Morgunblaðið - 25.02.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981
Verðmæti hverfa úr
vörslu Seðlabankans
Starfsmaður bankans í gæsluvarðhaldi
STARFSMAÐUR Seðlabanka ís-
lands var á mánudaginn úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 4. mars
næstkomandi, vegna hvarfs á
verðmætum úr skjalasafni bank-
ans.
Þórir Oddsson vararannsókn-
arlögreglustjóri staðfesti í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
úr vörslu Seðlabankans væru
horfin talsverð verðmæti. Grunur
beindist að því, að starfsmaður
bankans, maður á fertugsaldri,
sem hafði þann starfa að gæta
verðmætanna, væri viðriðinn mál-
ið. Maðurinn var handtekinn um
síðastliðna helgi, og hefur verið í
stöðugum yfirheyrslum síðan.
Þórir Oddsson sagði, að rannsókn-
in væri skammt á veg komin og
væri því ekki hægt að skýra frekar
frá málavöxtum á þessu stigi.
Opinber heimsókn for-
seta Islands til Dan-
merkur hefst i dag
OPINBER heimsókn forseta ts-
lands, Vigdísar Finnbogadóttur,
hefst i dag. Átti forsetinn að
leggja upp með fylgdarliði sinu
með flugvél Flugféíags tslands
kl. hálfátta i morgun og koma til
Kaupmannahafnar i opinbera
móttöku á Kastrup-flugvelli kl.
11.30 að dönskum tíma. En þar
tekur Margrét drottning á móti
forsetanum, sem verður gestur
hennar í þrjá daga. Opinberu
heims«')kninni lýkur á föstudags-
kvöld, en forsetinn dvelur á
laugardag áfram i Kaupmanna-
höfn, tekur á móti íslendingum
o.fl. og kemur heim á sunnudag.
Á þessum þremur dögum verður
mjög þétt setin dagskrá með
hátíðarkvöldverði Danadrottn-
ingar í kvöld í Kristjánsborgar-
höll, hátíðarsýningu í Konunglega
leikhúsinu annað kvöld og kvöld-
verðarveislu forseta Islands á
Langelinie-Pavillion á föstudags-
kvöld. En hver dagur fer í skoðun-
arferðir og móttökur af ýmsu tagi.
I dag tekur forsetinn á móti
sendiherrum erlendra ríkja í
Kristjánsborgarhöll, þar sem hún
býr ásamt fylgdarliði sínu. I fylgd
með forsetanum fara Ólafur Jó-
hannesson, utanríkisráðherra, og
frú Dóra Guðbjartsdóttir, Hörður
Helgason, ráðuneytisstjóri í utan-
ríkisráðuneyti, og frú Sara, Birgir
Möller forsetaritari og frú Gunn-
illa, Vigdís Bjarnadóttir, fulltrúi á
forsetaskrifstofu, og í Kaup-
mannahöfn bætast hefðum sam-
kvæmt við sendiherra íslands,
Einar Ágústsson og frú Þórunn
Sigurðardóttir.
Allmikill undirbúningur hefur
verið í Kaupmannahöfn vegna
komu forseta Islands og hefur
þessi heimsókn þegar vakið at-
hygli. Blaðamaður Morgunblaðs-
ins, Elín Pálmadóttir, fór utan í
morgun og mun fylgjast með
heimsókninni fyrir blaðið.
Mývetningar anægð-
ir með kvótakerfið
Dorgað eftir urriða í gegnum vök á ísnum.
ÞEIR bændur við Mývatn, sem rétt
hafa til silungsveiði úr vatninu. eru
nú margir hverjir búnir eða langt
komnir með að veiða upp í silungs-
kvóta sinn, en veiðar í gegnum is
byrjuðu 1. febrúar. í vetur var í
fyrsta skipti ákveðinn hámarksafli
úr vatninu og ákveðið að skipta
honum á milli rétthafa i hlutfalli
við arðskrá og annaðist Veiðifélag
Mývatns framkvæmdina eftir að
fiskifræðingar höfðu gert tillögu
um hámarksafla. Heildarkvótinn
var ákveðinn 4.200 fiskar og hafa
36 bændur rétt til veiðanna. Þeir
sem mestan rétt hafa mega veiða
270 fÍ8ka. en flestir mega veiða
100—135 fiska fram í mai.
Arngrímur Geirsson í Álftagerði
er formaður veiðifélagsins og sagði
hann, að þó ekki væri komin mikil
reynsla á kvótakerfið, þá teldi hann,
að það lofaði góðu og menn væru
almennt ánægðir með það. „Með
þessu fyrirkomulagi höfum við
meira vald á því hvað mikið er veitt
úr vatninu. Einnig hefur ákveðinn
fjöldi fiska það í för með sér, að
menn leggja nú meira upp úr því en
áður að reyna að fá vænni fiska, en
það hlífir þá ungfiskinum um leið.
Þeir, sem byrjuðu í febrúarbyrjun
eru búnir eða langt komnir með að
veiða upp í kvóta sinn enda eru þetta
ekki ýkja margar bröndur, sem
koma í hlut hvers og eins,“ sagði
Arngrímur Geirsson.
Þeir bændur, sem ekki veiða sil-
ung í gegnum ís í vetur, halda
vetrarkvóta sínum í sumarveiðinni
næsta sumar.
Slitnað upp úr farmannasamningum:
Báðir aðilar höf nuðu
tillögu sáttanefndar
SLITNAÐ hefur upp úr viðræð-
um undirmanna á farskipum og
útgerðum kaupskipanna, en
verkfall gagnvart Eimskipafé-
laginu, Hafskip, Nesskip og Jökl-
um kom til framkvæmda á mið-
nætti i fyrrinótt. Þegar hafa
stöðvazt tvö skip, Goðafoss og
Selá, sem kom í gærkveldi og i
dag er Langá væntanleg til
Reykjavikur. Þá hafa undirmenn
boðað verkfall hjá öðrum skipa-
félögum. Skipadeild SÍS, Ríkis-
skip, Kyndli og Víkum frá og
með mánudeginum 2. marz, hafi
samningar ekki tekizt.
Sáttanefnd ríkisins og sátta-
semjari lögðu í fyrrakvöld, rétt
áður en upp úr slitnaði, fram
sáttatillögu, sem báðir aðilar
munu hafa hafnað, vinnuveitend-
ur þó ekki þegar í stað. Tillagan
tók ekki á fjarvistarkröfum sjó-
manna, sem þeir hafa haldið mjög
á lofti og vinnuveitendur hafa
algjörlega hafnað. Hins vegar var
aðalinntak tillögunnar að vinna
upp röskun launastiga, sem orðið
hafði á síðasta samningstíma,
rétta úr aldurshækkunum, sem
hafa skerzt, og hefði sú leiðrétting
þýtt l'A til 2% meðaltalshækkun
launa undirmanna umfram það
ll'A%, sem áður hafði verið samið
um. Þá tók tillagan til þess, að
fyrra samkomulag stæði og sam-
komulag um þau atriði, sem náðst
hefðu síðan. Má þar m.a. nefna
atriði er varða tryggingamál og
heilsugæzlu.
Nýr sáttafundur í kjaradeilunni
hefur ekki verið boðaður og eins
og áður sagði hafa þegar tvö skip
stöðvazt, eitt af skipum Eimskipa-
félagsins og eitt af skipum Haf-
skips og annað skip hins síðar-
nefnda félags stöðvast í dag.
Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra:
„Virkjun Blöndu er næst á dagskrá“
„Umfram allt ekki orkuskort,44 segir Steingrímur
„Þurfum ekki að vera skelfingu lostnir,“ segir Páll Pétursson
„ÉG TEL AÐ undirbúningur virkjunar Blöndu og Sultartanga sé á
svipuðu stigi,“ sagði Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra í samtali við
Mbl. i gær, „en ég tel að Fljótsdalsvirkjun sé nokkuð á eftir. Það er um
það yfirlýsing 1 stjórnarsáttmálanum að næsta stórvirkjun verði utan
eldvirknisvaða og ég tel að það sé mjög nauðsynlegt að geta staðið við
þær fyrirætlanir rikisstjórnarinnar margra hluta vegna. Ég hef verið
mikill áhugamaður um virkjun Blöndu. tel það bæði mjög hagkvæmt og
mikið stórmál fyrir þann landshluta sem ég er fulltrúi fyrir að
Blönduvirkjun verði na-st."
„Nú er unnið að því að reyna að
ná samkomulagi um tilhögun
virkjunarinnar af aðilum heima í
héraði, orkumönnum og stjórn-
völdum. Eg vona að þær tilraunir
beri þann árangur að menn verði á
eitt sáttir og það hindri ekki að
þessi virkjunarkostur verði næstur
á dagskrá í framkvæmd. Virkjanir
eru dýr mannvirki og það er skylt
að nýta það sem er hagstæðast, en
eins og mál varðandi Blöndu
standa nú er það mitt mat að þar
sé um hagstæðasta kostinn að
ræða. Komi í ljós að aðrir kostir
sýnist hagkvæmari eru veigamikil
rök fyrir því að velja annað, en á
meðan svo er ekki, er Blanda næst
á dagskrá, en ég tel nauðsynlegt að
ákveða á næstu vikum með fram-
kvæmdir og lagaheimilda þarf að
afla fyrir þinglok.“
„IJmfram allt
ekki orkuskort"
Steingrímur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra sagði í Mbl. í
síðustu viku að hann teldi Sultar-
tanga næsta virkjunarkost til þess
að fyrirbyggja orkuvandræði, þar
sem svo lengi hefði dregist að
ákveða með virkjunarframkvæmd-
ir, en Hjörleifur sagði um þessi
ummæli Steingríms að þau væru
byggð á röngum forsendum og
ótímabær.
Steingrímur sagðist ekkert hafa
um þetta að segja, það væri stefnt
að virkjunum utan Þjórsársvæðis-
ins, en umfram allt teldi hann að
velja þyrfti virkjunarkost sem
hamlaði gegn orkuskorti og þá
virtist Sultartangi liggja beinast
við, þar sem hann óttaðist að þær
deilur, sem verið hafa norðan
lands og austan, tefji fyrir í
þessum efnum, en Steingrímur
sagði það sitt álit, að ákveða ætti
þrjár virkjanir nú á einu bretti.
„Þurfum ekki að
vera skelfingu lostnir"
Páll Pétursson alþingismaður
kvað mál ekki komin á það stig að
unnt væri að slá því föstu hvaða
virkjun ætti að reisa næst, „en ef
menn vilja ekki samkomulag, þá
getur slíkt orðið ofan á og það eru
menn sem hafa gengið í að egna til’
ófriðar um Blöndu og taka illa
hugmyndum til lausnar deilunni."
Aðspurður um það hvort Fram-
sóknarmenn hefðu miklar áhyggj-
ur af seinagangi í ákvörðunum um
virkjunarframkvæmdir eins og
Steingrímur Hermannsson hefur
sagt, sagði Páll: „Ég sé ekki að við
þurfum að vera skelfingu lostnir,
því það er nokkur tími til stefnu,
allt verður þetta virkjað einhvern
tíma. Blöndumenn hefur greint á,
en tæknimenn hafa sérstaklega
haldið fram einum virkjunarmögu-
leika sem fer ósparlega með land
og margir bændur eru því á móti
því. Samninganefnd hefur sýnt lit
til þess að kanna aðrar Ieiðir og ég
tel bændur fyllilega til viðræðna
um það.
Tíminn er ekkert að hlaupa frá
okkur en hins vegar kann að vera
skynsamlegast að gera stíflugarð
við Sultartanga til betri nýtingar
fyrir svæðið. Hafi upphafleg áætl-
un staðist um Tungnaársvæðið um
vatnsmagn og möguleika, ætti ekki
að þurfa neina panik, en hins vegar
snör handtök ef um skyssur er að
ræða. Það þarf því áður en langt
um líður að ákveða í þessum
efnum, en ég er á móti því að
veigamestu ákvarðanir í orkumál-
um séu teknar undir pressu eins og
átti sér stað um Kröfluvirkjun."
Dr. Gunnar Thoroddsen
Akranes:
Forsætisráð-
herra ræðir
efnahagsmál
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi
halda almennan stjórnmálafund i
Hótel Akranesi í kvöld. miðviku-
daginn 25. febrúar, klukkan
20.30.
Frummælandi verður dr. Gunn-
ar Thoroddsen forsætisráðherra
og ræðir hann um efnið: Hvert
stefnir í efnahagsmálum? Á fund-
inn mæta einnig Friðjón Þórðar-
son dómsmálaráðherra og Jósef
H. Þorgeirsson alþingismaður.
Fundurinn er öllum opinn.
Þessi fundur átti að fara fram
mánudaginn 16. febrúar sl. en
honum varð að fresta vegna óveð-
urs. Þá átti fundurinn að verða í
Sjálfstæðishúsinu en nú standa
yfir breytingar á húsinu og var
fundurinn því fluttur í hótelið.
Skal vakin sérstök athygli á þess-
ari breytingu á fundarstað.