Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 16
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980 Sveinbjörg Alexanders: „Samvinnan heíur verið stórkostleg" SVEINBJÖRG Alexanders dans- ar eitt aðalhlutverkið í hallettn um. hiutverk Freyju. Auk þess hefur hún aðstoðað við uppfærsl- una og samið hluta dansanna. Sveinbjörg hefur dansað við Tansforum-ballettinn i Köln, sem Jochen Ulrich stjórnar, í 10 ár. Hún var síðast hér á landi si. haust er hún setti á svið ballett sem hún samdi sjálf, Danskok- teill. Sveinbjörg kom til landsins fyrir 3 vikum til að hefja undir- búning auk þess til að þjáifa dansarana í Martha Graham- kerfinu, sem er nútímadans. „Mér líst mjög vel á verkið," sagði Sveinbjörg. „Þetta er nú- tímaballett sem við köllum þó ekki ballett heldur leik fyrir dansara." Samvinna þeirra sem að verkinu standa hefur verið stór- kostleg. Það er reyndar nauðsyn- legt að svo sé þegar færa þarf upp svo viðamikið verk á svo stuttum | tíma. Þá gengur allt miklu fljótar fyrir sig, kemur nokkurn veginn af sjálfu sér,“ — Mér skilst á dönsurunum að þetta sé erfitt verk? „Þeim finnst það erfitt verk vegna þess að þeir eru ekki vanir þessum dansstíl. Þetta er nýtt fyrir þá, það er aðallega það sem er erfitt. Mestur hluti karlmannanna sem dansa hafa lítið eða ekkert dansað áður. Það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að fá út úr þeim. Sumir eru leikarar, einn er for- stjóri bifvélaverkstæðis og annar er skólastjóri og lyfjafræðingur. Eg tek þá í tíma og hita þá upp fyrir æfingar." — Sveinbjörg var því næst spurð um álit á íslenska dans- flokknum? „Mér finnst hann mjög efni- legur. Það býr mjög mikið í honum," sagði hún. — Sveinbjörg hóf að dansa ballett 8 ára gömul. 17 ára fór hún til London og þaðan til Stuttgart þar sem hún dansaði í 5 ár. Síðan hefur hún verið aðaldansari við Tansforum-ballettinn í Köln. En ætlar hún sér að koma alkomin til íslands á næstunni? „Nei, ég verð úti svo iengi sem ég dansa." — Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir því hvað það er mikil vinna að vera ballettdansari. Blaðamaður reyndi án árangurs að ná sambandi við Sveinbjörgu í 2 daga. Tón þá undirrituð á það ráð að fara upp í Þjóðleikhús og sat fyrir Sveinbjörgu við æfinga- salinn. Viðtalið var tekið meðan hún hitaði upp við slána. „Ég hef komið hingað kl. 10 á hverjum morgni undanfarnar 3 vikur og farið héðan út kl. 10 að kvöldi," sagði hún. — Að lokum var Sveinbjörg spurð að því hvernig henni liði nú þegar þetta verk sem hún á svo mikinn þátt í er að verða fullmót- að? „Það er erfitt að svara því. Þetta er afskaplega spennandi og spenn- an vex þegar nær dregur frumsýn- ingunni." Ilöfundur tónlistarinnar við ballettinn Blindisleik er Jón Ás- geirsson tónskáld. Hann á einnig upphaflega hugmyndina að ball- ettverkinu. „Ég hef gengið með þessa hugmynd í mörg ár,“ sagði Jón í samtali við Mbl. „Ég fékk hugmyndina upphaf- lega úr þjóðsögunni um Gilitrutt. Ég fór að velta henni fyrir mér sem hugsanlegu viðfangsefni. Þeg- ar ég hafði séð mynd eftir Ás- mund Sveinsson um þjóðsöguna „Móðir mín í kví kví“ fór ég að velta því fyrir mér hvort hægt væri að búa til ballett úr þjóðsög- um. I myndinni nemur Ásmundur burt öll umhverfisatriði og eftir stendur nakin kona og lítið barn sem breiðir dulu fyrir mittið á henni. Þannig hefur hann nálgast innihald sögunnar án þess að snerta við neinu sem gæti hugsan- lega verið umhverfi. Einhverra hluta vegna datt mér strax í hug Gilitrutt. En vanda- málið er hvernig á að útfæra það atriði í dansi er Gilitrutt spyr húsfreyju að nafni sínu. Þá datt mér í hug að hafa þrjá einkennis- dansa í verkinu og einn þeirra er dans óvættarinnar. Þannig er hægt að afhjúpa hana. I uppfærslunni núna hefur Gili- trutt skipt um kyn. Hún er orðin karlmaður sem ég nefni Kol af því að hann er táknrænn fyrir djöful- inn. Og Kolur og hans fylgifiskar eru táknrænir fyrir firringu nú- tímans. En hjónin, sem heita Búi og Freyja, tákna einfalt og óspillt fólk. Nafnið Blindisleikur dregur nafn sitt af þeirri hugmynd að sérhver athöfn fremur einstakl- Jón Ásgeirsson: „Upphaflega hugmyndin úr þjóðsögunni um Gilitrutt“ ingurinn í blindni án þess að gera sér grein fyrir afleiðingunum. Jochen Ulrich frá Köln og Sveinbjörg Alexanders stjórna æfingunum og semja leikverkið. í leikgerðinni fara þau næstum alveg eftir sögugerð minni, en túlka hana á mjög nútímalegan hátt. Ekki sem klassiskan heldur nútímaballett. Nokkurs konar leikinn dans.“ — Hvernig tilfinning er það að sjá hugmynd sem þú hefur gengið með lengi verða að veruleika? „Það er dálítið skrítið. Ég lauk við verkið fyrir hálfu ári og hef gert á því smávægilegar breyt- ingar síðan. Þetta er eins og verið sé að taka frá manni barn. Það er farið að heiman og farið að lifa sjálfstæðu lífi. Afskipti af þróun atvika er ekki sjálfsögð því þarna er verkið farið að lifa sínu eigin lífi í höndum þeirra listamanna sem sjá um að gera það að lifandi sýningu." — Hefur verið gaman að fást við þetta verk? „Það er kannski réttara að segja að ástæðan sé sú að ég er að fást við þetta vegna þess að það er orðinn partur af hugsunarhætti manns sem er að fást við að semja lög. Maður er ekki fyrr búinn að ljúka verki fyrr en næsta verkefni hefir skotið upp kollinum. Það er ópera sem byggð er á Möttulssögu og Norna-Gestsþætti. Eitt og ann- að er líka að trufla mig, smærri stykki eins og kammerverk." — Er óperan kannski „smíðuð eftir pöntun". Er ákveðið að sýna hana? „Það er lítil hætta á því að svona verkefni séu pöntuð. Það sem borið er úr býtum í raun og veru, fyrir alla þessa vinnu, er það Iítið að það er engu líkara en að samfélagið hafi ekki nokkra þörf fyrir þetta. Fólki finnst sjálfsagt að höfundur fái sama og ekkert fyrir þessa miklu vinnu,“ sagði Jón að lokum. Jochen Ulrich: „Lýsir mannlegum tilfinningum" Þjóðverjinn Jochen Ulrich setur ballettinn Blindisleik á svið og er aðalhöfundur dans- anna. Blaðamaður spurði hann fyrst að því hvernig hann hefði búið til nútímaballett úr gam- alli þjóðsögu? „Ég leitaði að innihaldi sög- unnar. I gamalli sögu er mikið af nútímalegum hlutum og nú- tímadans er miklu nærri veru- leikanum en klassískur dans. Hann líkist gömlum þjóðdöns- um. Hann getur nálgast hið gamla. Hann lýsir mannlegum tilfinningum, eins og gömlu þjóðsögurnar gera. í verkinu bendi ég á þjóðfé- lagsleg öfl. Til dæmis það að við lifum á tímum þegar ungt fólk fer úr sveitinni til stórborganna í leit að einhverju miklu. Það fer úr einu umhverfi í annað. Mark- miðið er velgengni en aðeins sumum gengur vel en aðrir tapa. Sagan sem ballettinn segir gæti eins gerst í dag. Þjóðsög- urnar gefa það reyndar til kynna að þær gætu gerst á, hvaða tíma sem er, eins í dag og fyrir 500 árum. Umhverfi sög- unnar og málfar er gamalt en efnið gæti eins átt við daginn í dag. Hún lýsir mannlegum til- finningum. Tökum Kol sem dæmi. Hann á að vera tákn hins illa, djöfuls- ins. Hann er sá sem stjórnar. Hann gæti verið hver sem er á okkar tímum, t.d. stjórnmála- maður. Hann stjórnar umhverfi sínu og þeim sem í því eru. Við getum leitað meðal leik- húsverka að svipuðum dæmum um meðferð á þjóðsögum. Það er þannig sem maður fer að því að búa til nútímaverk." Ulrich er stjórnandi Tans- forum-ballettsins og hefur ný- lokið við að setja á svið Bartok- kvöld. Hann undirbýr nú sýn- ingaferð með flokkinn til Frakklands og London á næsta ári. En hvernig hefur honum gengið að stjórna íslenskum dönsurum? „Það hefur gengið mjög vel. Ég er ánægður með það sem við höfum gert og það sem við höfum fengið út úr því. Dansar- arnir eru góðir og lifa sig inn í hlutverkin. Ég finn það líka að það er góður andi meðal þeirra. Ég hef fundið fyrir góðum félagsskap hér þessa 12 daga sem ég hef verið á íslandi," sagði Jochen Ulrich að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.