Morgunblaðið - 22.02.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1981
3
Biblíudagurinn 1981 er í dag:
Elsta starfandi
landsins safnar
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi fréttatilkynning frá Bisk-
upsstofu:
„Hið íslenzka Biblíufélag sem
stofnað var 1815 heldur árlegan
Biblíudag í dag. í sjónmáli er nú
ný og endurskoðuð útgáfa Biblí-
unnar og verður sú hin tíunda á
íslenzku. Fyrsta íslenzka biblían,
Guðbrandsbiblía, kom út fyrir
nær 400 árum — árið 1584.
lenzka 17. tungumálið sem Biblían
birtist á prentuð. Guðbrandsbiblía
er 1240 blaðsíður með 29 mynd-
skreytingum. Talið er að prentun
hennar hafi tekið nær 2 ár og sjö
menn unnið að verkinu. Prentuð
voru 500 eintök og sýndi könnun,
sem efnt var til skömmu eftir
stofnun Hins íslenzka Biblíufélags
eða um 1830, að þá voru ennþá til
um 160 eintök. Guðbrandsbiblía
kostaði í upphafi 2—3 kýrverð
hvert eintak, en nýlega var eintak
hennar keypt á uppboði í Lundún-
um fyrir yfir 12 millj. ísl. gkr. —
eða 120 þúsund nýkrónur.
Aðalfundur í dag
Ársfundur H.Í.B. verður í ár í
kirkju Aðventista S D við Ing-
félag
liði
BIBLÍUDAGUR 1981
sunnudagur 22,febrúar
. o
>*•*,, y J . i -■ . ■
e \ •
;
\v<r' Sæöiö er Cuöt Orö
ólfsstræti og hefst með guðsþjón-
ustu i kirkjunni kl. 14, þar sem
prestur safnaðarins Jón H. Jóns-
son predikar. Allir eru að sjálf-
ðu velkomnir.
stjórn Biblíufélagsins er fólk
úr flestum kristnum trúfélögum
hérlendis, forseti þess er dr. Sig-
urbjörn Einarsson biskup.
Liðveizla
Við guðsþjónustur í dag og
næstu sunnudaga er tekið við
gjöfum til Biblíufélagsins. Einnig
er dreift tvíblöðungi til kirkju-
gesta með hvatningu um að gerast
félagar Biblíufélagsins. Brýn þörf
er nú á víðtækum stuðningi við
félagið vegna mikilla verkefna.
Skrifstofa félagsins er opin síð-
degis í Guðbrandsstofu, Hall-
grímskirkju. Framkvæmdastjóri
Biblíufélagsins er Hermann
Þorsteinsson og er það ólaunað
starf.
Nýir starfshættir
í öldnu félagi
Á kristniboðsári safnar nú þetta
elsta starfandi félag landsins liði
til nýrra átaka. Hin nýja útgáfa
Biblíunnar er að sjálfsögðu geysi-
lega kostnaðarsöm, auk þess sem
hið aldna félag er að taka upp
nýja starfshætti til þess að örva
útbreiðslu og notkun Biblíunnar.
Áformuð eru m.a.:
Biblíukvöld með kynningu og
sýningu á gömlum Biblíuútgáfum,
ritgerðarsamkeppni, ferðir á sögu-
staði íslenzkrar Biblíuútgáfu og
kristni hér á landi og e.t.v. víðar,
heimsóknir kunnra erlendra fyrir-
lesara, útgáfa leiðbeiningarbókar
um Biblíulestur, lestrarþjónusta
fyrir sjóndapra, o.fl. Það veltur að
miklu leyti á undirtektum, hvað
hægt verður að framkvæma af
þessum hugmyndum.
Margar gerðir
af Biblíuúgáfum
Nú eru fáanlegar um 10 gerðir
íslenzku Biblíunnar, þ.e. mismun-
andi stærðir, band og litir á bandi.
Verðið er hagstætt, frá 112 upp í
282 nýkr. Ætla má að margir hafi
áhuga á að eignast þessa Biblíuút-
gáfu, áður en hún gengur til
þurrðar, en ekki er gert ráð fyrir
að hún verði prentuð oftar.
Ný útgáfa Biblíunnar er svo
væntanleg eftir nokkra mánuði,
vonandi verður hún komin á
markað upp úr miðju ári.
Síðast kom Biblían út í nýrri
íslenzkri útgáfu árið 1912 og 1914.
Prentun hennar var að verulegu
leyti kostuð af Breska Biblíufélag-
inu í London. Hún hefur margoft
verið endurprentuð síðan en alltaf
eftir þeim leturplötum, sem hún
var sett á í upphafi. Það breyttist
ekki, þótt prentunin væri flutt frá
London hingað heim fyrir aldar-
fjórðungi og Hið íslenzka Biblíufé-
lag tæki um leið á sig allan
kostnað af endurprentun hennar.
Biblíuhlutar á
1710 tungumálum
Biblían öll er nú fáanleg á 275
tungumálum og hlutar úr henni á
1710 tungumálum. Á sl. ári birtust
í fyrsta skipti þýðingar úr Biblí-
unni á 27 tungumálum. Talið er að
alls hafi verið prentaðir 2,5 millj-
arðar eintaka af Biblíunni og er
hún langútbreiddasta bók verald-
ar.
Þrátt fyrir fjárhagsvanda legg-
ur Hið íslenzka Biblíufélag um
tólf þúsund dollara til Biblíuút-
gáfu í löndum þar sm Biblía hefur
ekki enn verið prentuð. Má geta
þess að íslenzkur maður, Haraldur
Ólafsson kristniboði vinnur nú að
því að búa nýjatestamentið til
prentunar á Boranamáli, sem tal-
að er í suður hluta Eþíópíu og
Kenya. Er það í fyrsta sinn sem
texti er prentaður á því tungu-
máli.
íslenzka 17. tungumálið
Fyrir framtak Guðbrands bisk-
ups Þorlákssonar 1584, varð ís-
Forsjáll
ferðamaður
velur
Útsýnar-
ferð
Páskaferðir:
Torremolinos 15. apríl — uppselt
Marbella 15. aprfl — örfá sæti laus
St. Pete Beach 11. aprfl — uppselt.
London 14. aprfl — laus sæti
Kanaríeyjar 3. apríl — laus sæti.
Dragiö ekki aö panta réttu ferðina tímanlega.
COSTA DEL SOL
Torremolinos — Marbelia 26. apríl — 19 dagar —
Hagstæðustu ferðakaupin. Verö aðeins frá kr. 4.730.00.
Torremolinos — Marbella 14. maí — 3 vikur.
Verð aðeins frá kr. 5.340.00.
Vorferðir:
Yndislegasti tími ársins viö Miðjarðarhafiö
er voriö, þegar gróöurinn er ferskur og nýr
og allt lifnar viö.
MALLORCA
Palma Nova — Magaluf 6. maí — 3 vikur.
Kynningarverö á frábærri aöstööu Útsýnar á gististööum
í hámarksgæðaflokki. Verö aöeins frá kr. 5.170.00
Skíðaferð
til Lech
Vegna forfalla 3 sæti
laus 28. febrúar
Feröaskrifstofan
Austurstræti 17,
sími 26611.
ÍTALÍA
Lignano Sabbiadoro 22. maí — 3 vikur. Hin vinsæla,
fagra Gullna strönd italíu. Verö aðeins frá kr. 4.760.00.
JÚGÓSLAVÍA
Portoroz 29. maí — 3 vikur. Beztu gististaöirnir.
Verö aðeins frá kr. 7.450.00 meö fæöi.