Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 15

Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981 15 það var fallega sagt af henni. En hún hugsaði um heimilið fyrstu 13 árin og biður engan afsökunar á því, að ég tók þá við. Það var komið að mér. Og hún er ekki búin með sinn „kvóta" ennþá. „Þá varst þú þekktari, nú fellur þú alveg í skuggann." „Forsætisráðhérrann þáverandi var nú lika meira i sviðsljósinu en ég — ætli hann skyggi ekki á flesta?" „Hvernig var konan þin, þegar þú kynntist henni? Sýndi hún þá merki þess að hún yrði slík valkyrja?" „Sagðirðu valkyrja?" segir Arne Olav Brundtland hlæjandi „Svona til öryggis mótmæli ég orðalaginu. En það hefur alltaf verið kraftur í henni, hún er ekki fyrir að sitja með hendur í skauti. Þegar við kynntumst, var hún varaformaður stúdentasamtaka Verkamanna- flokksins og ég var ritstjóri blaðs félags íhaldssamra stúdenta. Það er ekki hægt að segja, að ég hafi keypt köttinn í sekknum. Það kom á óvart, að hún skyldi ná svona Iangt, en það var ekki erfitt að taka því. Og það er vissulega gaman að vera giftur gáfaðri konu, sem þar að auki er meiri skapmaður en flestir." „Hvað er það sem helzt mælir með henni til forsætisráðherra?" „Gáfur hennar og góðir hæfi- leikar til að brjóta til mergjar stjórnmálalegar og mannlegar að- stæður. Og svo getur hún sagt sína meiningu." „Og hefur hæfileika til að afla sér vinsælda meðal almennings". „Þegar það er sett fram á þennan hátt virðist það svo undir- búið og úthugsað. Það er ekkert í áttina við ^The selling of the president". Eg held ég megi segja að það hafi bara komið af sjálfu sér. Henni skaut upp öllum á óvart, og það kom í ljós að hún var svo skolli hæf. Og hún á auðvelt með að laða fólk að sér með framkomu sinni.“ „Er það kostur í þínum augum sem þjóðfélagsþegns, að hún skuli vera kona?“ „Ég tel alveg víst, að konur hafi vissa hluti fram að færa í stjórn- málum, af því að þær eru konur, sem karlmenn ekki hafa, af því að þeir eru karlmenn. Það á nú reyndar ekki við í þessu tilviki, en ég hef oft talið að það væri alveg eins gott að fá óþjálfaða konu inn í stjórnmálin, eins og að halda áfram að hafa óhæfa karlmenn. Ég skil vel að hugmyndinni um kvótaskiptingu milli kynjanna skuli aukast fylgi.“ Lítið dæmi um mismuninn finnst honum líka einkennandi. Er Gro Harlem Brundtland tók við embætti sagði hún í sambandi við þau miklu verkefni sem blasa við henni: „Ég er bara maður ...” — en það telst víst „sögulegur við- burður" að slíkt komi fram hjá svo hátt settum stjórnmálamanni... „Forsætisráðherrann á að bjarga Verkamannaflokknum í nauðum hans og þú munt sem hægrimaður stuðla að því að það mistakist, en í því felst að velta henni úr ráðherrastólnum sem hún hefur barist fyrir að komast í. Veldur það ekki árekstrum?" „Ég hef hugleitt þetta undan- farna daga og er kominn að þeirri niðurstöðu, að hvort okkar um sig er einstaklingur, sem rétt er og skylt að mynda sér sjálfstæða skoðun og leggja sitt af mörkum, en einangraður einstaklingur er hugarsmíð. Við eigum gagnkvæm samskipti við annað fólk, innan fjölskyldunnar, í störfum okkar og í vinahópi og þá tökum við tillit til annarra. Maður verður að finna jafnvægið í þessu." „En í veruleikanum ert þú á móti því sem hún og hennar flokkur stefna að.“ „Ég ber um leið virðingu fyrir því, að hún hefur þessa skoðun. Þarna eru nokkurs konar mörk. Ég hef sagt áður, að ég búi með ánægju um rúm forsætisráðherr- ans, en það sé verra með rúm varaformannsins. Hvort ég muni verða virkur í kosningabaráttunni gegn Gro? Því svara ég ekki, það kemur í ljós. Þessa dagana er það hennar vegna, að fjölmiðlar koma til mín og þá nota ég ekki aðstöðu mína til flokkspólitísks áróðurs. Reyndar er afstaða mín sem magisters í stjórnmálafræði frem- ur afstaða greinandans en gerand- ans. Gro er miklu meiri baráttu- maður í stjórnmálaslagnum." „Líst þér vel á að fara eins og aðrir makar forsætisráðherra í opinberar heimsóknir og láta sýna þér söfn og barnaheimili?" „Þegar Gro var umhverfisráð- herra fór ég með henni til Sovét- ríkjanna og Egyptalands, en „konudagskráin" var gerð með tilliti til áhugamála makans, þannig að ég hitti starfsbræður mína í utanríkismálastofnuninni í Sovétríkjunum og í Egyptalandi hitti ég utanríkisráðherrann, svo það var ekki svo slæmt." „Hvað viltu segja við þá eigin- menn sem ekki þola að kona þeirra hljóti meiri frama en þeir?“ „Að þeim sé vorkunn. Þeir eiga svo bágt...“ Arne Olav Brundtland hlýtur að vera Noregsmeistari i hlát- urmildi segir blaðamaður Ber- lingske Tidende. ólafsson T.R., 8V4 v., 3. Þröstur Þórhallsson T.R., Vk v., 4. Ríkharð- ur Sveinsson T.R., 7 v., 5. Ilaraldur Haraldsson G'k v. Af úrslitunum sést að félagar úr Skákfélagi Keflavíkur hafa sótt mót- ið vel þrátt fyrir vegalengdina og að auki náð sérlega góðum árangri af utanbæjarmönnum að vera. Einn þeirra, Björgvin Jónsson, sem er 16 ára, hefur lengi verið þekktur fyrir afar skemmtilega taflmennsku og ein af fléttum hans á Skákþinginu var óvenjulega glæsileg og djúp- hugsuð: Svart: Björgvin Jónsson Hvitt: Lárus Jóhannesson 24. - Be3+!!, 25. Hxe3 (Eftir 25. Rxe3 kemur ein hugmynd svarts í Ijós, en það var að leysa biskup sinn úr prísundinni á d7 þar sem hann var leppur fyrir mátinu á e7. Framhaldið yrði: 25. — Df2+, 26. Khl - Hh6, 27. Rfl - Bh3 eða 27. h4 - Dxg3, 28. Rg2 - Bh3, 29. He2 — Hg6, 30. Hgl — Bxg2+, 31. Hexg2 — Dh3+, 32. Hh2 - Df3+, 33. Hhg2 — Hg3! og mátar) - Df2+, 26. Khl - Hh6, 27. h4 - e6! (Aðalhugmynd svarts með fórninni var að rýma h6 reitinn fyrir hrók. Nú kemst hinn hrókurinn í spilið og gerir út um taflið) 28. Rc7+ - Ke7,29. Hed3 - Hxh4+! (Enn er fórnað, en nú er ekki mikilla útreikninga þörf) 30. gxh4 - Dxh4+, 31. Kgl - Hg8+, 32. Kfl — Dhl+ og hvítur gafst upp. Þá er ástæða til að skoða eina af hinum æsispennandi skákum úr síð- ustu umferð í keppninni í B-flokki: Hvitt: Lárus Jóhannesson Svart: Guðmundur Halldórsson Sikileyjarvörn I. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — g6, 6. Be3 - Bg7, 7. f3 - 0-0, 8. Bc4 - Rc6,9. Dd2 - Bd7,10. (MM) - Hc8, II. Bb3 - Re5.12. h4 - Rc4 (Ein af grunnstöðunum f hinu marg- fræga drekaafbrigði. Enski stór- meistarinn Miles hefur upp á síð- kastið reynt að kæfa sókn hvíts í fæðingu með því að leika hér 12. — h5, og náð ágætum árangri) 13. Bxc4 - Hxc4,14. h5 - Dc7!? (Tvíeggjaður leikur sem gaf svörtum marga sigra fyrst er honum var beitt og erfitt er að mæta honum án þess að hafa lært heima. Lárus hefur greinilega kynnt sér bestu leiðina til þess að mæta ógnvekjandi þreföldun svarts á c-línunni) 15. g4 — Hc8, 16. hxg6 — fxg6,17. Kbl! - b5? (Hér hefði svartur átt að sætta sig við endataflið sem kemur upp eftir 17. — Hxc3, 18. Dxc3 — Dxc3, 19. bxc3 - Hxc3, 20. Hd3 - Hc4, þótt horfur hvíts, sem hefur skiptamun fyrir peð, séu nokkru betri) 18. Hcl (Kapp er bezt með forsjá, en hér mátti leika strax 18. Rd5!) — a5,19. Rd5! — Rxd5, 20. exd5 — Ha4 (Bezti möguleikinn til að grugga taflið) 20. Dh2 - Dc4, 22. Rb3! (Eftir 22. Dxh7+ — Kf7, hótar svartur m.a. 23. — Hh8) - h5, 23. gxh5 - Bf5, 24. hxg6 - Bxg6 (Það er þungbært að þurfa að opna línur inn á kónginn, en 24. — Hxa2, 25. Dxh7+ - Kf8, 26. Bd4! var l&k&r&) 25. Dg2 - Hxa2, 26. Kxa2 - Da4+, 27. Kbl - Dxb3 28. Bd4! - Dxd5? (Eina von svarts var fólgin í að tefla endataflið með skiptamun undir eftir 28. — Hxc2!, 29. Hxc2 — Dxc2+, 30. Dxc2 — Bxc2+, 31. Kxc2 — Bxd4) 29. Dxg6 - Dxd i. 30. De6+ - Kf8, 31. Dxc8+ - Kf7, 32. Df5+ - Kg8 og svartur gafst upp um leið. Útflutningsverðmæti iðnaðarvöru jókst um 80% á síðastliðnu ári HEILDARÚTFLUTNINGUR landsmanna nam um 446 milljörðum gkr. árið 1980. Þar af nam útflutningur iðnaðarvara 97,4 milljörðum, eða 21,8% af heildarútflutningi. Útflutningur áls nam 54,1 milljarði. en kísiljárns 8,0 milljörðum eða samtals 62,1 milljarði gkr„ sem jafngildir 14,0% af heiidarútfiutningi. Útflutningur annarra iðnað- arvara nam hins vegar 35,2 milljörðum gkr„ eða 7,9% af útflutningi landsmanna og er það dálítið hærra hlutfall en undanfarin ár (var 7,0% árið áður). Útflutningsverðmæti iðnaðarvöru hefur aukist mælt í gkr. um 80% á árinu á móti aukningu útflutnings i heild, sem nam 60%. Þetta bendir til þess, að markaðir hafi, þegar á heildina er litið, verið hagstæðir og hagstæðari en markaðir fyrir íslenska útflutnings- vöru i heild. Að vanda eru það fjórar út- flutningsgreinar sem bera uppi útflutninginn, en það eru ullarvör- ur, skinn og skinnavörur, niður- suða og kísilgúr, og nemur út- flutningur þessara fjögurra vöru- hópa 87% af heildarvöruútflutn- ingi en var áður 85%. Lang fyrirferðarmestur er út- flutningur ullarvara, samtals 16,07 milljarðar, eða 46% af heild- ariðnaðarvöruútflutningnum. Þessi útflutningur var áður 8,3 milljarðar og hefur því aukist að verðmæti um 94% en að magni um 26%. Helstu ástæður fyrir þessari miklu söluaukningu eru, að þrátt fyrir samdrátt í útflutningi full- búins fatnaðar til Sovétríkjanna varð veruleg aukning á magni á vestrænum mörkuðum, eða 34%. Útflutningur skinna nam að þessu sinni 5,9 milljörðum en hafði árið áður numið 3,3 milljörð- um, sem er 79% aukning. Þá margfaldaðist útflutningur skinn- fatnaðar úr 303,9 m.kr. árið 1979 í 1.382,4 m.kr. árið 1980. Útflutningur niðursuðu nam 4,9 milljörðum, hafði áður numið 3,1 milljarði og úflutningur kísilgúrs 2,3 milljörðum en var áður 1,8 milljarðar. Útflutningur vara til sjávarút- vegs nam samtals 1,4 milljörðum gkr., en hafði numið í fyrra 1,2 milljörðum. Þessi útflutningur tvöfaldaðist milli áranna 1978 og 1979. Á árinu 1980 var hins vegar nokkur samdráttur í magni í þessum fjölbreytilega flokki, sem í eru fiskumbúðir, veiðarfæri og hlutar til þeirra og vélar ýmis konar, og er það skýringin á þessari litlu verðmætisaukningu. Þá var og samdráttur í sölu þangmjöls, hins vegar mikil aukn- ing í sölu vikurs. Mesta aukning í útflutningi varð í sölu harðfeiti. Magnið jókst úr 154,5 tonnum í 1.844,2 tonn, sem er næstum 12földun, en verð- mætið jókst úr 30,1 millj. kr. í 502,2 millj. gkr., sem er næstum 17földun. (Frá útflutningsmiðstöð iðnaðarins.) j 1 jVÖRUFLOKKAP 1 9 MAGN 7 9 VERÐ 19 8 0 MAGN 1 VERD j Breyt.í \ PPji KA«N ' 7LKL> | B 'HEILDAROrrLUTH. 1 lieiláarútflutn. 1 • iðnaðarvara I |/1 og álnelmi I 'tísiliárn | Ctfl.'tn áls/járns 733.573.4 14S.213.8 76.431.1 12.539.1 S6.243.6 278.4S1.S 60.366.7 37.4S8.2 3.312.4 19.S96.1 7 S4.238.01 169.424.4| 67.318.0 1 2S.309.1 J 76.797.3 44S.9S1.7 97.360.0 S4.168.9 8.0S8.2 3S.133.0 2.293.3 1 ■ " l - 22 ' »5 m 1 ' l 37 1 7» 1 p 1 - 1S 1 /7 11 J.iiAursoftnar eöa j Inifturlagöar Jsjávarafurftir | Loftsútuft skinn ( lof húöir Vðrur úr loéskinn.! iPrjónavörur úr jull aöallega , lYtri fatnaður nema| prjónafatnaður , j'Jllarlopi og 1.832.0j- 3.051.9 , 1.938.5, ».879.9 733.8 3.279.7 708.» j 5.858.1 9.6 ] 303.9 j 28.61 1.382.» .... , ... t i 511.2 10.8»6.8 0.3 355 || ullarLand SS3.7 197.4 Ullarteppi Jnnur vefavara 1 1S2.9 1 38.8 j ’áininR og lökk 1.SS0.8 . 824.2 Ipappaumbúðir 917.9 314.0 Vélar ov teki 34.2 248. S •Fiskilínur.kaðlar ! ior net alls konar ; 34S.9 j S19.9 :.lzZ 'Zn “r tr* •o?, -ílri 3.6: 8.2 i »2 ! 120 j 36 j 107 :ra.3*v‘Jrur úr jleir .silfur op 'ffuUsmvðavðrur iÞangrjol íVíkur Tiastpokar or |plastra»nir .Prentaðaf Þakur Ug prentmunir IKarðfeiti Uðrar vörur |{ flokki »9 J04.3 1.844.21 40.4 Tívolískemmtun skáta á Akranesi SKÁTAFÉLAG Akraness býður bæjarbúum og Borgfirðingum til Tivoliskemmtunar næstkomandi sunnudag og heldur með þvi upp á skátadaginn. Hafa skátar hann- að ýmsar þrautir, sem þeir leggja fyrir menn, og bjóða upp á skemmtun i hvers kyns leiktækj- um. í frétt frá Skátafélaginu segir, að ungir sem aldnir geti unnið til ýmissa verðlauna í fjölmörgum básum og leiktækjum, sem komið verður fyrir í sal íþróttahússins við Vesturgötu. Tívolískemmtunin hefst kl. 12 og stendur til kl. 17, en þá hefst fjölskylduskemmtun og bingó. Miði að Tivolískemmtun- inni gildir einnig á fjölskyldu- skemmtunina og bingóið. Þá verð- ur og kaffisala Svannasveitar skátafélagsins í iþróttahúsinu sama dag. Skemmdarverk BROTIZT var inn í Seljaborg, leikskóla við Öldusel í Reykjavík í fyrrinótt og unnar þar talsverðar skemmdir. Ekki var stolið miklu, en unnin skemmdarverk, m.a. hellt niður litum víða um húsnæðið. Þá var brotist inn hjá Véltækni í Kópavogi í fyrrinótt og þar var stolið talsverðu af handverkfærum. Unnið er að rannsókn þessara mála að því er Njörður Snæhólm tjáði Mbl. í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.