Morgunblaðið - 23.01.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
29
VIÐTALSTÍMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
& S\G6A WöGA g ‘{tlViHAU
Vonin mín
er létt
í lund
Gyða Erlendsdóttir skrifar:
„Velvakandi.
Hérna sendi ég þér upp-
skrifað kvæði eftir systurnar
Ólínu og Herdísi Andrésdæt-
ur, svona til gamans og upp-
rifjunar, í framhaldi af vísum
um vonina sem birst hafa í
dálkum þínum:
Vonin min er létt i lund,
ljós sem deyr og fæðist.
Ef hún daprast eina stund,
aðra lifið glæðist.
Talar hún ávhallt Ijúft, en lágt,
leikur við hvern sinn fingur.
sér á rósum dillar dátt,
dansar. hlær og syngur.
Ekki var hún á sér þung
með unaðs blóm i mundum.
Forðum þegar ég var ung
elti ég hana stundum.
Þá var hún bjðrt sem sól að sjá
á sumarmorgni hlýjum;
minnst er varði vikin frá
vóð sem tungi i skýjum.
Kinka sá ég kollinn þinn
hverfleikans á bárum.
Fallcga sðngstu. fuglinn minn,
fyrir nokkrum árum.
Hlustaði ég á þin hulduljóð.
Hugurinn aldrei þreyttist,
uns i dauða dapran óð.
dýrðarsöngur breyttist.
Ei að siður enn i dag
ég vil sðng þinn heyra.
Þetta blessað ljúflingslag
lét svo vel í eyra.
Þú hefur gjafir fáar fært,
fagrar hjarta minu.
Mér hefur stundum verið vært
und vængjablaki þinu.
Bráðum mun ég þiggja þaö
að þreyttur hvilist andi
og þú verðir, von min, að
vissu á sælu landi.
Komdu er húmar hels á veg
við hinsta æðarslagið,
þegar siðast sofna ég
og syngdu gamla lagið.
VELVAKANDI ■
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
.TIL FÖSTUDAGS ,
11*1WL a'-A U fr* U ll
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksiná
veröa til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekiö á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
boöiö að notfæra sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 24. janúar verða til viötals Davíð
Oddson og Ragnar Júlíusson.
Um dagvistarmál
9279-8062 skrifar 6. janúar:
Ég er ein af þeim konum sem
alltaf hefi haft áhuga á dagvistun-
armálum barna og fylgst með því
sem er að gerast í þeim málum. í
dagblöðum í dag er sagt frá opnun
þriggja nýrra dagvistunarstofn-
ana, sem voru formlega teknar í
notkun í gær. í ávarpi sínu segir
Gerður Steinþórsdóttir að Félags-
málaráðuneytið sé að vinna að 10
ára áætlun um uppbyggingu dag-
vistunarstofnana sem miði að því
að fullnægja þörfinni að fullu.
Þetta finnst mér mjög miklar
gleðifrétlir.
7% hærra gjald
Laugardaginn 20. des. 1980 er í
dagblöðum fréttatilkynning frá
Félagsmálaráði og er þetta úr
henni: „í haust hafa farið fram á
vegum Námsflokka Reykjavíkur í
samvinnu við Dagvistunardeild
Félagsmálastofnunarinnar nám-
skeið fyrir dagmæður. Dagmæðr-
um með starfsleyfi frá barna-
verndarnefnd er skylt að sækja
slíkt námskeið. Frá 1. desember
1980 er þeim heimilt að taka 7%
hærra gjald fyrir vinnu sína.“
Er búið að því?
„5. okt. 1980 ýmsar fréttir af
tilefni 10 ára afmælis Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar. Þar
ber einn kaflinn fyrirsögnina
„DAGMÖMMUR". Þar stendur að
dagmamman hafí 119 þús. kr. á
mánuði fyrir eitt barn. Og þetta:
„Einnig er stefnt að auknu sam-
starfi dagmæðra, þannig að þær
geti tekið við börnum hver ann-
arrar ef um forföll er að ræða.“
Þetta túlka ég þannig að ef
dagmömmur veikjast þá geti þær
komið börnunum fyrir hver hjá
annarri t.d. í nokkra daga. Og
seinast í kaflanum: „Loks má geta
þess að prentaður hefur verið
bæklingur með upplýsingum og
reglum sem snerta bæði dag-
mömmur og forráðamenn þeirra
barna sem hjá þeim vistast, og
verður honum dreift til þessara
aðila.“
Er búið að því?
Og þá fer ég nú að koma að
kjarna málsins: Tökum eitt dæmi:
Barn fer til dagmömmu 3ja mán-
aða gamalt. Um 6 mánaða aldur
fær barnið vont kvef og er heima í
1 viku. Stuttu seinna inflúensu og
er heima í 2 vikur, þar næst
mislinga og er heima í heilan
mánuð. Enn kvef og er heima í 1
viku. Um 10 mánaða aldur er
barnið búið að vera veikt í fulla 2
mánuði af 7 sem það hefur verið í
dagvistun.
Á dagmamman að fá greitt fyrir
þá vinnu sem hún lætur ekki af
hendi? Á sú manneskja sem í
þessu tilfelli passaði veikt barn í 2
mánuði ekkert kaup að fá? Geta
foreldrar tekið sér frí frá vinnu
hvenær sem er, í hvað langan tíma
sem er án þess að kaup þeirra
skerðist? Hvað með einstæðar
mæður? Er ætlast til að foreldrar
borgi tvöfalt gjald fyrir þann tíma
sem barnið er veikt?
Leiðrétting
í vísu Jakobs Jónassonar, Grát-
ið á frönsku, sem birtist í Velvak-
andadálki á miðvikudag, varð
slæm villa í 3. vísuorði, og birtist
vísan hér aftur ásamt afsökunar-
beiðni til höfundar:
Guðrún missti gervison,
grét aí list á frönsku,
uns Gunnar henni gervi-von,
gaf á púra-dönsku.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU
/ ,5/<áZ.O >
^MoriU 06
VÁ/
Í6
m
/1 <hl6L0
<\Í0 06
m
Véiadeild
Sambandsins
HJÓLBARDAR
HÖFDABAKKA 9. SÍMI:83490.
Það munar ef til vill ekki miklu á mýkt, breidd og endingu
flestra snjóbarðategunda.
En þessi litli munur getur þó munað öllu þegar um öryggi
yðar og annarra er að tefla.
Yokohama og Atlas eru þekktar tegundir fyrir þá kosti,
sem tryggja öryggi yðar og annarra í umferðinni.
ATLAS
YOKOHAMA