Morgunblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981 GunnlauKur S.E. Briem Sæmdur doktors- nafnbót GUNNLAUGUR S.E. Briem, letur- (ræðinKur, var sæmdur doktorsnafn- bót viö Royal College o( Art i London fyrir rannsóknir á letur- sogu. Ritgerð hans nefnist „Iföfða- letur: A Study of Icelandic Orna- mental Lettering from the Sixteenth Century to the Present“ og fjallar um uppruna og þróun höfðaleturs. Gunnlaugur lauk stúdentsprófi frá MR árið 1970 og að loknu námi í Myndlista- og handiðaskóla íslands, var hann eitt ár við nám við Skolen for Brugskunst í Kaupmannahöfn og annað ár við Allgemeine Gewerb- schule í Basel. Hann tók MA-próf við Central School of Art and Design í London 1976. Gunnlaugur Briem hefur unnið að auglýsingagerð og bókahönnun síðan 1966. Hann hefur kennt leturfræði við Central School of Art and Design síðastliðin þrjú ár og var gestapróf- essor við Universidad Iberoamericana og Universidad Metropolotana í Mex- íkóborg árin 1978—9. Hann hefur haldið fyrirlestra um leturfræði og prentlist fyrir listnema og hönnuði víðs vegar um Evrópu og Ameríku og er nú staddur í Bandaríkjunum þar sem hann hefur kennt og haldið fyrirlestra við ýmsa háskóla, m.a. Yale og MIT. Fyrirhugað er að doktorsritgerð Gunnlaugs verði gefin út í ritröð á vegum Stofnunar Arna Magnússonar í Kaupmannahöfn. Ótemjan eftir Shakespeare frumsýnd á sunnudagskyöld Á sunnudagskvöldið gefst ís- lenskum leikhúsgestum i fyrsta skipti kostur á að sjá gamanleikinn „The taming of the Shrew“ eftir Shakespeare i meðferð atvinnuleikara hér á landi, en þetta leikrit er sá gamanleikja Shakespeares sem hvað vinsælastur hefur orðið erlendis. Helgi Hálfdan- arson er þýðandi, og verkið hefur hiotið heitið Otemjan eða Snegla tamin. Með verk- inu er fluttur forleikur og eftirleikur eftir Böðvar Guð- mundsson. Tilgangurinn með forleiknum er sá að koma islenskum áhorfendum nær verkinu, en sú var einmitt hugmyndin að baki upphaf- lega forleiksins eftir Shake- speare, því leikurinn gerist á Ítalíu og umhverfið og tíðar- andinn var framandi enskum leikhúsgestum. Leikstjóri er Þórhildur Þor- leifsdóttir og leikmynd eftir Steinþór Sigurðsson. Leikmyndin er sérstæð að því leyti að hún er að miklu leyti samsett úr leikmyndum annara verka, sem Leikfélagið hefur tekið til sýningar. Una Collins frá Bretlandi gerir búninga, en hún er kunn fyrir ýmis fyrri verk sín hér og er nú gestur Leikfélagsins i annað sinn. í leikritinu segir frá auðugum aðalsmanni, Baptista, og dætr- Aðstandendur ótemjunnar: Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri, (ásamt dóttur), Una Collins, búningahönnuð- ur og Steinþór Sigurðsson, sem gerði leikmynd. um hans tveimur, þeim Katrínu og Bjönku. Bjanka á sér marga vonbiðla en faðir þeirra systra hefur ákveðið að hún fái ekki að giftast, fyrr en Katrín hefur eignast mann. Katrín er hins- vegar annáluð fyrir skapofsa og erfiða lund og karlmennirnir sýna henni lítinn áhuga. Ævin- týramaðurinn Petrútsíó ákveður þó að kvænast Katrínu ekki sist vegna heimanmundarins og sýn- ir leikritið viðureign hans við hana og hvernig honum tekst að beygja hana til hlýðni og undir- gefni. Er ekki að efa að margir hafa gaman af að skoða efni leiksins í ljósi jafnréttisumræðu síðustu ára. Þau Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir og Þorsteinn Gunnarsson leika Katrínu og Petrútsíó. Jón Sigurbjörnsson leikur Baptistu, föður hennar og Lilja Þórisdótt- ir er Bjanka, systirin eftirsótta. Aðrir helstu leikendur eru Ragnheiður Steindórsdóttir, Hanna Maria Karlsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigriður Hagalin, Sigurður Karlsson, Jón Hjartarson, Karl Guðmundsson, Guðmundur Pálsson, Kjartan Ragnarsson, Harald G. Haraldsson og Egg- ert Þorleifsson. Ótemjan er sjöunda verkið, sem Leikfélag Reykjavíkur tekur til sýningar eftir Shakespeare. „Þrettándakvöld" var fyrsta Shakespeare-sýningin hér á landi, en það var sýnt 1926. önnur leikrit Shakespeare hjá Leikfélagi Reykjavíkur eru „Vetrarævintýri" „Kaupmaður- inn í Feneyjum", „Hamlet", „Rómeó og Júlía" og „Makbeð". Manntalið 31. janúar 1981: Manntalinu hagað á nokk- uð annað hátt en áður MANNTALIÐ laugardaginn 31. janúar næstkomandi verður hið 22. i röð svonefndra aðalmanntala á tslandi. Viðast hvar, einkum i þéttbýli, verður einstaklings- skýrslu- og hússkýrslueyðublöð- um dreift i ibúðir nokkru fyrir manntalsdag. t flestum þéttbýlis- sveitarfélögum munu teljarar ganga i hús sunnudaginn 1. febrú- ar til þess að innheimta einstakl- ingsskýrsluna og aðgæta að hún sé rétt gerð, svo og til þess að fylla út sjálfir ibúðarskýrslur eftir upplýsingum manna. Þeir veita einnig hússkýrslu viðtoku, ef þess er óskað, en ábyrgðarmenn þess- arar skýrslu hafa frest til 5. febrúar að skila henni til sveitar- stjórnar. í strjálbýli mun yfirferð teljara fara meira eftir aðstæðum i sveitarfélaginu og hefjast viða þegar á laugardegi. Alls verða um 4000 teljarar að störfum en þeir sjá um að dreifa blöðum, taka við þeim og veita þá aöstoð sem þarf. Næstu vikurnar eftir manntals- daginn starfa sveitarfélögin að þvi að bæta úr ágöllum skýrslna en senda þær siðan fullfrágengn- ar til Hagstofunnar. Á blaðamannafundi sem Hag- stofan efndi til kom fram að kostnaður sveitarfélaganna mun verða um þrjár milljónir nýkrónur af manntalinu en kostnaður Hag- stofunnar verður um tvöhundruð þúsund nýkrónur. Til þess að auð- velda almenningi að rækja skyldu sína, að fylla út einstaklingsskýrsl- ur, og eins til þess að tryggja sem besta úrvinnslu manntalsins, verða veittar ítarlegar leiðbeiningar í fjölmiðlum. Ber þar hæst hálftíma dagskrá sem sjónvarpað verður föstudagskvöldið 30. janúar. Er sjónvarpsþátturinn með þeim hætti að hentugt er fyrir fólk að útfylla einstaklingsskýrslur um leið, jafnóðum og leiðbeiningar birtast á sjónvarpsskjánum. ítar- leg kynning um útfyllingu skýrslna verður einnig í hljóðvarpi og dag- blöðum. Allar upplýsingar, sem koma fram um einkahagi manna, er farið með sem trúnaðarmál. Úrvinnslu manntalsskýrslna annast Hagstof- an og eru hlutaðeigandi starfs- menn hennar bundnir þagnar- skyldu. Það á einnig við um teljara og starfsmenn sveitarfélaga sem annast framkvæmd manntalsins. Þetta felur m.a. í sér að stofnanir og einstaklingar geta ekki fengið aðgang að upplýsingum manntals- ins um einstaklinga. T.d. fá skatt- yfirvöld þannig ekki upplýsingar um atvinnu og störf einstakra manna og þjóðskrá ekki vitneskju um þá sem segjast vera í óvígðri sambúð. Trúnaðarskylda þessi er til þess að fólk geti óhikaö veitt sem sannastar og réttastar upplýs- ingar um sig. Enda er tilgangur manntalsins ekki sá, að safna upplýsingum um einstaklinginn sem slíkan heldur að fá fram sem gleggsta og réttasta mynd af sam- félagsháttum á landinu nú við upphaf níunda áratugs aldarinnar. Að lokinni notkun manntals- skýrslna á Hagstofunni er þeim skilað til Þjóðskjalasafns. Á það skal bent að á safninu hvílir sama trúnaðarskylda og Hagstofunni varðandi aögang að skýrslunum. Manntalinu er nú hagað á nokk- uð annan hátt en áður. Arið 1960 og fyrr fóru manntöl þannig fram að teljarar gengu í hús og skrifuðu sjálfir niður allar upplýsingar um fólkið, íbúð þess og húsið á eitt og sama eyðublað. Manntalstökunni stjórnuðu bæjarstjórar í kaup- stöðum en sóknarprestar í öðrum umdæmum. Að þessu sinni er fólki ætlað að vera virkt við útfyllingu skýrslna um sig og munu sveitarstjórnir annast töku manntalsins um allt land. Formi eyðublaðanna er breytt þannig að viðfangsefni manntalsins er skipt á þrjú blöð: Einstaklingsskýrslu, sem skal gera um alla tólf ára og eldri um síðustu áramót, íbúðarskýrslu og húsa- skýrslu. Svokallað krossaprófskerfi er notað, það gefur færi á að orða spurningar nákvæmar og svörin verða því auðveldari fyrir almenn- ing. Við úrvinnslu þessa manntals verður þjóðskráin notuð til þess að fá upplýsingar um hjúskaparstétt þeirra, sem ekki eru í hjónabandi, ennfremur um fæðingarstað, trúfé- lagsaðild og ríkisfang, og þarf því ekki að spyrja um þessi atriði á eyðublöðunum. Höfuðtilgangur forhliðar húsa- skýrslu varðar ekki manntalsúr- vinnslu nú, heldur er óskað eftir allnákvæmum upplýsingum um staðsetningu íbúða í hverju húsi þannig að í framtíðinni verði hægt að gefa hverri íbúð fast auðkennis- merki. Að því fengnu mundi hver einstaklingur í þjóðskrá ekki að- eins vera með staðsetningu í því húsi sem hann býr, heldur einnig í ákveðinni íbúð í húsinu. Mikil þörf er talin á upptöku slíks kerfis hérlendis eftir að stór fjölbýlishús eru orðin eins algeng og raun ber vitni. T.d. mundi verða hægt að gera ítarlegar árlegar húsnæðis- skýrslur eftir þjóðskrá, ef þessu yrði komið á. Frá blaðamannafundinum, f.v.: Ingimar Jensson, deildarstjóri þjóðskrár, Klemens Tryggvaaon, hagsíofustjóri, Guðni Baldursson, deildarstjóri manntalsdeildar, Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sambands islenzka sveitarfélaga og Magnús Bjarnfreðsson, fréttastjóri Hagstofu vegna manntalsins. L|Ó8m. KrÍHtján.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.