Morgunblaðið - 04.03.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981
11
SigurÖur Þorbjarnar, Geitaskarði:
Maldað í móinn
við landlækni
Sjálfboðaliðar Rauða krossins við föndurstörf.
Jón Ásgeirsson:
200 millj. gkr. til
sjúkrabíla á sl. ári
7 árlegur merkjasöludagur Rauða kross
íslands er í dag, öskudag
Á SÍÐASTA ári nam fiárfesting
M'
Rauða krossdeilda á Islandi í
sjúkrabílum alis um 200 milljónum
gkr. ef með eru taldir þeir bílar sem
eru væntanlegir til landsins alveg á
næstunni. Sex nýir bílar hafa verið
pantaðir til landsins, og eru deiid-
irnar á Akureyri, i Grundarfirði, í
Vestur-Barðastrandarsýslu (Patr-
eksfirði), Hvammstanga, Austur-
Húnavatnssýslu (Blönduósi) og á
Sauðárkróki nú i óða önn að safna
peningum til kaupanna.
f fyrra komu til landsins 7 nýir
sjúkrabílar, og lætur nærri, að á einu
ári hafi verið keyptir hingað sjúkra-
bílar á vegum Rauða krossdeilda
fyrir um það bil 2 milljónir nýkróna,
og er þá ekki meðtalinn ýmiss konar
búnaður, sem nauðsynlegur er.
Það er öllum landsmönnum ljóst,
að einn meginþátturinn í starfsemi
Rauða kross íslands er kaup og
rekstur sjúkrabíla. Þannig á Reykja-
víkurdeildin fimm sjúkrabíla, sem
gerðir eru út frá slökkvistöðinni í
Reykjavík. í fyrra voru á vegum
deildarinnar fluttir um 12 þúsund
sjúklingar á Reykjavíkursvæðinu.
Að undanförnu hefur Rauði kross
íslands oft verið í umræðum manna
á meðal, og í fjölmiðlum hefur
oftsinnis verið um stofnunina fjallað
í blaðagreinum og víðar. Einkum
hefur þetta komið fram nú síðustu
misseri í sambandi við öldrunarmál,
sem hafa verið í brennidepli vegna
hins slæma ástands, sem ríkir í þeim
málum víðast á landinu.
Þá hefur einnig verið á Rauða
krossinn minnst vegna sérstaks verk-
efnis, sem unnið var að á síðasta
hausti, þ.e. Afríkuhjálparinnar 1980.
í þeirri fjársöfnun sýndu landsmenn
í verki traust sitt til Rauða krossins
og vilja til að koma bágstöddum til
hjálpar, þótt í fjarlægum löndum
séu.
Vegna þessa mikilvæga skamm-
tímaverkefnis féllu önnur í skuggann
á meðan, verkefni sem alla jafna er
unnið að á innlendum vettvangi alla
daga árið um kring. Þau eru nú aftur
komin fram í umræðum fólks, og er
sýnt, að það er Rauði krossinn, sem
landsmenn treysta best til að leysa
mestu vandamálin. Og þau eru mörg.
Nægir að benda á sjúkraflutningana,
sem fyrr er getið, einnig öldrunar-
málin, og er þar einkum átt við
þjónustu kvennadeildarinnar í
Reykjavík, neyðarvarnir má nefna,
skyndihjálp, rekstur sjúkrahótela,
hjálpartækjabankann, blóðsöfnun
o.H.
Allt frá stofnun kvennadeildar
Reykjavíkurdeildar RKÍ 1966 hefur
heimsóknarþjónusta verið eitt af
verkefnum deildarinnar. Einmana
fólk, sjúkir og aldraðir fá þá heim-
sóknir frá konum í deildinni, og
hefur árangurinn af þessu merka
starfi verið ótvíræður.
Þá hefur deildin einnig annast
félagsstarf fyrir eldri borgara í
samvinnu við Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar, og felst sú þjón-
usta einkum i því, að sjálfboðaliðar
deildarinnar aðstoða eldri borgara
með ýmsum hætti er þeir koma
saman sér til dægrastyttingar.
í kvennadeildinni eru nú 652 kon-
ur.
Ljóst er, að öll sú starfsemi, sem
hér hefur verið getið, og Rauði
krossinn annast um allt land, kostar
mikið fé.
Ein meginfjáröflunarleið Rauða
krossins er merkjasala á öskudegin-
um, og hefur svo verið um árabil.
Þann dag eru Rauða kross-merkin
seld um allt land, til ágóða fyrir hina
margþættu starfsemi sem deildirnar
hafa með höndum.
í fyrra tóku um 600 skólabörn þátt
í merkjasölu Rauða krossins, en
þáttur skólabarna hefur um áratuga-
skeið verið mjög mikilvægur í þessu
sambandi. Margir þeirra, sem nú
skipa sjálfboðasveitir Rauða kross
íslands, kynntust fyrst starfinu með
merkjasölu á öskudeginum.
Innan Rauða kross íslands eru nú
starfandi 42 deildir á landinu. Alls
eru félagsmenn um 20.000, þar af um
helmingur þeirra á höfuðborgar-
svæðinu. Nú er verið að undirbúa
stofnun tveggja nýrra deilda, á
Flateyri og Þórshöfn.
Merki Rauða krossins verður af-
hent sölubörnum í skólunum eins og
venja hefur verið undanfarin ár.
Jón Ásgeirsson
Það varð undirrituðum ekki
undrunarefni, að sjá að landlækn-
ir hafði lesið lokuðum augum öll
þau rök, sem fyrir því eru færð í
greininni Barnsfæðing (Morgunbl.
17/2) að þar er um að ræða mjög
vítaverð starfsglöp læknis, með
óhugnanlegum og örlagaríkum af-
leiðingum.
Hann talar þar með myndug-
leika þess manns, sem veit sig fara
með umboð voldugs stéttarkerfis,
um að „rangur áburður leysi
engan vanda", og vitnar í sömu
andrá til álits tímenninganna sér-
fróðu.
í greininni var sýnt fram á að
álit þetta þjónaði hvorki sannleika
né réttlæti. Það var algjör þver-
stæða sýnilegra og áþreifanlegra
staðreynda, — þverstæða heil-
brigðrar skynsemi og óbrenglaðr-
ar réttlætiskenndar.
Álit þessara tíu manna, er
trúlega ein hin gildasta af mörg-
um stoðum undir þeirri útbreiddu
skoðun, að mistök lækna séu utan
seilingar réttlætisins. Það er glögg
og hávær ábending um þá brýnu
þörf, sem á því er að löggjafinn
tryggi rétt fólks í slíkum tilvikum.
Landlæknir segir, að för barns
úr móðurkviði — svo stutt sem
hún er, sé hin hættulegasta sem
farin verður. Sé það rétt, sem
trúlegt er, veltur á miklu að þeir
sem telja sig sérhæfða til leið-
sagnar á því ferðalagi, séu þeim
vanda vaxnir — hafi til að bera þá
þekkingu, getu og mannkosti, sem
duga mega til farsælla ferðaloka.
Því var ekki að heilsa í tilfellinu
sem hér um ræðir — og því fór
sem fór.
í viðtali við Þjóðviljann 18/2, er
á landlækni að skilja að flest þau
mál, sem til meðferðar koma hjá
embætti hans, vegna meintra mis-
taka lækna, séu óraunhæf. Þau
stafi af misskilningi annaðhvort
hjá sjúklingi eða lækni. Hæpið
verður að telja að sjúklingar, sem
þolendur eru í slíkum málum, taki
undir að áföll þeirra séu „mis-
skilningur".
A.m.k. er víst, að áfall ungu
konunnar og barns hennar var það
ekki, og þeim er þetta ritar er ekki
kunnugt um að máli þeirra hafi
verið skotið til læknaráðs, né vísað
til Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar og við „óháða" sérfræðinga
er óhætt að setja nokkur spurn-
ingamerki.
Landlæknir boðar greinargerð
frá Fæðingardeild Landspítalans
um þetta mál. Undirritaður hefir
þegar í höndum eina slíka og
fróðlegt verður að sjá þá næstu.
Varla er að efa að hún miðast við
að veita vörn og hlíf þeim, sem
rétti kornabarni örkuml í vöggu-
gjöf, hinn 7. mars í fyrravetur.
Trúlegt er líka, að þar verði
tekið mið af þeim möguleika að
girða fyrir frekari kröfugerð um
jafna réttarstöðu, öllum til handa,
hvar í stétt sem þeir standa — og
spurningin er — gæti það tekist?
Sigurður Þorbjarnar,
Geitaskarði.
AUCLÝSINCASÍMINN ER:
224BD ^--->
SG-170H
3 tæki í einu.
Meiriháttar steríó samstæóa
meó hátölurum,
í vinsæla ,,silfur“ útlitinu.
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæröir og gerðir
SöiyiirOmiiDiLDF
Vesturgötu 16, sími 13280
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til ísiands á
næstunni sem hér segir:
ROTTERDAM
Arnarfell 23/3
Arnarfell 6/4
Arnarfell 20/4
ANTWERPEN
Arnarfell 6/3
Arnarfell 24/3
Arnarfell 9/4
Arnarfell 23/4
GOOLE
Arnarfell 9/3
Arnarfell 26/3
Arnarfell 6/4
Arnarfell 20/4
LARVÍK
Mvassafell 16/3
Hvassafell 30/3
Hvassafell 13/4
Hvassafell 27/4
GAUTABORG
Hvassafell 17/3
Hvassafell 31/3
Hvassafell 14/4
Hvassafell 28/4
KAUPMANNAHÖFN
Hvassafell 18/3
Hvassafell 1/4
Hvassafell 15/4
Hvassafell 29/4
SVENDBORG
Hvassafell 19/3
Skip 23/3
Hvassafell 2/4
Hvassafell 16/4
Hvassafell 30/4
HELSINGFORS:
Helgafell 11/3
Dísarfell 10/4
HAMBORG
Dísarfell 9/3
GLOUCESTER, MASS
Skaftafell 5/3
Jökulfell .............. 7/3
Skaftafell ............. 8/4
HALIFAX, KANADA
Skaftafell ............. 9/3
Jökulfell .............. 11/3
Skaftafell ............. 10/4
m
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101