Morgunblaðið - 21.02.1981, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
LUNDALÆTI í EYJUM
Sigurgeir Sigurjónsson Bjarn- Það er sjaldjíseft að lundinn mæti til leiks á miðjum vetri ok þurfi
areyingur með lundann sem að sitja undir éljaKangi.
hann hitti á götu einn vetrar- ,
daginn.
Prófasturinn 10 vik-
um á undan áætlun
Um miðjan mánuðinn
voru nokkrir lundar mætt-
ir til Vestmannaeyja
tveimur og hálfum mánuði
á undan hefðbundnum
tíma og telja menn að það
viti á mikinn vertíðarafla
fyrir Suðurlandi. Fyrstu
lundana sá aflakóngurinn
Sigurjón óskarsson á Þór-
unni Sveinsdóttur fyrir
austan Eyjar, þá mætti
einn lundi um borð í skut-
togarann Vestmannaey og
einn brá sér i bæinn í
Eyjum og gerði Bjarnarey-
ingi bilt við, því grónum
úteyingum og lundaveiði-
mönnum verður ekki um
sel þegar þeir sjá lunda
spranga um snjóskafla á
aðalgötum. Þá hefur mikið
súlukast verið í hafi að
undanförnu og Eyjabátar
hafa dregið lifandi súlur í
veiðarfæri sín.
Eyjólfur Pétursson á Vest-
mannaey sagði í talstöðvarsam-
tali við Mbl. í gær að lundinn
hefði lent í olíudalli undir spilinu
og skipverjar hefðu strax tekið
hann og verkað upp, sett hann í
bað og gefið honum að borða.
„Hann hakkaði í sig brauð,
heilhveitibrauð," sagði Eyjólfur,
„en vildi ekki sjá franskbrauð.
Við höfðum hann um borð í fjóra
daga og það fiskaðist vel á
meðan, þetta var lukkufugl. Helst
hefðu við viljað hafa hann áfram,
en þá var ekki um annað að gera
en stoppa hann upp og viðkunn-
anlegra þótti okkur að sleppa
honum þótt því sé ekki að neita
Eyjólfur Pétursson skipstjóri á Vestmannaey með „lukkufuglinn
Teddi vélstjóri á Sæbjörgu með
eina súiuna sem þeir veiddu i
netin, en súlan er grimm og
verst af alefli þeim sem vogar
sér inn i landhelgi hennar.
að sumir sleiktu út um þegar
lostætið flaug um borð.“
Tólfta þessa mánaðar var Sig-
urgeir Sigurjónsson Bjarnarey-
ingur á leið heim í matinn þegar
hann mætti félaga sínum úr
Bjarnarey á vetrargöngu. Sigur-
geir brá við en þar sem Bjarnar-
eyingar eru öllu vanir í nábýli við
Elliðaeyinga, eyjarnar teljast til
austureyja Vestmannaeyja, þá
kippti hann sér ekki upp við það
óvænta, en kom prófastinum í
hús.
Þess varð vart í Suðureyjum í
Vestmannaeyjum sl. sumar að
sumar pysjurnar voru seinar til
og telja úteyingar Suðureyjanna
að hér sé um fuglá frá þeim að
ræða, en þessir snemmbúnu og
bjartsynu prófastar eru hins veg-
ar fullvaxnir, bráðþroska og
þróttmiklir og því augljóslega í
hópi bjargbúa austureyjanna,
Elliðaeyjar og Bjarnareyjar.
Sovétmenn sýna áhuga
á fleiri síldarafurðum
SÖLUSTOFNUN lagmetis undir-
ritaði í gær samninga við fyrir-
tækið „Prodintorg- i Moskvu um
sölu á gaffalbitum tii afgreiðslu á
2. og 3. ársfjórðungi þessa árs.
Samningsupphæðin er tæplega
10 milljónir nýkr. og er þetta
fyrsti samningurinn, sem gerður
er við Prodintorg á árinu.
Samhliða er nú gengið endan-
lega frá samningi við Sovézka
samvinnusambandið, Sojuzko-
opvneshtorg, með milligöngu Iðn-
aðardeildar Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, um gaffalbita að
verðmæti um 7 milljónir nýkr. og
er þá tryggð sala á þessari tegund
lagmetis fyrir um 17 milljónir
nýkr. (gkr. 1,7 milljarðar) með
þessum fyrsta samningi.
I viðræðunum við Sovétmenn
hefur komið fram að þeir hafa
áhuga á að kaupa aðrar lagmetis-
tegundir og hafa þeir einkum sýnt
áhuga á fleiri tegundum síldaraf-
urða. Voru þau mál rædd í Moskvu
og verður samningaumleitunum
haldið áfram við verzlunarfulltrúa
Sovétmanna hér.
Sölustofnunin vonast til að
samningar muni að þessu sinni
takast um sölu fleiri tegunda,
einkum þar sem gert er ráð fyrir
því í nýjum viðskiptasamningi
milli landanna, að kaup Sovét-
manna á lagmeti geti á þessu ári
farið upp í 6,5 milljónir dollara,
sem eru rúmlega 43 milljónir
nýkr. (4,3 milljarðar gkr).
(Frétt frá Solustofnun.)
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar:
Hagkvæmast að einangra
þökin með plasti og
álpappír að innanverðu
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
framkvæmdanefnd byggingar-
áætlunar:
Vegna vandamála, sem komið
hafa upp í þakrýmum parhúsa i
Hóiahverfi og hefur nú orðið
blaðamatur vill FB taka eftirfar-
andi fram.
Á undanförnum árum hefur það
orðið mjög algengt að klæða þök
aöeins með bárujárni á lektum,
þegar þakrými er ekki ætlað til
notkunar.
Rennistigi úr risi var aðeins
hugsaður til nota við eftirlit á
þaki að innan. í flestum húsunum
hefur þakrými verið tekið til
notkunar sem geymsla. Við slíka
notkun fer of mikill hiti og raki úr
íbúðinni upp í þakrýmið og mynd-
ar hrím á þakplötur.
Framkvæmdanefndin hefur
gert sér ljóst að þarna sé á
ferðinni vandamál, sem verði að
leysa og hefur falið sínum eftir-
litsmönnum að kanna málið, og
gera tillögu til úrbóta. Dagana 17.
og 18. febrúar fóru eftirlitsmenn
FB í flest nefnd parhús og athug-
uðu aðstæður. Niðurstaðan er sú
að þrátt fyrir aftakaveður, sem
gekk yfir 16. þessa mánaðar hafa
engar skemmdir orðið á þökum
nefndra FB-húsa, en í sumum
tilfellum hefur snjór skafið inn
um loftop, sem virðast vera of
stór, en ekki of lítil eins og
verktakafyrirtækið Ármannsfell,
sem byggði húsin fullyrti í blaða-
viðtali.
Sú lausn, sem virðist vera hag-
kvæmust og fljótvirkust er að
einangra þökin að innanverðu með
plasti og álpappír. Með þessum
aðgerðum telur nefndin að komið
verði í veg fyrir hrímmyndun í
þaki. Jafnframt verða gerðar
ráðstafanir sem miða að því að
draga úr hættu á snjófoki um
loftræstingu.
Ákveðið hefur verið að nú þegar
verði gerðar ráðstafanir til að
hefja þessar breytingar og þar
með verði vandinn leystur, og
væntum við góðrar samvinnu við
húseigendur.
Frá óveðrinu
í Djúpinu
Bæjum. Snæfjallaströnd. 18. febrúar.
HÉR HEFUR ekki orðið mikið
um áföil í óveðrinu, þó hafa fokið
þök af f járhúsum og hlöðum, sem
hætt er að nota. Rak einnig trillu
á land, sem var í höfn í Æðey. Að
Látrum i Mjóafirði fauk þak af
tveimur 'súrheystóftum.
í Reykjanesi fauk þak af íbúðar-
húsi, skemmdist það eitthvað. Á
Kirkjubóli í Langadal fuku nokkr-
ar plötur af fjárhúsi og ein þeirra
fór í gegnum glugga í íbúðarhús-
inu og nokkrar plötur fuku einnig
af íbúðarhúsinu að Kirkjubóli.
Allt rafmagn fór af öllum í
ísafjarðardjúpi, aðeins var raf-
magn að Bæjum á Snæfjalla-
strönd. En þetta er allt komið í lag
núna.
Símalaust hefur verið síðan á
mánudagskvöld í öllu Djúpinu
nema á Snæfjallaströnd. 15 staur-
ar munu vera brotnir í Seyðisfirði,
vestan við Djúpið. Mikið veður og
vont hefur verið hér og ísing
mikil, þó er mannhelt og allt í
góðu lagi. Fagranesið var í slipp
suður í Reykjavík og átti að koma
um síðustu helgi, en var fyrst að
koma í dag. Það kemur í Djúpið á
morgun eftir heillar viku fjarveru.
Jens i Kaldalóni
Betri er Hlíð
en Kriki
Á FUNDI borgarstjórnar síðast-
liðinn laugardag gerði Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttir borgarfulltrúi að
umtaisefni tiilögur að nýjum
götunöfnum, sem lagðar voru
fram í byggingarnefnd um miðj-
an mánuðinn. Göturnar sem til-
lögur voru gerðar um munu
verða i væntanlegri ibúðarbyggð
við Öskjuhlíðarskóla og var lagt
til að samheiti þeirra yrði Krik-
ar, eða Hliðarkrikar.
Sjöfn fannst nöfnin óþjál í
meira lagi og nefndi hún ákveðin
götunöfn í þvi sambandi, svo sem
Oskjukriki, Bugðukriki, Bogakriki,
Slakkakriki og fleiri. Sagðist
Sjöfn telja að senda ætti þetta
aftur til byggingarnefndar.
Sigurður Harðarson tók til máls
og sagðist telja að í byggingar-
nefnd væri lítill áhugi fyrir krik-
um þessum, enda hefði málið ekki
verið afgreitt á fundi hennar.
Taldi hann að mestur áhugi væri
fyrir því að nota Hlíða-nafnið enn
um sinn og því væri ólíklegt að
nokkuð yrði af krikunum. Hins
vegar kvaðst hann hafa heyrt á
skotspónum að gatan sem liggja
ætti meðfram slökkvistöðinni
myndi verða kölluð Brennihlíðl, en
kvaðst ekki vilja staðfesta að rétt
væri.
Albert Guðmundsson sagði í
ræðu að hann væri sammála
athugasemdum Sjafnar, vegna
nafngiftanna. Sagðist hann vilja
fá upplýst hverjir væru höfundar
að tillögum þessum, því þeir væru
greinilega komnir á leiðarenda í
hugmyndaflugi.
Hver ók á bíl
við Burkna?
Rannsóknarlögreglan í Hafnar-
firði hefur beðið Mbl. að auglýsa
eftir vitnum að ákeyrslu á Linn-
etsstíg við blómabúðina Burkna
um klukkan 15 mánudaginn 15.
febrúar sl. Bifreiðin er af Skoda-
gerð og ber einkennisstafina G-
12355 og var hægra afturbretti
skemmt. Tjónvaldurinn og vitni
gefi sig fram við lögregluna í
Hafnarfirði.
INNLENT