Morgunblaðið - 23.01.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
11
í Hugur og hönd er þessi mynd af glösum með málmhlif með hanka
utan um glas, svo auðveldara sé að haida á því, ef drekka á heita
drykki. Kristín Eiríksdóttir hefur smiðað grind úr eir, gert á hana
gatamynstur og hamrað þaö að utan.
íslenzkur heimilisiðn-
aður í Hugur og hönd
Heimilisiðnaðarfélag íslands gef-
ur út ritið Iiugur og hönd, sem
flytur i máli og myndum alls konar
listaverk, sem unnin eru á íslandi. í
hefti þvi sem var að koma út er á
forsiðu hluti úr veggmynd, sem
Hólmfriður Árnadóttir hefur unnið
úr heimalituðu juta og silki og
nefnir Ljósaskipti við jökulröndina.
En i ritinu eru einmitt litprentuð
nokkur fleiri listaverk unnin af
islenzkum konum.
í ritinu eru greinar um blinda og
sjónskerta og vinnu þeirra, um heim-
ilisiðnaðarskólann og það sem þar er
unnið, um norrænt heimilisiðnaðar-
þing, forvörslu textíla og um hnefa-
tafl, sem selt var á víkingasýning-
unni í London. Þar er mikið af
uppskriftum af ofnum, prjónuðum og
hekluðum flíkum og föngulegri hand-
unninni brúðu. Myndir eru af mod-
elgripum, svo sem málmhlífum utan
um glös eftir Kristínu Eiríksdóttur
o.fl. Og loks fylgir þessu riti efnisyf-
irlit yfir greinar og myndir í blaðinu
frá 1966-1980.
Rætt um niðurfellingu
vaxtaaukareikninga
- með tilkomu nýrra verðtryggðra reikninga
EIRÍKUR Guðnason, hagfræð-
ingur hjá Seðlabanka íslands,
sagði i samtali við Mbl. i gærdag,
að undirbúningur vegna hinna
nýju verðtryggðu sparireikn-
inga, væri vel á veg kominn,
þannig að væntanlega yrði hægt
að auglýsa þá innan tiðar.
Eiríkur sagði hins vegar, að enn
væru þó nokkrir endar lausir
þannig að ekki væri hægt að segja
til um í smáatriðum hvernig
reglunum yrði háttað.
Aðspurður sagði Eiríkur, að sú
hugmynd hefði komið upp, að
leggja niður svokallaða vaxta-
aukareikninga, en engin ákvörðun
hefði enn verið tekin í því efni.
íbúum fer fækk-
andi í Garðinum
Garöi, 21. janúar.
ÍBÚUM í Garðinunt hefir fækkað
um 14 samkvæmt bráðabirgðatöl-
um Hagstofunnar sem hún gefur
út ár hvert 1. desember. Voru
ibúarnir 917 um áramót 1979— 80
en nú 903. Kemur þetta mjög á
óvart, þar sem hér hefir verið mjög
ör fólksfjölgun undanfarin ár.
Erfitt er að gera sér í hugarlund
hvað þarna ræður ferðinni. At-
vinnulif er með ágætum, að visu
mjög einhæft, þ.e. nánast eingöngu
fiskvinna.
Miklar byggingarframkvæmdir
hafa verið sl. ár og voru t.d. á miðju
sumri milli 20 og 30 einbýlishús í
smíðum. Ef leita á einhverra skýr-
inga á fólksfækkuninni kemur fyrst
í hug að hér eru engin þjónustufyr-
irtæki utan einnar verzlunar. Af
því tilefni má nefna að hér er engin
bankastofnun enda þótt Sparisjóð-
ur Keflavíkur hafi fyrir nokkru
keypt hér húsnæði, þá hefir enn
ekki fengist leyfi til að opna útibú.
Bæði Sparisjóðurinn og Landsbanki
íslands hafa lagt inn umsóknir til
að reka hér bankaútibú og er mér
kunnugt um að Sparisjóðurinn hef-
ir lagt inn umsóknir hvað eftir
annað en alltaf fengið synjun.
Einhverjum kann að detta í hug
að hér sé útsvar eitthvað lægra en í
nágrannabyggðunum en svo er ekki.
í fyrra var útsvarsálagningin
12,1%, sem er hæsta leyfilega
álagningin og hefir svo verið und-
anfarin ár. Að vísu fá þeir sem
standa í skilum á gjalddögum
svolitla lækkun næsta ár.
Arnór
Flugleiðir ræða leigu á
DC-8 til Saudi- Arabíu
FLUGLEIÐIR hafa að undanförnu
staðið i viðræðum við flugfélagið
Overseas Nationai Airways um
möguleika á að leigja eina af DC-8
þotum Flugleiða til National, en
sem kunnugt er, brann ein þota
ONA i flugskýli Cargolux i síðustu
viku.
Björn Theódórsson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs Flug-
leiða, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Flugleiðir hefðu ljáð máls
á að leigja eina áttuna, en hann
kvað leigutöku háða því, að ONA
fengi tilboð, sem það hefur gert í
verkefni í Saudi Arabíu. Ljóst
verður um næstu mánaðamót hvort
af þessum samningum verður, en þá
yrði um að ræða 1—2 ár.
Samningamál farmanna og sjómanna:
Aldan fordæmir af-
stöðu útgerðarmanna
FORYSTUMENN félaga sjómanna i Farmanna- og
fiskimannasambandinu og Sjómannafélagi íslands
munu væntanlega hittast einhvern næstu daga til að
ræða áframhaldandi aðgerðir i kjaradeilunni við
útgerðarmenn. Samningar þessara aðila hafa geng-
ið mjög stirðlega og itrekað hefur slitnað upp úr
viðræðum. Meðan samningar liggja ekki fyrir vilja
sjómenn ekki ræða ákvörðun nýs fiskverðs, en
útgerðarmenn vilja hins vegar ekki ræða önnur mál
i kjaradeilunni en lifeyrismálið meðan viðræðum um
það er ekki lokið.
Morgunblaðið ræddi í gær við
Þórð Sveinbjörnsson, framkvæmda
stjóra Öldunnar um kjaramálin og
var hann fyrst spurður um kröfur
farmanna og sjómanna í lífeyris-
sjóðsmálinu. Hann sagði, að kröfur
FFSÍ og SÍ væru samhljóða og væri
farið fram á að í lífeyrissjóð væri
greitt af öllum launum, en ekki
aðeins kauptryggingu. Benti hann á
að hjá sjómönnum á stóru skuttog-
urunum væri greitt af öllum laun-
um.
Hjá öðrum sjómönnum er nú
greitt í lífeyrissjóð af ákveðinni
viðmiðunartölu, sem er heldur lægri
en nemur kauptryggingu. Þessi tala
er ákveðin einu sinni á ári, í
desember, og breytist ekki á árinu
þannig að þessi viðmiðunartala
breytist ekki með vísitöluhækkun-
um eða fiskverðsbreytingum. Út-
gerðarmenn hafa boðið greiðslu af
fullri kauptryggingu háseta og hjá
öðrum sjómönnum í hlutfalli við
hlutaskiptareglur miðað við trygg-
ingu hásetans. Þeir bjóða einnig að
viðmiðunartalan verði endurskoðuð
fjórum sinnum á ári.
Að sögn Þórðar var þessu boði
útgerðarmanna svarað með tilslök-
un um greiðslu af öllum launum
kæmist á í áföngum. í ár yrði greitt
af 70% launa, 80% 1982, 90% 1983
og 100% 1984. Þessu höfnuðu út-
gerðarmenn og á laugardag slitnaði
upp úr samningaviðræðum.
Þess má geta að lífeyrissjóður
sjómanna er að fullu verðtryggður.
Aðalkrafa sjómanna er varðandi
lífeyrissjóðsmálin, en aðrar kröfur
þeirra hafa enn ekki verið ræddar.
Meðal þeirra má nefna, að sjómenn
fara fram á samræmingu á hluta-
skiptum við það sem gerist hjá
sjómönnum á Vestfjörðum. Þá er
krafa um að orlof lengist með
starfstíma og að í veiðibönnum, sem
ákveðin eru af stjórnvöldum, haldi
sjómenn óskertri kauptryggingu og
þar komi til kasta atvinnuleysis-
tryggingasjóðs.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Aldan er stærsta félag yfirmanna á
fiskiskipaflotanum, en innan vé-
banda þess eru skipstórar og stýri-
menn í Reykjavík, Snæfellsnesi,
Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði,
samtals hátt í 400 manns. Aldan
hefur samþykkt að veita samninga-
nefnd heimild til verkfallsboðunar í
samvinnu við önnur félög FFSÍ og
SÍ. Á fundi Öldunnar á þriðjudags-
kvöld var eftirfarandi ályktun gerð
um samningamálin:
„Trúnaðarmannaráð Skipstjóra-
og stýrimannafél. Öldunnr fordæm-
ir harðlega þá afstöðu sem fram
hefur komið hjá L.Í.Ú., sem felst
m.a. í eftirfarandi:
1. Eftir að sjómenn höfðu á sl.
hausti sett fram sínar kröfur sem
telja verður mjög hóflegar, lögðu
útgerðarmenn fram gagnkröfur,
sem fólu í sér stórfellda kjara-
skerðingu fyrir sjómenn og er hér
um atferli að ræða sem mun vera
einsdæmi í samningamálum
a.m.k. á síðari árum.
2. Eftir að útgerðarmenn fengust til
samningaviðræðna hafa þeir
þrisvar slitið viðræðum og hafa í
raun allt fram til þessa dags
neitað öllu, sem raunverulega
getur kallast viðræður. .
3. Ein aðal krafa sjómanna er
úrbætur í iðgjaldagreiðslum til
lífeyrissjóðs sjómanna þannig að
sjómenn búi ekki við lakari rétt
en aðrir þegnar í því efni. L.Í.Ú
hefur neitað þeirri kröfu, sem og
öðrum og ber fyrir sig kostnaðar-
auka, sem útgerðin geti ekki
borið. Sé sú fullyrðing á rökum
reist, sem draga verður stórlega í
efa, verður að skapa útgerðinni
þau skilyrði að hægt sé að verða
við þessari mannréttindakröfu.
4. L.Í.Ú. hefur nú knúið sjómenn til
þess að grípa til verkfallsvopns-
ins og hafa þeir alla ábyrgð þar
af.
Trúnaðarmannaráð Öldunnar
skorar á alla sjómenn að standa fast
að baki forystumönnum og samn-
inganefnd sjómanna í þeim átökum
sem framundan kunna að vera til
þess að knýja fram viðunandi samn-
inga.“
Þ0RRINN BYRJAR í DAB
06 AUÐVITAÐ BJÓDUM
VIÐ Þ0RRAMAT í ASKINUM
Á ASKIAÐ LAUBAVEBI28.
Nú er líka bóndadagur og húsfreyjur
borgarinnar veita bændum sínum dýr-
indis þorramat úr askinum okkar.
ASKUR
Laugavegi 28.