Morgunblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 31
r
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
31
Glæsilegur sigur gegn heims-
meisturum Vestur-Þjóðverja
r,
- island sigraði 13-11 í Liibeck í gærkvöldi
„ÉG GET ekki séð annað, en að það verði mjög erfitt að breyta
íslenska landsliðshópnum eftir þá frábæru frammistöðu sem hann
hefur sýnt í landsleikjunum tveimur gegn heimsmeisturum Vestur-
Þjóðverja í handknattleik á heimavelli þeirra, því í kvöld gerði liðið
sér litið fyrir og sigraði örugglega með 13 mörkum gegn 11,“ sagði
Þórður Sigurðsson fararstjóri islenska hópsins, er Morgunblaðið
ræddi við hann í gærkvöldi.
„Það var fyrst og fremst frábær
liðsheild sem vann þennan glæsi-
lega sigur. Það er einstaklega
góður andi í landsliðshópnum og
samvinna leikmanna jafnt utan
sem innan vallar er einstök,"
bætti Þórður við.
Að sögn Þórðar lék íslenska
landsliðið fyrri hálfleikinn mjög
vel og mikil og góð barátta náðist
upp. Það lið sem hóf leikinn af
hálfu Islands var þannig: Einar
Þorvarðarson í marki, Sigurður
Sveinsson, Ólafur H. Jónsson,
Stefán Halldórsson, Bjarni Guð-
mundsson, Þorbjörn Guðmunds-
son og Steindór Gunnarsson. Axel
skipti hins vegar við Þorbjörn
þegar liðið sótti. Þetta lið lék mest
allan fyrri hálfleikinn. Gangur
fyrri hálfleiks var sá, að íslenska
liðið tók þegar forystu í leiknum
með marki Sigurðar Sveinssonar
úr víti. Vörn íslenska liðsins og
markvarsla var allan tímann frá-
bær og það segir sína sögu, að
Þjóðverjar skoruðu sitt fyrsta
mark á níundu mínútu leiksins.
Þegar 20 mínútur voru liðnar af
leiktímanum var staðan 8—4 fyrir
ísland. Staðan í hálfleik var síðan
9—5 fyrir ísland og að sögn
íslensku fararstjóranna, var hinn
frægi þjálfari heimsmeistaranna,
Stenzel, þungur á brún er hann
gekk til búningsklefanna með leik-
menn sína.
Það'var greinilegt, að Stenzel
hefur haldið reiðilestur yfir sínum
mönnum í hléinu og Þjóðverjar
eru þekktir fyrir allt annað en að
gefast upp. Með hvatningu 3500
áhorfenda hófu þeir síðari hálfleik
af geysilegum krafti og þegar að
tíu mínútur voru búnar af hálf-
leiknum höfðu þeir minnkað mun-
inn niður í eitt mark, 8—9.
íslenska liðið barðist samt
hetjulega á móti, lék mjög yfirveg-
aðan handknattleik og reyndi ekki
markskot nema úr opnum færum.
íslendingar skoruðu 10. mark
leiksins á 14. minútu síðari hálf-
leiks. Þjóðverjum tókst síðan að
jafna metin, 10—10, þegar 8 mín-
útur voru eftir af leiknum. Nú var
gífurleg spenna komin í leikinn og
hinir fjölmörgu áhorfendur risu
úr sætum sínum og hvöttu lið sitt
hvað mest þeir máttu. Þegar 4
mínútur og 50 sekúndur voru eftir
af leiknum var staðan enn jöfn,
11—11 og Þjóðverjarnir voru með
knöttinn. íslenska vörnin var hins
vegar mjög stcrk og Einar varði
snilldarlega hörkuskot frá Erhard
Wunderlich. Síðustu fjórar mínút-
ur leiksins lék íslenska liðið geysi-
lega yfirvegað og af mikilli skyns-
emi. Skoraði liðið þannig tvö
Axel Axelsson sýndi gamla góða landsliðstakta gegn Vestur-Þjóð-
verjum, enda öllum hnútum kunnugur i handknattleik þar i
landi.
síðustu mörkin, Stefán Halldórs-
son 12. markið og Axel Axelsson
innsiglaði síðan sigur íslands með
marki úr vítakasti þegar 58 sek-
úndur voru eftir af leiknum. Það
sem eftir var, varðist íslenska
liðið grimmilega og Þjóðverjum
tókst ekki að skora.
Það var fyrst og fremst ein-
staklega sterkur varnarleikur og
frábær markvarsla Einars Þor-
varðarsonar sem færði íslandi
sigur í þessum leik. Varði Einar 18
skot í leiknum og komst því
sérlega vel frá sínu. Þjóðverjarnir
höfðu sérstakar gætur á Sigurði
Sveinssyni og eltu hann hvert sem
hann fór allan leikinn. íslenska
liðið fékk fjögur víti í leiknum, tvö
þeirra heppnuðust, en þeir Axel
Axelsson og Sigurður Sveinsson
klúðruðu einu vítakasti hvor.
Dómarar voru heimadómarar, en
þrátt fyrir það, tókst íslenska
liðinu að sigra. Það er athyglis-
vert, að íslenska landsliðið lék
leikkerfi allan leikinn út í gegn,
brá aldrei yfir í frjálsan hand-
knattleik, en lék mjög agaðan
handknattleik og eingöngu eftir
skipunum landsliðsþjálfarans
Hilmars Björnssonar.
Mörk íslands: Axel Axelsson 4,
1 víti, Sigurður Sveinsson 2,1 víti,
Ólafur H. Jónsson 2, Stefán Hall-
dórsson 3, Steindór Gunnarsson
og Bjarni Guðmundsson eitt mark
hvor. Þess má geta, að Brynjar
Harðarson fiskaði þrjú vítaköst.
- Þr.
ÍR ekki í vandr^eðum
með slakt lið IS
„Verður erfitt að
breyta hópnum“
„ÞAÐ verður erfitt að breyta
þessum hóp eftir þá frammi-
stöðu sem hann hefur sýnt í
þessum tveimur leikjum við
Vestur-Þjóðverja,“ sagði Hilm-
ar Björnsson. „En það eru enn
tvö sæti laus fyrir B-keppnina í
Frakklandi. Leikmenn hafa
þurft að sýna getu sína og
sannfæra sjálfa sig og aðra.
Það hafa þeir svo sannarlega
gert i þessari ferð. Við ökum til
Kölnar i kvöld og þaðan förum
við i fyrramálið til Ribe i
Danmörku þar sem við mætum
Dönum í landsleik annað kvöld
(í kvöld). Ég vara við of mikilli
bjartsýni i landsleiknum gegn
Dönum þar sem töluverð þreyta
er komin í leikmenn þar sem
þeir hafa lagt sig alla fram i
leikjunum tveimur gegn Vest-
ur-Þjóðverjum.“
„Að sjálfsögðu stefnum við að
þvi að sigra Danina, en það
verður erfitt viðfangsefni á
heimavelli þeirra,“ bætti Hilm-
ar við ... — þr.
Þjóðverjar
sýna Sig-
urði áhuga
Ljóst er, að Sigurður Sveinsson,
stórskyttan úr Þrótti, hefur vak-
ið geysilega athygli í þýskum
handknattleik, en landsliðsþjálf-
ari Vestur Þjóðverja, Vlado
Stenzel, hefur lýst því yfir að þar
fari skytta á heimsmælikvarða.
Sigurður hefur verið hálf um-
setinn sendimönnum vestur-
þýskra félaga og eru allir spenntir
að fá Sigurð til fylgis við félög sín.
Er sýnt, að Sigurður kemur heim
með a.m.k. 2—3 tilboð upp á
vasann. Eitt félag sem vitað er að
hefur áhuga á Sigurði, er Danker-
sen, en þess er skemmst að
minnast, að Axel Axelsson, Ólafur
H. Jónsson og síðan Jón Pétur
Jónsson, léku einmitt með Dank-
ersen.
Sigurður Sveinsson hefur vakið
geysilega athygli í Vestur-Þýska-
landi og hann hefur verið umset-
inn sendimönnum þýskra félaga.
ÍR-INGAR burstuðu ÍS 83-63 í
úrvalsdeildarleik i körfuknatt-
ieik í Hagaskólanum i gærkvöldi.
Staðan i hálfleik var 34-28. Var
sigur ÍR sist of stór og engum
blöðum um það að fletta, að betra
liðið vann. En leikurinn bar þó
allan keim af því, að hann hafði
íslandsmót í
frjálsíþróttum
til Keflavíkur
íslandsmeistaramótið i at-
rennulausum stökkum innanhúss
verður háð i nýja iþróttahúsinu i
Keflavik laugardaginn 31. janú-
ar næstkomandi, en það er i
fyrsta sinn að íslandsmót i ein-
staklingsiþróttum verður háð i
húsinu. Framkvæmdaraðili móts-
ins er í BK.
Mótið hefst kl. 15.30. Ákveðið
hefur verið að aðgangur að mótinu
verði ókeypis. Verðlaunapeningar
verða veittir þremur fyrstu í
hverri grein, en keppt verður í
langstökki karla og kvenna, há-
stökki karla og þrístökki karla.
Þátttökutilkynningar ásamt
þátttökugjaldi, sem er 15 krónur
fyrir hverja grein, þurfa að hafa
borist Helga Hólm, Smáratúni 33 í
Keflavík, eigi síðar en 29. janúar.
litla þýðingu fyrir stöðu þessara
liða i deildinni.
ÍR náði strax forystu og þó að
stundum munaði litlu, náði ÍS
aldrei að jafna. Lítið var þó skorað
framan af, t.d. skoruðu ÍS-menn
aðeins 4 stig fyrstu 10 mínúturnar
og hafa þeir vafalaust óskað þess
þá að körfuhringurinn hefði um-
mál meðaleldgígs. í síðari hálfleik
dró enn í sundur og í raun var
aldrei spurning hvar sigurinn
myndi hafna. Hjá ÍR mæddi mest
á bræðrunum Jóni og Kristni
Jörundssyni annars vegar og
Kristjáni og Hirti Oddssyni hins
vegar. Þessir komu allir vel frá
sínp, einkum Kiddi Jör. Fleming
var drjúgur. Hjá ÍS bar mest á
Bjarna Gunnari, en aðrir náðu sér
aldrei á strik.
Stig ÍR: Kristinn Jörundsson 26,
Andy Fleming 24, Jón Jörundsson
21, Kristján Oddsson 6 og þeir
Hjörtur Oddsson, Sigmar Karls-
son og Björn Leosson 2 stig hver.
Stig ÍS: Mark Coleman 21,
Bjarni Gunnar Sveinsson 18, Ingi
Stefánsson 8, Gísli Gíslason og
Jón Oddsson 6 hvor, Árni Guð-
mundsson 4 stig. — gg.
Landsleikurinn
í sjónvarpinu
Sigurleikur Íslands gegn Vestur-
Þjóðverjum í handknattleik. var
tekinn upp af þýska sjónvarpinu
og verður hann sýndur i heild
þar í landi i dag. íslenskir
áhorfendur fá að fylgjast með
leik þessum i iþróttaþætti sjón-
varpsins á mánudaginn.
Fimleikadeild
Stúlkur
Getum bætt viö byrjendum. Mæting í íþróttahúsi
Breiöholtsskóla laugardaga kl. 10.40.
Stjórnin.