Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
33
\
Umsjón:
Bergljót
Ingólfsdóttir
kúrenur eða rúsínur,
2 matsk. sherry.
Eplin afhýdd, skorin í báta. í
potti er hitað saman smjörlíki,
vatn og hunang, eplin látin út í,
sítrónusafa dreypt á þau. Látið
malla þar til eplin eru meyr, hrært
í án þess að þetta verði að mauki,
eplabitar mega halda sér. Rúsinum
bætt út í og bragðbætt með sherry.
Eplin eru látin volg á kalda kökuna
um leið og á að bera hana fram. ís
eða þeyttur rjómi með.
Eplakaka með
marengs
Hnoðað deig:
180 gr hveiti,
140 gr smjörliki,
140 gr sykur,
3 eggjarauður.
Deigið látið standa á köldum
stað í 30 mín. áður en það er flatt
út, látið ná upp á barmana á
forminu. Bakað til hálfs, (ca. 10
mín.).
Fylling:
8 epli,
rifinn börkur og safi úr einni
sitrónu,
3 matsk. sykur,
'h bolli af vatni.
Eplin afhýdd, skorin í báta og
soðin með vatni, sykri og sítrónu-
safa. Eplamaukið er sett í hálfbak-
aða skelina. Marengs smurt yfir og
bakað áfram í ca. 10—15 mín. eða
þar til kominn er fallegur litur á.
Marengs:
3 eggjahvitur,
V/z dl af sykri.
Heitir
eplapartar
2'h bolli hveiti,
1 matsk. sykur,
1 tsk. salt,
1 bolli smjörlíki,
1 egg,
% bolli mjólk.
Deigið er hnoðað og geymt á
köldum stað í hálfa klukkustund.
Því er skipt í tvo hluta og flatt út í
ferninga, sá fyrri er lagður á
smurða plötu.
Fyllingin:
% bollar af muldu kornflakes,
5 bollar af eplum í sneiðum,
VA bolli sykur,
Vh tsk. kanill.
Þessu er nú dreift yfir deigið,
byrjað með kornflakes, síðan er
eplunum raðað yfir, sykur og
kanill sameinað og stráð yfir. Hinn
helmingur deigsins er lagður yfir,
brúnirnar klemmdar vel saman
yfir eplin. Deigið er penslað með
eggjahvítu. Bakað í ca. 40 mín. Ef
til vill má setja glassúr á um leið
og kakan er tekin úr ofninum.
Glassúr:
1 bolli flórsykur,
hrærður með 2 matsk. sítrónu-
safa.
Kakan skorin í parta á meðan
hún er heit. Borin fram volg með
ís.
Eplakaka frá
Noregi
6 meðalstór epli,
2 dl. tvíböku- eða brauðrasp,
1 dl. sykur,
2 matsk. smjörliki,
2 matsk. vatn.
Hýðið tekið af eplunum og þau
skorin í mjög þunnar sneiðar. í
ofnfast smurt fat eru epli, rasp og
sykur sett til skiptis í lög. Smjör-
líkisbitar settir efst og sömuleiðis
vatnið, sem sett er jafnt yfir.
Bakað í vel heitum ofni í ca. 20
mín. Best er kakan volg með
þeyttum rjóma eða ís.
w/’m/}
Epla-
kökur
4 dl. sykur,
4 egg,
G dl. hveiti,
2 tsk. lyftiduft.
1 dl. vatn,
rifinn börkur af einni sitrónu.
Eplin eru afhýdd, skorin í tvennt
og lögð smástund í lög úr vatni,
sykri og sítrónusafa. Skornar rauf-
ir í eplin. Deigið hrært á venju-
legan hátt, smjörlíki og sykur
hrært fyrst, eggjunum bætt í, einu
í senn. Síðan er þurrefnunum bætt
í ásamt vatni og sítrónuberki.
Helmingur deigsins er settur í
smurt form, eplahelmingum raðað
á, síðan er það sem eftir er
deigsins sett yfir og eplahelmingar
þar ofan á. Bakað við meðalhita í
ca. 45 mín. Flórsykri og möndlu-
flögum stráð yfir til skrauts.
„Öðruvísi“
eplakaka
Vatnsdeig úr:
50 gr smjörlíki.
2 dl. vatni,
2 dl. hveiti.
3 lítil egg.
Smjörliki og vatn sett í pott,
hveiti bætt í og hrært vel þar til
það er laust frá börmunum. Eggj-
unum bætt í, einu í senn og hrært
vel á milli, suðan látin koma upp.
Deigið er aðeins kælt en svo smurt
á plötu, gerð kringlótt kaka á
stærð við venjulega lagköku og
bökuð í 12—20 mín. Ofan á kökuna
er sett:
5 stór epli,
2 matsk. smjörliki,
1—2 matsk. vatn,
2 matsk. hunang,
sítrónusafi.
Þar sem nokkuð er nú liðið
síðan staðið var i stórbakstri í
jólamánuði, er vonandi óhætt að
minnast á kökur hér á þessum
stað. í þeirri trú eru teknar
saman uppskriftir af eplakök-
um, upprunnum hingað og
þangað.
Fátt er betra með sunnudags-
kaffinu, eða sem eftirréttur en
nýbökuð eplakaka eða pæ.
Sumar eplakökur er nauðsynlegt
að bera fram ylvolgar, aðrar eru
jafngóðar þó kaldar séu, en yfir-
leitt eru þær bestar alveg nýbakað-
ar.
Eplakökur og pæ „kalla" eigin-
lega á annaðhvort vel kaldan
þeyttan rjóma eða vanilluís, það er
hreint ekki gott að gera upp við sig
hvort er betra með.
Eplakaka
prinsessunnar
1 kg epli,
vatn,
3 matsk. sykur,
safi úr einni sítrónu.
Vatn, sykur og sitrónusafi i allt
3 dl.
Deigið:
300 gr smjörliki.
Eplakaka prinsessunnar
Eplakaka með marengs
öðruvísi eplakaka
Þjóðverjar hvattir til
að herða sultarólina
Bonn. 19. febrúar. AP.
OTTO Lambsdorff, fjár-
málaráðherra vestur-þýsku
stjórnarinnar, hvatti í dag
Vestur-Þjóðverja til að
„herða ögn á sultarólinni"
og líkti efnahagsástandinu
við erfiðleikana í Þýska-
landi eftirstríðsáranna.
í ræðu, sem Lambsdorff flutti á
þingi í dag við umræður um
skýrslu um ástand efnahagsmála,
sagði hann, að gera yrði róttækar
breytingar í efnahagsmálum,
berjast gegn einangrunarstefnu í
alþjóðlegum viðskiptum og örva
innlenda fjárfestingu.
Atvinnuleysingjar í Vestur-
Þýskalandi eru nú rúm milljón
talsins og hafa ekki verið fleiri
síðan 1975. Markið vestur-þýska
stendur einnig höllum fæti, taldist
í dag 2,16 fyrir dalinn, og er það
einkum rakið til hás olíuverðs og
einhvers mesta viðskiptahalla sem
um getur af þess völdum.
Lambsdorff sagð í ræðu sinni,
að Vestur-Þjóðverjar ættu ekki
annarra kosta völ en að snúa sér í
æ ríkari mæli að kjarnorku í
orkuöflunarskyni en um þau mál
hafa verið miklar deilur í Vestur-
Þýskalandi.
VIÐTALSTÍMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar SjálfstæöisMokkains veröa til
viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 14.00 til
16.00. Er þar takiö á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og ar öllum borgarbúum boöiö aö notfaara sér
viötalstíma þassa.
MORGUNBLAÐIÐMORG
MORGUNBLAÐIÐMOR
MORGUNBLAÐIÐMQ?
MORGU
MORGI
LAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ
^MORGUNBLAÐIÐ
^^-^PGUNBLAÐIÐ
INBLAÐIÐ
Blað-
buróar-
fólk
óskast
M4\
MC\
MC\
MOJ
MOFtX
MORA
MORí/
MOR/
mof/
mojIz
M<
Mf/ "fh
Mfcnöíí
morgun
MORGUNBí
Austurbær
Samtún
Miötún
Leifsgata
Háteigsvegur
Snorrabraut
Hringið í síma
35408
y/
MORGUNBLÁbíx^^^^^
morgunblaoiðK^^/nblaðiðm
MORGUNBLAÐIÐMORduNBLAÐIÐMORGUNBLAOIÐ
ÍÐIÐ
OIÐ
ÐIÐ
OIÐ
AÐIÐ
ÐIÐ
AÐIÐ
ÐIÐ
,D|D
oi_mOIÐ
íBLAÐIÐ
ÍLAÐIO
’ÍBLAÐIÐ
UNBLAÐIÐ
^ /iUNBLAÐIO
iGUNBLAOIÐ
GUNBLAÐIÐ
EFÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Al:(iLYSIN(íA-
SÍMINN KR:
22480