Morgunblaðið - 22.02.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1981
25
ára gamall, og var öllum harm-
dauði, sem þekktu hann.
Þau eru því aðeins orðin eftir
tvö systkinin á lífi, Ólöf, sem er
ekkja og býr í Reykjavík, og Árni,
sem hefur verið búsettur í Ástr-
alíu sl. 28 ár. ÖIl þessi systkin
bjuggu við mikið ástríki og gott
atlaeti á heimili foreldra sinna, og
held ég að þau hafi búið að því
síðan, eins og við er að búast.
Kristín, eða Stína frænka, eins
og ég kallaði hana, var bráðfalleg
kona, fremur hlédræg að eðlisfari
en trygglynd. Oft var hún bráð-
skemmtileg og fyndin. Ung giftist
hún Árna Sveinbjörnssyni, en þau
skildu eftir örskamma sambúð.
Eftir það vann Kristín í Sundhöll
Reykjavíkur til ársins 1942. Þar
kunni hún vel við sig og eignaðist
marga góða vini og kunningja,
sem hún hugsaði alltaf hlýlega til
síðan og talaði oft um.
Árið 1942 giftist hún svo Stein-
dóri Þorsteinssyni, sem reyndar
var föðurbróðir minn. Steindór
var múrarameistari að atvinnu, en
hafði mikið yndi af söng og var
félagi í Karlakórnum Fóstbræðr-
um í mörg ár og söng meðan
honum entist heilsa til, sem því
miður var allt of stutt, því hann
veiktist og dó úr krabbameini árið
1949. Þau Kristín eignuðust tvo
syni með stuttu millibili. Sá fyrri,
sem skírður var Þorsteinn Jónas,
lifði aðeins í tvo mánuði, en sá
seinni fæddist andvana. Þarf víst
enginn að efast um hvert áfall
þetta hefur verið Stínu og Stein-
dóri.
Eftir að Steindór dó var Kristín
ein í nokkur ár eða þangað til
móðir hennar flutti til hennar
eftir að hún var orðin ekkja, eða
árið 1955. Þær héldu svo heimili
saman þar til Kristín giftist Birni
Þórðarsyni, umsjónarmanni, 1962,
en þá fór Sigríður á Hrafnistu og
undi sér þar vel þar til hún dó árið
1966, 86 ára gömul.
Björn og Stína áttu svo saman
nokkur góð ár. Björn var mikill
laxveiðimaður og Stína fékk líka
brennandi áhuga á laxveiði og nú
var beðið laxveiðitímans á hverju
ári og gerð áætlun um veiðiferðir,
þó aðallega í EUiðaárnar, þar sem
Björn þekkti hvern hyl og næstum
hvern stein. En 1972 dó Björn og
síðan hefur Stína verið ein. Sterk-
byggð vár hún aldrei en síðustu
árin hrakaði heilsu hennar stöð-
ugt og síðustu 3 mánuðina hefur
hún legið á Borgarspítalanum þar
sem hún dó. Ég verð að segja að ég
dáðist að stillingunni og æðruleys-
inu sem hún sýndi síðustu vikurn-
ar. Mér hefur alltaf óað við að
heimsækja dauðvona fólk, en það
var aldrei óþægilegt að heimsækja
Stínu á spítalann. „Húmornum"
hélt hún til hins síðasta og oftar
en einu sinni fór ég hlæjandi frá
henni. En hún vissi hvað var að
ske og kærði sig ekki um neitt vol.
Ingvar, eða Ingi, eins og mér er
tamara að kalla hann, var skarp-
greindur, víðlesinn og mjög sjálf-
stæður í hugsunum og gjörðum.
Ég minnist hans, og þá einkum frá
æsku- og unglingsárum mínum,
næstum fremur sem eldri bróður
en móðurbróður, sem alltaf var
tilbúinn að ræða við mig um hvað
sem var og miðla mér af sínum
viskubrunni. Ingi lauk verslun-
arphófi frá Verslunarskóla íslands
en ekki hafði hann áhuga á
verslunarstörfum. Því var það að
hann fór að leita fyrir sér um
ævistarf og fann það austur í
Biskupstungum, en það var garð-
yrkja. Fyrst vann hann hjá öðrum
í gróðrarstöð 1—2 ár en þá
stofnaði hann sfna eigin gróðr-
arstöð í Reykholtshverfinu. En
hann var einn og því var það að
foreldrar hans fluttu austur,
keyptu þar lítið hús, Gufuhlíð, í
sama hverfi og héldu heimili fyrir
Inga þar til hann hafði sjálfur
byggt sér íbúðarhús, og þar með
hafði verið stofnað nýbýlið Birki-
lundur. Og þar bjuggu þau svo
þrjú í nokkur ár eða þar til það
skeði um svipað leyti að faðir
hans, Ingvar eldri, dó, og hún
Helga Pálsdóttir kom til sögunn-
ar. Þau giftu sig svo um jólin 1954.
Helga var þá heimingi yngri en
Ingvar en það gilti einu, þau áttu
samleið og undu sér vel í Birki-
lundi. Og þar dafnaði líka allt,
skógurinn hans Inga og allar
möguiegar og jafnvel ómögulegar
jurtir. Eg segi ómögulegar vegna
þess að Ingi varð sér úti um
plöntur og fræ víðsvegar að úr
heiminum, sem fólk trúði ekki
almennt að gætu lifað hér, og
reyndi að rækta í lundinum
heima, og tókst það oftar en ekki,
held ég. Að minnsta kosti fannst
mér mikið til um fjölbreytnina.
Og mikið var gaman að koma
austur og finna hlýjuna og gleðina
sem mætti manni, fara kannske
með Inga eða þeim báðum útí
gróðurhús að skoða tómata- og
agúrkuplöntur og ýmislegt fleira,
eða þá útí skóg, þar sem gróður-
sett hafði verið af fyrirhyggju, og
hlusta á Inga segja frá einstökum
trjám, aldri þeirra og sögu. Það er
ógleymanlegt. Og svo komu börn-
in, eitt af öðru, hvert öðru mynd-
arlegra og fallegra. Þau urðu sjö
og öll hafa þau líka dafnað vel.
Gunnlaugur er elstur, 25 ára,
næstur er Ingvar, þá Auður, Mím-
ir, Kjartan, Sigurður óli og svo
kom önnur dóttir, hún er yngst og
heitir ólöf Vala. Hún er nú 10 ára
gömul. Eina dóttur eignaðist Ingi
fyrir hjónaband, en ekki man ég
nafn hennar, en veit að hún er
kölluð Dísa. — En svo skeði slysið
og þá varð mikil breyting. En lífið
heldur áfram og ekki trúi ég öðru
en Ingi hafi skilið börnum sínum
eftir gott veganesti, sem þau geti
unnið úr á komandi árum sér til
gagns. Ég hef þá trú að svo mikið
sé í þau spunnið.
Og nú eru þau bæði farin
systkinin, Kristín og Ingvar. Ingi
ef til vill í bláa dalinn, sem hann
talaði svo oft um, og Stína,
kannske hún sé þar líka, eða á
einhverjum öðrum stað sem hent-
ar henni, og vafalaust hefur hún
þá hitt börnin sín. Eitt er víst, þau
efuðust hvorugt um áframhald-
andi líf og það er áreiðanlega gott.
Þau voru bæði stór þáttur í lífi
mínu, hvort á sinn hátt, og nú er
varla annað eftir en þakka —
Stínu fyrir væntumþykjuna, um-
hyggjuna og sérstaklega fyrir
tryggðina, því hún var einstök. —
Og Inga fyrir vináttuna, góðsem-
ina og alla þá visku sem hann vildi
svo gjarnan veita mér og mínum
hlutdeild í.
Börnum hans og öðrum að-
standendum þessara móðursyst-
kina minna bið ég blessunar.
Megi friður fylgja ykkur.
S.V.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
+
Innilegar þakklr fyrir sýnda samúö og vinarhug vegna andláts og
útfarar bróöur míns,
SIGFUSAR STEINGRÍMSSONAR.
Fyrir hönd barna hans og annarra vandamanna.
Magni Steingrímsson.
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlót og jaröarför
GUONA ERLENDAR SIGURJÓNSSONAR,
Hrfsateig 15.
Ragnhildur Davíösdóttir,
Hermann Ólafur Guðnason, Elsa Nielsdóttir,
Lára Guónadóttir, Ásgrfmur Kristjánsson,
Davfð S. Guðnason, Halldóra S. Halldórsdóttir,
Einar Guönason,
Sveinn Guönason, Ólöf Halldórsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum hjartanlega öllum þeim, er á margvíslegan hátt sýndu
samúö og vináttu viö andtát
ÞORGEIRS BJARNASONAR,
bónda,
Hasringsstööum.
Sjúkrahúsinu á Selfossi færum viö sérstakar þakkir.
Kristján Eldjárn Þorgeirsson, Guöný Magnúsdóttir,
Kolbeinn Þorgeirsson,
Bjarni Kristinn Þorgeirsson,
Sigrföur Ingibjörg Þorgeirsdóttir, Þorsteinn Sveinsson,
Sólveig Antonfa Þorgeirsdóttir
og aörir vandamenn.
0
D
D
D
D
D
D
D
Höfum fyrirliggjandi hina viðurkenndu
LYDEX hljóökúta í eftirtaldar bifreiöar:
Auto Biancl ..........................hljóókútar og púströr.
Austin Mini ..........................hljóökútar og púatrör.
Audi 100a—LS .........................hljóökútar og púatrör.
Bedford vörubfla .....................hljóökútar og púströr.
Bronco B og 8 cyl ....................hljóökútar og púatrör.
Chervrolet fólkabíla og jeppa ........hljóökútar og púströr.
Chrysler franskur ....................hljóökútar og púströr.
Citroan GS ...........................hljóökútar og púströr.
Cltroen CX ............................hljóökútar framan.
Daihatsu Charmant 1977—1979 .......hljóökútar framan og eftan.
Datsun dlesel 100A—120A
— 120Y — 1200 — 1600 — 140 — 180 hljóökútar og púatrör.
Dodge fólkabfla ......................hljóökútar og puströr.
FÍat 1500—124—125—126—127—128—
131__132.............................. hljóökútar og púströr.
Ford, amerfska fólkabfla ..............hljóökútar og púströr.
Ford Consul Cortina 1300—1600 .........hljóökútar og púströr.
Ford Escort og Fiesta .................hljóökútar og púströr.
Ford Taunus 12M—1SM 17M 20M.....hljóökútar og púströr.
Hilman og Commer fólkab. og sendlb. .. hljóökútar og púströr.
Honda Civlc 1500 og Accord .....................hljóökútar.
Austin Qipsy jeppl ....................hljóökútar og púatrör.
Internatlonal Scout jeppl .............hljóökútar og púströr.
Rússajeppi QAX 69 hljóökútar og púströr.
Wlllys jeppl og Wagoneer ..............hljóökútar og púströr.
Jeepstar V6 ...........................hljóökútar og púatrör.
Lada ..................................hljóökútar og púströr.
Landrover bensfn og dlesel ............hljóökútar og púströr.
Mltsubishi Colt, Celeste, Qalant ...............hljóökútar.
Lancer 1200—1400 ......................hljóökútar og púströr.
Masda 1300, 616, 626/1,6. 323, 818, 929 .hljóökútar og púatrör
Mercedea Bena fólkabfla
180—190—200—220—250—280 hljóökútar og púströr.
Mercedea Benz vörub. og sendlb.................hljóökútar og púatrör.
Moskwltch 403—406—412 hljóökútar og púatrör.
Morris Marina 1,3 og 1,8 ..........hljóökútar og púströr.
Opel Rekord, Caravan, Kadett og Kapltan
.................................. hljóökútar og púströr.
Passat ...................................... hljóökútar.
Peugeot 204—404—504 hljóökútar og púströr.
Rambler Amerlcan og Classic .......hljóökútar og púströr.
Ranga Rover .......................hljóökútar og púströr.
Renault R4—R8—R10—R12—R16—R20
.................................. hljóökútar og púströr.
Saab 96 og 99 .....................hljóökútar og púströr.
Scania Vabis
LBO—L85—LB85—L110—LB110—LB140 ...............hljóökútar.
Simca fólksbfla ...................hljóökútar og púatrör.
Skoda fólksb. og station ..........hljóökútar og púatrör.
Sunbeam 1250—1500—1300—1600— ... hljóökútar og púströr.
Taunua Transit bensfn og disel......hljóökútar og púströr.
Toyota fólksbfla og statlon .......hljóökútar og púströr.
Vauxhall fólkab....................hljóökútar og púströr.
Volga fólksb.......................hljóökútar og púströr.
VW K70, 1300, 1200 og Qolf ........hljóökútar og púströr.
VW aendlferöab. 1971—77 ...........hljóökútar og púströr.
Volvo fólksbfla ................ hljóökútar og púströr.
Volvo vörubfla F64—85TD—N88—N86—
N86TD—F86—D—F89—D ...........................hljóökútar.
Púströraupphengjusett í flestar geröir bifreiöa.
Pústbarkar, flestar stasröir. Púströr í beinum
lengdum, 1%“ til 4“
Setjum pústkerfi undir bfla, sími 83466.
Sendum í póstkröfu um land allt.
FJODRIN
Skeifunni 2
82944
PústrÖraverkstæói
83466
0
D
D
D
D
D
D
D
D