Morgunblaðið - 21.02.1981, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
45
fremur skal á það bent, að sund-
laugaverðir eru við þessa sundlaug
eins og aðrar sltkar hér í höfuð-
borginni. Foreldrar ættu að sjá
svo um, að ung börn þeirra ósynd
eða lítið synd séu í öruggri fylgd
en treysta ekki alltaf og alfarið á
aðra með gæslu barna sinna. En
það á ekkert fremur við í sam-
bandi við sundlaugina hér en aðra
staði, þar sem hætta getur steðjað
að.
Vil taka undir
með Bryndísi
Þá vildi ég benda á að börn 12
ára og yngri, munu eiga að vera
komin heim fyrir kl. 20 á þessum
árstíma. Leiðinlegt er að vita til
þess, hvað fólk getur sett út á allt,
en kann ekki að þakka það sem vel
er gert. Við Breiðholtsbúar meg-
um vera ósköp ánægðir með að
hafa fengið jafngóða sundlaug og
þessa, þó að segja megi, að þeir
sem hönnuðu laugina, hefðu mátt
hafa hana stærri og grunnsvæði
fyrir ung börn. Að endingu vil ég
taka undir með Bryndísi sem
skrifaði í dálka þína um leið og
móðirin margnefnda, að ég er
hæstánægð með laugina og starfs-
fólkið er frábært.
Þessir hringdu . . .
Verður þá að
gilda í framtíð-
inni um alla
Breiðholtssundlaugin:
Opnunar-
tími fram-
lengdur
Velvakandi hafði sam-
band við Hallgrím Jónsson
sundlaugarstjóra og spurði
hann álits á þeim athuga-
semdum sem undanfarið
hafa komið fram hjá bréf-
riturum hér í dálkunum um
Breiðholtslaugina. Hall-
grímur kvaðst aðeins vilja
taka fram eftirfarandi:
1. Kennslulaugin er í
stanslausri notkun til kl.
20 alla virka daga.
2. Stöðug vakt er frá
morgni til kvölds til að
fylgjast með sundlaug-
argestúm, stórum og
smáum.
3. I athugun er að skipta
lauginni með merkisnúr-
um til að skapa svigrúm
fyrir þá sem vilja synda.
4. Opnunartími hefur verið
framlengdur til kl. 21, en
hætt að selja aðgang kl.
20.30.
Langholtsbúi hringdi og
kvaðst óttast að menn létu leiða
sig í ógöngur ef taka ætti af
almannafé til að bæta það tjón,
sem varð í ofviðrinu á mánu-
daginn. — Það hefur ekki farið
hátt þótt einn og eirin maður
hafi orðið fyrir tjóni á fasteign-
um eða lausafé, og hafa þeir
orðið að taka það á sínar herðar
sig einir og óstuddir, jafnvel þó
að um stórtjón hafi verið að
ræða. Það virðist því svo, að öllu
skipti að margir verði illa úti,
þá fer allt í gang. En ég fæ ekki
séð hvernig það stenst, að
hlaupa nú til og greiða mönnum
bætur, en láta svo óbætt verða,
þegar fáir einstaklingar verða
fyrir tjóni. Það verður að vera
samræmi í þessu og þetta verð-
ur þá að gilda í framtíðinni um
alla.
hún lagfærð og eilífri sælu frestað
um ófyrirsjáanlegan tíma. Sumir
fara jafnvel að neita endurkomu
Krists og hæðast að fyrirheitinu
um endurkomu hans.
Þegar Páll postuli ritaði 1.
þessaloníkubréf, bjóst hann fast-
lega við að vera á lífi við komu
drottins. Höfundur 1. Pétursbréfs
er alveg sömu skoðunar og segir
að endir allra hluta sé í nánd. í
Jakobsbréfinu er einnig sagt að
koma drottins sé í nánd og
lesendurnir beðnir að þreyja
þangað til drottinn komi.
Um misskilning að ræða
Fyrst og fremst er það opinber-
un Jóhannear, sem heldur hjátrú
þessari lifandi. Sigurbjörn Ein-
arsson biskup, segir um það efni í
bók sinni um „Opinberun Jóhann-
esar": „Enn er Opinberunarbók
lesin með það fyrir augum að
finna, hvar komið sé sögu heims-
ins og hve langt muni að bíða efsta
dags. Og sama máli gegnir um
spámannsbækur Gamla testa-
mentis. Þótt þeir, sem b» nnjrr Igqo^
viíji ekki taka neitt tillit til.
ábyrgra, vísindalegra biblíurann-
sókna, ætti augljós reynsla, gömul
og ný, að geta sannfært þá um, að
hér hlýtur að vera um misskilning
að ræða.“
Mikil er trúgirni fólks
Að sjálfsögðu sköpuðust ýmsar
bábiljur kringum þessa trú. Á
miðöldum trúðu menn því, að í
manninum væri eitt bein sem
aldrei gæti eyðilagst, hvorki rotn-
að né brunnið. Það var kallað
upprisubein, en út frá því átti
líkaminn að holdgast aftur. Og
þegar einhver missti fingur, hönd
eða fót, var limurinn vandlega
geymdur til að leggja í kistuna hjá
viðkomandi þegar að dauða hans
kæmi, þvi annars gæti hann átt á
hættu að rísa upp án þessa lims, á
upprisudeginum. Mikil er trúgirni
fólks.
I>á rennur upp guðs-
ríki á jörðu
Predikari einn, Berthold frá
Regensburg, tók til að reikna út,
hve margir muni verða sáluhólpn-
ir. Hann komst að þeirri niður-
stöðu, að það mundi ekki verða
nema einn af 100.000. Það gæti
táknað um 100 sálir, af öllum þeim
sem fæðst hafa á íslandi síðastlið-
in þúsund ár, og að sjálfsögðu
enginn fyrir kristnitökuna.
Berthold biður fólk að hugsa
sér, hvernig það muni vera, að
engjast í hvíglóandi helvíti í
hvítglóandi himingeimi fram að
dómsdegi, en þá muni þjáningarn-
ar aukast til mikils muna. Þessi
ósköp áttu að halda hér áfram í
jafnmörg ár eins og öll þau ár
væru að tölu sem vaxið hefðu á
öllum skepnum jarðarinnar frá
upphafi sköpunar.
Reyndar verða engir syndarar
til eftir dómsdag, samkvæmt trú
Votta Jehova, þeir eiga allir að
slokkna út. Og reyndar tók guðs-
ríki þeirra til starfa árið 1914, en
aðeins á himnum til að byrja með.
Þúsund ára ríkið byrjaði hjá þeim
það ár. Að því liðnu verður
dómsdagur og þá rennur upp
guðsríki á jörðu.
En ekkert gerðist
Aðventistar eru ekki svo heppn-
ir að eiga þúsund ár eftir að
dómsdegi, þeirra dómsdagur er
innan nokkurra ára í það allra
mesta. Það var loforð Neal C.
Wilson, sem kjörinn var yfirmað-
ur Kirkju sjöundadags aðventista
fyrir nokkrum árum.
En á meðan skulu hinir látnu
aðventistar sofa djúpum Þyrnirós-
arsvefni, meðan sálir hvítasunnu-
manna lifa í gleði og glaumi og
skemmta sér yfir óförum þeirra í
því neðra. Sálir þjóðkirkjumanna
una sér eflaust við hörpuna sína
og sálmasönginn.
Sterkustu boðendur heimsendis
hér á landi eru aðventistar. Þeir
eiga upphaf sitt aftur til ársins
1832. Það var bóndi nokkur, Willi-
am Miller að nafni, sem gerði það
heyrum kunnugt það ár, að heim-
urinn myndi farast árið 1843 og
byggði hann spásögn sína á út-
reikningum sínum á ritningunni.
Tókst Miller að vekja mikla
athygli á boðskap sínum. Nokkur
hundruð þúsund Ameríkumenn
létu sannfærast og urðu „Millerít-
ar“. Bækur og áróðursbæklingar
voru gefnir út í tugatali og dreift
um allt til stuðnings málstaðnum.
í ársbyrjun 1843 yfirgáfu
hundruð Milleríta heimili sín og
atvinnu, klæddust hvítum klæðum
og hugðust eyða síðustu dögum
sínum í söng og bænir. Dóu fjögur
börn úr sulti í New York-ríki
vegna þess að foreldrar þeirra,
sem voru Millerítar, yfirgáfu þau.
Þúsundir hvítklædds fólks biðu
þess allan daginn 20. mars, en þá
átti endirinn að verða, að verða
hafnir upp til himna, en ekkert
gerðist.
Eftir þetta töpuðu sumir trúnni,
en aðrir styrktust eins og gengur
og mynduðu þeir nýjan söfnuð,
sem fékk nafnið „Kirkja sjöunda-
dags aðventista". Það var árið
1844.
Engum til góðs
Margaret Rowan var ung kona
sem frelsast hafði á vakninga-
samkomu aðventista og varð hún
eins konar völva þeirrar trúar-
stefnu. Lýsti hún því yfir seint á
árinu 1924, að heimurinn mundi
farast 13. febrúar 1925. Messías
mundi birtast á austurhimni sem
hnefastórt ský og mundi vera að
nálgast jörðina á 7 dögum, svo að
syndurum gæfist færi á að sjá að
sér. Hinir útvöldu, 144.000 talsins,
mundu verða hafnir til himna í
Kaliforníu, en allir aðrir farast í
eldi og jörðin með. í San Diego
afsöluðu sér 30 aðventistar öllum
eigum sínum, klæddust hvítum
klæðum og fóru upp á fjall i
grenndinni. í Pennsylvaníu hengdi
sig koma í skógarkofa, eftir að
hafa rifist við fjölskyldu sína um
dómsdaginn. í Cleveland í Ohio-
ríki gerðist það eftir vakninga-
samkomu aðventista, að sex stúlk-
ur tóku þátt í óhóflegu svalli með
sex piltum, en daginn eftir framdi
allur hópurinn sjálfsmorð.
Sýnir þetta að dómsdagsspár-
kreddurnar eru engum til góðs,
enda eiga þær sér aðeins stað hjá
hugsunarlitlu fólki, sem hægt er
að fá til að trúa næstum hverju
sem er. Byggist öll hópsefjun enda
á því að ekki er hugsað á sjálf-
stæðan hátt, heldur öðrum trúað í
blindni og lítið eða ekkert gert til
þess að athuga málavexti.
Bílastillingar
Björn B. Steffensen
Hamarshötöa 3. Sími 84955.
Sparid bensín — Vel
stilltur bíll eydir minna.
Sólarkaffi
Vestfiröingafélagiö í Keflavík og nágrenni heldur hiö árlega
sólarkaffi sitt í dag, laugardaginn 21. febrúar í Stapa og hefst
kl. 21.00.
Miöasala við innganginn og borö tekin frá um leiö. Hvetjum
sérstaklega ungt fólk til aö fjölmenna. ,
Nefndin
Hestamenn —
Gustarar
Bjóöiö elskunni ykkar á góugleðina hjá Gusti í
Félagsheimili Kópavogs 2. hæö í kvöld, laugardaginn
21. febr. Hljómsveitin Mars leikur fyrir dansi. Húsiö
opnað kl. 21.00.
Skemmtinefnd.
HILDA HF.
t
Orðsending til
prjónakvenna
Höfum bætt viö nýjum móttökustöðum í
Keflavík og Breiöholti. Tökum nú við
lopapeysum á eftirtöldum stööum:
Keflavík Heiðarbraut 23, sími 3287, mánudaga kl. 5—6.
Breiöholti Yztaseli 5, sími 81699, miðvikudaga, kl. 4—6.
Selfossi Sléttuvegi 2, sími 1444, fimmtudaga.
Reykjavík Bolholti 6, sími 81699, þriðjudaga kl. 10—6,
miðvikudaga kl. 10—3, fimmtudaga kl. 10—3.
HILDA H/F,
BOLHOLTI 6.
BIBLÍUDAGUR1981
sunnudagur 22.febrúar
Arsfundur Hins
ísl. Biblíufélags
verður í kirkju Aðventista SD við Ingólfsstræti, Reykjavík,
sunnudaginn 22. febrúar nk. í framhaldi af guösþjónustu í
kirkjunni, er hefst kl. 14.00, þar sem prestur safnaðarins,
Jón H. Jónsson, predikar.
Dagskrá aöalfundarins: Venjuleg aöalfundarstörf.
Auk félagsmanna er öðrum velunnurum Biblíufélgsins
einnig velkomiö aö sitja fundinn.
Á Biblíudaginn verður tekið á móti gjöfum til styrktar starfi
félagsins viö allar guösþjónustur í kirkjum landsins (og
næstu sunnudaga í kirkjum, þar sem ekki er messað á
Biblíudaginn), svo og á samkomum kristilegu félaganna.
Heitiö er á alla landsmenn aö styöja og styrkja starf Hins
ísl. Biblíufólags. Stjórnin