Morgunblaðið - 18.12.1980, Side 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
Lúðvík Friðriksson:
Æ'
Askorun um
niðurfellingu
flugvallarskatts
- fælir ferðamenn frá landinu
Hvar á varavöll-
ur fyrir milli-
landaflug að vera?
Bæjarstjórn Húsavíkur vill flýta
framkvæmdum við Húsavíkurvöll
Husavik, 11. desember.
í DAG eru 23 ár síðan Flugfélag íslands hóf farþegaflug
til Húsavíkur og Húsavíkurflugvöllur var formlega
opnaður. Með tilkomu vallarins breyttist margt og
einangrun staðarins hvarf, því þá fóru blöð og póstur að
berast mjög ört, en ekki eins og áður að Morgunblaðið
barst jafnvel tveggja vikna gamalt.
Síðast liðið vor fréttist hingað
til Ameríku að Alþingi hefði
hækkað flugvallarskatt á Islandi í
kr. 8.800. Mörgum þótti þessar
fréttir slæmar því þessi skattur,
sem er líklega hæsti flugvallar-
skattur í heiminum, er ekki til
þess fallinn að laða ferðamenn til
Islands. Ég veit um fjölda fólks
hér í Bandaríkjunum sem hefur
beinlínis hætt við íslandsferð þeg-
ar það frétti um flugvallarskatt-
inn. Að sjálfsögðu gefur þessi
skattur væntanlegum ferðmanni
vísbendingu um hina hrikalegu
skattpíningu sem viðgengst á Is-
landi.
Við Islendingar sem erum bú-
settir hér í Ameríku viljum að
sjálfsögðu hafa sem flestar ferðir
á milli íslands og Bandaríkjanna
og erum mjög óhressir yfir við-
leitni íslenskra yfirvalda að draga
úr ferðamannastraumi til Islands
með óhóflegri skattpíningu.
Mjög lítið er um að skipulagðar
ferðir til íslands séu auglýstar hér
í Bandaríkjunum og reyndar er
lítil áhersla lögð á að bjóða ferðir
héðan til Islands nema í sambandi
við Atlantshafsflug Flugleiða þ.e.
a.s. 1, 2 eða 3 daga stopp í
Reykjavík.
Þegar litið er á það sem gert
hefur verið undanfarin ár hér í
Bandaríkjunum til að laða ferða-
menn til íslands, þá sýnist mér
sem frekar lítið hafi verið aðhafst
og á ég þar bæði við Flugleiðir og
íslensk ferðamálayfirvöld. Stund-
um flögrar sú hugsun að mér að
það sé stefna íslenska ríkisins að
fæla ferðamenn frá íslandi með
óhóflegum sköttum.
Almennt vill fólk að íslensk
ferðamálayfirvöld g fyrirtæki i
ferðaiðnaði reyni að laða ferða-
menn til íslands til að eyða öllu
sínu fríi þar. Þess í stað er stuðlað
að því að ferðamenn sem koma til
íslands hafi aðeins stutta viðkomu
á leið sinni eitthvert annað vegna
mismununar í flugvallarskatti.
Ferðamenn, sem eru flokkaðir
sem „stop-over“-farþegar greiða
engan flugvallarskatt meðan allir
aðrir þurfa að greiða skattinn.
„Stop-over“-farþegi er hver sá
sem heldur ferð sinni áfram frá
íslandi í aðra átt en komið var úr.
Á þennan hátt þarf ferðamaður
sem kemur til íslands og fer síðan
til baka sömu leið að greiða fullan
flugvallarskatt á meðan ferða-
maður á leið frá Bandaríkjunum
til Evrópu þarf ekki að greiða
neinn skatt og skiptir ekki máli
hvort dvalið er á íslandi í 1 dag
eða 11 mánuði.
Þegar alþingismenn ætla sér að
auka tekjur af ferðamönnum, þá
er eina ráðið sem þeir finna að
skattieggja hvern ferðamann sem
kemur til Islands. Þetta er að
sjálfsögðu röng aðferð. Nær væri
að fella niður skattinn og hefja
auglýsingaherferð á skipulögðum
ferðum til íslands, því hver er-
lendur ferðamaður, sem kemur til
íslands skilar af sér miklu meiru í
öðrum sköttum (t.d. söluskatti) en
sem nemur flugvallarskattinum.
íslensk stjórnvöld hafa valið
snarvitlausar leiðir til að laða
Lúðvik Friðriksson
ferðamenn til íslands enda hefur
afleiðingin komið í ljós í minnk-
andi fjölda ferðamanna til ís-
lands.
Það væri gaman að vita í hvað
tekjum ríkisins af þessum flug-
vallarskatti er varið. Þessum tekj-
um er ekki eytt í Keflavíkurflug-
völl því kostnaður af rekstrinum á
Keflavíkurflugvelli er greiddur af
bandaríska ríkinu. Hinsvegar er
meirihluti tekna ríkisins af flug-
vallarskattinum fenginn frá far-
þegum sem fara um Keflavíkur-
flugvöll. Til viðbótar þessu hirðir
íslenska ríkið laglega fjárfúlgu í
lendingargjöld á Keflavikurflug-
velli án þess að kosta nokkru til
við rekstur flugvallarins.
Það er lágmarkskrafa að íslensk
stjórnvöld hætti að líta á ferða-
menn, sem ótakmarkaða upp-
sprettu skatttekna en reyni þess í
stað að laða ferðamenn til íslands
á skynsamlegan hátt. Ég er sann-
færður að þessi óhóflega skatt-
lagning á stóran þátt í því hversu
fáir ferðamenn koma til íslands.
Ég skora á Alþingi að fella þennan
flugvallarskatt niður og gera
þannig öllum ferðamönnum sem
koma til Islands jafnt undir höfði.
Lúðvik Friðriksson,
Schaumburg, Illinois,
U.S.A.
Með árunum hefur þjónusta
Flugleiða þróast eðlilega og ferð-
ir hingað yfir sumarið verið níu á
viku og 5 yfir vetrarmánuðina.
En Húsvíkingum finnst Húsavík-
urflugvöllur vera afskiptur með
fjárveitingar til vallargerðar
miðað við aðra sambærilega
staði, því um völlinn fara um 15
þúsund farþegar þetta árið. Þetta
er aðalsamgönguleið til höfuð-
staðarins, sem margt þarf að
sækja til. Bæjarstjórn gerði á
fundi nú nýlega svohljóðandi
ályktun:
„Bæjarstjórn Húsavíkur skor-
ar á flugmálayfirvöld að flýta
framkvæmdum við Húsavíkur-
völl og auk fjárveitingar til
þeirra framkvæmda. Jafnframt
skorar bæjarstjórn Húsavíkur á
alþingismenn kjördæmisins að
fylgja fast eftir auknum fram-
kvæmdum við flugvöllinn og að
þeir beiti sér fyrir fjárframlögum
til framkvæmdanna. Þá minnir
bæjarstjórn Húsavíkur á yfirlýs-
ingar margra sérfróðra manna
um ágæti og hagkvæmni Húsa-
víkurflugvallar, sem varaflug-
vallar fyrir millilandaflug, bæði
hvað varðar aðflugsaðstöðu, veð-
urfar og framkvæmdakostnað,
auk hinnar ágætu aðstöðu Húsa-
víkur til móttöku ferðamanna.
Bæjarstjórn Húsavíkur skorar
því á flugmálayfirvöld og við-
komandi stjórnvöld að fá hiut-
lausa erlenda aðila til að meta
hvar á landinu séu beztu aðstæð-
ur fyrir alþjóðlegan varaflugvöll,
sem svari ítrustu alþjóðlegum
kröfum."
Bæjarstjórn og héraðsbúum
finnst að Húsavíkurflugvöllur
hafi of lítið komið inn í umræður
um byggingu varaflugvallar fyrir
millilandaflug og telja að Húsa-
vík hafi marga kosti fram yfir
nefnda staði í því sambandi, svo
sem góð skilyrði til byggingar
þverbrautar til lendingar í suð-
vestanátt en sú braut er ekk' til á
Norðurlandi, aðflugsskilyrði sér-
staklega góð, bygging vállar
hvergi ódýrari og þegar völlurinn
var fyrst byggður treysti fleg-
málastjórn sér land fyrir 3 þús-
und metra flugbraut með tilliti
til millilandaflugs.
Bæjarstjórn Húsavíkur telur
að héraðssjónarmið í fjárveiting-
um til flugvalla hafi ráðið of
miklu, en ekki tekið nóg tillit til
umferðar og aðstæðna við bygg-
ingar.
— Fréttaritari
2. umferð Ólympíumótsins:
íslenska sveitin hefndi
óf ara sinna í Buenos Aires
ÞAÐ VAR ekki laust við að
meðlimum islensku skáksveit-
arinnar á Möltu brygði nokkuð
í brún er þeir fengu þær fregnir
að andstæðingar þeirra í ann-
arri umferð yrðu frá kínverska
alþýðulýðveldinu. Okkur var
nefnilega enn í fersku minni
frægasta tap íslenskrar sveitar
á Ólympíumótum fyrr og síðar,
er við töpuðum 3—1 fyrir Kín-
verjum í fyrstu umferð Ólymp-
íuskákmótsins i Buenos Aires. í
það sinn féllum við í þá gryfju
að vanmeta andstæðingana
meira en góðu hófi gegndi, en
nú vorum við auðvitað reynsl-
unni ríkari.
Sveitin mætti siðan til keppni
harðákveðin i að láta ekki
góðar stöður fara til spillis eins
og um árið, og það tókst vonum
framar. þvi nú var komið að
Kínverjum að vera seinheppnir.
Helgi — Liu 1—0
Jón — Jingxuan 'k — 'k
Margeir — Jinrong 1—0
Jóhann — Zunian 1—0
Á fyrsta og þriðja borði, þar
sem við höfðum hvítt, réðust
úrslitin nærri strax í byrjuninni,
sérstaklega varð andstæðingur
Helga illa úti:.
Hvítt: Helgi Ölafsson
Svart: Liu Wenzhe
Kóngsindversk vörn
1.RÍ3 - c5, 2. c4 - Rf6,3. Rc3
— g6. 4. d4 - Bg7, 5. e4 - d6,
6. Be2 — 0-0, 7. 0-0 (Liu Wenzhe
fékk einnig upp þessa stöðu á
síðasta Ólympíumóti í viðureign
sinni við Island. Þá tefldi hann
við undirritaðan og lék 7. —
cxd4. Hann vann síðan skákina,
en það var ekki byrjuninni að
þakka, því að hann var um tíma
tveimur peðum undir. Nú hefur
hann annan hátt á:)
— Ra6, 8. d5 — e6, 9. dxe6 —
Bxe6 (Drottningarriddari svarts
stendur nú heldur afkáralega á
a6. Það hefði þar af leiðandi
verið betra að bíða með að opna
taflið og leika í stað þess 8. —
Rc7)
10. BÍ4 - Da5, 11. Rd2 (Ef
hvítur hefði tekið peðið á d6
hefði svartur náð mótspili eftir
d-línunni.)
— Hfd8, 12. a3 — Rc7 (Þarna á
riddarinn heldur enga framtíð
fyrir sér, en erfitt var að finna
haldgóða áætlun. Til greina kom
12. — Hac8, og síðan Rb8 — c6,
en hvítur er þá auðvitað orðinn
langt á undan.)
13. Dc2 - Rg4?, 14. Rd5! (Nú
þegar getur svarta staðan talist
svo gott sem töpuð vegna hótun-
arinnar b2 — b4.)
— Re8, 15. b4 — cxb4,16. axb4
— Dxal, 17. Hxal — Bxal
(í þessari stöðu hefur svartur
e.t.v. talið sig vera búinn að
rétta úr kútnum, því hann hefur
tvo hróka fyrir drottningu. Hvít-
ur á hins vegar heldur óþægi-
legan glaðning í pokahorninu:)
18. Ddl! - Bg7 (Ef 18. - Bxd5
þá 19. Bxg4!, en ekki 19. cxd5 —
Bc5)
19. Bxg4 og hvítur vann auð-
veldlega.
Á þriðja borði töpuðu Kínverj-
arnir einnig fljótlega, en á hin-
um borðunum þar sem þeir
höfðu hvítt virtust þeir standa
betur. Jón átti í höggi við þann
Kínverjanna sem þekktastur er,
Jingxuan, en hann hefur lagt
bæði Bent Larsen og Gligoric að
velli. í skák þeirra virtist Kín-
verjinn hafa nokkra pressu, en
rétt fyrir bið urðu mikil upp-
skipti og eftir að báðar sveitir
hföðu athugað biðskákina var
samið jafntefli.
Á fjórða borði virtist Jóhann
Hjartarson lengst af eiga í vök
að verjast, en hann varðist vel.
Er jafntefli virtist blasa við í
tímahraki gerðist Zunian þó
heldur veiðibráður, því hann lét
Jóhann loka inni hjá sér riddara,
sem hafði seilst allt of langt.
Af öðrum sveitum var það að
segja að sterkustu þjoðirnar
voru ekki enn byrjaðar að mæt-
ast, þannig að fátt varð, um
athyglisverðar skákir. Enn vakti
öryggi Ungverjanna athygli, en
þeir sigruðu Norðmenn 3'k — 'k.
Þeir voru þar með komnir í efsta
sætið með l'k v. ásamt Svíum
sem unnu Ný-Sjálendinga stórt.
Islendingar komu síðan ásamt
fjölmörgum öðrum sveitum í
þriðja sæti með sjö vinninga.
Svo sem kom fram í þættinum
á sunnudaginn komu Japanir á
óvart í fyrstu umferð, en nú
fengu þeir enga miskunn. Þessi
skák kennir okkur að horfa á allt
borið í einu, en ekki aðeins lítinn
hluta þess:
Skák
eftir Margeir
Pétursson
Hvítt: Schumacher (Belgfu)
Svart: Sugimoto (Japan)
Drottningarpeðsbyrjun
1. d4 - RÍ6,2. Rf3 - e6, 3. Bg5
- d5, 4. e3 - Be7, 5. Bd3 -
Rbd7, 6. Rbd2 - b6. 7. c3 -
Bb7, 8. Da4 - c6. 9. 0-0 - 04),
10. Re5 - Rxe5??, 11. dxe5 -
Rd7 (11. — Rh5, var skárri
kostur en bjargar samt ekki
manninum, því að hvítur getur
leikið 12. Bxe7 — Dxe7,13. g4 —
Dg5, 14. Khl - b5, 15. Ddl.
Svörtum virðist gjörsamlega
hafa yfirsést opnun langlínunn-
ar fyrir hvítu drottninguna sem
leggur nú land undir fót:)
12. Dh4! og svartur gafst upp.