Morgunblaðið - 21.12.1980, Page 1
Sunnudagur
21. desember
Bls. 41 — 72
BLINDISLEIKUR
Þrír dansarar úr íslenska dansflokknum.
Hópur karldansara og Sveinbjorx Alexanders á æfingu á sviðinu
í Þjóðleikhúsinu.
Nýr íslenskur ballett
frumsýndur í Þjóðleikhúsinu
Nýr íslenskur ballett verður frumsýndur í Þjóðleikhús-
inu á annan jóladag, 26. desember nk. Er það jólaverkefni
leikhússins.
Ballettinn ber heitið Blindisleikur og er tónlistin og
hugmyndin að verkinu eftir Jón Ásgeirsson. Jochen Ulrich
stjórnandi Tansforum-ballettsins í Köln, hefur samið flesta
dansana og setur ballettinn á svið en Sveinbjörg Alexanders,
sem er aðaldansari Tansforum-ballettsins, hefur samið
nokkra dansana og aðstoðar við uppfærsluna auk þess sem
hún dansar eitt aðalhlutverkið. Annar aðaldansari Tansforum-
ballettsins fer með aðalhlutverk í Blindisleik, Ungverjinn
Michael Molnar, og Conrad Bukes frá Þýskalandi fer með
þriðja aðalhlutverk verksins.
Dansarar í íslenska dansflokknum fara með minni
hlutverk ásamt 9 öðrum, sem aldrei eða sjaldan hafa dansað
ballett áður.
Blaðamaður og ljósmyndari Mbl. litu inn á æfingu í
Þjóðleikhúsinu í vikunni og ræddu m.a. við höfunda
ballettsins og aðaldansara.
SJÁVIÐTÖL Á BLS. 56 og 57.