Morgunblaðið - 21.02.1981, Síða 8

Morgunblaðið - 21.02.1981, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981 BIBLIUDAGUR1981 sunnudagur 22.febrúar í dag, ó Biblíudegi, veröur tekið á móti gjöfum til styrktar starfi félagsins viö allar guösþjónustur í kirkjum landsins (og næstu sunnudaga í kirkjum, þar sem ekki er messaö á Biblíudaginn), svo og á samkomum kristilegu félaganna. — Er heitiö á alla landsmenn aö styöja og styrkja starf Hins íslenzka Biblíufélags. DOMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Jón Bjarman. Kl. 2 messa. Sr. Þórir Stephensen. Fermingarbörn flytja bæn og texta. Þess er vænst að fermingarbörn og aöstandendur þeirra komi til messunnar. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna- samkoma í safnaöarheimili Árbæj- arsóknar kl. 10.30 árd. Guösþjón- usta í safnaöarheimilinu kl. 2. Tekiö á móti gjöfum til Hins íslenzka Biblíufélags Kirkjukaffi Kvenfélags Árbæjarsóknar eftir messu. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa aö Norö- Urbrún 1 kl. 2. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIDHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl. 10.30. Guös- þjónusta kl. 14 í Breiöholtsskóla. Sr. Lárus Halldórsson. BÚST AÐAKIRK JA: Barnasam- koma kl. 11. Guösþjónusta kl. 2. Félagsstarf aldraöra er á miöviku- dögum milli kl. 2 og 5 síöd. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Barna- samkoma t' safnaöarheimilinu viö Bjarnhólastíg kl. 11. Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorberg- ur Kristjánsson. LANDAKOTSSPÍTALI: Kl. 10 messa. Organleikari Birgir Ás Guö- mundsson. Sr. Þórir Stephensen. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guösþjón- usta kl. 10 árd. í umsjá sr. Arngríms Jónssonar. FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Laugardagur: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnu- dagur: Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 f.h. Guösþjónusta í safnaöar- heimilinu aö Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Guösþjónusta kl. 2, altarisganga. Skátar koma í heim- sókn. Almenn samkoma n.k. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Biblíudagur- inn. Messa kl. 11. Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson predik- ar. Sr. Karl Sigurbjörnsson þjónar fyrir altari. Messa kl. 2. Kirkjukaffi að lokinni messu. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriöjud. 24. febr.: Fyrir- bænaguösþjónusta kl. 10.30 árd. Beöiö fyrir sjúkum. Kirkjuskóli barnanna er á laugardögum kl. 2 í gömlu kirkjunni. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HATEIGSKIRKJA: Barnaguösþjón- usta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Sr. Arngrímur Jóns- son. Lesmessa og fyrirbænir fimmtudagskvöld 26. febrúar kl. 20.30. Sr. Arngrímur Jónsson. K ARSNESPRESTAK ALL: Fjöl- skylduguösþjónusta í Kópavogs- kirkju kl. 11 árd. Fullorðnir eru hvattir til aö koma meö börnunum til guösþjónustunnar. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Sigurgeir Sigrugeirs- son, Jón Stefánsson, Siguröur Haukur og fleiri sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 2. Organleikari Jón Stefnánsson. Prestur sr. Sig. Haukur Guöjónsson. Tekiö á móti framlögum til Biblíufélagsins. Kirkjukaffi á vegum Kvenfélagsins kl. 2. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Barnaguös- þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Margrét Hróbjartsdóttir, safnaöar- GUDSPJALL DAGS- INS: Lúk. 8.: Ferns konar sáöjörö. systir predikar. Tekiö á móti fram- lögum til Biblíufélagsins. Þriöjud. 24. febr.: Bænaguösþjónusta kl. 18, altarisganga og æskulýösfund- ur kl. 20.30. Föstud. 27. febr.: Síödegiskaffi kl. 14.30. Sóknar- prestur. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2. Sr. Frank M. Halldórsson. Kirkjukaffi. Muniö bænamessur á fimmtudagskvöld- um kl. 20.30. SELJASÓKN: Barnaguösþjónusta aö Seljabraut 54 kl. 10.30. Barna- guösþjónusta í Ölduselsskóla kl. 10.30. Guösþjónusta aö Seljabraut 54 kl. 2. Biblíudagurinn. Gideonfé- lagar kynna starfsemi sína. Geir- laugur Árnason predikar. Sókn- arprestur. SELTJARNARNESSÓKN: GuöS- þjónusta kl. 11 árd. í Félagsheimil- inu. Sr. Guömundur Óskar Ólafs- son. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Guös- þjónusta kl. 2. Organleikari Sigurö- ur ísólfsson. Prestur sr. Kristján Róbertsson. FÍLADEILFÍUKIRKJAN: Almenn guösþjónusta kl. 8 síöd. Ræöu- maöur Jónas Gíslason rltari Hins íslenzka Biblíufélags. Organisti Árni Arinbjarnarson. — Fórn til Biblíufé- lagsins. Einar J. Gíslason. KFUM & KFUK, Amtmannsstíg 2B: Samkoma kl. 20.30. Sr. Lárus Halldórsson talar. DOMKIRKJA KRISTS KONUNGS Landakoti: Lágmessa kl. 10.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síöd. Alla rúmhelga daga er lágmessa kl. 6 síðd., nema á laugardögum, þá kl. 2 síöd. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árd. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 10 árd. Bæn kl. 20 og hjálpræöissamkoma kl. 20.30. Daniel Óskarsson talar. NÝJA POSTULAKIRKJAN Hóaleit- isbr. 58. Messur kl. 11 og kl. 17. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa á Mosfelli kl. 14. Sóknarprestur. GARÐASÓKN: Barnasamkoma í skólasalnum kl. 11 árd. VÍDISTAÐASÓKN: Barnaguös- þjónusta kl. 11 árd. Almenn guös- þjónusta kl. 14. Sr. Siguröur H. Guöjónsson. HAFNARFJARDARKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 2. Dr. Einar Sigur- björnsson predikar. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN í Hafnarfiröi: Barna- tíminn er kl. 10.30. Guösþjónusta kl. 14. Dr. Þórir Kr. Þóröarson ræöir um Biblíuþýðingar, útgáfu Biblíunnar og notkun. Jón Mýrdal organleikari leikur verk eftir Bach frá kl. 13.30. Eftir messu er kynnis- ferö til Kaþólsku kapellurnnar í Garöabæ. Safnaöarstjórn. KAPELLA St. Jósefasystra í Garöabæ: Hámessa kl. 2 síöd. KAPELLAN St. Jósefsspítala Hafnarfiröi: Messa kl. 10 árd. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga er messa kl. 8 árd. KÁLFATJARNARKIRKJA: Messa kl. 2 síöd. Gideonfélagar kynna starf sitt. Sr. Bragi Friðriksson. INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl. 15. Fjöl- skylduguösþjónusta kl. 14. Skátar aöstoöa. Kaffisala Systrafélagsins í safnaöarheimilinu eftir messu. Sóknarprestur. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. — Tónleikar kl. 15. Sóknrprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guösþjón- usta á sjúkrahúsinu kl. 10.30 árd. Skátaguösþjónusta kl. 14 í tilefni af Baden Powell-degi. Skátar að- stoöa. Fermingarbörn eru hvött til aö sækja guösþjónustuna. Sókn- arprestur. GINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 2 síöd. Sr. Gísli Brynjólfsson predik- ar. Minnst aldarafmælis sr. Bryjólfs heitins Magnússonar. Sóknarprest- ur. UTSK ALAKIRKJA: Messa kl. 2 síöd. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA: Barnasam- koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 14. Sr. Hugh Martin predikar. Sr. Björn Jónsson. ERLENDAR BÆKUR: „Fall keisarans“ ALLLÖNGU áður en íranskeis- ari andaðist í Egyptalandi eftir eins og hálfs árs útlegð voru menn farnir að rita bækur um hann. Þar var reynt að skýra á mismunandi fræðilegan hátt, hversu það hefði mátt gerast að hann, Ljós aríanna, konungur konunganna, keisari keisaranna og fleira sem hann kallaði sig hefði hrökklast úr sessi, eigin- lega án þess að hann sýndi alvarlega tilburði til að berjast gegn því. Það er nú ljóst að mótstöðuafl keisarans var löngu þrotið þegar hann fór frá íran og þaðan hvarf hann brotinn maður sem ól ekki lengur með sér neinar vonir um að hann gæti nokkurn tíma snúið heim aftur. Þeir sem fóru síðan að skrifa um hann bækur gerðu það sömuleið- is af misjafnlega miklum skiln- ingi, að ekki sé nú talað um að hlýhugurinn var oft og einatt ansi takmarkaður. Meðal þessara bóka er „The Fall of the Shah“ eftir Ferey- doun Hoveyda, sem er bróðir Hoveyda, er var lengi forsætis- ráðherra keisarastjórnarinnar, en var tekinn af lífi eftir að Khomeini hafði komizt til valda. Líflát Hoveyda vakti mikla and- stöðu og viðbjóð margra, enda þótti flestum einsýnt að þar væri bakari hengdur fyrir smið — ef einhvern þurfti nauðsynlega að hengja. „The Fall of the Shah“ segir sögu erfiðs tímabils í sögu írans. Fereydoun Hoveyda skrifar af eftir F. Hoveyda persónulegri reynslu og hefur aðstöðu til að fylgjast með mál- unum innan frá, ekki aðeins með því að segja frá, heldur leitast hann við að skýra hvers vegna keisarinn varð æ einráðari og ófúsari til að fara að ráðum annarra en einhverra viðhlæj- enda einkum úr hópi fjölskyldu sinnar. Hann dregur upp ljóta mynd af aðgerðum leynilögregl- unni SAVAK, spillingu innan keisarafjölskyldunnar, stöðugt vaxandi fúlgur sem látnar voru til hermála og pólitískan þrýst- Fereydoun Hoveyda. ing sem íran sætti utan frá, svo og lýsir hann ástæðum fyrir því að keisarinn varð stöðugt ein- angraðri og skilningslausari á þarfir þjóðarinnar og langanir, og hversu trúarleg ólga sem fór um landið var mögnuð, meðal annars með skeytingarleysi keis- arans að ná ekki málamiðlun við trúarleiðtogana. Öllum ber sam- an um að trúarlíf í íran á keisaratímanum hafi verið stór- lega vanrækt, þó svo að keisar- inn hefði uppi skrúðmælgi á tyllidögum um hina sterku trú. Fyrir þá sem fylgdust allgaum- gæfilega með hnignunarskeiði keisarans er kannski ekki ýkja margt sem kemur á óvart, upp- ijóstranir Hoveyda eru ekki svo ýkja stórvægilegar. En þarna er á einum stað skrifað skilmerki- lega og læsilega — og það má höfundurinn eiga — að hann reynir í hvívetna að gæta hlut- lægni þrátt fyrir allt það sem gerðist. Lesandi skynjar betur en áður hversu tókst að undir- búa þann jarðveg sem í hafa síðan blómstrað öfgamenn eins og Khomeini og „námsmennirn- ir“ sem handtóku sendiráðið. Kenning höfundar er í raun sú að það hafi verið uppúr hátíða- höldunum í Persepolis 1971, sem keisarinn fór að breytast fyrir alvöru og orðið smátt og smátt gripinn svo lygilegu stór- mennskubrjáli að hann hafi í fullri alvöru litið á sig sem Konung konunganna og veröld hans hafi snúist upp frá því um hann. Hoveyda gerir og grein fyrir því í ítarlegu máli hversu mjög fjölmiðlar áttu þátt í að koma Khomeini til valda og þá ekki sízt og raunar einvörðungu eftir að hann kom til Frakk- lands. Hitt er ljóst að Khomeini hefði ekki náð þeim ítökum sem sýndi sig á nokkrum mánuðum ef ekki hefði verið búið að skapa jarðveginn vel og skipulega. Samt finnst mér sérkennilegt að maður verður engu nær um persónu íranskeisara. Þrátt fyrir öll þessi skrif, bæði í bók Hoveyda og öðrum sem ég hef lesið um keisarann fyrr og síðar — ég hef ekki hugmynd um hvernig hann var þessi maður, hvað hann hugsaði og hvernig hann dró ályktanir. Þetta er ekki smávegis löm í þessari bók sem öðrum. Jóhanna Kristjónsdóttir Bjarnhildur Sigurðardóttir og Elín Njálsdóttir í hlutverkum sfnum í Stalín, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýnir um þessar mundir, en leikritið er eftir Véstein Lúðviksson. Stalín er ekki á Skagaströnd GRÓSKA er í leiklistarlífi á Skagastrond. Leikklúbbur Skagastrandar stóð fyrir leiklist- arnámskeiði í nóvember, þar sem um 20 manns nutu leiðsagnar Sögu Jónsdóttur. Þá var leikritið Stalin er ekki hér, eftir Véstein Lúðvíksson, frumsýnt í Fellsborg hinn 17. þessa mánaðar, og siðar verður farið með sýninguna um nágrannabyggðir. Leikstjóri Stalíns er Saga Jóns- dóttir, en leikendur eru ólafur Bernódusson sem leikur Þórð, Guðný Sigurðardóttir leikur Mundu, Bjarnhildur Sigurðardótt- ir leikur Svandísi, Elín Njálsdóttir Huldu, Magnús B. Jónsson Stjána og Jón Hallur Pétursson leikur Kalla, en alls vinna 17 manns að sýningunni. Leikritið Stalín er ekki hér var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir fáum árum, og hefur síðan einnig verið sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikmyndin í sýningu Skag- strendinga er eftir hugmynd leik- stjórans, unnin í hópvinnu af leikhópnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.