Morgunblaðið - 23.01.1981, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
25
fclk í
fréttum
Forsetaskipti
+ Víðar eru for-
setaskipti en í
Bandaríkjunum.
Nýlega voru for-
setaskipti hjá
Kfnahagsbanda-
lagi Evrópu. Roy
Jenkins frá
Bretlandi (til
hægri) lét af
embætti og við
því tók Gaston
Torn frá Lux-
embourg. Myndin
var tekin er Torn
tók við embætt-
inu í aðalbæki-
stöðvum Efna-
hagsbandalags-
ins í Brussel.
„Járnfrúin“
+ „Járnfrúin" Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, mun brátt
hljóta William J. Donovan-verðlaunin. Þessi verðlaun eru kennd við
William J. Donovan, sem stofnsetti Herfræðideildina (O.S.S.) í seinni
heimsstyrjöidinni. Thatcher mun veita verðlaununum viðtöku í New
York 28. febrúar, en þá verður hún í Bandarikjunum og mun þá ræða við
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta. Verðlaunin eru veitt af gömlum
starfsmönnum O.S.S. og eru afhent fyrir framlag til að tryggja
framgang lýðræðis og friðar í heimsbyggðinni.
Þetta er svo nýjasta myndin okkar af hinum breska forsætisráðherra.
— í fyrstu töldum við að hér væri um að ræða konu sem ætti að æfa
undir för út í geiminn, eða skurðstofuhjúkrunarfræðing eða meindýra-
eyði í fullum skrúða. — En hér er frú Margaret Thatcher uppábúin í
skoðunarferð í verksmiðju einni í Bretlandi fyrir skömmu. — Þar hefur
verið lögð mikil áhersla á hverskonar heilsuvernd starfsmanna og
notkun hlífðarfata.
+ Þetta er frú Jeane Kirk-
patrick, sem hinn nýi for-
seti Bandaríkjanna, Ronald
Reagan, hefur útnefnt, sem
sendiherra Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum.
Hún er prófessor við
Georgetown University.
Myndin er tekin er hún
kom fyrir utan ríkismála-
nefnd Bandaríkjaþings og
svaraði þar ýmsum spurn-
ingum nefndarmanna.
Slíkt er háttur manna þar
vestra þegar um er að ræða
veitingu mikilvægra emb-
ætta í þágu lands og þjóð-
ar.
Diplómat og
fuglavinur
+ Fyrir skömmu bárust þær
fréttir að látinn væri á Englandi
Malcolm MacDonald, 79 ára að
aldri. MacDonald var einn helsti
„diplómat" Breta og gegndi störf-
um bæði undir stjórn Verka-
mannaflokksins og íhalds-
flokksins. Hann var sonur Ram-
sey MacDonald sem árið 1924
varð fyrsti forsætisráðherra
Verkamannaflokksins og lést ár-
ið 1937. MacDonald var Skoti og
var víðförlastur breskra dipló-
mata. Hann stillti oft til friðar í
nýlendum Breta og glímdi við
erfiðar stöður í löndum sem voru
í hraðri framþróun. Hann dvald-
ist í fimm ár i Kanada sem
háttsettur erindreki. Hann
gegndi stöðum tandshöfðingja og
sendiherra í 10 ár í Malasíu,
Singapore og Borneo. 5 ár var
hann erindreki í Indlandi og í 6
ár var hann í Kenya og öðrum
Afríkuríkjum sem fulltrúi. Árið
1969 var MacDonald sæmdur
hinni eftirsóttu O.M. (Order of
Merit) orðu. Það þykir geysimik-
ill heiður að hljóta hana en
samkvæmt reglum skulu aðeins
24 einstaklingar bera þessa orðu
samtímis. Hún er venjulega veitt
fyrir afrek á sviði vísinda og
lista. Malcolm MacDonald skrif-
aði einar 6 bækur, sem fjalla um
ferðir hans og fuglaskoðun, en
það var mikil eftirlætisiðja hans.
ASÍ-bæklingur um
vinnuvemd kominn út
UM siðustu áramót tóku gildi ný
lög um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum. t fréttatil-
kynningu frá Alþýðusambandi ís-
lands, sem Morgunblaðinu hefur
borizt segir að lög þessi marki
timamót i vinnuverndarmálum
verkafólks hér á landi. þar sem
lögð sé á það áherzla að leysa
öryggis- og heilhrigðisvandamál
innan vinnustaðanna sjálfra. Auk
þess geri lögin ráð fyrir því að á
stofn verði sett Vinnueftirlit ríkis-
ins og hafi það eftirlit með fram-
kvæmd laganna og reglugerða er
þau varða.
Vegna gildistöku laganna hafa
ASÍ og Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu gefið út bæklinginn
Vinnuvernd, þar sem lögin eru
kynnt í máli og myndum. Er
bæklingurinn unninn með það fyrir
augum, að nota megi hann sem
kennslugagn á námskeiðum, vinnu-
staðafundum og í fleiri tilvikum.
Farið er yfir efnisþætti laganna í 12
köflum, birtur listi yfir lög þau og
reglugerðir, sem gefin hafa verið út
um öryggismál á vinnustöðum, svo
og almenn fyrirmæli og leiðbein-
ingar um sama efni. Loks eru svo
lögin sjálf birt í bæklingnum.
Snorri Jónsson, fyrrverandi for-
seti ASÍ skrifar formálsorð að
bæklingnum og segir hann að
honum sé ætlað að verða upphafið
að fræðsluútgáfu ASÍ og MFA um
einstaka og afmarkaða málaflokka,
sem snerti verkalýðshreyfinguna.
Bæklingurinn verður sendur til
allra verkalýðsfélaga í landinu til
frekari kynningar. Upphaflega voru
prentuð af honum 5.000 eintök og
var 500 dreift til kynningar á
ASÍ-þingi. Þau 4.500 eintök, sem
ekki var dreift þá brunnu, er
kviknaði í prentsmiðjunni, sem
vann bæklinginn, en þau hafa nú
verið endurprentuð.
Sjómannafélag Reykjavikur:
Óskað umsagnar
félagsmanna um
verkfallsheimild
STJÓRNARFUNDUR í Sjómanna-
félagi Reykjavikur ákvað i gær að
leita eftir verkfallsheimild meðal
undirmanna á farskipum, sem
felldu samningana, sem undirrit-
aðir voru hinn 19. desember sið-
astliðinn. Sendi stjórnin skeyti um
borð i öll farskip i gær og óskaði
eftir svörum við heimild til verk-
fallsboðunar.
Alls munu félagsmenn Sjó-
mannafélags Reykjavíkur vera á
um 40 farskipum og er þess vænzt
að svör við fyrirspurn félagsstjórn-
arinnar hafi borizt fyrir næstkom-
andi mánudag. Samningarnir, sem
felldir voru fólu í sér 11,5% grunn-
kaupshækkun, lengingu orlofs o. fl.
Vettir»9ohú/ió
GAPi-mn
HAFNARFIRÐI
Viö bjóöum þorramat á hlaöboröi á
kr. 90 pr. mann.
„HVER BÝÐUR BETUR?“
Guöni Guðmundsson píanóleikari sér um tón-
listina.
Allar vsitingar.
ps Konur
Hvernig vœri aö bjóöa betri helmingnum út aö
boröa á bóndadaginn? ? ?
ALLIR VELKOMNIR
'UeiliAQohú/íd
cnn-inn
HAFNARFIRÐI
Dalshrauni 13, sími 54424.