Morgunblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
Nolan opnar
golfskóla
GOLFKENNARINN kunni.
John Nolan, opnar ifolfskóla
sinn á morgun klukkan
10.00. Helgardaga verður
skólinn opinn 10.00—17.30
og virka daga frá klukkan
16.00— 21.30. Skólinn verð-
ur með nokkuð frjálslegu
sniði. fólk getur komið i
sérstaka kennslu, eða hrein-
lega til þess að æfa sig og
hita upp fyrir komandi golf-
vertið. Möguleiki verður á
þvi að fá sérkennslu fyrir
hópa og fjölskyldur, auk
þess sem einum tíma i viku
hverri verður varið til þess
að kenna unglingum sér-
staklega og leggur Nolan
áherslu á að stund þessi sé
endurgjaldslaus.
Firmakeppni
KKÍ
Á VEGUM KKÍ er hafin
keppni með nýstáriegu
formi. Keppnin, sem nefnist
Firmakeppni KKÍ, er opin
öllum hópum áhugamanna
um körfuknattleik, sem
leika sér tii hreyfings og
hressingar. bó eru leikmenn
í úrvalsdeildarliðum og 1.
deildarliðum ekki gjald-
gengir. Körfuknattleiks-
reglur hafa verið einfaldað-
ar sérstaklega fyrir keppn-
ina, svo leika má i æfingar-
timum í velflestum leikfimi-
sölum.
AIls taka 12 lið þátt i
mótinu. Þau keppa í þremur
riðlum:
A-riðill: Börkur, Hafnar-
firði, Kennarafélag Árbæj-
arskóla, Flugleiðir, Skýrslu-
vélar ríkisins og Reykjavíkur.
B-riðiil: Kennarafélag
Flensborgarskóla, Pallabúð,
Hagkaup, ÍS-old boys.
C-riðilI: Gluggadeild Sig.
Björnssonar, Skíðamenn ÍR,
Framkvæmdastofnun ríkis-
ins, Prenttækni.
Skólamót og
firmakeppni HSÍ
ÁKVEÐIÐ er að halda skóla-
mót á framhaldsskólastigi
og firmakeppni I hand-
knattleik i febrúar nk.
Þátttaka tilkynnist til
Ilandknattleikssambandsins
fyrir 31. jan. nk. Þátttöku-
gjald í skólamótinu er kr.
650,00 fyrir hvert Hð og I
fírmakeppninni kr. 1000,00
fyrlr hvert Hð.
Kambahlaup
ÍR og HSK
KAMBABOÐHLAUP ÍR og
HSK verður háð næstkom-
andi sunnudag. Hlaupið.
sem nú fer fram I nfunda
skfpti, hefst austur undir
Kamhabrún og lýkur við
ÍR-húsið í Túngötu. Hlaupið
er i f jögurra manna sveltum
og leggur hver hlaupari tiu
kilómetra að baki. Væntan-
legum þátttakendum er bent
á að hafa samband við Guð-
mund Þórarinsson þjálfara
ÍR-inga i sima 34812.
spörum
RAFORKU
Ingólfur og
Heimir til IBV?
LÍKUR eru taldar á þvi, að
Ingólfur Ingólfsson úr UBK og
Ileimir Bergsson frá Sclfossi,
gangi i raðir ÍBV á næstunni.
Mbl. hefur það eftir áreiðan-
legum heimildum, að piltar þess-
ir hafi átt viðræður við knatt-
spyrnudeild ÍBV og lýst þar
áhuga sínum. Hefur Ingólfur
m.a. tryggt sér atvinnu og ibúð i
Vestmannaeyjum i sumar. Þeir
félagar hafa þó ekki gengið frá
félagaskiptum og timinn leiðir i
Ijós hvort þeir gera það þá.
Ingólfur var fastamaur í liði
UBK framan af síðasta keppnis-
tímabili og allt tímabilið þar áður.
Hann er markheppinn og harð-
fylginn framherji. Heimir lék með
FH framan af síðasta sumri, áður
með Selfossi, en slasaðist illa um
mitt sumarið. Skipti hann þá
aftur yfir til Selfoss. Hann hefur
náð sér fyllilega af meiðslunum.
Það yrði út af fyrir sig merkilegt
ef þeir félagar gerðust leikmenn
með IBV, því leikmenn af „megin-
landinu" hafa sjaldan gengið í
félagið og leikið með því. Sigurður
Haraldsson markvörður lék eitt
keppnistímabil, en aðrir ekki.
Hins vegar hefur liðið jafnan
misst eitthvað af leikmönnum og
varð engin undantekning nú, Tóm-
as Pálsson er fluttur til Reykja-
víkur og genginn í FH og Sveinn
Sveinsson leikur í Svíþjóð á næsta
keppnistímabili. Hins vegar hefur
ÍBV endurheimt Valþór Sigþórs-
son frá FH og munar um minna.
Ólafur Sigurvinsson verður einnig
með í slagnum í sumar.
hkj/gg.
• Guðmundur Guðmundsson hinn ungi og bráðefnilegi horna-
maður Vikings stekkur inn i teiginn og reynir markskot i
leiknum hér heima gegh Lugi. Siðari leikur liðanna er á sunnu-
dag.
Víkingur — Lugi:
Uppselt í
hópferðina
SÍÐARI leikur Vikings i
Evrópumeistarakeppninni i
handknattleik fer fram i Lundi á
sunnudag. Gifurlegur áhugi er á
leik liðanna jafnt hér heima sem i
Svíþjoð. Mikill fjöldi tslendinga
sem býr i Sviþjóð hefur orðið sér
úti um miða og ætlar að fjöl-
menna á leikinn.
Hér heima gangast Samvinnu-
ferðir fyrir hópferð á leikinn og
allir miðar i ferðina seldust upp i
gærdag. AIls voru 70 miðar
seldir. Reynt verður að útvega
fleiri miða á leikinn sé þess
nokkur kostur. — Þr.
• Ætla mætti, að knattspyrnu-
félög reistu ekki slikar vírgirð-
ingar áhorfendum til þæginda,
þvert á móti. Kappinn á þessari
mynd viröist hins vegar hafa
fundið besta hugsanlega sætið á
leikvangi þýska félagsins Arm-
enía Bielefeldt.
• Pétur Guðmundsson leikur sinn fyrsta leik með Val í
kvöld og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig liðinu
tekst upp gegn UMFN, efsta liðinu úr úrvalsdeild-
inni...
Ráðast úrslitin í
úrvalsdeildinni
í Njaróvík í kvöld?
Það má að öilum likindum kalla
úrvalsdeildarleik UMFN og Vals
i Njarðvik í kvöld úrslitaleikinn
um efsta sætið i deildinni. Leikur-
inn hefst kl. 20.00 i iþróttahúsinu
i Njarðvik. UMFN hefur mjög
góða forystu i deildinni, en á eftir
að leika tvívegis gegn Val, sem
hefur fengið Pétur Guðmundsson
til liðs við sig. Er það mál
margra, að annað eins körfu-
knattleikslið hafi ekki komið
fram hér á landi og lið Vals
ásamt Pétri. Ef Valsmenn gætu
tryggt sér sigur i þessum tveim-
ur viðureignum gegn UMFN, er
sá möguleiki vissulega kominn
fram, að UMFN missi allt úr
höndum sér og Valsmenn skriði
fram úr. Allt getur gerst og taka
körfuknattleiksaðdáendur þess-
ari nýju og óvæntu spennu fegins
hendi.
Bikarkeppni KKÍ:
Stórleikur verður
í Njarðvíkinni
EINN stórleikur er á dagskrá i
8-Iiða úrslitum bikarkeppni KKl,
en dregið var i fyrrakvöld. Njarð-
vik og KR mætast og fer leikur-
inn fram á heimavelli UMFN.
Verður þar áreiðanlega hart bar-
ist, en KR er einmitt eina liðið
sem lagt hefur UMFN að velli
þegar þetta er ritað. Og KR vann
auk þess suður i Njarðvik.
Tvö úrvalsdeildarlið eigast
einnig við í öðrum leik umferðar-
innar. ÍS og ÍR eigast við og gæti
sá leikur farið hvernig sem er.
Auk þess mætast Valur og Fram
annars vegar og Ármann og ÍBK
eða Haukar hins vegar. Haukar og
ÍBK hafa enn ekki att með sér
kappi. Leikjum þessum á að vera
lokið fyrir 15. febrúar og verður þá
strax dregið til 4-liða úrslita.
—gg.
Sætaferðir
í Njarðvík
VEGNA úrvalsdeildarleiks
Njarðvikur og Vals I Njarðvik i
kvöld, verða sætaferðir frá Vals-
heimilinu. Rúturnar leggja i'ann
klukkan 18.30 og má reikna með
töluverðum mannfjölda þar sem
þessi leikur sker i raun úr um
hvort eitthvert lið annað en
UMFN eigi möguleika á þvi að
hreppa úrvalsdeildartitilinn ...