Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
35
UmHORF Gústaf Níelsson
Barátta fyrir
virku lýdrædi
Efnahagslíf á íslandi er í ógöngum. Atvinnulíf og
framleiósla er meira og minna háö stjórnvaldsákvöröunum.
Samband framleiöenda og neytenda er meö óeölilegum
h»tti, verðmyndun óeölileg og veröskyn stórlega brenglaö.
Bjartsýna stefnumörkun skortir. Veröbólgan œðir áfram og
svona mætti lengi telja. íslenskt þjóöfélag stendur á
tímamótum, en heföbundin, árangurslaus stefna er enn á
oddinum. Hér á eftir fer viötal viö Jón Magnússon formann
Sambands ungra sjálfstaaöismanna, en þar kemur hann m.a.
inn á atriöi sem þessi og margt fleira.
HVERS VEGNA ER
JÓN MAGNÚSSON
FORM. SUS?
.Sennllega vegna þess aö ég
hef alltaf haft ákveönar skoöanlr f
þjóömálum og Innanflokksmálum
og ekkl dregiö dul á þaö sem ég
tel aö gera ætti. Þetta hefur hins
vegar ekki valdiö vinsældum á efrl
hæö flokkskerfisins, ekki enn, en
ég er sannfæröur um þaö, aö ef
þeir sem ráöa í flokknum heföu
fyrr hlustaö á þaö sem viö ungir
sjálfstæöismenn höfum aö segja
og heföu skynjaö sinn vitjunar-
tfma þá heföi aldrei skapast þaö
ástand, sem rfkir nú innan flokks-
Ins og hann væri nú f stórkostlegri
sókn."
MARGRIR HALDA ÞVÍ
FRAM AÐ UNGIR
SJÁLFSTÆÐISMENN
SÉU MARGKLOFNIR
EINS OG ÞEIR ELDRI
OG GÆTU ÞVÍ EKKI
LEITT FLOKKINN ÚT
ÚR VANDAMÁLUM?
.Innan raöa ungra sjálfstæö-
ismanna eru mismunandi viöhorf
til ýmissa dægurmála og til
manna eins og gengur. Ástandiö f
SjálfsteBÖisflokknum hefur aö
sjálfsögöu haft sín áhrif. Ýmsir
eldri menn hafa líka reynt aö efla
áhrif sín meöal ungra sjálfstæö-
ismanna og eignast sér hand-
gengna menn í þeirra rööum. Aö
mínu mati hefur þeim gengiö of
vel í þvf efni. Ég hef litiö þannig á,
aö þrátt fyrir þetta væri þaö von
Sjálfstæöisflokksins aö yngra
fólkiö í flokknum léti ekki þá eldri
rugla sig í ríminu, en miöaöi þess
heldur störf sín viö þaö aö móta
sterkari Sjálfstæöisflokk á grunni
sterkra og mannúölegra hugsjóna
flokksins, sem og 50 ára sögu
hans, en láti ekki tímahundnar
erjur eldri manna villa sér sýn.“
SAGA SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS — HVAÐ
ÁTTU VIÐ MEÐ ÞVÍ?
.Sjálfstæöisflokkurinn hefur
verlö fremsti flokkur í fslenskum
stjórnmálum þau ár sem hann
hefur starfaö. Flest þau mál, sem
horft hafa til heilla fyrlr íslenska
þjóö, hafa veriö framkvæmd undir
forystu Sjálfstæöisflokksins eöa
meö atbeina hans. Þaö þjóöfélag,
sem Sjálfstæöisflokkurinn átti
mestan þátt f aö móta veitti
fólkinu betri Iffskjör og meiri
jöfnuö, en þekktist í þjóöfélögum
sem búa viö svipaöar aöstæöur.
Sterkir forystumenn hafa leitt
flokkinn. Menn sem tvfmælalaust
hafa veriö fremstir stjórnmála-
menn sinnar samtíöar. Sjálfstæö-
Ismenn geta sótt styrk og for-
dæmi í þessa sögu og elga aö
hafa hana til viömiðunar."
HVERS VEGNA TEKUR
ÞÚ ÞÁTT í
STJÓRNMÁLASTARFI?
Sennilega hefur Bjarni Bene-
diktsson öörum fremur bent á
nauösyn þess f lýöræöisþjóöfé-
lagi, aö fólkiö f landinu tæki sem
virkastan þátt í stjórnmálastarfi.
Virk þátttaka fólksins er til þess
fallin aö skapa stjórnmálamönn-
um aöhald og auöveldar þvf aö
greina á milli pólitfsks loddara-
leiks og ábyrgrar framkomu í
þjóömálum. Þaö er síöan ákaflega
mismunandi atriöi sem fólk metur
mest, þegar þaö ákveöur aö
ganga í stjórnmálaflokk og starfa
f honum. Lffsskoöun hvers og eins
ræöur þar mestu, en virk þátttaka
f stjórnmálastarfi er venjulega
byggö á því aö menn vilji láta
eitthvaö gott af sér leiöa meö þvf
aö þoka þeim málum áfram sem
þeir bera fyrir brjósti.
HVAÐ VILT ÞÚ
í PÓLITÍK?
Þar koma tll mörg mál, en fyrst
og fremst vil ég nefna baráttu fyrir
virku lýöræöi. Lýörasöi er ekki
bara fólgiö í kosningum á fjögurra
ára fresti, heldur gerir þetta fyrir-
komulag kröfu til ákveöinna
vinnubragöa og tillits til allra
sjónarmlöa. Eitt helsta atriöiö aö
þessu leyti er aö tryggja réttindi
minnihlutans hverju sinni, en lýö-
ræölsfyrirkomulagiö er eina
stjórnarkerfiö sem tryggir slíkan
rétt. Mér finnst mikilvægt aö
kraftur og hæfileikar hvers ein-
staklings fái aö njóta sín sem best
og í því skyni veröur aö móta
fjölbreytt þjóöfélag sem gefur
sem allra flestum tækifæri viö sitt
hæfi. Sjálfstæöisflokkurinn er ekki
aðeins flokkur einstaklingshyggju
heldur tekur hann samkvæmt
grundvallarviöhorfum sínum fullt
tillit til þeirra sem minna mega sín
( þjóöfélaginu. Þetta er sá grund-
völlur sem hafa veröur ríkt í huga
ef viö viljum aö allir njóti lág-
markslífskjara. Þar sem tekju- og
eignamunur er óhóflegur veröur
alltaf spennuástand. Ákveöin
dreifing fjármagns og öryggi í
lífsafkomu þarf þvi' aö eiga sér
staö. fslendingar eru um 240
þúsund, svo fámennri þjóö veröur
ekki stjórnaö eftir kennisetningum
sem e.t.v. kunna aö eiga viö (
milljónaþjóöfélögúm. Hér veröur
aö taka tillit til þess hversu lítill
íslenskur markaöur er og hversu
viökvæmt íslenskt atvinnulíf er.
En til þess aö gera langa sögu
stutta þá er sú stefna sem ég vil
beita mér fyrir í þjóömálum í
meginatriðum í samræmi viö þá
stefnu sem einkenndi stjórnmála-
baráttu Sjálfstæöisflokksins og
geröi hann aö fjöldaflokki fólks úr
öllum stéttum.
TELUR ÞÚ ÞÁ AÐ
SJÁLFSTÆÐISFLOKK-
URINN HAFI ÞVÍ
ALLTAF VERIÐ AÐ
ÖÐRUM ÞRÆÐI RÍK-
ISHYGGJUFLOKKUR?
.Sjálfstæöisflokkurinn hefur
alltaf veriö flokkur einstaklings-
hyggju, sem kalla mætti mannlega
einstaklingshyggju. Hann er
fjöldahreyfing, sem samræmir ólík
sjónarmið og er aö því leyti ööru
vísi en hægri flokkar í nágranna-
löndunum. Flokkurinn hefur sam-
þykkt ríkisafskipti og einokunar-
aöstööu sem ákveönir íhalds-
menn myndu ekki faliast á, en (
þessum efnum hefur þó verió
gengiö of langt aö mínu mati."
NÚ HAFA HEYRST
RADDIR ÞESS EFNIS
AÐ FLOKKURINN HAFI
TILHNEIGINGU TIL
AUKINNAR HÆGRI
STEFNU UMFRAM ÞAÐ
SEM ÁÐUR HEFUR
VERIÐ, HVAÐ SEG-
IR ÞÚ UM ÞAÐ?
Skilin á milli hægri og vinstri (
þessu sambandi eru óglögg.
Meira og minna hefur verið fariö
Inn á braut aukinna ríkisafskipta,
framleiöslan stendur ekki undir
lífskjörum og stööugt sígur á
ógæfuhliöina. Þess vegna er ekk-
ert óeölilegt aö Sjálfstæöisflokk-
urinn leiti nýrra leiöa. Hvort þaö er
hægristefna skal ósagt látiö, en
kjarni málsins er sá aö lelta þarf
nýrra leiða.“
HVERJAR ERU HINAR
NÝJU LEIÐIR OG í
HVERJU FELAST ÞÆR
AÐ ÞÍNU MATI?
.Ríkisafskiptastefnan hefur
gengiö sér til húóar. Hún er þegar
orón þjóöinni alltof dýrkeypt og
hefur ekki leitt til þess árangurs,
sem ætlast var til. Áratugur henn-
ar hefur einkennst af upplausn,
veröbólgu, landflótta, óstjórn og
skorti á framkvæmdavilja. Ég tel
aö næsti áratugur veröi aö ein-
kennast af sókn, vexti, uppbygg-
ingu, stöövun landflóttans og
samstööu stétta þjóöfélagsins. Tll
þess aó þetta geti gerst þarf aó
kalla nýtt fólk til ábyrgöar. Stefna
pólitísks vaxtar veröur m.a. aö
fela þaö í sér aö taka forréttindin
af fullnýttu greinunum, til aö
auövelda nýsköpun. Viö eigum aö
stefna frá rányrkju til nýsköpunar
m.a. með markvissri iðnvæöingu,
en láta ekki gamlar tröllasögur og
bábiljur hindra sókn þjóöarinnar í
þessu efni. En þó aö á þetta sé
bent, veröa stjórnmálamennirnir
að gera sér grein fyrir því aö þaö
er ekkl þelrra hlutverk aö segja
nákvæmlega fyrir um þaö hvaöa
atvlnnuvegir eigi aö taka viö og
eflast, heldur eiga þeir aö skapa
skilyröi þess aö hægt sé aö
stunda aröbæran atvinnurekstur.
en þá þarf fjármagn aö vera fyrir
hendi, sem beinist til þeirra staöa
þar sem mest og hagkvæmust
uppbygging getur orðiö og aröur
mestur. Til þess aö þessi pólitík
vaxtar geti oröiö, þarf tortryggni
milli dreifbýlis og þéttbýlis aö
linna. Hafa verður í huga, aö
byggöastefna á aö ná til landsins
alls og markmiöið er fyrst og
fremst aö stöóva landflóttann.
Fjölgun þjóðarinnar hlýtur síðan
óhjákvæmilega aö leióa til þess
aö hver einasta byggö styrkist."
RÍKISAFSKIPTI HAFA
OFT VERIÐ RÉTTLÆTT
MEÐ ÞEIM RÖKUM, AÐ
ÁN OPINBERRAR
STÝRINGAR ÞRÍF-
IST ENGIN BYGGÐA-
STEFNA. HVERNIG
SAMRÆMIST ÞETTA
ÞÍNUM VIÐHORFUM OG
MEÐ HVAÐA HÆTTI
Á AÐ DRAGA ÚR
RÍKISAFSKIPTUM?
.Þaö hefur veriö opinber stefna
( nokkra áratugi aö reka öfluga
byggöastefnu, en hinar dreiföu
byggöir hafa hins vegar ekki
styrkst, þrátt fyrir þaö aö verulegu
fjármagni hafi veriö variö til þessa
verkefnis og annaö arðbærara þvi
látiö sitja á hakanum. Þaö er þvi
Ijóst aö þessi stefna rfkisins hefur
verlð röng og oft á tiöum miöast
viö gjafapólitík og mútugjafafyr-
irgreiöslu til styrktar einstökum
stjórnmálamönnum á einstaka
staö, en hagsmunir heildarinnar
fyrir borð bornir. Mikilvægasta
Viðtal við
Jón
Magnússon
formann
SUS
byggöastefnan er fólgin í bættum
samgöngum og hefur þaö veriö
Ijóst um langt árabll. Þaö er sú
byggöastefna, sem leggja ber
áherslu á númer eitt. Þrátt fyrir
þaö aö þetta hafi veriö augljóst
um alllangt skeiö, hafa íslenskir
stjórnmálamenn ekki horfiö frá
byggöastefnu vinargreiöans, en
breyting á því er forsenda þess aö
okkur takist aö skapa atvinnulíf
vaxtar, sem ég talaöi um áöan.
Þaö mikilvægasta í sambandi viö
takmörkun ríkisafskipta er aó
takmarka mögulelka stjórnmála-
manna aö ganga í vasa almenn-
ings. í því sambandi mætti hugsa
sér aö skattlagning ríkis- og
sveitarfélaga mætti aldrei fara
fram yfir ákveöiö mark og þá mun
lægra mark en er f dag, nema
sérstakar aðstæöur komi til, t.d.
vegna náttúruhamfara. Stjórn-
málamenn yröu þá aö haga sér
líkt og ábyrgir foreldrar, sem
veröa aö takmarka útgjöld s(n viö
tekjur. Heildarskattbyröin er orðin
þaó mikil aö stórir hópar fólks í
landinu eru orðnir eins konar
vinnuþrælar ríkisins. Þessi eyöslu-
stefna hefur ekki á nokkurn hátt
bætt aöstööu eöa hag fólks,
heldur skapaö þær aöstæöur, aó
framkvæmdavilji hefur veriö drep-
inn niöur, lífskjör versnaö og
veröbólgan ætt áfram. Þetta
þrennt er fyrst og fremst eyöslu-
stefnu stjórnmálamanna aö
kenna. Mér finnst alveg Ijóst aö
íslenskt efnahagslíf veröur ekki
reist viö og grundvöllur sterks
atvinnulífs lagöur, nema til komi
verulegur samdráttur ríkisútgjalda
og þá legg ég áherslu á þaö sem
ég sagöi í upphafi aö virkasta
leiöin er fólgin í takmörkun á rétti
stjórnmálamanna til aö ganga í
vasa vinnandi fólks í landinu. Viö
væntanlegar breytingar á stjórn-
arskránnl er vel athugandi aö
setja ákvæöi þessa efnis.
HVAÐA MAL TELUR
ÞÚ MIKILVÆGUST
FYRIR UNGT FÓLK?
Mikilvægasta mál uppvaxandi
kynslóöar hverju sinni er aö ríkj-
andi kynslóö skili a.m.k. jafngóöu
og helst betra búi í hendur þeirra
sem taka viö. Þess vegna er sú
skuldastefna sem rekin hefur ver-
iö um nokkurt skeiö f beinni
andstööu viö hagsmuni æskunn-
ar. Þaö veröur aö gera þá kröfu
aó erlendri skuldabyröi sem not-
uö er til aö halda uppi fölskum
lífskjörum veröi ekki velt yfir á
unga fólkiö. Þessari skuldasöfnun
veröur þv( aö linna. Annaö sem ég
vil benda á hér er nauösyn þess
aö skólakerfiö verói endurskipu-
lagt þannig aó ungt fólk Ijúki námi
fyrr en nú er eöa á svipuöum aldri
og í nágrannalöndunum. Slfk
endurskipulagning væri til bóta
bæöi fyrir námsfólk og hiö opin-
bera. Margt ( okkar skólakerfi nú
ér hreinlega sóun á tíma og
kröftum nemenda.
HVAÐ MEÐ HÚS-
NÆÐISMÁL?
Húsnæöismál eru vissulega
meöal mikilvægustu mála fyrlr
ungt fólk. Aöalatriöiö er aó þeirri
stefnu veröi fylgt aö fólk geti
eignast sitt eigið húsnæöi og gert
þaö án þess aó stofna andlegri og
líkamlegri velferö sinni í hættu. En
þá þarf lánafyrirgreiösla og
skattastefna aö taka miö af
þessu. Ég er ekki aö tala um þaö,
aö þaö eigi aö gefa ungu fólki
neitt, en lánafyrirgreiöslur veröa
aö vera þannig aö hægt sé aó
dreifa greióslubyröinni af fjárfest-
ingu í húsnæöi á mörg ár og
tekjuskattur og útsvar sé þannig
aö þaö refsi ekki fólki sem leggur
á sig mikla vinnu. i framhaldi af
þessarí spurningu langar mig til
aö minnast lítillega á dagvistun-
armál barna. Þaö er mikið hags-
munaatriöi fyrir ungt fólk aö
myndarlega sé teklö á ( þeim
efnum. Þó svo aö dagvistun sé
eitthvaö niöurgreidd af hinu opin-
bera, þá getur þaö samt veriö
eölilegt og afsakanlegt og jafnvel
skilaö sér til baka í aukinni
verðmætasköpun, auk þess sem
þaó óneitanlega stuölar aö auknu
jafnrétti kynjanna hvað snertir
vinnuframlag, alveg óháö því
hvort viö teljum aö þaö eigi aö
hafa slík áhrif eöa ekki, þá gerist
þaö. önnur atriöi í þessu sam-
bandi eru þau, aö þetta auöveldar
ungu fólki aö byggja sig upp, gæti
dregiö úr vinnuálagi en slíkt stuöl-
ar aó aukinni velferö barnanna
sem og annarra í fjölskyldunni.
HVER ER ÞÁTTTAKA
UNGS FÓLKS í
STJÓRNMÁLUM?
Því miöur viröist mér hún hafa
minnkaö í öllum stjórnmálaflokk-
um og þaö er skaðl. Stjórnmála-
flokkarnir höföa ekki á sama hátt
til hugs fólks og þeir geröu fyrir
t.d. tíu árum. Ástæöan er líklega
sú aö á þessu tímabili hefur öllum
stjórnmálaflokkum mistekist aö
framkvæma stefnu sem leitt getur
þjóðina út úr þessum örðugleikum
sem viö höfum rætt um. En þaö er
undir unga fólkinu komiö hvort
hér veröur stefnubreyting og ég
vona og hef ástæöu til aö ætla aö
ungt fólk geri sér grein fyrir því,
að þaö er þörf fyrlr þaö í þjóð-
málabaráttunni og meö því aö
þaö veiti nýjum krafti inn í íslensk
stjórnmál, þá eru auknar líkur á
því aö þaö takist aö koma i
framkvæmd þeim málum sem ég
hef minnst á í þessu viötali.
G.N.