Morgunblaðið - 21.02.1981, Síða 38

Morgunblaðið - 21.02.1981, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981 + Bróðir okkar, ÓTTAR EGGERT PÁLSSON, andaðist í Borgarspítalanum 20. febrúar. Systkini hins látna. Eiginmaður minn, taöir okkar og tengdafaöir, GUÐBJÖRN JENSSON, skipstjóri, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 19. febrúar. Viktoría Skúladóttir, synir og tengdadóttir. + Faöir okkar, STEINN STEINSEN, fyrrverandi bssjaratjóri, andaöist á Landspítalanum fimmtudaginn 19. febrúar. Eggert Steinsen, Gunnar M. Steinsen. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, JÓN FRIORIKSSON, Toronto, Ontario, Kanada, áóur í Montreal, lést að morgni 18. febrúar 1981. Geröur Friöriksson, Alda Sólveig Friöriksson, Stefán Eiríkur Friöriksson, Pátur Ólafur Friðriksson, Lillý Jónsdóttir. + Móöir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR, lést 7. þ.m. Jaröarföriri hefur fariö fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Jón S. Guömundsson, Kristjana V. Guömundsdóttir, Kristinn Ólason Svava Ingvarsdóttir, Hulda Guömundsdóttir, Aöalsteinn Gíslason, Ragnheiður Guömundsdóttir, Jóhannes Ólafsson, Guömundur R. Guömundsson, Guórún Pétursdóttir. + Kveöjuathöfn um fööur okkar og tengdafööur, HALLDÓR OAVIÐSSON, frá Syóri-Steinsmýri, Meóallandi, veröur gerö frá Dómkirkjunni, mánudaginn 23. febrúar kl. 3. Jarö- sett veröur frá Prestbakkakirkju, laugardaginn 28. febrúar kl. 2. Bióm og kransar vinsamlega afþakkaöir, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Blindraheimiliö, Hamrahtíö 17. Börn og tengdabörn. + Innilegar þakkir færum viö öllum þeim, sem vottuöu okkar samúö og vináttu meö blómum og skeytum viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, afa og iangafa, JÓNS KJARTANSSONAR, bifreiöastjóra, frá Sólbakka, Hofsósi. Sigríóur Jónsdóttir, Jónmundur Gíslason, Anton S. Jónsson, Jórunn Jónasdóttir, Kristrún Jónsdóttir, Magnús B. Magnússon. barnabörn og barnabarnabörn. + Innilega þökkum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför mannsins míns, fööur, tengdaföö- ur og afa, OLIVERTS A. THORSTENSEN, Granaskjóli 9. Sérstakar þakkir viljum viö færa söngstjóra og söngfélagi Skaftfellinga. Katrín Hildur Siguröardóttir, örn Thorstensen, Guöbjörg Grétarsdóttir, Ágúst Thorstensen, Anný Berglfnd Arnardóttir, Ríkard Thorstensen, Bergþór Olivert Arnarson, ölvir Thorstensen. Jón Ingimarsson Akureyri - Minning Við andlát Jóns Intjimarssonar formanns Iðju, félags verksmiðju- fólks á Akureyri, er margs að minnast. Fjölbreyttir hæfileikar hans skipuðu Jóni strax frá unga aldri í framvarðasveit, á hinum ólíklegustu sviðum, jafnt í leik sem starfi. Sambandsverksmiðj- urnar á Akureyri eiga langt líf sitt, ekki síst að þakka því starfs- fólki sem þar hefir lagt hönd á plóginn. Sumir hafa starfað þar alla æfina og í nokkrum fjölskyldum, mann fram af manni, en augljóst er hve dýrmætt það er hverju fyrirtæki. Fjölskylda Jóns Ingi- marssonar hefir þannig verið ein af þessum styrku stoðum, sem hafa hjálpað þessum iðnaði dyggi- lega, til þess að standa af sér „storma sinna tíða.“ Ingimar, faðir Jóns hafði starf- að í Gefjun ásamt bróður sínum Tryggva um árabil þegar Jón tók þar til starfa árið 1934. Þat valdist hann fljótt til for- ystu meðal starfsfélaga, og var éinn þriggja, sem á fyrsta starfs- ári Iðju undirrituðu fyrir hönd félagsins, beiðni um fyrstu kaup- gjaldsviðræður við iðnrekendur hér í bæ. A þessum árum var blómlegt félagslíf í verksmiðjunum, og einnig var þar Jón fremstur í flokki, jafnt í leikstarfseminni, sem á öðrum sviðum, m.a. í pöntunarfélagi verksmiðjustarfs- fólksins. Eftir því sem árin liðu óx álagið á félagsmálasviðinu og árið 1946 segir Jón lausu starfi sínu hjá Gefjun, og er það ár kosinn formaður Iðju. Hann verður starfsmaður verkalýðsfélaganna á Akureyri 1953 og frá 1962 starfs- maður Iðju, jafnframt formennsk- unni. Jón var einn af stofnendum félagsins hinn 29. marz, 1936 og þegar hann fellur í valinn er hann enn við stýrið sem formaður, eða í 35 ár samfleytt. Það mun áreiðan- lega einsdæmi, að njóta slíks trúnaðar samferðarmanna, og segir jafnframt sína sögu um þann hug sem borinn var til Jóns af þeim sem best þekktu til. Obrotgjarnari minnisvarða reisa menn sér trauðla. Jón Ingi- marsson var heilsteyptur maður, sem óx með vandanum hverju sinni. Á 40 ára afmæli Iðju þar sem Páll Ólafsson, iðnverkamaður rekur sögu félagsins er þetta skráð í félagsblaðinu: „Jón hefir verið formaður í Iðju óslitið í 30 ár. Allir sem til þekkja, vita vel að Iðjufélagið hefir frá stofndegi eða réttara sagt frá „fæðingu" og fram á þennan dag verið óskabarn Jóns Ingimarsson- ar. Og að hann hefir alla stund kappkostað að hlynna sem mest og sem best að þessu óskabarni sínu, enda hefir barnið dafnað vel og tekið út góðan vöxt, sem allir mega sjá. Margar eru ferðirnar, sem formaður Iðju hefir farið í öll þessi ár til samningagjörða og ýmissa annarra erinda í félagsins þágu, og ótal styttri ferðir til að reyna að miðla málum er í odda skarst, og hefir Jóni jafnan tekist vel málamiðlunin. Ber margt til þess. Má þar til nefna, að hann er fastur fyrir og með lipurri festu og þolgóðri elju vinnur hann sína sigra." Undir þetta allt skal fúslega skrifað og bent á það samtímis, að auðvitað óx starfsemi Iðju í réttu hlutfalli við aukin umsvif í iðnaði samvinnumanna og annarra. Þetta hefir verið ánægjuleg þróun, þar sem velferð annars hefir verið hagur hins í bestu merkingu þeirra orða. Þessu til áréttingar er ánægjulegt að tilfæra grein Jóns í Iðjublaðinu 1979 þar sem hann brýnir fyrir mönnum mikilvægi afurðanna, ullar og gæra, húða, mjólkurafurða og margs fleira með tilliti til atvinnuafkomu og atvinnumöguleika iðnverkafólks, sem vinnur að úrvinnslu þessara afurða og segir síðan orðrétt: „Þegar ég hugsa þessi mál verður mér efst í huga áskorun til iðnverkafólks með tilliti til áfram- haldandi uppbyggingar iðnaðarins á Akureyri. Vandið eftir getu öll ykkar störf. Framtíðin er hagur okkar allra. Hamingjan er okkar megin“. Þarna talar bjartsýnn forystu- maður. En Jóns Ingimarssonar naut víðar við, þar sem um hagsmuni iðnverkafólks var að telja. Má í því sambandi minnast þess, að hann var í nefnd Alþýðusamtak- anna á Norðurlandi sem undirrit- aði 1966 samning um kaupin á Ulugastöðum í Fnjóskadal fyrir orlcfsheimili þau, sem nú hafa veitt mörgum ómælda hvíld og ánægju í áranna rás. Enn má geta þess, að þegar Landssamband iðn- verkafólks var stofnað á Akureyri 1973 var Jónn einn af forsetum þingsins og varaformaður í fyrstu stjórn og æ síðan. Þannig er vegferðin vörðuð baráttunni og trúnaðarstörfum í þágu umbjóð- enda sinna frá því fyrsta til hins síðasta. Jón Ingimarsson átti um árabil sæti í bæjarstjórn Akureyrar, starfaði í nefndum á vegum bæjar og ríkis, og var einn stofnenda Styrktarfélags vangefinna á Ak- ureyri. í einkalífi sínu naut Jón sam- fylgdar ástríkrar eiginkonu Gefn- ar Geirdal, sem bjó manni sínum fagurt heimili, en sem um nokk- urra ára skeið hefir mátt þola langar legur á sjúkrahúsi. Þann kross hefir Gefn borið af skapfestu hinnar heilsteyptu konu. Börnin eru Hekla, Hreiðar, Hólmfríður, Ingimar, María og Saga. í fari þeirra allra má greina ýmislegt það besta sem taka má í arf frá kærleiksríkum foreldrum úr föðurgarði. Ekki verður svo skilið við þessi minningarorð, að ekki sé getið þeirra glöðu stunda sem Jón átti í fjölmennum vinahópi, þar sem hugðarefnum var sinnt á stopul- um stundum frá önn dagsins. + SIGURVEIG ILLUGADÓTTIR, sem andaöist á Elli- og hjúkrunarhelmllinu • Grund þann 13. febrúar, veröur (arösungin fré Fossvogskirkju, mánudaginn 23. febrúar ki 3. Vandamenn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, ÞÓREYJAR ÞORSTEINSDÓTTUR, kaupkonu, Snorrabraut 61, Reykjavík. Þorsteinn Sigurösson, Helga Kristjénsdóttir, Sigríóur Gyóa Siguróardóttir, Sigurgeir Sigurðsson, Garóar Sigurósson, Hulda Guóréósdóttir, og barnabörn._____________________________________ Að gleðjast með glöðum var honum lífsnautn. Jón var í fremstu röð fimleikamanna á yngri árum og um langt árabil einn fremsti skákmaður Akureyr- inga, formaður í félagi þeirra lengi og síðar heiðursfélagi. Söng- maður var Jón góður og söng hann um árabil í röðum karlakórs Akureyrar. Þá átti Leikfélag Ak- ureyrar traustan liðsmann í Jóni frá fyrstu tíð. Af framansögðu er augljóst að með Jóni Ingimarssyni er horfinn af sjónarsviðinu eftirminnilegur persónuleiki sem var trúr köllun sinni til hinstu stundar, en sem auðnaðist einnig að auðga mann- lífið í kringum sig með fjölbreytt- um hæfileikum og lífsgleði. Að leiðarlokum kveðja íslenskir sam- vinnumenn Jón Ingimarsson sem verðugan foringja sinnar fylk- ingar. Saga hans er einnig frækin sóknarsaga íslensks iðnaðar til farsældar. ÖUum aðstandendum eru vottaðar innilegar samúðar- kveðjur. Iljörtur Eiríksson. Jón Ingimarsson, form. Iðju, félags verksmiðjufólks á Akur- eyri, var fæddur 6. febrúar 1913 á Akureyri. Foreldrar hans voru Ingimar Jónsson iðnverkamaður og kona hans, María Kristjáns- dóttir. Hann ólst upp á Akureyri og réðst 1934 til Ullarverksmiðj- unnar Gefjunnar en þar starfaði hann til 1945. Þá verður hann starfsmaður verkalýðsfélaganna á Akureyri til ársins 1962 er hann verður alfarið starfsmaður Iðju, félags verksmiðjufólks á Akur- eyri. Hann var einn af stofendum Iðju og var formaður félagsins sl. 36 ár. Það er ekki ofsögum sagt, að hann væri mikill félagsmálamað- ur, því auk þess að vera einn virkasti forystumaður verkalýðs- hreyfingarinnar var hann einnig lífið og sálin í Skákfélagi Akur- eyrar árum saman og lengi for- maður þess. Einnig starfaði hann mikið með Leikfélagi Akureyrar og Styrktarfélagi vangefinna á Akureyri og var stofnandi þess félags. Hann tók mikinn þátt í stjórnmálum á Akureyri og var varabæjarfulltrúi og bæjarfulltrúi 1946—1970. Hann kvændist Gefn Geirdal 1934 og börn þeirra eru: Hekla (fósturd.), Heiðar, Hólm- fríður, Ingimar, Maria og Saga. Ég kynntist Jóni fyrst 1958 á Alþýðusambandsþingi og fannst maðurinn mikið róttækur, en málflutningur hans hógvær og prúður. Síðan urðu kynni okkar nánari í starfi innan verkalýðshreyfingar- innar og kom þá í ljós hvílíkan drengskaparmann hann hafði að geyma. Hann bar verkalýðshreyf- inguna alltaf fyrir brjósi, hag hennar og velferð og í öllum málum mótaðist afstaða hans af því, hvaða gagn væri hægt að vinna iðnverkafólkinu á Akureyri, félögunum í Iðju. Það eru ekki margir núlifandi, sem hafa helgað líf sitt jafn einlæglega starfinu fyrir verkalýðshreyfinguna hér á íslandi, fórnað heimilishögum, tekjum og öðrum persónulegum velfarnaði til þess að ná sem mestum árangri í starfi fyrir þá sem minna mega sín í Iífsbarátt- unni. Jón var aldrei mikill stjórn- málamaður. Til þess var hann allt of hreinlyndur. hann var hug- sjónamaður, viðkvæmur í lund og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.