Morgunblaðið - 21.02.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
17
Bragi Kristjónsson:
Spjall um sjón-
varp og útvarp
Meðan fárviðrið geisaði hvað
grimmast um suðvesturhluta
landsins sl. mánudagskvöld,
bauð hljóðvarpið þó uppá nokkra
andlega hressingu: Ingibjörg
Stephensen byrjaði að lesa
Passíusálma séra Hallgríms.
Ingibjörg er eitt þessara fáu
virkilegu sparinúmera, sem út-
varpið býður stundum; gædd
dramatískum hæfileikum og há-
menntuð i upplestrarfræðum og
raddbeitingu. Og röddin: skýr,
mild og djúp og tekur um efnið
af varfærinni nánd.
Þáttur hljóðvarpsins við slíkar
neyðarástæður og sköpuðust
þetta kvöld er sannarlega um-
hugsunarverður: Auðvitað
hverfur rafmagn Nordals og
Briems strax útí buskann og fáir
einir eru í sambandi við útvarp.
Fljótlega, þetta kvöld, þegar
óveðrið hafði náð hámarki, var
lesin ein hinna skátalegu til-
kynninga frá almannavörnum og
fólki ráðlegt að hafa samband
við nefnda stofnun. Greinilega
reiknað með að allir hefðu bak-
síðu símaskrár við hendina.
Fyrst um miðnættið, þegar veðri
hafði nokkuð slotað, greindi þul-
ur frá því snjallræði að fólk gæti
snúið sér til lögreglu, sem allir
nauðstaddir hafa þá væntanlega
verið búnir að gera. Og í tólf-
fréttum var það helzt mark-
verkt, að borgarstjórinn í
Reykjavík, væri farinn á stúfana
a la Carter eða Khomení að
kanna tjónið.
Þótt engin ástæða sé til að
kynda undir ótta fólks við slíkar
aðstæður, væri sannarlega
ástæða til að koma með fyllri
leiðbeiningar en hljóðvarpinu
þóknaðist þetta kvöld — inná-
milli óskalaga og hugljúfrar
framhaldssögu.
Daginn eftir tók sjónvarpið
góðan kipp og kynnti tjón og
skaða, sem af hafði hlotizt.
Stórskotalið var skipað Guðjóni
Einarssyni, ólafi Sigurðssyni
og Helga Helgasyni. Ólafur Sig-
urðsson er nýr hjá miðlinum.
Þekkilegur maður og óvenjulega
skýrmæltur þar á bæ. Það hefur
verið rétt og skynsamleg stefna
hjá sjónvarpi á seinni árum að
fá til liðs menn og konur, sem
nokkrum þroska hafa náð og
hafa reynslu í starfi í stað rétt
ættaðra pólitískra hvítvoðunga,
sem venjulega hefur tíðkast að
ráða til hljóðvarpsins. Nægir að
nefna vel heppnað fólk einsog
Sigrúnu Stefánsdóttur, Ingva
Hrafn og ólaf.
Vonandi er nú brátt södd
fréttafýsn ríkismiðla af togara-
kaupamáli nokkurra háttvirtra
þingmanna fyrir kjósendur sína
á norðausturhorni landsins.
Mikill tími hefur farið í kynn-
ingu ýmissa hliða þess máls og
sannarlega hafa landstólparnir
tjáð sig með ýmsum hætti — að
vanda. Það sem helzt veldur
aðdáendum nokkrum vonbrigð-
um, er óvænt undanhald fjár-
málaráðherrans, sem fyrir ör-
fáum dögum lýsti því yfir með
staðfestulegum drengskapar-
svip, að ríkissjóður myndi alls
ekki brúa það bil sem skapaðist
vegna óhófskennds umfram-
kostnaðar skipsins.
Yfirdrepshringlið kringum
þetta lífsbjargarmál þorpanna á
norðausturhorni landsins hefur
orðið ráðherrum og þingliði til
slíkrar sneypu, aðlengi mun und-
an svíða.
Og það er sannarlega synd, að
jafn orðhagur strigakjaftur og
Sverrir Hermannsson, skuli nú
sjálfur vera í þeirri óklæðilegu
aðstöðu, sem hann vildi aðra
hafa fyrir nokkrum dögum.
Sú ráðstöfun dagskrárstjórnar
að úthluta Sigmari Haukssyni
og samstarfsmanni bezta hlust-
unartíma hljóðvarps 5 daga í
viku, er nú lítt skiljanleg öllu
lengur.
Þátturinn er yfirleitt einkar
mæðulegur. Unninn hangandi
hendi. Og þetta hlýtur að vera
dýr þáttur, því aðkomið og keypt
efni er yfirgnæfandi — en
stjórnandi virðist kosta heldur
litlu til af sjálfum sér. Þegar
Sigmar Hauksson var í Morgun-
pósti vakti hann oft athygli fyrir
snörp viðtöl og alvörugefinn en
makindalegan húmor. Hinir ár-
vökulu pólitísku hvíslarar í út-
varpsráði ættu nú að hressa
oggulítið uppá stjórnanda þessa
þáttar — eða færa hann á
maklegri tíma sólarhringsins.
Persónufræðagrúsk og ætt-
fræðisýsl hafa verið meðal
helztu ánægjuefna íslendinga
frá upphafi vega. Reyndar heill
atvinnuvegur. Ættfræðirit mörg
geyma ótal skemmtilegar at-
hugasemdir höfundanna um við-
komandi persónur, sem vafa-
laust myndu flokkast undir
skilgreiningu Magnúsar
Ingibjörg Stephensen
Bjarnfreðssonar, • stjórnanda
þáttar um persónunjósnir.
Samkvæmt henni eru t.d. hin-
ir prýðilegu ættfræðiþættir
sunnudags-Þjóðvilja, þar sem
rakin eru, mjög stuttlega þó,
sum af skýringatengslum ís-
lenzks nútímasamfélags — svo-
sem grennd sósíalista og frímúr-
ara, giftingar og skilnaðir al-
þýðu og framámanna, börn utan
hjónabands og margt fleira fróð-
legt, vissulega hvimleiðar per-
sónunjósnir. En við umræðu um
tiltekið málefni, hlýtur skil-
greining hugtaks, sem um er
rætt, að liggja afdráttarlaus
fyrir — ekki hálfmótuð, óljós
ímynd.
Og heldur var það í byrjun
drungaleg samkunda, sem settist
saman að spjalli um „persónu-
njósnir" ásamt stjórnandanum.
voru þetta þó svo lærðir menn og
vitrir — af alvörusvip þeirra að
dæma, að ekki varð hjá því
komizt að sitthvað nytsamlegt
og fræðandi kom uppá í spjall-
inu.
Enda fjallaði þátturinn alls
ekki um persónunjósnir heldur
um skráningu opinberra aðilja á
sjúkdómstilfellum og banka-
reikningum. Nafn þáttarins var
mjög misvísandi og þrátt fyrir
einlægan vilja stjórnandans að
koma ofangreindum stjórnvalds-
athöfnum undir njósnastarf-
semi, lét hann að lokum undan
síga fyrir eindregnu andófi við-
mælendanna. Jafnskýrum
manni og Magnúsi Bjarnfreðs-
syni er auðvitað ljóst, að tölvu-
maskínur geta engu breytt um
njósnir eða njósnir ekki. Þar
treður blessuð mannskepnan
inn. Og framþróun þeirrar teg-
undar virðist ekki ske í jafn
stórum stökkum og tölvutækn-
innar. Hið eina, sem tölvan gerir
er að auðvelda og hraða úr-
vinnslu og gæzlu upplýsinga,
sem vissulega geta í tilfellum
verið skaðlegar. Helgi Sigvalda-
son verkfræðingur skýrði skil-
merkilega þá ótrúlegu möguleika
þessarar tækni — til góðs eða
ills. Og ekki var Þórður B.
Sigurðsson reiknistofustjóri
mjög vélmennislegur.
Hið nauðsynlegasta í þessu
efni er að skilgreina heimildir
hins opinbera og annarra til
upplýsingaöflunar, varðgæzlu og
notkunar. Um það hljóta bless-
aðir þingmennirnir að geta kom-
ið sér saman — eins og um
önnur þrifamál.
Það er svo annað mál, að
þættir Magnúsar Bjarnfreðsson-
ar eru með prýðilegasta efni
sjónvarps. Einlæg umbótavið-
leitni hans er augljós og hann
dregur oft til fjöllunar menn,
sem hafa góð tök á viðfangsefn-
inu og hefur gott lag á að tosa
forvitnilega hluti úr sálarfylgsn-
um viðmælenda.
Verkfallið í Áburðar-
verksmiðjunni olli
súrefnisskorti
VEGNA verkfalls vélstjóra í ríkis-
verksmiðjunum, varð talsverður
skortur á súrefni til iðnaðar, en
Aburðarverksmiðja ríkisins er
eini aðilinn, sem framleiðir það
hér á landi. 1 þvi tilefni hafði
Morgunblaðið samband við Guðjón
Tómasson, framkvæmdastjóra
Sambands málm- og skipasmiðja,
og innti hann eftir afleiðingum
þessa.
„Skorturinn var ekki orðinn mjög
alvarlegur vegna þess að fyrirtæki
reyndu að haga framkvæmdum
sínum þannig að hægt væri að
vinna frekar að þeim verkefnum,
sem ekki þyrfti að nota súrefnið við,
en engu að síður varð skorturinn
talsvert bagalegur fyrir ýmsa að-
ilja,“ sagði Guðjón.
„Það, sem þó er alvarlegast við
þetta, er það ástand, sem kemur
upp í tilvikum sem þessum, því það
er ekki bara iðnaðurinn, sem notar
Símabilanir:
súrefni frá Áburðarverksmiðjunni,
það gera sjúkrahúsin einnig. Að
vísu stóð til að veita undanþágu til
súrefnisframleiðslu hjá verksmiðj-
unni, en til þess kom ekki þar sem
verkfállið leystist. Slík undanþága
yrði ábyggilega veitt í framtíðinni,
komi svipuð mál upp aftur.“
En hvað gerist ef skemmdir verða
á verksmiðjunni, þannig að ekki
verði hægt að framleiða súrefnið?
„Hér á landi er enginn annar aðilji,
sem framleiðir súrefni, vegna þess
að enginn getur keppt við Aburðar-
verksmiðjuna. Súrefnið, sem frá
henni kemur, er auka efni, sem ekki
er notað þar og kostnaður við
framleiðslu þess því nánast enginn.
En til þess að koma í veg fyrir að
neyðarástand skapist vegna
óhappa, væri eðlilegt að einhver
aðilji hér á landi gæti hafið fram-
leiðslu þess, ef þörf krefði.
Borgarfjörður varð
hvað verst úti
Af símabilunum er svipaða
sögu að segja og af rafmagnsbil-
unum. Að sögn Ingvars Einars-
sonar hjá Pósti og síma urðu
flestar bilanir og flest staura-
brotin i Borgarfirði, en einnig
var nokkuð um loftlinuslit og
svonefndar linusveiflur á Suður-
landi og viðar.
Ingvar sagði að á Suðurlandi
væri víðast búið að koma línum í
lag og verið væri að ljúka viðgerð-
um á nokkrum stöðum í gær. Þá
sagði hann að Borgarfjörður hefði
farið langverst út úr óveðrinu og
væru mjög margir brotnir staurar
þar, sem auðveldaði ekki viðgerð-
irnar. Þessar bilanir eiga ein-
göngu við svonefnda handvirka
síma. Sjálfvirka símakerfið sagði
Ingvar að hefði aðeins gefið sig
tíma- og staðbundið í rafmagns-
leysinu og vegna þess. „Við notum
allan þann mannskap sem við
mögulega náum til og gerum allt
til þess að þetta komist í lag hið
fyrsta," sagði hann í lokin.
r ---------^
Furusýning
í dag og næstu daga sýnum viö
fjölbreytt úrval furuhúsgagna.
Opið í dag i3íásfeó qar
([11(1,5 Símar: 86080 og 86244 j&g
J
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
t>l AIGLYSIR L'M ALI.T I.AND ÞEG AR
ÞL UGLYSIR 1 MORGl NBl.AÐINl