Morgunblaðið - 21.02.1981, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
Gjerde út-
varpsstjóri
Frá Jan Erik Laure. fréttaritara Mbl.
i Osló, 20. febrúar.
BJARTMAR Gjerde, fyrr-
um olíu- og orkumálaráð-
herra Noregs var í dag
Bjartmar Gjerde.
útnefndur útvarpsstjóri í
Noregi. í viðtali í dag,
sagðist Gjerde hlakka til
að hefja störf á nýjum
vettvangi og hann lét í
ljósi létti yfir að hafa
dregið sig út úr pólitík-
inni.
Gjerde var um tíma upplýs-
ingamálaráðherra og sem slíkur
yfirmaður norska ríkisútvarps-
ir.s. Þegar Odvar Nordli lét af
embætti forsætisráðherra fyrir
skömmu, var Gjerde talinn hinn
eini, sem hugsanlega gæti veitt
Gro Harlem Brundtland keppni
um embætti forsætisráðherra.
Þá hafði hann hins vegar sótt
um stöðu útvarpsstjóra og
möguleikar hans því engir.
Margir flokksmanna Verka-
mannaflokksins ásökuðu Gjerde
um að svíkja flokkinn þegar
hann sótti um stöðu útvarps-
stjóra.
Júgóslavía:
Dæmdur fyrir
að gagnrýna
Zagreb. 20. febrúar. — AP.
DR. FRANJO Tudjman,
fyrrum hershöfðingi við
hlið Titós marskálks í
heimsstyrjöldinni síðari,
var í dag dæmdur í
þriggja ára fangelsi og
honum var bannað, að
gefa út rit á prenti næstu
fimm árin. Réttarhöldin
yfir Tudjman eru hin
fyrstu í Júgóslavíu eftir
fráfall Títós.
Dr. Franjo var ákærður fyrir
óhróður um Júgóslavíu. í viðtölum
við v-þýzk, frönsk og sænsk tíma-
rit gagnrýndi Tudjman júgóslavn-
esk stjórnvöld og sagði frelsi
verulega skert í landinu. Þá sagði
hann, að ferðabann hefði verið
sett á sig. Þá ásakaði hann
stjórnvöld um að mismuna þjóðar-
brotum Júgóslavíu. Sagði að Kró-
ötum væri mismunað í landinu.
Dr. Franjo Tudjman er sagnfræð-
ingur.
Sexburar fædd-
ir í S-Afríku?
Jóhannesarborg. S-Afriku, 20. febrúar. AP.
TVÖ blöð í S-Afríku, Beeld og The Mail, skýrðu frá því í
morgun, að sexburar hefðu fæðst í landinu. Blöðin sögðu
að fæðingin hefði átt sér stað fyrir fjórum mánuðum, en
að fréttunum hefði verið haldið leyndum. Blöðin sögðu,
að öll börnin væru við góða heiisu.
En eitthvað virðast fréttir
blaðanna málum blendnar. Rand
Daily Mail, stærsta blað S-Afr-
íku birti síðar í dag frétt á
forsíðu þar sem staðhæft var að
ólíklegt væri að sexburar hefðu
fæðst í landinu. Blaðið átti viðtal
við lækna, og drógu þeir í efa
sannleiksgildi fyrri frétta. í frétt
Beeld og The Mail var staðhæft
að móðir barnanna hefði ekki
tekið frjósemislyf og að fimm
barnanna hefðu fæðst fyrir fjór-
um mánuðum en hið sjötta 23
dögum síðar. Báðar þessar full-
yrðingar drógu iæknar í efa. Þá
þótti mönnum með ólíkindum að
hægt væri að halda fæðingu
sexbura leyndri í fjóra mánuði.
Slíkt hefði spurst út. Samkvæmt
fréttum Beeld og The Mail, þá
var fæðingu sexburanna haldið
leyndri vegna þess, að faðir
barnanna var kvæntur annarri
og kona hans mátti ekki frétta af
víxlspori manns síns! Móðir sex-
buranna var sögð 17 ára gömul.
Blaðamenn í S-Afríku fóru í
dag á stúfana í leit að börnun-
um. Þeir fundu enga sexbura en
hins vegar fundu þeir „móður og
föður" barnanna og skötuhjúin
komu af fjöllum. Þau könnuðust
ekki við neina fæðingu sexbura.
Eitt blaðanna í S-Afríku skýrði
frá því, að það hefði keypt
einkarétt á myndum af börnun-
um, en gallinn var bara sá, að
engar myndir höfðu borist þegar
síðast fréttist. Ritstjóri blaðsins
tók þó skýrt fram, að ekki yrði
greitt fyrir myndirnar fyrr en
við afhendingu.
S\TE
ASSOCIATED PRESS
Fréttaskýring
Flokksþing sovéska komm-
únistaflokksins hefst i mánu-
dag. Það verður hið 26. í rððinni
og hundruð kommúnista víðs
vegar aö úr heiminum streyma
nú til Sovétríkjanna til að vera
viðstaddir opnun þingsins. En
flokksþingið nú er haldiö í
skugga margvíslegra erfiðleika,
sem steðja aö Kremlarherrum,
ólíkt flokksþinginu áriö 1976 en
þaö var hið 25. í rööinni. Komm-
únistar ( Víetnam höföu unniö
sigur í styrjöldinni þar. Leonid
Brezhnev lagöi þá ríka áherzlu i
öldungar skipa stjórnmálaráö sovéska kommúnista
flokksins.
Flokksþing í skugga
vaxandi erfiðleika
ræðu á slökun spennu og teikn
voru á lofti um friðsamlegri
sambúð austurs og vesturs. Aö
vísu voru haröar deilur um
Evrópukommúnismann — viö-
leitni kommúnistaflokka V-Evr-
ópu til aö losa sig undan
ægivaldi Kremlarherra.
En nú eru erfiöir tímar og
nánast sama hvert litiö er,
Kremlverjar eiga í vök aö verjast.
Atburöina í Póllandi ber hátt.
Frelsisviðleitni Pólverja er herr-
unum í Kreml mikill þyrnir í
augum, og - Sovétmenn hafa
stefnt hermönnum sínum aö
landamærum Póllands. Þegar
svipuö staöa hefur komiö upp —
nefna má Ungverjaland, Berlín,
Tékkóslóvakíu og síöast Afgan-
istan — þá hafa valdhafar í
Moskvu ekki hikaö viö innrás.
Þaö sanna dæmin. Þaö hriktir í
stoöum kommúnísks skipulags í
Póllandi. Áriö 1976 var allt í
lukkunnar velstandi. Edward
Gierek var þá sýndur sérstakur
sómi. Hann fékk fyrstur útlend-
inga aö flytja ræöu eftir aö herrar
Kreml höföu flutt þingheimi
boöskap sinn. Áriö 1976 voru
bundnar vonir viö slökunar-
stefnu.
En nú er öldin önnur — innrás
Sovétmanna í Afganistan hefur
sannaö mönnum, aö valdhafar í
Moskvu svífast einskis þegar því
er aö skipta. Innrásin hefur mætt
mikilli andstööu um allan heim.
Meira aö segja ríki í A-Evrópu
hafa gagnrýnt hana og sovéski
herinn hefur átt fullt í fangi meö
aö fást viö frelsissveitir Afgana.
Ekki er búist viö aö innrásin í
Afganistan fari hátt í þingsölum
26. þingsins. Þeim mun meira
veröur rætt um ástandiö í Pól-
landi. Stanislaw Kania, leiötogi
kommúnista í Póllandi veröur á
þinginu og án nokkurs vafa mun
hann fullvissa Sovétmenn um
tryggö Pólverja, þrátt fyrir erfiö-
leika heima fyrir.
Búst er viö, aö sérstakur
leiötogafundur veröi kallaöur
saman og aö gerö veröi sérstök
ályktun um Pólland og hvernig
bregðast skuli viö. Raunar steöja
vandamál aö allri austurblokkinni
eins og þau, sem Pólverjar fást
viö nú. Gífurlegir efnahagsörö-
ugleikar steöja nú aö ríkjum
A-Evrópu og matarskortur er
víöa. Ef leiðtogafundur verður,
þá veröur þaö í fyrsta sinn frá því
í desember síðastliönum aö leiö-
togar austurblokkarinnar koma
saman til funda en þá var
samþykkt sérstök traust yfirlýs-
ing á stjórnvöld í Póllandi. Þá er
búist viö, aö samþykkt verði
sérstök yfirlýsing gagnvart stjórn
Ronalds Reagans og um stjórn-
málaviöhorfiö í heiminum al-
mennt.
Leiötogar helstu kommúnista-
flokka Evrópu veröa aö líkindum
ekki í Moskvu. Enrico Berlinguer,
leiötogi ítalskra kommúnista,
verður fjarstaddur en hann hefur
veriö gagnrýninn á stefnu Sovét-
manna varöandi Pólland og for-
dæmt innrásina í Afganistan.
Santiago Carillo, leiötogi
spánskra kommúnista, veröur
ekki á þinginu en hann hefur og
gagnrýnt innrásina. Þá veröur
Georges Marchais, leiötogi
franskra kommúnista ekki á
flokksþinginu. En þaö veröur
ekki af vanþóknun á stefnu
Sovétmanna í Afganistan eöa
annars staöar — hann á í
kosningabaráttu í Frakklandi.
Heílsa Brezhnevs
í brennipunkti
Fréttamann munu fylgjast náiö
meö heilsu Brezhnevs á flokks-
þinginu. Síöustu árin hefur Brez-
hnev átt viö vanheilsu aö stríöa.
Meöalaldur í stjórnmálaráöinu
sovéska er 69 ár — en alls eru
meölimir þess 14. Sjö meölima
eru eldri en 70 ára. Á síöasta
flokksþingi, áriö 1976, beindist
athygli aö heilsu Brezhnevs en þá
flutti hann ræöu sem stóö í
liölega fimm klukkustundir en
meö hléum þó. Áriö 1971 stóö
ræöa hans í sex klukkustundir.
Búist er viö aö ræöa Brezhnevs
muni ekki vara jafnlengi en vitaö
er, aö undanfariö hefur hann
tekiö sér frí frá störfum og notið
hvíldar. í staö langrar ræöu
Brezhnevs er búist viö, aö Nikolai
Tikhonov, hinn 75 ára gamli
forsætisráöherra Sovétríkjanna,
muni halda ítarlega ræöu ura
efnahagsmál en eins og áöur
sagöi steöja erfiöleikar nú aö
sovéskum iönaöi og einnig land-
búnaöi. Kjöt og mjúólkurfram
leiösla var minni á síöasta ári en
1979 og hveitiuppskera minnkaöi
um 20% frá árinu áöur. Alls munu
um 6 þúsund fulltrúar sitja 26.
flokksþing kommúnistaflokksins.
Nicaragua:
Gonzales handtekinn
vegna yfirlýsinga
Managua/San Salvador, 20. febrúar. AP.
Dómsmálaráðherrann í
Nicaragua, Ernesto Cast-
illo, sagði í dag að Jose
Esteban Gonzalez, formað-
ur mannréttindahreyf-
ingarinnar í Nicaragua
hefði verið handtekinn.
„Gonzalez var handtek-
inn vegna yfirlýsinga sem
hann hefur gefið bæði um
ríkisstjórn Nicaragua hér
og erlendis,“ sagði Cast-
illo.
Gonzalez orsakaði mikil upp-
þot í Nicaragua vegna yfirlýs-
inga sem hann gaf í Evrópu.
Hann sagði að stórn Sandinista
léti pynta fanga og notaði aðrar
fleiri aðferðir svipaðar þeim
sem stjórn Somoza notaði.
Hann sagði einnig að um 800
pólitískir fangar hefðu horfið í
landinu. Stjórnin í Nicaragua
hefur neitað þessum ásökunum.
Castillo sagði að ákvörðun
yrði tekin í máli Gonzalezar á
næstu tveimur dögum. Mann-
réttindasamtök hans sem eru
sjálfstæður hópur fá að starfa
áfram að sögn Castillos.
Flugmaður sem hefur flogið
fyrir ríkisflugfélagið í Nicara-
gua sagði í sjónvarpi í San
Salvador í gær að hann hefði
tvisvar flogið með vopn frá
Nicaragua til skæruliða í E1
Salvador. Hann sagði að leið-
togar landsins, þar á meðal
innanríkisráðherrann Tomas
Borge, hefðu vitað af því og
hjálpað til við að skipuleggja
framkvæmdirnar.