Morgunblaðið - 22.02.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1981
31
Og í vetur gekk okkur framar
vonum. Við höfnuðum í öðru sæti í
1. deild og sjálfur skoraði ég 135
mörk og bætti því markamet Harð-
ar Sigmarssonar. Þessi velgengni,
bæði Þróttar og mín kom mér satt
bezt að segja á óvart. Takmark
okkar í Þrótti í haust var að halda
sæti okkar í 1. deild. Auðvitað
vonaðist ég til að skora mörk en að
þau yrðu 135 dreymdi mig ekki um.
En okkur gekk vel í fyrstu leikjum
okkar og það þjappaði okkur sam-
an. Þá er Ólafur H. Jónsson góður
þjálfari og hann hefur hrifið okkur
með sér með ákafa sínum. Það
hefur verið góður andi innan liðs-
ins. Allt þetta hefur stuðlað að
velgengni Þróttar og um leið minni
velgengni.“
Siguröur flmm ára — þá varð
hann aö fara allra sinna feröa
skríöandi.
A-keppninni í V-Þýzkalandi að ári.
Það yrði stórkostlegt ef það
tækist og sjálfur hef ég trú á
möguleikum okkar. Landsliðshóp-
urinn hefur sífellt orðið samstillt-
ari, allir eru staöráðnir í að gera
sitt bezta. En auðvitað verðum við
að ná okkar bezta til að ná
takmarkinu — við verðum að sýna
allar okkar beztu hliðar til að sigra
Svía og einnig Frakka, að ég tali
ekki um Pólverjana.
Nú, tilboðin frá V-Þýzkalandi
eru ákaflega freistandi. Hér heima
er umbun lítil. Ég vinn hjá Vífilfell
við að keyra út kók. Er aðstoðar-
maður Páls Ólafssonar, félaga
míns í Þrótti og landsliðinu, og það
er krefjandi vinna. En ég hef ekki
Á sjúkrahúsi, í maí 1964.
Tilboð frá
V-Þýzkalandi
Þú hefur fengið tilboð frá
V-Þýzkalandi um að leika með
þarlendum félögum og þú hefur
unnið þér fast sæti í islenzka
landsliðinu. Frami þinn í heimi
íþróttanna hefur verið mikill en
svo leit ekki út fyrir 15 árum. „Nei,
en að sjálfsögðu gerði ég mér þá
enga grein fyrir hve alvarleg veik-
tekið afstöðu til tilboðs frá Nett-
elsted í V-Þýzkalandi — efsta
liðsins í Bundesligunni. Að auki
hafa tvö önnur félög spurst fyrir
um mig. Það er freistandi að fara
út og ákvörðun tek ég í vor eða
sumar.
Auðvitað er freistandi að vera
heima og hver veit. Það yrði gaman
að taka þátt í Evrópukeppni næsta
vetur með Þrótti — það er ef okkur
tekst að vinna sæti í Evrópukeppni.
Siguröur fagnar sigri Þróttar ásamt félögum sínum, Siguröi
markveröi og Ólafi H. Jónssyni.
indi mín voru. En það er satt.
Veturinn hefur verið ævintýri lík-
astur, og þátttaka í landsleikjunum
hefur verið ánægjuleg og spenn-
andi. Ég hef nú leikið 31 landsleik
og sigurleikirnir gegn heimsmeist-
urum V-Þjóðverja og síðan gegn
Ólympíumeisturum A-Þjóðverja
eru minnisstæðir. Mér gekk ekki
vel í leikjunum gegn A-Þjóðverjum
en betur í V-Þýzkalandi. Ég byrjaði
fremur illa gegn A-Þjóðverjum og
varð taugaóstyrkur. Það er allt
annað að leika með landsliði en
félagsliði — pressan er svo mikil í
landsliðinu. Þessir sigrar eru gott
veganesti og við landsliðsmenn
stefnum að því að ná einu af
þremur efstu sætunum í Frakk-
landi og tryggja okkur sæti í
Þá er auðvitað freistandi að fylgja
þessum góða vetri eftir með Þrótti
og reyna að ná alla leið á toppinn.
Víkingar hafa verið með yfirburða-
lið í 1. deild — geysisterkt lið bæði
í vörn og sókn og það hefur verið
erfitt að leika gegn þeim — finna
glufur í vörn þeirra. En ég á von á
að keppnin í 1. deild verði jafnari
og harðari og við Þróttarar ætlum
okkur að ná alla leið á tindinn. Enn
sem komið er er ég óráðinn og
auðvitað liggur mér ekkert á. Ég er
aðeins 21 árs gamall og á vonandi
langan feril fyrir höndum — áhug-
inn beinist fyrst og fremst að
handknattleiknum og það yrði
stórkostlegt að verða Islandsmeist-
ari með Þrótti."
II Halls.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
SMIDJUVEGl 6 SIMI 44544
Eigum aöeins nokkur
sófasett eftir á lága
verðinu.
Komið og kynnið yður verð
og gæði.
SKOÐIÐ i DAG. KAUPIÐ Á
MORGUN.
VERIÐ VELKOMIN
gróöurhustnu
v/ Sigtun
S. 36770. 86340
P'