Morgunblaðið - 04.03.1981, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
52. tbl. 69. árs.
MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Snorri Hjartarson tekur við bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs úr hendi
Knud Enggaards forseta ráðsins við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn í gær.
Nánar segir frá þeim atburði á bls. 16. símamyndN«rdf(.t«.
Norskir loðnubátar:
Aðeins ein veiði-
ferð til Jan Mayen
Frá Jan Erik Laure.
fréttaritara Mbl. í Norejci. 3. marz
Sjávarútvegsráðuneytið
norska hefur tilkvnnt loðnu-
kvóta norskra skipa við Jan
Mayen i ár og fá norskir
loðnubátar að veiða 83 þús-
und lestir. Þetta er um 25
þúsund lestum minna en í
fyrra. Leiv Grönnevet. for-
maður útvegsmanna. lét í
Ijósi vonbrigði með minnkun
kvóta og sagði. að minnkaður
kvóti hefði slæmar afleið-
ingar fyrir marga útvegs-
menn. Ilann sagði. að nú
fengju norskir loðnubátar að-
eins að fara eina ferð á miðin
við Jan Mayen í stað tveggja í
fyrra og þriggja árið 1978.
í fyrra voru um 110 bátar að
veiðum við Jan Mayen og
ástæða er til að ætla, að
jafnmargir loðnubátar verði
að veiðum við Jan Mayen í ár.
Norskir sjómenn eru uggandi
um, að skip frá ríkjum Efna-
hagsbandalagsins muni
hömlulaust veiða loðnu Græn-
landsmegin við Jan Mayen.
Kirkjan styður aðgerð-
ir stjómvalda í Póllandi
Varsjá. 3. marz. — AP.
Rómversk-kaþólska
kirkjan í Póllandi lýsti í
dag yfir stuðningi sínum
við áætlanir stjórnvalda
um endurreisn efnahags-
lífsins. Pólska útvarpið
skýrði frá þessu í dag. Þá
hafa ríki og kirkja komist
að samkomulagi um, að
kirkjunnar þjónar megi
framkvæma trúarathafnir
í opinberum stofnunum.
Slíkt hefur verið hannað
Brezhnev endur-
kjörinn aðalritari
Mwkvu. 3. marz. — AP.
LEONID BREZIINEV var í dag
endurkjörinn aðalritari sovéska
kommúnistaflokksins. Hann til-
kvnnti. að engar breytingar
hefðu verið gerðar á stjórnmála-
ráði kommúnistaflokksins, en í
henni eiga 14 menn sæti. Allir
voru endurkjörnir til fimm ára.
Hussein
í Bagdad
Baxdad. Teheran, 3. marz. — AP.
Hussein Jórdaníukonungur
kom í dag til Bagdad til fundar
við Saddam Hussein, forseta
íraks. Hussein styður málstað
íraka í styrjöldinni við írani.
Ríkisútvarpið í Saudi-Arabíu
tilkynnti í dag, að friðarnefnd
múhameðstrúarríkja færi á
morgun til Teheran og myndi
hún kynna stjórnvöldum í Bag-
dad og Teheran nýjar friðar-
tillögur samtaka múham-
eðstrúarríkja. Styrjöld Iraka
og írana hefur nú staðið í
liðlega hálft ár.
Gifurlegur fögnuður greip um
sig meðal fulltrúa á 26. flokks-
þingi kommúnistaflokksins þeg-
ar Leonid Brezhnev tilkynnti
forustu flokksins.
Um fimm þúsund fulltrúar
sungu Internationalinn, hrópuðu
slagorð og hylltu Brezhnev í
nokkrar mínútur. Sjálfur lét Brez-
hnev fá svipbrigði í ljós, klappaði
þó og um varir hans lék dauft
bros. Meðalaldur meðlima stjórn-
málaráðsins er liðlega 69 ár.
Sjálfur er Brezhnev 74 ára gamall
og hefur átt við vanheilsu að
stríða.
Brezhnev
um lanRt árahil.
Stofnuð hefur verið sérstök
samstarfsnefnd ríkis og kirkju og
á næstunni munu fara fram samn-
ingaviðræður um þá kröfu kirkj-
unnar, að prestar fái að starfa á
sjúkrahúsum, hælum, í fangelsum
og sumarbúðum. Þá munu viðræð-
ur fara fram um kröfur kirkjunn-
ar um greiðari aðgang að fjölmiði-
um. Kirkjan krefst þess, að fá að
gefa út eigið dagblað.
Þeir Stanislaw Kania, leiðtogi
pólska kommúnistaflokksins, og
Wojciech Jaruzelski, forsætisráð-
herra, voru í Moskvu í dag þegar
þingi sovéska kommúnistaflokks-
ins var slitið. Þeir voru viðstaddir
þingsetningu en brugðu sér til
Póllands til samningaviðræðna
við leiðtoga kirkjunnar. Jaruzelski
átti í dag viðræður við Nikolai
Tikonov, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna. Að sögn Tassfréttastof-
unnar sovésku, þá lét Jaruzelski í
ljós þakklæti Pólverja við stuðn-
ing Sovétmanna.
S-Afríku
vikið af
fundinum
Frá Önnu Hjarnadóttur. íréttaritara Mbl.
í WashinKton. 3. marz.
FULLTRÚA S-Afríku var
neitað um áheyrn «g vísað
af fundi Allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna. þegar
málefni Namibíu komu til
umraðu. Samþykkt var
með 113 atkva'ðum gegn 23
að vísa fulltrúa S-Afríku af
fundi. S-Afríka hefur ekki
átt fulltrúa á Allsherjar-
þinginu síðan 1974.
Island var í hópi landanna
23, sem vildu leyfa S-Afríku
að sitja fundi Allsherjar-
þingsins að þessu sinni.
Tómas Tómasson, fasta-
fulltrúi íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum, hafði orð
fyrir Norðurlöndunum og
hann sagði að hann teldi það
löglegan rétt S-Afríku, að
sitja þingið en ítrekaði, að
Norðurlöndin væru andvíg
apartheidstefnu stjórnvalda
í Pretóríu.
Vill til íran
Kahúl. 3. marz. — AP.
FLUGRÆNINGINN, sem rændi
pakistanskri farþegaþotu í inn-
anlandsflugi í landinu. hefur
krafist þess, að þotunni verði
flogið til írans. Farþegaþotan er
nú á flugvellinum i Kabúl í
Afganistan. Að sögn útvarpsins í
Kabúl. þá hefur heiðni flugræn-
ingjans verið komið til iranska
sendiráðsins í borginni. Um borð
i flugvélinni eru 148 manns.
Heimildir í Pakistan segja, að
flugræninginn hafi hótað að
sprengja flugvélina í loft upp verði
ekld gengið að kröfum hans.
Kosningabandalag
er í burðarliðnum
Lundúnum. 3. marz. — AP.
DAVID STEEL, leiðtogi
Frjálslynda flokksins, og David
Owen. leiðtogi þeirra, sem hafa
sagt sig úr Verkamannaflokkn-
um, skýrðu i dag frá stofnun
samráðsnefndar til undirbún-
ings kosningabandalagi. Auk
þingmannanna 12. sem sögðu
sig úr Verkamannaflokknum i
gær, hafa níu meðlimir lávarða-
deildarinnar sagt sig úr Verka-
mannaflokknum.
Samráðsnefndinni er ætlað að
koma vikulega saman til funda.
Að sögn náinna samstarfsmanna
0*en
Stcel
Steels, þá vonast hann til, að eftir
flokksþing frjálslyndra í haust,
verði formlegt bandalag jafnað-
armanna og frjálslyndra stofnað.
A fimmtudag munu jafnaðarmenn
og frjálslyndir leggja fram tillögu
í þinginu um breytingu á kosn-
ingafyrirkomulaginu. I stað ein-
falds meirihluta i kjördæmi verði
hlutfallskosningu komið á. í þing-
kosningunum 1979 fengu frjáls-
lyndir 18% atkvæða en aðeins 11
þingsæti af 635.
Ron Hayward, ritari brezka
Verkamannaflokksins, krafðist
þess í dag, að þingmenn þeir, sem
hafa sagt sig úr flokknum, afsali
sér þingsætum sínum. Þeir hafa
alfarið hafnað þessari kröfu.