Morgunblaðið - 18.12.1980, Síða 32
Síminn á afgreióslunni er
83033
JMargnnbtabifc
Demantur mz
æðstur éðalsteina -
#ttU & é*tlftir
Laugavegi 35
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
Tillögur Hafrannsóknarstofnunar fyrir næsta ár:
Þorskafli fari
ekki yfir 400
þúsund tonn
FISKIFRÆÐINGAR hafa mælzt til,
að þorskafli fari okki yfir 400
þúsund tonn á næsta ári. A fundi
moð sjávarútvegsráðhcrra og hags-
munaaðiium i gærmorgun greindu
fiskifræðingar frá tillogum sinum
og rætt var um þrjá valkosti í
upphyggingu þorskstofnsins miðað
við 350. 400 og 450 þúsund tonna
þorskafla á ári.
Sjávarútvegsráðherra mun í dag
kynna fiskveiðistefnu næsta árs, en
búist er við að í henni verði
takmarkanir miðað við að halda
þorskaflanum við 400 þúsund tonna
mörkin. Ekki er mikill ágreiningur
um framkvæmd fiskistefnunnar, en
áfram verður stuðst við „skrapdaga-
kerfið“ hjá togurunum og árinu
verður skipt í þrjú fjögurra mánaða
tímabil bæði hjá bátum og togurum.
Búast má við, að miðað verði við
jafna skiptingu þorskafla milli báta
og togara, en ef loðnuskipin fá
hlutdeild í þorskveiðinni gæti sú
mynd raskast.
Fiskifræðingar lögðu til að árið
1979 færi þorskafli ekki yfir 250
þúsund tonn, en það ár varð þorsk-
afli á Islandsmiðum 367 þúsund
tonn. Fyrir árið 1980 lögðu fiski-
fræðingar til, að þorskaflinn færi
ekki yfir 300 þúsund tonn, en nú
bendir allt til, að hann verði um eða
yfir 420 þúsund tonn. í samtali við
Morgunblaðið í gær sagði Jón Jóns-
son, forstjóri Hafrannsóknarstofn-
unar, að friðunaraðgerðir undanfar-
inna ára hefðu haft mikil áhrif til
stækkunar á stofninum, göngur
þorsks frá Grænlandi á síðustu
vetrarvertíð hefðu einnig stækkað
stofninn og ýmis önnur atriði ykju
nú bjartsýni fiskifræðinga. — Við
höfum reynt að vera hógværir og
íhaldssamir í tillögum okkar, en í
raun má segja, að við höfum ekki
reiknað með þeirri aukningu í stofn-
inum, sem orðið hefur, sagði Jón
Jónsson.
Sjá nánar blaðsiðu 16. vlðtal við Jón
Jónaaon.
Alþjóðasamtök báxítframleiðenda:
Súrálsverð 1981 verði
16—19% af álverðinu
Súrálsverðið nú 14—16%, segir þekkt fagrit í málmiðnaði
ALbJÓÐASAMTÖK báxít-
framleiðenda, IHA, hafa lagt
til að verð súráls á árinu 1981
verði hækkað í 16 — 19% af
álverði, að því er segir í
nýútkomnu tölublaði af „Met-
al Bulletin“, sem er þekkt
fagrit i málmiðnaði. í hlaðinu
kemur ennfremur fram. að
súrálsverð nú sé um 14—16%
af álverði.
„Metal Bulletin" segir, að þrátt
fyrir þessa tillögu hafi samtökin
gert sér grein fyrir því, að núver-
andi markaðsaðstæður bendi til
súrálsverðs á bilinu 15—18% af
álverði.
Samkvæmt upplýsingum Ragn-
ars Halldórssonar, forstjóra ísal í
Morgunblaðinu í gær er súráls-
verð það, sem ísal greiðir nú um
12—13% af álverði. I ræðu Kjart-
ans Jóhannssonar á Alþingi í gær
kom fram, að við gerð álsamnings-
ins hefði verið miðað vjð að
súrálsverðið yrði um 14% af
álverði en það hefði farið yfir nær
16% á árinu 1974.
í nýútkomnu tölublaði annars
fagrits í málmiðnaði, „Metals
Week“, kemúr fram, að álver í
Venezúela, sem hefur neitað að
greiða hærra verð fyrir súrál en
13% af álverði munu hugsanlega
verða að loka, þar sem seljendur
súráls krefjist hærra verðs og hafi
lagt til 15% fyrir þetta ár og
15,5% fyrir næsta ár.
Umræður um súrálsmálið á Alþingi:
„Svör Hjörleifs eru mögur“
- sagði Kjartan Jóhannsson
ALLMIKLAR umræ-ður spunn-
ust utan dagskrár á Alþingi í
gær um súrálsmálið. Kjartan
Jóhannsson. alþingismaður og
formaður Alþýðuflokksins
krafði þar Iljorleif Guttormsson
frekari uppíýsinga um þetta
mál, þar sem hann taldi þær
upplýsingar. sem iðnaðarráð-
herra hefði hirt og ætiaði að nota
til að sækja mál gegn Alusuissc
ekki nægar. þar sem aðalsamn-
ingurinn við Alusuisse gerði ráð
fyrir viðmiðun við markaðsverð
milli óskyldra aðila. Gunnar
Thoroddsen forsætisráðhcrra
upplýsti að þær breytingar, sem
gerðar hefðu verið á samningun-
um við Alusuisse 1975 hefði: fært
íslendingum 8 milljarða króna i
auknar tekjur af raforkusölu til
ÍSALs.
Hjörleifur Guttormsson svaraði
fyrirspurnum Kjartans og voru
þær mjög á þann veg, sem áður
hafa komið fram í Morgunblað-
inu, af blaðamannafundi ráðherr-
ans í fyrradag. Kjartan Jóhanns-
son sagði er hann tók aftur til
máls og ráðherrann hafði svarað,
að svör Hjörleifs Guttormssonar
hefðu verið mögur og kvaðst hann
vona að ráðherrann hefði mikil-
vægari gögn í fórum sínum, því að
hafi samningar verið sviknir verði
að taka á því máli með einurð og
festu, en ef hér væri um vindhögg
að ræða, þyrfti líka ýmislegs að
spyrja, þar sem málflutningur
ráðherrans gæti þá reynzt Islend-
ingum á margan hátt skaðlegur.
Eyjólfur Konráð Jónsson tók
einnig til máls og gagnrýndi, að
iðnaðarráðherra skyldi halda
blaðamannafund í fyrradag á
sama tíma og á dagskrá þingsins
hafi verið iðnaðarstefna, stefnu-
mörkun í stóriðjumálum og fyrir-
spurn um Blönduvirkjun. Þetta
hefði ekki fengizt rætt, þar sem
ráðherrann hefði haft öðrum
hnöppum að hneppa, að halda
blaðamannafund um efni, sem
Alþingi hefði ekki verið gerð grein
fyrir. Hann kvað ræðu ráðherrans
ekki hafa aukið á þær upplýs-
ingar, sem ráðherrann hefði gefið
fréttamönnum eða skýrt efnisat-
riði málsins frekar. Kvað Eyjólfur
þingmenn eiga kröfu á að ráð-
herra gerði gleggri grein fyrir
öllum sínum málatilbúnaði. Ef,
sagði Eyjólfur og lagði áherzlu á
það orð, hér er um samningsbrot
að ræða þarf að taka á því máli
með samhug og festu, en ráðherra
þyrfti að tengja betur saman
málsatriði og fullnægja upplýs-
ingaskyldu til þingsins betur.
Sjá nánari fráaóKn af umræóunum á
Alþinid á þinKsióu blaósins I daK <>K
ummæli Geirs HallKrimssonar <>K Stein-
Krims Hermannssonar bls. 2.
Háhyrningur
til Spánar
EINN háhyrninganna fimm. sem
undanfarið hafa verið í laug Sæ-
dýrasafnsins, var í nótt fluttur til
kaupenda í Barcelona á Spáni.
Flugvél frá íscargó flutti háhyrn-
inginn til Spánar og á heimleiðinni
verður komið við í Prestwick á
Skotlandi þar sem teknir verða um
Iborð refir 1 islenzkt refabú.
Ekki er enn vitað hvað verður um
háhyrningana, sem eftir eru í Sæ-
dýrasafninu, en líkur eru á að
einhverjir þeirra eða jafnvel allir
fari til Vancouver í Kanada. .
Skipverji
keypti matvæli
fyrir eina
milljón
TOLLGÆZLAN hefur að undan-
förnu fylgzt mjög náið með íslenzk-
um fiskiskipum. sem hafa verið að
koma úr söluferðum erlendis frá og
þessu eftirliti verður haldið áfram,
að sögn Kristins Ólafssonar toll-
gæzlustjóra.
Tollgæzlustjóri sagði að nýlega
hefði verið gerð nákvæm skoðun í
fimm bátum á Hornafirði, sem voru
að koma úr söluferð. Lítið hefði
fundizt af smyglvarningi um borð en
athygli hefðu vakið gífurleg mat-
vælakaup skipverja. Kvað Kristinn
dæmi þess að einn og sami skipverj-
inn hefði keypt matvæli fyrir eina
milljón króna í einni söluferð.
Heimilt er að koma með matvæli
fyrir allt að 15 þúsund krónum en
það sem umfram er og framvísað er
við tollgæzlu þarf að greiða af toll.
Hrátt kjöt er gert upptækt, enda
bannað að flytja það inn í landið og
sömuleiðis eru matvæli gerð upptæk
ef reynt er að fela þau og smygla inn
í landið. Liggja sektir við slíkum
brotum eins og öllum smyglbrotum.
Kristinn sagði að um síðustu helgi
hefði hald verið lagt á tugi kílóa af
hráu kjöti um borð í togara, sem
kom frá útlöndum. Var aðallega um
að ræða kjúklinga.
Vont veður
VONZKUVEÐUR var um allt norð-
anvert landið í gær og vindur allt
upp i 11 vindstig af norðri á
veðurmælingastöðvum. Sunnan-
lands var skaplegra veður, en þó
harðir vindstrengir víða og nokkur
skafrenningur. 1 dag er spáð áfram-
haldandi norðanátt, en þó minnk-
andi, búast má við éljagangi nyrðra.
Flugfélag íslands gat aðeins farið í
fjórar af áætlunarferðum sínum í
gær og varð félagið að fella niður 9
flug, sem voru á áætlun. Þá féllu allar
áætlunarferðir Arnarflugs niður
vegna dimmviðris og vindhæðar.
Hjá Vegagerðinni fengust þær upp-
lýsingar í gær að færð hefði víða
verið erfið vestanlands og á Norður-
landi. Á Austfjörðum var fært með
ströndum, en af Suðurlandi voru þær
fréttir að greiðfært var til Víkur í
Mýrdal, þungfært um Mýrdalssand,
en litlar fréttir var að hafa af færð
austar á Suðurlandi vegna sam-
bandsleysis.