Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
31
Síðasta miðnœtur
sýning á
Á laugardagskvöld sýnir Leik-
féiag Reykjavikur leikritiÖ
ROMMÍ eftir bandaríska leik-
ritahöfundinn D.L. Coburn. en
fyrir þetta leikrit hlaut hann
Pulitzer-verðlaunin árið 1978.
Leikritið hefur verið sýnt fyrir
fullu húsi í allan vetur, og eru nú
sýningar orðnar nálægt 50 að tölu.
Sýningunni hefur verið tekið ein-
staklega vel, bæði af gagnrýnend-
um og áhorfendum, og leikstjóri
og leikendur hafa þótt koma vel til
skila bæði gamansömum og alvar-
legum þáttum verksins. Leikstjóri
er Jón Sigurbjörnsson og með
hlutverk leiksins fara þau Sigríð-
ur Hagalín og Gísli Halldórsson.
Virðist höíða til
allra aldurshópa
í kvöld kl. 23.30 verður síðasta
miðnætursýning á söngleiknum
„Gretti" í Austurbæjarbíói, en
undanfarið hefur það færst í vöxt,
að fólk óski eftir því að geta séð
sýninguna fyrr á kvöldin, ekki síst
vegna þess, að efni verksins virðist
höfða til allra aldurshópa jafnt.
Fyrsta kvöldsýningin var í vik-
unni sem leið og seldust aögöngu-
miðar upp á örskömmum tíma.
Næsta kvöldsýning verður nk.
miðvikudagskvöld kl. 21.00. Höf-
undar þessarar spaugilegu útgáfu
af „Gretti sterka" eru þeir Egill
Ólafsson, Ólafur Haukur Símon-
arson og Þórarinn Eldjárn. Þursa-
„Gretti
flokkurinn flytur tónlistina, en
alls koma 16 leikarar, söngvarar
og tónlistarmenn fram í sýning-
unni. Höfundur dansa er Þórhild-
ur Þorleifsdóttir og leikstjóri
Stefán Baldursson. Á meðfylgj-
andi mynd sést Kjartan Ragnars-
son, en hann hefur fengið mikið
lof fyrir leik sinn í hlutverki
Grettis.
Spaugileg uppátæki,
ást og sprell
Annað kvöld er 10. sýning á
gamanleik Shakespeares „ótemj-
unni“. Sýningunni hefur verið
mjög vel tekið og hefur verið
uppselt á allar sýningar fram að
þessu.
Ótemjan er einn alvinsælasti
gamanleikur höfundar, fullur af
spaugilegum uppátækjum, dular-
gervum, misskilningi, ást og
sprelli, en lýsir þó fyrst og fremst
viðureign þeirra Katrínar og Petr-
útsíós, og hvernig hann beygir
kvenskassið til hlýðni og undir-
gefni svo að friður megi ríkja í
sambúð kynjanna. Alls koma fram
í sýningunni 15 leikarar og
hljómlistarmenn, en aðalhlut-
verkin eru í höndum þeirra Lilju
Guðrúnar Þorvaldsdóttur og
Þorsteins Gunnarssonar. Eggert
Þorleifsson hefur samið tóniist við
sýninguna, sem hann flytur ásamt
leikurum, og leikstjóri er Þórhild-
ur Þorleifsdóttir.
Bodil og Gunnar Kvaran.
Tónleikar í
Mosfellssveit
í dag verða haldnir tónleikar í Hlégarði í Mosfellssveit
og hefjast þeir kl. 15. Danska óperusöngkonan Bodil
Kvaran syngur, Gunnar Kvaran leikur á celló og Gísli
Magnússon á píanó. Flutt verða verk eftir Beethoven,
Schubert, Brahms, Faure o.fl.
Bodil Kvaran starfar nú við konunglegu óperuna í
Kaupmannahöfn og eru þetta einu tónleikar hennar hér á
landi að þessu sinni.
Laugarásbíó
frumsýnir
Blúsbrœðurna
í dag frumsýnir Laugarásbíó
bandaríska mynd, Blúsbræðurn-
ir. með John Belushi og Dan
Aykroyd í aðalhlutverkum. Leik-
stjóri er John Landis.
Jake Blues er nýsloppinn úr
fangelsi, en tekur sér það fyrir
hendur ásamt bróður sínum,
Elwood, að ná saman gömlu
hljómsveitinni sinni og efna til
tónleika, í því skyni að bjarga
munaðarleysingjahæli frá því að
lenda undir hamrinum. En ekki
ætlar það að ganga vandræða-
laust.
Úr „Peysufatadegi“ Kjartans Ragn-
arssonar sem Nemendaleikhúsið
sýnir i Lindarbæ.
„Peysufatadagui*
í fjórða sinn
Annað kvöld verður 4. sýning
Nemendaleikhússins á Peysufata-
degi og hefst hún ki. 20 i Lindar-
bæ. Leikstjóri er höfundurinn.
Kjartan Ragnarsson. Magnús
Pálsson gerði leikmynd og Fjóia
Ólafsdóttir útsetti tónlistina.
Leikritið gerist á „peysufatadag-
inn“ 1937 og fjallar um sjö ung-
menni sem eru að útskrifast úr
Verslunarskólanum. Inn í leikinn
fléttast pólitík þessa tíma og mikið
af músik. Leikurinn er gamansam-
ur en með alvarlegu ívafi.
Fimmta sýning Peysufatadags
verður á þriðjudagskvöld.
HÁSKÓLABÍÓ
„Mönnum verður
ekki nauðgaðu
Háskólabíó sýnir á mánudags-
kvöld 1 síðasta sinn finnsku mynd-
ina „Mönnum verður ekki nauðg-
að“ (Mán kan inte váldtas) eftir
Jörn Donner.
Myndin er gerð árið 1979 eftir
sögu Márta Tikkanen. Aðalpersóna
myndarinnar er Eva Randers, frá-
kilin kona á miðjum aldri. Á fertug-
asta afmælisdegi sínum fór hún með
vinkonu sinni á skemmtistað. Að
áliðinni nóttu heldur hún heim með
manni nokkrum, Martin Ester. Þeg-
ar þangað er komið breytist fram-
koma hans og Evu er nauðgað.
Myndin fjallar um viðbrögð hennar
við verknaðinum og tilraunum til að
losna undan fargi niðurlægingarinn-
ar. Myndinni hefur víða verið vel
tekið og hún talin gott framlag til
umræðu um þessi mál. í hlutverki
Evu Randers er Anna Godenius en
Gösta Bredefeldt leikur Martin
Wester.
Jörn Donner, leikstjóri myndar-
innar, er án efa þekktasti leikstjóri
Finna. Hann hóf feril sinn sem
rithöfundur. Fyrstu kvikmynd sína í
fullri lengd (En Sondag í september)
gerði hann í Svíþjóð 1963 en þar bjó
hann um árabil.
Galdraland
í Kópavogi
Garðaleikhúsið, sem hóf starf-
semi sína um sl. helgi, sýnir
barnaleikritið Galdraland eftir
Baldur Georgs í Kópavogsbíói á
morgun, sunnudag kl. 15. Leik-
stjóri er Erlingur Gíslason en
leikendur eru þrír, Þórir Stein-
grímsson, Randver Þorláksson og
Aðalsteinn Bergdal.
Niræð:
Guðrún S. Þorsteinsdóttir
fyrrverandi barnakennari
Guðrún Sveinbjörg er fædd 21.
febrúar 1891 í Gíslastaðagerði á
Völlum, Suður-Múlasýslu.
Foreldrar hennar voru hjónin
Þorsteinn Sigmundsson og Sigríð-
ur Halladóttir, er síðar bjuggu á
Sturluflöt í Fljótsdal.
1911—1913 stundaði Guðrún
nám í Kennaraskólanum og lauk
þaðan prófi. Seinna á árum sótti
hún námskeið í þeim skóla og
einnig kennaranámskeið í Svíþjóð
1934. Fyrstu ár að námi loknu var
hún barnakennari í Fellnahreppi
og Breiðdal. 1921 ræðst hún sem
heimiliskennari að Laugarvatni og
annan vetur að Spóastöðum í
Biskupstungum, en 1923 er hún
ráðin barnakennari í Laugardal og
gegndi því starfi næstum samfellt
til 1938. Síðar kenndi hún á
ýmsum stöðum en lengst af í
Fljótshlíðinni eftir að hún fór úr
Laugardalnum. Nú er Guðrún á
Dvalarheimili aldraðra í Hvera-
gerði.
Eins og fyrr segir kemur Guð-
rún að Laugarvatni sem heimil-
iskennari 1921.
Það var alltaf mikil eftirvænt-
ing í sveitunum í gamla daga
þegar von var á nýjum kennara
jafnt hjá ungum sem eldri. Þá
tíðkaðist farkennsla svo að kenn-
arinn dvaldi á mörgum bæjum
hreppsins yfir veturinn og var
hvar sem hann dvaldi aufúsu-
gestur eða svo var með þá kennara
í Laugardal er ég þekkti til.
Ég man eins og það hefði gerst í
gær, haustkvöldið er Guðrún
Þorsteinsdóttir kom til okkar að
Laugarvatni, en hjá okkur var hún
fyrst ráðin til kennslu á heimilinu.
Hún var öllum ókunn enda komin
langt að, af Fljótsdalshéraði, þar
sem hún var fædd og uppalin. Ég
sé hana fyrir mér þar sem hún sat
á rúmi í baðstofunni og virti fyrir
sér unglingaskarann, sem var allt
í kring. Þessi unga kennslukona
var ljós yfirlitum með ljóst hár,
svo var hún í svo fallegum,
grænum ullartauskjól, sem fór
henni mjög vel. Úrið sitt bar hún í
vandaðri silfurfesti, kjörgripur að
mér fannst, enda hefi ég ekki séð
hana bera á sér annan skartgrip
um ævina, sem tók þessu úri fram.
Fljótt leið fyrsta kvöldið og
kynnin urðu auðveld.
Kennslan hófst fyrir eldri sem
yngri. Þeir sem eldri voru fengu
tilsögn í ensku, dönsku og reikn-
ingi og fljótlega var hún komin
með heimiliskór, sungið með öll-
um röddum. Guðrún spilaði á
orgel og spilaði oft undir söng á
skemmtunum. Seinna æfði hún
kór í sveitinni og í Laugarvatns-
skóla fyrsta veturinn, er skólinn
starfaði.
Vefnað, útskurð og bókband og
margskonar föndur eins og það er
núna nefnt átti Guðrún gott með
að veita tilsögn í og var fljót að
tileinka sér nýjungar ef þær báru
í sér eitthvað gagnlegt. Ég var
minn fyrsta vetur í barnaskóla hjá
Guðrúnu. Þá var hún orðin fast-
ráðinn kennari í Laugardalnum,
en næstu 3 vetur var ég í skóla hjá
bróður hennar, Sigurði, er var
kennari á Minniborg í Grímsnesi.
Ég var barnapía hjá Ragnheiði
systur minni þar í 4 ár. Barnaskól-
inn og heimavistin var viðbygging
við íbúðarhús hennar svo að sam-
gangur var mikill og sambýlið
eftirminnilega gott við heimili
Sigurðar. Ég kynntist mjög vel
þessum systkinum og systrunum
Sigríði og Jóhönnu, sem voru til
heimilis hjá Sigurði, þar til hann
giftist Ólöfu Ólafsdóttur ættaðri
úr Grindavík. En Óiöf og Sigurður
urðu ekki langlíf, þau létust í
sama mánuði 1931 úr taugaveiki
eftir 5 ára sambúð, öllum harm-
dauði, er þau þekktu. Guðrún
hafði oft dvalið á Minniborg að
sumarlagi því systkinin voru sam-
rýnd. En við fráfall bróðurins áttu
þær þar ekki lengur samastað.
Sigríður flutti í Borgarnes en
Jóhanna fór heim á Hérað. Ég sá
þær systur ekki í 40 ár en ekki
voru þær mér ókunnar eða
gleymdar, er fundum bar aftur
saman. Sigríður er látin fyrir
nokkrum árum en Jóhanna og
Guðrún hafa heimsótt mig öðru
hvoru og fylgir þeirri heimsókn
bjarmi frá æskudögum, er aldrei
hefur dvínað þótt liðið sé á ævina.
Eftir að Guðrún flutti í Fljótshlíð-
ina kenndi hún við unglinga- og
barnaskóla þar, æfði kór sem orð
fór af og var organisti í Hlíðar-
endakirkju um árabil.
Á sumrin vann hún í gróðrar-
stöðinni í Múlakoti. Eftir að Guð-
rún hætti kennarastörfum tók
hún að sér ýmsan saumaskap á
heimilum og var það vel þegið og
naut þakklætis og hlýrrar vináttu
af þessum samverustundum við
heimilisfólkið. Það hefur verið
henni ómetanlegt á langri ævi.
Það sem hér hefur verið sagt um
lífsstörf Guðrúnar er í rauninni
ekki nema hálfsögð saga hennar.
En það sýnir hve fjölhæf hún er og
stórvel gefin. Foreldrar mínir og
við systkinin mátum Guðrúnu
mikils. Hún hefur komið öllum til
nokkurs þroska.
Guðrún mín, innilegar óskir um
góða líðan og ylríkt ævikvöld við
enduð 90 árin þín.
Við systurnar þökkum góðar og
lærdómsríkar samverustundir og
biðjum þér Guðs blessunar.
Lára Böðvarsdóttir
Nýtt verð á rækju
og hörpudiski
Á FUNDI Verðlagsráðs sjávarútvegsins sl. þriðjudag varð samkomulag
um eftirfarandi lágmarksverð á rækju og hörpudiski frá 1. janúar til 31.
maí 1981: frá 1/1 frá 1/3
Rækja, óskelflett í vinnsluhæfu ástandi: til 28/2 til 31/5
a) 160 stk. og færri í kg. hvert kg. kr. 6.38 kr. 6.76
b) 161 til 180 stk. í kg. hvert kg. kr. 5.51 kr. 5.84
c) 181 til 200 stk. í kg. hvert kg. kr. 5.12 kr. 5.43
d) 201 til 220 stk. í kg. hvert kg. kr. 4.49 kr. 4.76
e) 221 til 240 stk. í kg. hvert kg. kr. 3.92 kr. 4.16
f) 241 til 260 stk. í kg. hvert kg. kr. 3.56 kr. 3.77
g) 261 til 340 stk. í kg. hvert kg. kr. 3.23 kr. 3.42
h) 341 stk og fleiri í kg. hvert kg. Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi: kr. 2.00 kr. 2.12
a) 7 cm á hæð og yfir, hvert kg. kr. 1.95 kr. 2.07
b) 6 cm að 7 cm á hæð, hvert kg. kr. 1.60 kr. 1.70
Afhendingarskilmálar eru óbreyttir.