Morgunblaðið - 23.01.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
3
Annir skýrsluvéla
tef ja undirbúning
skattalagabreytinga
„ÞESSI mál eru á umræðustigi,
en ríkisskattstjóri hefur enn ekki
fengið þá vinnu i skýrsluvélum
ríkisins sem þarf til að þoka
málunum lengra,“ sagði Ragnar
Arnalds, fjármálaráðherra, er
Mbl. spurði hann i gær, hvað liði
undirbúningi breytinga á skatta-
lögum og ákvarðana um skatt-
stiga. „I>að er með ólíkindum,
hvað annir skýrsluvélanna eru
miklar. Við erum búnir að biða
eftir upplýsingum i nokkrar vik-
ur og ýmsir verkhópar eru nú
nánast verklausir. En nú standa
Mörg beinbrot
í hálkunni
GÍFURLEG hálka hefur verið
á gangstéttum höfuðborgar-
innar undanfarna daga og á
degi hverjum koma f jölmargir
á slysadeild Borgarspítalans,
sem hlotið hafa byltur og
jafnvel beinbrot, að þvi er
Einar Þórhallsson læknir
tjáði Mbl. i gær.
Einar sagði að oftast væri
það eldra fólk sem beinbrotn-
aði í hálkunni, úlnliðabrot
væru algengust en fyrir kæmi
að fólk hlyti lærleggs- og
handleggsbrot.
„Við höfum tekið eftir því að
gamla fólkið, sem hingað kem-
ur hefur í flestum tilfellum
ekki haft neinn búnað á skóm
sínum til þess að verjast falli,
t.d. mannbrodda. Það er full
ástæða til að hvetja fullorðið
fólk til þess að hafa góðan
búnað á skónum sínum í hálk-
unni,“ sagði Einar.
vonir til að þetta fáist fyrr en
síðar.“
Ragnar sagði í fyrsta lagi
óútkljáð, hvernig fara ætti með
„bændaskattana" og hyernig
reikna ætti mönnum tekjur. I öðru
lagi væru svo mál einstæðra
foreldra, en hann kvaðst eiga von
á nefndarskýrslu um þau þá og
þegar. í þriðja lagi nefndi ráð-
herrann skattalækkun í sambandi
við efnahagsaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar, en um það mál hefði verið
haldinn einn viðræðufundur með
fulltrúum Alþýðusambands Is-
lands. Ragnar sagði marga mögu-
leika fyrir hendi, en helzt væri
rætt um að framkvæma skatta-
lækkunina annað hvort með
niðurfellingu sjúkratrygginga-
gjalds eða hækkun persónuafslátt-
ar.-
Varðandi fyrri leiðina sagði
ráðherrann það ekki ætlunina að
lækka skatta af hærri tekjum og
yrði sjúkratryggingagjaldið fellt
niður, myndi tekjuskattur af
hærri tekjum verða hækkaður um
2% á móti. Mbl. spurði ráðherr-
ann, hvar mörkin milli lág- og
meðaltekna og hærri tekna væru
sett, en hann sagði það vera
ófrágengið mál.
Þá benti fjármálaráðherra á, að
fyrir Alþingi lægi frumvarp um
hækkun vaxtafrádráttar og að
verkfærapeningar verði frádrátt-
arbærir til skatts og sagði, að
þetta frumvarp yrði að afgreiða
áður en framtalsfrestur rennur út,
sem verður 10. febrúar. Önnur
skattamál sagði ráðherra stefnt
að að afgreiða fyrir lok febrúar-
mánaðar.
Benedikt Gröndal alþingismaður:
Ný ríkisstjórn
fyrir mitt ár
Nauðsynlegt að binda endi á stjórnar-
þátttöku og völd Alþýðubandalagsins
.. það er hægt að mynda nýja, mun sterkari og betri ríkisstjórn
— fyrir mitt ár. Ættu forystumenn stjórnarandstöðu og ýmsir
aðilar i núverandi stjórn að gera sér þetta ljóst, undirbúa málið i
kyrrþey og skipta um stjórn á einni nóttu i maimánuði,“ segir
Benedikt Gröndal, alþingismaður og fyrrverandi formaður Al-
þýðuflokksins, i grein i Alþýðuhlaðinu i gær.
Benedikt bendir á í greininni,
að vitað sé, „að báðir stjórnar-
andstöðuflokkarnir, Framsóknar-
flokkurinn og líklega sjálfstæð-
ismenn í ríkisstjórn eru allir
sammála um, að ráðstafanirnar
(efnahagsráðstafanir ríkisstjórn-
arinnar. Innskot Mbl.) nái of
skammt.“ Þessir aðilar séu sam-
mála um nauðsyn frekari aðgerða
fyrir mitt ár, en Alþýðubanda-
lagsmenn séu einir á annarri
skoðun, þar sem þeir telji að allt
leiki í lyndi og ekki muni koma til
alvarlegra viðbótaraðgerða. í
þessum ólíka skilningi á horfum í
efnahagsmálum segir Benedikt
að sýnilega sé grundvöllur fyrir
ríkisstjórn allra aðila, nema Al-
þýðubandalagsins.
Benedikt segir vandann við
nýja stjórnarmyndun fyrst og
fremst persónulegs eðlis. Þrátt
fyrir andstöðu einstakra manna í
öllum flokkum, sé fylkingin svo
öflug á Alþingi að hún þoli slikt.
Erfiðast telur Benedikt að verði
að ná samkomulagi um forsætis-
ráðherra. „Ef til vill gætu menn
sætt sig við Gunnar Thoroddsen,
ef hann losaði sig við kommún-
ista, en einnig kæmi til greina að
taka forseta Sameinaðs þings
eins og 1950, — eða leita út fyrir
raðir Alþingis."
Benedikt segir, að af mörgum
ástæðum sé nauðsynlegt að binda
endi á stjórnarþátttöku og völd
Alþýðubandalagsins og láta hina
nýju „austur-þýzku forystusveit
flokksins sitja utangarðs — sem
lengst." Bendir Benedikt m.a. á , “
að „Alþýðubandalagið — með
19% kjósenda," hafi stöðvunar-
vald í ríkisstjórn og því verði ekki
gengið lengra í baráttunni gegn
verðbólgunni, en Alþýðubanda-
lagið samþykkir. Alþýðubanda-
lagið stæri sig af stöðvunarvaldi í
utanríkis- og varnarmálum. Það
reyni að einangra ísland og draga
sem mest úr samstarfi við önnur
ríki og segir Benedikt það undir-
búning stórfelldrar þjóðfélags-
breytingar — „að ísland verði ný
Kúba“. Alþýðubandalagið berjist
gegn auknum viðskiptum íslands
við önnur Vesturlönd og sam-
starfi við grannþjóðir í efnahags-
uppbyggingu og vitnar Benedikt í
því sambandi til fjandskapar
iðnaðarráðherra við stóriðju og
árásir hans á stóriðjufyrirtæki.
Og Benedikt segir ráðherra Al-
þýöubandalagsins leggja megin-
áherzlu á að koma tryggum
flokksmönnum sínum fyrir í rík-
isstöðum.
Benedikt kemst að þeirri niður-
stöðu, að Alþýðubandalagið hafi
aldrei sýnt jafnopinskátt og nú,
að það stefni að kommúnisma.
Niðurlagsorð greinar hans eru:
„Lýðræðisflokkunum ber skylda
til að snúast gegn þessari þróun
og láta ekki persónulegan metnað
hindra það, meðan alþýðubanda-
lagsmenn horfa hlæjandi á.“
INNIHALD ÞORRABAKKA:
Sviðasulta, hrútspungar,
lundabaggi, svínasulta,
bríngukollar, súr hvalur,
lífrarpylsa bg blóðmör,
hékarl marinaraður, reykt
síld, hangikjöt, flatkökur,
harðf iskur og smjör.
VERO: NÝKR. 35,00
SMIÖR
IOR SMJÖR
Lækjarveri, Laugalæk 2, simi 3 50 20