftur á móti má finna í bókinni ljóð og lóðabrot sem verða að teljast gildur skáldskapur þótt oft vanti herslumun á að svo sé. Um fund sinn við skáldskapinn yrkir Gísli til dæmis: „Úr brotnu mælikeri/hrynja orð þín/sem dögg/á jökul myrkursins". Grindavík er að mörgu leyti athyglisvert ljóð. En það hefur marga ókosti þyrjandans, orðalag Bókmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON eins og til að mynda: „Þakklátt er barðið/þekkir mitt skóhljóð" og „Á mjúklitt hraunið/mosinn breiðir". Hér er um of gælt við stuðlasetningu. Loðmundarfjörður er ljóð þar sem óþjál málbeiting spiliir fyrir „ ... sem daglengis plægðu hlustir/ manns og svarðar". Mannskepna er líka ákaflega varasamt orð í alvörugefnu ljóði. Það fer betur í ræðu. En Gísli K. Sigurkarlsson veit að það er „nánast fráleitt að yrkja handa einhverri stétt/og allra síst gagnrýnispáfum". Hann spyr í háði: „Hvaðan er sprottið það taumlausa tjáningaræði,/sem tryllir mig eins og fleiri til hamslausrar iðju?“ Eiginlega er Af sjálfsvígum vitnisburður um hneigð greinds manns til að tjá sig í ljóði. Hann virðist meðvitaður um það sem hann er að gera og ekki hátíðlegur að marki. Meira að segja lætur hann eftir sér að birta vond kvæði eins og Trunt trunt og tröllin í fjöllunum ... Þar lætur höfundur- inn mælskuna hlaupa með sig í gönur. En í ljóði sem líka er mælskt (þótt með öðrum mætti sé) og samnefnt er bókinni fer allt betur: Ekki án eftirsjár ekki án trexa rísa krossarnir. Kaldrifjuð fósturlát huKans bera moldarkeim þunKhærra kviksetnin^a likt ok bráóapest hafi Keisað. Kolbrandurinn á vænan akur af höfudsverði. ÞaÖ er gaman að ákefð þessa ljóðs, eðlilegri retórík þess: Liflíkur vísindanna orméta tré syrKjendanna klökkar Krátkonur Krunlausar um vitræna athöfn. aö úthella hjörtum sínum veKna hinna dauöu. Gisli K. Sigurkarlsson Leik að orðum mætti kalla margt af þvi sem Gísli M. Sigur- karlsson setur í ljóðlínur. Þessi bók er síður en svo gallalaus, en upprunaleg er hún að mörgu leyti og það bjargar lesandanum frá að lesa hana án mannskæðs geispa. • • Kr. 7.905.—Nykr. 79,05 FJORULALLI í bókinni FJÖRULALLI, eftir Jón Við- ar Guðlaugsson, kynnist lesandinn lífi og hugarheimi ,,dæmigeröra“ ís- lenskra drengja og fær aö fylgjast meö nokkrum spaugilegum uppá- tækjum þeirra. FJÖRULALLI á heima á Akureyri. Hann er uppnefndur þessu nafni af því að hann á heima í bæjarhluta, sem kallast Fjaran. Hann er hálf- geróur kramaraumingi, en finnur upp á ýmsu til aö bjarga sér, og oft verö- ur útkoman hin spaugilegasta. Ef hláturinn lengir lífið, á FJÖRULALLI eflaust eftir að lengja líf margra. íslensk gamansaga.skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Bókaútgáfan bálZ Freyjugötu 27, sími 18188

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.