Morgunblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981 HÖGNI HREKKVÍSI /-*/ © 1981 Mr.Naughl Syu4.. „HMN MJ^LMAB WNN ERMMr Ast er... ... að koma snemma heim til að hjálpa henni með undirbúning vegna komu gestanna ... TM fteg U S P*l nohu rMarved c 1978 Los Aogetes Ttmes Með morgnnkaffmu Já, þegar þú nú nefnir þetta, þá satt best að se«ja varð ég undrandi er ég taldi 200.000 upp úr umslaKÍnu mínu við siðustu útborjíun. COSPER Morgunblaðið hefur dreg ið taum ráðandi afla (Velvakandi fór fram á þaÓ við höfund bréfs þesHa. að það birtist undir fullu nafni. og varð höfundur góðfúslega við þeirri beiðni.) Jóhanna TryKRvadóttir, Hafnar- firði, skrifar 20. janúar: „Kæri Velvakandi, Mig langar að koma á framfæri í dálkum þínum athugasemd vegna fréttaflutnings Morgunblaðsins sl. hálft ár af málefnum Flugleiða hf. — eða allt frá því, að sögur tóku að ganga af því, að ekki væri allt með felldu þar innan dyra sem viðkemur fjárhag og rekstri félagsins. Þessi mál urðu síðan opinber svo um munaði, þegar framkvæmda- stjórar félagsins fóru að fjúka, án nokkurs misferlis þeirra, með eins dags fyrirvara eða svo, og síðan talsvert slangur af þaulreyndum starfsmönnum, sem áttu ekki svo lítinn þátt í að byggja upp umsvifa- meiri rekstrareiningu Flugleiða hf., nefnilega Loftleiðir hf. Ekki unnt að tala um hlutlausan fréttaílutninK Mér finnst Morgunblaðið hafa, frá upphafi fréttaflutnings þess af Flugleiðum hf., dregið taum ráðandi afla eða meirihluta stjórnar þess félags sem er Gimskipafélag íslands og Klak hf. og þó sérstaklega forstjóra þess, og að blaðið hafi sett stórlega niður. Hlutlausan frétta- flutning er því miður ekki hægt að tala um í þessu sambandi. Þetta er því sárara, að Morgunblaðið er nú einu sinni stærsta blað okkar lands- manna og er lesið af miklum meirihluta þeirra. Einnig telst það skeleggur málsvari einstaklings- framtaksins, sem einmitt gerði Loftleiðir hf. að því stórfyrirtæki, sem það var á sínum tíma. Út yfir tók þó síðasta fréttin í öllum þeim fréttum Morgun- blaðsins, sem birtast um Flugleiðir Þessir hringdu . . . Hámark hræsninnar örn Harðarson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Kommúnistarnir Vilborg Harðar- dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson stilltu sér upp fyrir alþjóð í sjónvarpinu þriðjudaginn 20. þ.m. Þessir tveir kommúnistar styðja ógnarstjórnir trúbræðra sinna í austantjaldslöndunum, t.d. í A- Þýskalandi, Póllandi, Ungverja- landi og lengra austur, t.d. í Víetnam, og vinna að því að koma á sama kerfi hér á íslandi. Hvað gera þau svo hér í sjónvarpinu án þess að blikna? Þau leiða fram m.a. flóttastúlku frá Víetnam, sem varð að flýja land sitt vegna hryðjuverka kommúnista þar, og flóttamann frá Ungverjalandi, sem líka er hér á íslandi vegna yfirgangs kommúnista í landi hans 1956. Svo spyrja þau með sakleysissvip og vantar ekkert nema geislabaug: Hvernig er að vera flóttamaður á íslandi? Leiðrétting Valdís Hansdóttir hringdi í Velvakanda í gær vegna sjón- varpsþáttarins sem hér er gerður hf., þó einkum um stjórnarformann og forstjóra þess, hefur mér fundist skína í gegn svo eindregin afstaða með þeim — á móti þeim aðilum, sem ekki hafa viljað gangast undir málflutning og aðgerðir þeirra, þ. á m. gegn þeim stjórnarmönnum, sem þeir telja að víkja verði úr vegi til þess að forstjórinn geti „einn og einvaldur" komið hugðarmálum sín- um í höfn. Út yfir allt tók þó síðasta fréttin af þessu tagi, sem hafði að fyrir- sögn: „Alfreð Elíasson neitar að flytja skrifstofu sína.“ Að vísu var þessi frétt með annarri aukayfir- skrift eins og til vara: „Breytingar á skrifstofuhúsnæði Flugleiða." Á hann skilið slíka umfjöllun? Þessi fyrirsögn, sem var með feitletruðum stöfum, stakk mig illi- lega og svo er um fleiri, sem ég hef hitt. Slík fyrirsögn er venjulega notuð yfir eitthvað eða einhverja þá aðila, sem neitað hafa að semja sig að landslögum, brotið af sér eða standa i vegi fyrir þjóðhagslegum umbótum. En hefir maður, sem er annar þeirra frumherja, sem stofnaði hið gróskumikla fyrirtæki Loftleiðir hf., sem óx og varð þúsundum manna að lifibrauði, að ekki sé nú talað um þá þjónustu, sem það varð þekkt fyrir víða um heim, unnið eitthvert slíkt ódæði, að hann eigi skilið þá um- fjöllun sem áðurnefnd fyrirsögn felur í sér? „Skipulagsbreytingar“ í samtali við Mbl., þegar núver- andi forstjóri Flugleiða (Sigurður Helgason) var spurður um forsendu þess, að flytja þurfi fyrrverandi forstjóra (Alfreð Elíasson) í annað húsnæði en þá skrifstofu, sem hann hefir haft frá því að hann hafði frumkvæði að byggingu núverandi að umtalsefni (um flóttamenn á íslandi), en föðurnafn hennar mis- ritaðist og var hún sögð Hann- esdóttir. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Veröldin bara verðlaust skrín Jakob Jonasson hringdi og kvaðst hafa botnað fyrripartinn um tölvurnar og ástina: Ást er tölvum eins og grin, andinn bölvað fleipur, veröldin bara verðlaust skrin, vonin loft og reykur. Skrifar undir í fullkominni fávisku Roskinn Iesandi hringdi og sagði: — Ég veit um mörg dæmi þess að fullorðið fólk er undir miklum þrýstingi frá krökkum sem reyna að fá það til að aðstoða sig við að falsa nafnskírteini sín. Ung telpa bað mig nýlega um að koma með sér niður á Hagstofu og skrifa sem vottur undir skjal þar sem aldur hennar var sagður hærri en ég vissi að raun var á. Ég þverneitaði að gera þetta, þó að ég væri brýnd á því að þetta gerði fullorðið fólk oft fyrir krakka. Ég benti telpunni á að þetta væri skjalafals og ekkert annað, og ef fólk gerði sig sekt um slíkt hlyti það að gera svo í fullkominni fávisku. Ég held meira að segja að fallið hafi dómur í máli eins og þessu og vil eindregið vara fólk við að láta þrýsta sér til að fremja slíka glópsku. skrifstofuhúsnæðis Flugleiða hf., og fyrrverandi Flugfélagsmenn fluttu inn í sigri hrósandi við sameining- una, svaraði Sigurður Helgason, að verið væri að gera „skipulagsbreyt- ingar“ á húsnæðinu, og þar af leiðandi hafi Alfreð Elíassyni „verið boðin“ aðstaða annars staðar í húsinu! Aðeins eitt aí dæmunum Að sögn kunnugra er nóg húsrými í skrifstofuhúsnæði Flugleiða og þarf jafnvel að leigja út hluta af því. Þannig er ástæðulaust nú fyrir stjórnarformann Eimskipafélags ís- lands sem er formaður í nefnd þeirri, sem sá um þetta mál, að láta gera gangskör að brottrekstri fyrr- verandi forstjóra Loftleiða út úr sínu eigin húsnæði á svo ósmekkleg- an hátt. Þetta er aðeins eitt af dæmunum um umfjöllum Mbl. um málefni Flugleiða og þeirra manna, sem hvað lengst hafa starfað fyrir Loft- leiðir og reyndar Flugfélag íslands líka. Öll sjónarmið komi fram Fyrir skömmu yfirgaf enn einn af reyndari starfsmönnum Flugleiða félagið. Mbl. birti frétt um starfslok þessa ágæta manns, sem var einn af þrem fyrstu starfsmönnum á skrifstofu Flugfélags íslands, á lítt áberandi hátt með þeim ummælum, að þessi maður hafi verið í þjónustu Flugfélags íslands og síðar Flug- leiða um „árabil". Allir vita, að orðið árabil er notað um eitthvað , sem er óvisst, ekki mörg ár. Vona ég, að framvegis megi fjalla á hlutlausan en þó raunsæjan hátt um þær fréttir, sem varða þann ótrúlega skaða, sem íslensk flugmál hafa beðið með tilkomu Flugleiða hf., og. í þeim megi koma fram öll sjónarmið, en ekki einungis þess aðilans, sem „kúrsinum" ræður um stundarsakir." Aths. ritstj.: Morgunblaðið vísar ásökunum Jó- hönnu Tryggvadóttur á bug. Gagn- rýnin athugun á fréttaflutningi blaðsins í sambandi við málefni Flugleiða mundi leiða í ljós, að Morgunblaðið lagði áherzlu á það í fréttum sínum að leiða fram öll megin sjónarmið í þessu máli, bæði starfsmanna og annarra. Þau tvö dæmi, sem Jóhanna Tryggvadóttir nefnir máli sínu til stuðnings, eru út í hött. Það er alltaf matsatriði hvað ber að taka í fyrirsögn og hvernig fyrirsögn er orðuð en það er fárán- legt að halda því fram að Morgun- blaðið hafi viljað sýna neikvæða afstöðu til Alfreðs Elíassonar á einhvern hátt með vali fyrirsagnar á frétt um húsnæðismál hjá Flug- leiðum. Þvert á móti hefur Morgun- blaðið lagt áherzlu á það undan- farna mánuði að verja ávöxtinn af lífsstarfi Alfreðs Elíassonar og nokkurra annarra frumherja í flug- málum fslendinga gegn ásókn lítilla karla, sem í skjóli pólitísks vafsturs hafa vegið að einkarekstri í flug- samgöngum með ósvífnum hætti. Morgynblaðið hefur jafnan sýnt Alfreð Elíassyni fyllsta sóma eins og honum líka ber. Jóhönnu Tryggvadóttur væri nær að taka þátt í baráttu Morgunblaðsins og fjölmargra annarra gegn þeim póli- tísku öflum, sem hafa lagt Flugleið- ir í einelti í stað þess að veitast að Morgunblaðinu með fullyrðingum, sem hún getur ekki staðið við. Morgunblaðið hefur tekið ein- dregna afstöðu með einkarekstri í flugsamgöngum en blaðið hefur hins vegar ekki tekið nokkra afstöðu í deilum milli einstakra forystu- manna Flugleiða og mun ekki gera. Það er þeirra mál að jafna þann ágreining. Þessi furðulegu skrif Jóhönnu Tryggvadóttur hljóta að vera komin til af öðrum ástæðum en þeim sem hún nefnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.