Morgunblaðið - 21.02.1981, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
47
B-keppnin í Frakklandi:
„Munum ekki sýna okkar sterk-
ustu hlið fyrr en gegn Svíum“
- segir Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari
- íslendingar hafa tvívegis sigrað Austurríki
B-heimsmeistarakeppnin i
handknattleik hefst hér i Frakkl-
andi i dag. Fyrsti leikurinn i
A-riðiinum er á milli Frakka og
Svía. Strax á eftir þeim leik
mætir íslenska landsliðið Austur-
ríki. Leikir þessir fara fram í
borginni St. Etienne, sem margir
kannast við þar sem besta
knattspyrnulið Frakklands kem-
ur frá þeirri borg. briðji leikur-
inn í A-riðlinum er milli Pólverja
og Hoilcndinga og fer sá leikur
fram í Valence.
í B-riðlinum leika Danir gegn
ísraelsmönnum, Tékkar gegn
Norðmönnum og Sviss gegn Búlg-
aríu.
íslenska liðið tók létta æfingu í
gærdag og var gott hljóð í leik-
mönnum liðsins. Leikmenn og
fararstjórn íslenska liðsins eru
ánægðir með allan aðbúnað og
aðstæður og hafa ekki yfir neinu
að kvarta. Hilmar Björnsson
landsliðsþjálfari mun ekki til-
kynna liðið sem leikur gegn Aust-
urríki fyrr en á hádegi í dag en
sagði í spjalli við Morgunblaðið,
að hann myrtdi vera með örar
skiptingar á leikmönnum í leikj-
unum gegn Austurríki og Hol-
landi. „Eg mun engu að síður nota
mest vissan kjarna leikmanna, en
við viljum komast hjá því að sýna
okkar sterkustu hliðar fyrr en í
leiknum gegn Svíum." Sá kjarni
sem Hilmar mun nota mest eru
Stefán Halldórsson og Bjarni
Guðmundsson í hornunum, Guð-
mundur Guðmundsson og Páll
Ólafsson verða notaðir til þess að
hvíla þá. Ólafur H. Jónsson verður
á línunni ásamt Steindóri. Og
Þorbergur Aðalsteinsson, Páll
Björgvinsson og Sigurður Sveins-
son leika fyrir utan. Þorbjörn
Guðmundsson mun skipta þannig
Þórarinn
Ragnarsson
símar frá Lyon
Hilmar Björnsson ætlar ekki að
tefla fram því sterkasta gegn
Austurríki.
við Sigurð Sveinsson, að Sigurður
mun leika í sókn, en Þorbjörn í
vörn. Þá mun Axel Axelsson hvíla
útileikmennina.
Leikurinn gegn Austurríki
leggst vel í leikmenn íslenska
liðsins og reynt verður að ná góðu
markahlutfalli í leiknum, þar sem
það getur hugsanlega haft áhrif á
lokastöðuna í riðlinum.
Lið Austurríkis er ungt og
leikmenn greinilega ekki leik-
reyndir samkvæmt leikskrá sem
gefin hefur verið út í sambandi við
mótið. Leikreyndasti leikmaður
liðsins hefur leikið 66 landsleiki og
sá sem næstur kemur hefur leikið
47 landsleiki. ísland hefur leikið
tvo landsleiki gegn Austurríki,
síðast léku þjóðirnar saman árið
1972 og þá í forkeppni Ólympíu-
leikanna á Spáni. Islenska liðið
sigraði í leiknum með 6 marka
mun, 25—19. Fyrri leikur þjóð-
anna var í Reykjavík 15. október
1969 og þá sigraði ísland með
yfirburðum, 28—10. Menn eru þvi
bjartsýnir á hagstæð úrslit í
leiknum í dag.
Það verður nóg að gera hjá
fararstjórn íslenska liðsins, liðið
hefur með sér fullkomið mynd-
segulbandstæki, em verður óspart
notað til að taka upp leiki and-
stæðinganna. Þannig mun leikur
Frakklands og Svíþjóðar verða
tekinn upp á myndsegulband og
leikmenn og leikaðferðir liðanna
rækilega skoðuð. í gærdag var
farið margoft yfir landsleiki með
austurríska landsliðinu.
„Gott ef við
vinnum með
5 marka mun
- segir Bjarni Guömundsson
— Ég tel það gott ef við
sigrum Austurrikismenn með 5
marka mun eða meira. sagði
hinn eldsnöggi hornamaður ís-
lenska landsíiðsins, Bjarni Guð-
mundsson, í gærdag. Bjarni
Guðmundsson er 24 ára gamall
og starfar sem tölvutæknir hjá
Skýrsiuvélum Reykjavíkur.
Bjarni hefur leikið 84 lands-
lciki og hefur nú um tveggja
ára skeið veri einn albesti
leikmaður ísienska landsliðsins
í handknattleik. Bjarni er ieik-
maður sem aldrei gefst upp,
sýnir jafnan mikið keppnisskap
og baráttu vilja. Og oftar en
einu sinni hefur hann náð að
jafna metin fyrir íslenska
landsliðið í landsleikjum með
dugnaði sinum og útsjónarsemi.
Morgunblaðið innti Bjarna
eftir því hvernig leikirnir legð-
ust í hann og hverjir möguleikar
íslenska liðsins væru. — Þessi
keppni sem framundan er leggst
mjög vel í mig, landsliðið er vel
undirbúið og allt ^kipulag og
stjórn í kringum liðið er eins
gott og nokkur kostur er. Hins
vegar er stóra spurningin sú
hvort að liðið smellur saman og
heilladísirnar verði okkur hlið-
hollar. Það þýðir ekki að vera að
hugsa um þriðja eða fjórða sætið
í keppninni, heldur verður að
taka hvern leik út af fyrir sig og
sá leikur sem er efstur í hugum
okkar allra, er leikurinn gegn
Austurríki. Það yrði okkur gott
veganesti ef vel gengur í fyrstu
leikjum mótsins. Ég vara samt
við of mikilli bjartsýni. Ég vil
engu spá um úrslit, við verðum
bara að bíða og sjá hvernig við
spjörum okkur og vonandi hefur
okkur gengið vel þegar upp er
staðiö og keppninni er lokið, —
sagði Bjarni að lokum.
Hjartað er
suður í
Njarðvík
Island mætir Hollandi
í Lyon á morgun
- Síöan frí til þriðjudags en þá
mæta íslendingar hinum sterku Svíum
„Heilinn í islenskum körfuknatt-
íeik er kannski í skrifstofum
KKÍ í Reykjavík, en hjartað í
islenskum körfuknattleik er hins
vegar hér suður í Njarðvík,“
sagði Stefán Ingólfsson formaður
KKÍ, er hann óskaði leikmönnum
UMFN til hamingju með ls-
landsmeistaratitilinn. UMFN
innsiglaði sigurinn með því að
sigra Ármann með miklum yfir-
burðum í siðasta leik sinum.
Lokatölur urðu 122—66, eftir að
staðan i hálflcik hafði verið
55—30. Orð Stefáns formanns
kunnu Njarðvíkingar sannarlega
að meta og var andrúmsloftið i
iþróttahúsinu i Njarðvík mettað
gleði og ánægju í gærkvöldi.
Annars var leikurinn upp og
ofan. Heimamenn voru með ein-
dæmum seinir að taka við sér og
eftir 7 mínútna leik, var staðan
14—13 fyrir Ármanni, sem þarna
kvaddi úrvalsdeildina, a.m.k. um
sinn. En leikmenn UMFN tóku sig
saman í andlitinu og sneru vörn í
sókn. Eftir að liðið komst yfir, var
aldrei spurning. Danny Shouse
bar nokkuð af á vellinum, en allir
fengu að vera með og leikmenn
Danny skoraði 55 stig.
eins og Jónas, Valur og Gunnar
léku mjög vel. Ármenningar börð-
ust vel, en höfðu ekki erindi sem
erfiði eins og svo oft í vetur. Mest
bar á Valdemari, Kristjáni og Jóni
Björgvinssyni.
Stig UMFN: Danny 55, Valur 15,
Gunnar 12, Jónas 10, Þorsteinn og
Árni 8 hvor, Guðsteinn og Júlíus 6
hvor, Brynjar 4 og Jón Viðar 3
stig.
Stig Ármanns: Valdemar 16,
Kristján 13, Jón 12, Atli 7, Guð-
mundur, Hörður og Murat 6 hver.
-gg-
ANNAR leikur íslendinga í
B-keppninni fer fram á morgun.
sunnudag, og mætir islenska lið-
ið þá þvi hollenska. Frakkar
spila við Pólverja og þessir leikir
fara fram i borginni sem íslenska
liðið býr í, Lyon. Þá leika Svíar
gegn Áusturríkismönnum í skið-
abænum Chambery. í B-riðlinum
leika Tékkar gegn ísraels-
mönnum. Svisslendingar gegn
Norðmönnumog Danir gegn
búlgörum. Á mánudag verða eng-
ir leikir i keppninni og þá munu
liðin hvilast. Staðan ætti að
skýrast verulega eftir þessa tvo
fyrstu leikdaga í báðum riðlun-
um. Keppninni verður síðan
framhaldið á þriðjudag og þá eru
mjög þýðingarmiklir leikir á
dagskrá í báðum riðlunum, ís-
lendingar ma'ta hinu sterka liði
Svía og Danir ma'ta Tékkum í
B-riðli.
tslenska landsliðið í hand-
knattleik lék siðast við hollenska
landsliðið árið 1979 i Barcelona á
Spáni í forkeppni Olympíuleik-
anna. Sigraði islenska iiðið þá
KA sigraði Ármann naumlega
með 15 mörkum gegn 14 í 2. deild
íslandsmótsins i handknattleik i
gærkvöidi. í hálfloik var staðan
8—7 fyrir KA. Leikurinn. sem
fram fór á Akureyri, var þóf-
kenndur og frekar slakur. en KA
var ívið sterkara liðið.
Heimaliðið leiddi allan leikinn,
með 14 marka mun, 28 — 24. Það
er mál manna. að hollenska liðið
sé slakasta liðið i A-riðlinum og
leikmenn liðsins eru yfirleitt
ekki leikreyndir.
forystan var þetta 1—3 marka.
Annað er ekki að segja um gang
leiksins. Friðjón Jónsson bar
nokkuð af hjá KA, en að öðru leyti
var meðalmennskan alls ráðandi.
Þrátt fyrir að KA hafi unnið
fremur sanngjarnan sigur, var
liðið ekki sannfærandi.
KA vann mjög
nauman sigur