Morgunblaðið - 21.02.1981, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
3
Samverustund i leikskólanum Lundaseli á Akureyri.
Fóstrur á Akur-
eyri hættu
störfum í gær
FÓSTRUR á Akureyri unnu sinn
siðasta vinnudag að svo komnu
máli i gær, er uppsagnir þeirra
vegna kjaramála komu til fram-
kvæmda, þar sem ekki hafði verið
orðið við kröfum þeirra um að
grunnlaun fóstra yrðu samkvæmt
13. launaflokki og stöðuheitið
deildarfóstra yrði ekki að veru-
ieika. í þvi tilefni spjallaði Morg-
unblaðið við Sigriði Gisladóttur
formann kjaramálaráðs fóstra á
Akureyri, og spurði hana nánar
um málið.
„Eins og fram hefur komið áður,
höfum við nú farið fram á að
grunnlaun verði samkvæmt 13.
launaflokki og að starfsheitið
deildarfóstra verði fellt niður. Við
teljum að deildarfóstrustarfsheitið
geti í framtíðinni valdið launamis-
ræmi, þegar fleiri en ein fóstra
koma til með að vinna á sömu
deild, ein þeirra verði þá titluð
deildarfóstra og fái þá hærrti laun
en hinar fyrir sömu vinnu.“
Hafið þið fundað eitthvað með
viðsemjanda ykkar, kjaramála-
nefnd bæjarins?
„Það var einn óformlegur fundur
í síðustu viku, þar sem segja má
„að njósnað hafi verið á báða
bóga“, en meira hefur það nú ekki
orðið síðan og því vinnum við
okkar síðasta vinnudag í dag,
föstudag. Fóstrur hafa haldið tvo
fundi, síðast nú á fimmtudags-
kvöldið og við erum sammála um
að láta ekki deigan síga. Við höfum
orðið varar við talsverðan stuðning
fólks hér í bænum og á kjaramála-
ráðstefnu fóstra, sem haldin var
fyrir skömmu, bárust okkur fjöl-
margar stuðningsyfirlýsingar, svo
við förum ótrauðar út í þessar
aðgerðir einfaldlega til að fá
mannsæmandi laun.“
Er þér kunnugt um hvort bæjar-
yfirvöld hafi leitað eftir undan-
þágu til að reka dagheimilin með
ófaglærðu fólki?
„Nei, mér er ekki kunnugt um
það, enda mun það ýmsum van-
köntum háð. Mér er kunnugt um
að félagsmálaráð bæjarins er á
móti því og ég er engan veginn viss
um að foreldrar sætti sig við það,
að dagheimilin verði gerð að
„barnageymslum" í stað uppeld-
isstofnana. Þá er rétt að benda á
það að ef sveitarfélög tækju al-
mennt upp á slíkum aðgerðum,
væri það einfaldlega til að eyði-
leggja heila stétt sérmenntaðs
starfsfólks, sem kjara sinna vegna
treystir sér ekki til að vinna við
núverandi kringumstæður."
Hvert verður svo framhaldið?
Sigríður Gísladóttir, formaður
kjaramálanefndar fóstra á
Akureyri ásamt dóttur sinni.
Ljósm. Mbl. Kristinn.
„Við höfum áður sagt, að verði
ekki hægt að koma til móts við
þessar kröfur okkar, munum við
byrja stríðið frá byrjun að nýju og
þá væntanlega leggja fram þær
kröfur, sem í upphafi komu fram
af okkar hálfu. Það er grunnlaun
verði samkvæmt 14. launaflokki og
launahækkun forstöðukvenna
verði talsvert meiri en nú var
ætlað.
En hvað sem segja má um þessa
baráttu, þá hefur hún þó haft það í
för með sér, að fóstrur hafa
þjappast saman og verið mjög
samtaka í baráttunni og í fram-
haldi þess er á döfinni stofnun
félags fóstra á Akureyri, sem er
mikilvægt framfaraskref bæði
hvað varðar félags- og kjaramál,"
sagði Sigríður að lokum.
Fóstrur í Kópavogi höfnuðu:
Dagvistarheimili
lokuð eftir helgi
DAGVISTARHEIMILI í Kópavogi
verða lokuð frá mánudeginum, þar
sem ekki tókst samkomulag milli
fóstra og bæjarráðs um helgina. en
fóstrur höfðu sagt störfum sinum
lausum. Fóstrur höfnuðu tilboði
bæjarráðs og tjáði Richard Björg-
vinsson bæjarstjóri Mbl. 1 gær-
kvöld, að um frekari tilboð af hálfu
bæjarráðs yrði ekki að ræða og þvi
yrði að ioka dagvistarheimilunum.
Á fundi bæjarráðs í gær var
tilboði fóstra um röðun í 12. launa-
flokk og hækkun um 1 flokk eftir ár
hafnað, en bæjarráð samþykkti ein-
róma eftirfarandi bókun: Bæjarráð
samþykkir eftirfarandi túlkun á 15.
grein nýgerðs kjarasamnings, enda
falli fóstrur frá uppsögnum sínum,
- sem taka eiga gildi í kvöld. Með
tilvísun til 15. greinar sérkjara-
samnings bæjarráðs við Starfs-
mannafélag Kópavogs, skal greiða
fóstrum á þær 2 klukkustundir á
viku í undirbúningstíma mismun á
dagvinnu og eftirvinnukaupi miðað
við umsaminn launaflokk. Þessi til-
högun gildir einungis til næstu
kjarasamninga.
Fóstrur fengu frest til að svara
tilboði bæjarráðs til kl. 17 og komu
þær á fund ráðsins kl. 18.10 og
höfnuðu tilboðinu og segir í fundar-
gerð bæjarráðs, að þær sætti sig
ekki við dulbúna launahækkun. I
framhaldi af þessari niðurstöðu
samþykkti bæjarráð einróma eftir-
farandi bókun: Bæjarráð harmar
hina óbilgjörnu afstöðu fóstra og
vekur enn athygli á því, að bæjarráð
telur sér ekki fært að ræða um
launaflokkahækkanir beint ofan í
nýgerðan kjarasamning við Starfs-
mannafélag Kópavogs án þess að
það leiði til endurskoðunar á samn-
ingnum við starfsmenn bæjarins
almennt. Bæjarráð telur sig því ekki
geta gert fóstrum frekari tilboð, en
samþykkir að dagvistarheimili í
Kópavogi verði lokuð unz öðruvísi
kann að skipast.
Richard Björgvinsson sagði að
lengra yrði ekki komist í þessu máli,
bið yrði á tilboðum frá bæjarráði og
heimilin því lokuð á meðan, en þau
eru 6.
Sjálfvirkt val
til Bretlands
FRÁ OG með deginum í dag er tekið
í notkun sjálfvirkt val til Stóra-
Bretlands, en í frétt frá Póst- og
símamálastofnuninni í gær segir
einnig, að notendur sjálfvirka síma-
kerfisins á 92 svæðinu geti einnig
hringt beint til útlanda.
Gjald fyrir sjálfvirk símtöl verður
9,80 kr. á mínútuna, en gjald fyrir
símtöl með aðstoð talsambandsins,
09, er 12,50 kr. hver mínúta, miðað
við núverandi gengi SDR.
Þögul mótmæli við ófull-
nægjandi málsmeðferð
- segir Vilmar Pedersen sem sat hjá við
atkvæðagreiðslu um viðbótarsamning BSRB
SEXTÍU manna samninganefnd
BSRB samþykkti viðbótarsamning
við fjármálaráðherra með 38 at-
kvæðum gegn 1 og 12 fulltrúar
sátu hjá. Einn þeirra er sat hjá var
Vilmar H. Pedersen fulltrúi Starfs-
mannafélags sjónvarpsins og innti
Mbi. hann eftir ástæðum þess að
hann sat hjá.
Framkvæmdastofnun vísar togara-
kaupamálinu til ríkisstjórnarinnar
„Ætlaði að nota Framkvæmdastofnun sem fótaþurrku44
segir Ólafur G. Einarsson um ríkisstjórnina
„VIÐ VITUM, að rikisstjórnin
ætlaði að nota Framkvæmdastofn-
unina sem fótaþurrku i þessu máli
og þvi samþykktum við i stjórn
í’rail’kvæmdastofnunar í morgur.
að æskja þess, aö FÍkÍSSÍjÓmín
segði sitt álit á málinu, og er
málið því í hennar höndum nú,“
sagði ólafur G. Einarsson m.a. i
viðtali við Mbl. í gær, en á fundi
stjórnar stofnunarinnar i gær-
morgun var samþykkt samhljóða
af öllum stjórnarmeðlimum til-
laga, framlögð af fimm þeirra,
þess efnis að æskja þess að ríkis-
stjórnin skýri stjórninni frá af-
stöðu sinni til kaupa á svonefnd-
um Þórshafnartogara.
Ólafur G. Einarsson og Matthías
Bjarnason, ásamt Stefáni Guð-
mundssyni, Geir Gunnarssyni og
Þórarni Sigurjónssyni, lögðu fram
svohljóðandi tillögu: „Eftir að
stjórn r Framkvæmdastofnunar
ríkisins samþykkti á fundi sínum
þann 17. þ. m. tillögu um afgreiðslu
á togarakaupum Útgerðarfélags
N-Þingeyinga hf. hafa farið fram
umræður á Alþingi um málið. í
tilefni af þeim umræðum óskar
stjórn Framkvæmdastofnunar að
upplýst verði afstaða ríkisstjórnar-
innar til Jæirrar lausnar málsins,
sem fyrrgreind tillaga gerir ráð
fyrir." Tillagan var samþykkt sam-
hljóða með atkvæðum flutnings-
manna og Eggerts Haukdal og
Karls Steinars Guðnasonar.
Þá sagði Ólafur: „Á fundinum
lögðum við Matthías einnig fram
bókun þar sem málsatvik eru
rakin, en við samþykktum á fundi
h; 17. þ.m. að lánað skyldi fé úr
Byggðasjóði tii á togara að
kaupverði og endurbótakostnaði 2e
milljóna norskra króna. Byggða-
sjóður skyldi lána beint 10%, en
10% kæmu af sérstöku fjármagni,
sem ríkisstjórnin hugðist fela
Byggðasjóði til ráðstöfunar með
ábyrgð ríkissjóðs.
Forsendur fyrir samþykki okkar
voru m.a. þær, að ríkisstjórnin,
aS.TÍ befur haft forystu í þessu
máli, væri samþykk peaa«w T™"
„Ríkisstjórnin fjallar
um málið á þriðjudag“
- segir Gunnar Thoroddsen um
tillögu Framkvæmdastofnunar
„Ég var að fá bréfið frá stjórn
Framkvæmdastofnunar i hend-
ur. Það verður lagt fyr'ir á næsta
ríkisstjórnarfundi, sem haldinn
verður n. k. þriðjudagsmorgun“
sagði Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra, er Mbl. spurði
hann álits á tillögunni sem
samþykkt var á fundi stjórnar
Framkvæmdastofnunar i gær-
morgun, þess efnis að óskað sé
eftir áliti rikisstjórnarinnar um
kaup á Þórshafnartogaranum.
Þá spurði blaðamaður forsæt-
isráðherra, hvort mál þetta hefði
ekki verið rætt í ríkisstjórninni,
t.a.m. á ríkisstjórnarfundi, sem
haldinn var í fyrramorgun. Hann
svaraði því til, að það hefði verið
rætt margsinnis.
— Hver var niðurstaða þeirra
umræðna?
„Ég vil ekki tjá mig frekar um
málið á þessu stigi," svaraði
forsætisráðherra.
stöfun og hefði beint þeim tilmæl-
um til stjórnarinnar að afgreiða
málið með þessum hætti.
Við umræður á Alþingi í gær og
fyrradag kom hins vegar fram, að
ríkisstjórnin hefur ekki tekið neina
afstöðu til málsins. Forsætisráð-
herra segir alvarleg mistök hafa
átt sér stað og iðnaðarráðherra
segir nauðsynlegt að endurskoða
málið. Það liggur fyrir, að ríkis-
ábyrgðarsjóður getur ekki, án sér-
stakrar lagaheimildar ábyrgst 90%
kaupverðsins. Þeirrar heimildar
hefur eKKi
Þá sagði Ólafur að þeir vildu
ekki að Framkvæmdastofnun ríkis-
ins sæti uppi með vandann. „Ríkis-
stjórnin átti upptökin að þessu. Ég
lenti í þessu máli sem varamaður
og vil taka fram, að ég er á engan
hátt áhugamaður um þessi togara-
kaup, en taldi að Framkvæmda-
stofnunin ýrSÍ SÖ Síar.dS v|ð gefin
fyrirheit og stóð að afgreiðslu
málsins samkvæmt því.“
— Það hefur komið fram í fjöl-
miðlum, að innan veggja alþingis
sé rætt um hugsanlegar mútur til
handa einhverjum aðilum í sam-
bandi við þessi togarakaup. Hvað
viltu segja um það?
„Ég hef nú ekki heyrt það, en ef
slík umræða á sér stað verð ég að
segja að mér finnst það í grófara
lagi að vera með slíkar aðdróttanir.
Ég ætla þessum mönnum, sem lagt
hafa sig fram um togarakaupin,
ekki annað en að þeir vilji vinna að
þessu máli vegna trúar sinnar á, að
það geti orðið héraðinu til hags-
bóta,“ sagði Ólafur í lokin.
— Mér er engin launung að ég sat
hjá vegna þess að mér fannst hér
um að ræða ófullnægjandi máls-
meðferð, en á fundinum var fjallað
um tillögu fjármálaráðherra sem
úrslitakosti, en ekki sem tillögu og
því hefði ég talið eðlilegra, að farið
yrði út i allsherjaratkvæðagreiðslu
félaganna. Það hefur lítið komið
fram að við vorum 12 sem sátum hjá
og það má kalla þessa hjásetu eins
konar þögul mótmæli við málsmeð-
ferðinni. Við verðum að líta á þessa
tillögu í framh’aldi af öðrum aðgerð-
um ríkisstjórnarinnar, m.a. að brátt
kemur til framkvæmda 7% skerðing
á vísitölubótum og það er því eins og
að kyssa á vöndinn að taka þessu
tilboði og nokkuð úr takt við kjara-
baráttu okkar, sagði Vilmar og
bætti því við að í gangi væri
undirskriftasöfnun meðal félaga
BSRB.
Sjónvarp:
Reynt að draga
úr yfirvinnu og
aðkeyptri vinnu
enn HEFÍm y“r!A ákve^
ið til hvaða sparnaðaraðgerða
sjónvarpið mun gripa á næst-
unni, en um hugsanlegar leiðir
hefur verið rætt um á fundum
útvarpsráðs að undanförnu.
Verður reynt að ákveða aðgerðir
á næsta fundi útvarpsráðs nk.
þriöjudag.
— Við höfum einungis rætt
hugmyndir og margar hafa komið
fram, en ekkert er enn ákveðið.
Stungið hefur verið upp á að
fækka útsendingardögum, en um
það eru mjög skiptar skoðanir og
ég veit ekki hvort af því verður.
Hjá sjónvarpinu er talsvert um
aðkeypta vinnu og yfirvinnu og ég
geri ráð fyrir að þar megi draga
nokkuð úr áður en kemur til
uppsagna starfsfólks og að vart
verði af því að þessu sinni, sagði
Pétur Guðfinnsson framkvæmda-
stjóri sjónvarps, er hann var
spurður hvað helzt væri til um-
ræðu.