Morgunblaðið - 18.12.1980, Blaðsíða 21
53
-----------—•-----------------------
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
íslenskar
skáldsösrur
Haustvika
Verð kr. 15.900.-. Nýkr. 159.00.
Fyrsta skáldsaga Áslaugar Ragn-
ars. Sagan um Sif Benediktsdótt-
ur, sem stendur frammi fyrir
óvæntum atburðum og þarf að
takast á við bæði sjálfa sig og
aðra. Sagan gerist í Reykjavík
haustið 1980, en þaðan opnast
leiðir til annarra átta.
Dægurlagasöngkonan
dregur sig í hlé
Verð kr. 14.800.-. Nýkr. 148.00.
Hinn stóri lesendahópur Snjó-
laugar Bragadóttur frá Skáldalæk
hefur nú beðið nýrrar bókar frá
henni í þrjú ár. Að vanda er saga
Snjólaugar viðburðarrík, fjörleg
og skemmtileg og þeim kostum
gædd að vera við hæfi allra
aldursflokka.
Stríðandi
öfl
Verð kr. 14.820.-. Nýkr. 148,20.
Skáldsaga eftir hinn þekkta rit-
höfund Stefán Júlíusson, gerist í
ónafngreindum bæ, og segir frá
stríðandi öflum í stjórnmálum,
atvinnulífi og ástum. Ein besta
skáldsaga Stefáns Júlíussonar.
Einn á móti milljón
Verð kr. 13.900.-. Nýkr. 139.00.
Sakamálasaga úr Reykjavíkurlíf-
inu eftir Jón Birgi Pétursson,
höfund bókarinnar „Vitnið sem
hvarf." Ungur maður, auðugrar
ættar hverfur og „Rauða ljónið"
tekur að sér að komast fyrir um
örlög hans. Kemur þá margt
óvænt og sumt miður fallegt upp á
yfirborðið.
Þýddar skáldsögur
Eyjan
Verð kr. 13.900.- Nýkr. 139.00
Þessi geysispennandi bók Peters
Benchleys hefur verið á metsölu-
listum í Bretlandi og Bandaríkjun-
um allt frá því að hún kom út og
þykir jafnvel taka hinum frægu
bókum höfundarins: „Okindin" og
„Djúpið" fram. Saga sem heldur
mönnum í spennu og spurn, allt
frá upphafi til enda.
Sunnefumálin
Verð kr. 14.900.- Nýkr. 149.00
.. .„Höfundi tekst sérlega vel að
vekja eftirvæntingu lesanda, að
láta ekki uppi meira en svo að
forvitni sé vakin — oft og mörgum
sinnum — og svalað í smá-
skömmtum. Sagan er blessunar-
lega laus við væmni og tilgerð. —
En stundum gengur mikið á og
atburðir gerast ótrúlegir ...“
(Rannveix AgústNdAttlr I DaKblaAinu 8. des.)
Bóka-
kynning
jólin 1980
Fróðlegar
úrvals-
bækur
Tækniheimurinn
Verð kr. 19.760.-. Nýkr. 197.60.
Ný bók í bókaflokki er ber heitið
„Heimur þekkingar." Sérstætt og
aðgengilegt fjölfræðirit, sem fjall-
ar um þróun tækninnar, allt frá
því að menn uppgötvuðu hjólið
uns haldið var til framandi
hnatta. Þetta er bók sem lesin er
og skoðuð aftur og aftur og er við
hæfi allra aldurshópa.
Kólumbus
Verð kr. 15.920.-. Nýkr. 159.20.
Ný bók í bókaflokknum „Frömuðir
landfunda" og fjallar um einn
mesta landkönnuð sögunnar
Kristofer Kólumbus, siglingar
hans og landkönnunarafrek, svo
og baráttu hans við þröngsýni og
hjátrú samtíma síns. Fróðleg og
falleg bók með fjölda litmynda.
Barnabækur okkar eru öðruvísi
Eins og áður býður Bókaútgáfan Örn og Örlygur upp á vandaðar og þroskandi
barnabækur við hæfi allra aldursflokka. Meðal barnabókanna eru tvær eftir íslenska
höfunda, og nýjar bækur f bókaflokknum „Sígildar sögur,“ með litmyndum, auk
hinna geysivinsælu Scarry-bóka sem flestir íslenskir foreldrar þekkja af góðu.
Barnabækur forlagsins eru að þessu sinni eftirtaldar:
Verð kr.
Á hjólum (Huck Scarry) 5.900.-.
Draugaspaug (Jan Pienkowsky) 4.816.-.
Fagri Blakkur (Anna Sewell) 4.569.-.
Fótboltafélagið Falur í Argentínu
með viðkomu á fslandi
(Toon og Joop) 6.900.-.
Leitin að Grant skipstjóra
(Jules Verne) 4.569.-.
Örðabelgur (Heather Amery) 7,800.-.
Sígildar rökkursögur 7,400.-.
Skemmtun dýranna, börnin læra að
telja (Arnold Shapiro) 3.705.-.
Tíu litlir hvuttar 4.800.-.
Umhverfis jörðina á áttatiu dögum
(Jules Verne) 6.900.-.
Óll eru þau önnum kafin í Erilborg
(Richard Scarry) 8.500.-.
Nýkr.
59,00
48,15
45,70
69,00
45,70
78,00
74,00
37,05
48,00
69,00
85,00
Píla pína
Verð kr. 9.756.-. Nýkr. 97,55.
Þetta gullfallega ævintýri hins
þekkta rithöfundar, Kristjáns
frá Djúpalæk hefur vakið
verðskuldaða athygli. Gefin
hefur verið út plata með söngv-
um úr ævintýrinu, og lögin
þegar náð miklum vinsældum
hjá yngri kynslóðinni.
Pétur prófessor
Verð kr. 5.900.-. Nýkr. 59.00.
Þessi bók er einkum ætluð
byrjendum í lestri, og eiga þeir
vafalaust eftir að skemmta sér
vel og taka þátt í ævintýrum
Péturs prófessors. Texti bókar-
innar er eftir Þóri Guðbergs-
son, en myndirnar eftir son
hans, Hlyn örn Þórisson.
• • • •
Om og Orlygur
Síðumúla 11, sími 84866