Morgunblaðið - 06.03.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981
11
PípureykinKamenn sem aðrir reykingamenn á sviði skáklistarinnar
verða að geyma sér tóbakið meðan þeir tefla á „Skák i hreinu lofti II“.
Og engir öskubakkar munu sjást þá á skákborðum.
Skák í hreinu lofti II
Annað „reyklausau skákmótið hér á landi
„Skák í hreinu lofti 11“ nefnist skákmót sem Taflfélag
Reykjavíkur, Reykingavarnanefnd, Krabbameinsfélag
Reykjavíkur og Ábyrgð hf., tryggingafélag bindinds-
manna, munu halda um næstu helgi. Eins og nafnið ber
með sér, verða keppendum ekki leyfðar reykingar að tafli
og er þetta í annað sinn sem slíkt „reyklaust" skákmót er
haldið hér á landi.
Sumarið 1976 stóðu sömu aðilar fyrir slíkri keppni eins
og frægt varð á sínum tíma.
Á blaðamannafundi sem að-
standendur skákmótsins héldu
nýverið, kom fram að reyk-
ingar væru ekki heimilaðar á
skákmótum yngstu aldurs-
flokkanna, og töldu menn æski-
legt að sú tilhögun færðist upp
aldursflokkana í áföngum.
Dæmi eru um það hér á landi
að menn hafi hætt á skákmot-
um vegna reykinga. Okkar
sterkustu skákmenn reykja þó
flestir hverjir ekki, og aðeins
einn íslenskur titilhafi í skák
reykir.
„Skák í hreinu lofti 11“
stendur í tvo daga og hefst
næstkomandi sunnudag, 8.
mars, klukkan 14. Mótið fer
fram í félagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur að Grensásvegi í
Reykjavík. Tefldar verða ellefu
umferðir eftir Monrad-kerfi, 15
mínútna skákir, sex umferðir
fyrri daginn og fimm þann
seinni. Teflt verður í tveimur
flokkum, unglingaflokki, 14 ára
og yngri, og flokki fullorðinna.
Verðlaun verða vegleg á
„Skák í hreinu lofti II“. I flokki
fullorðinna verða veitt 8 verð-
laun: 1. verðlaun: 2.500 kr.; 2.
verðlaun 1.500 kr.; 3. verðlaun
1.000 kr.; 4. verðlaun 500 kr.; 5.
verðlaun 400 kr.; 6. verðlaun
300 kr.; 7. verðlaun 200 kr.; 8.
verðlaun 100 kr. í unglinga-
flokki verða verðlaunin 5 tals-
ins: 1. verðlaun 500 kr.; 2.
verðlaun 400 kr.; 3. verðlaun
300 kr.; 4. verðlaun 200 kr.; 5.
verðlaun 100 kr. Einnig munu
allir keppendur fá viðurkenn-
ingarskjal fyrir þátttökuna.
Ollum er heimil ókeypis
þátttaka, meðan húsrúm leyfir
og eru keppendur beðnir að
skrá sig í síma 83540 og í
síðasta lagi laugardaginn 7.
mars. Forráðamenn keppninn-
ar sögðust stefna að því að
reyklaus skákmót yrðu héðan í
frá árviss viðburður, og þeir
vonuðust eftir því að þetta
framtak leiddi til þess í fram-
tíðinni að öll skákmót yrðu
„reyklaus".
Aðalfundur
kattavina
AÐALFUNDUR Kattavinafélags-
ins verður haldinn að Hallveigar-
stöðum sunnudaginn 8. marz nk.
og hefst hann klukkan 14. Félagið
varð nýlega 5 ára gamalt og
hyggur á byggingarframkvæmdir
eins og fram hefur komið.
„Ballettsýning46?
Listdanssýning i Þjóðleikhúsinu.
Dansarar: íslenski dansflokk-
urinn og Eske Holm.
Stjórnandi og danshöfundur:
Eske Iiolm.
Islenski dansflokkurinn býður
upp á verkin Hjartaknúsarinn
og Vorblót eftir Danann Eski
Holm. Hver á frumkvæðið á því
að fá hann hingað væri forvitni-
legt að fá að vita.
Islenski dansflokkurinn á ekki
að vera tilraunadýr fyrir sér-
vitra útlendinga. Þeir mega gera
tilraunir og vera „frumlegir"
heima hjá sér fyrir mér.
En að auglýsa þessa sýningu
sem ballettsýningu er fyrir neð-
an allar hellur. Þarna örlar ekki
á ballett hvorki klassískum né
nútímaballett. „Hreyfingar"
mætti kalla sum atriðin.
í guðanna bænum verið vand-
lát í vali danshöfunda og snobbið
ekki niður fyrir ykkur í list
ykkar, eins og oft er gert nú til
dags.
Frumlegheit eru ekki frumleg
frumlegheitanna vegna. Sumir
fá útrás í að hneyksla aðra og
segja þá gjarna, að þeir hafi ekki
eftir Lilju
Hallgrímsdóttur
vit á hlutunum er gagnrýna þá.
Og veitir það þeim vissa ánægju
að halda að þeir viti betur.
Að koma hér með danskar
þjóðfélagsádeilur, illa útfærðar í
„hreyfingum", sóðaleg tjöld,
misheppnað „Porno“ og miðl-
ungs dansara (Eske Holm). Hver
ber ábyrgð á slíku? Unnendur
Islenska dansflokksins eiga rétt
á að fá að vita það.
Ég sé ekki ástæðu til að fjalla
um einstök atriði sýningarinnar,
þar sem ég tel ekki að hér hafi
verið um ballettsýningu að ræða.
En legg til að fleiri sýningar
en þær tvær, er þegar hafa verið,
verði ekki leyfðar.
Lilja Hallgrimsdóttir.
Ægis
veröur í Sigtúni fimmtudagskvöld 12. mars n.k. Aðalvinningur: ZUZUKI
bíllinn sparneytni er til sýnis í Vörumarkaönum og Ægisfélagar munu
selja aögöngumiöa og bingóspjöld viö bílinn í dag. Verö aögöngumiða
kr. 20, bingóspjöld kr. 50.
Spilaöar veröa 15 umferöir um fjölda annarra glæsilegra vinninga og
stjórnandi veröur Svavar Gests.
Tryggið ykkur spjöld í forsölunni í Vörumark-
aðnum. — Takmarkað magn.
ilabingo
Komdu og skoðaöu — það er alltaf eitthvað nýtt að sjá.
Opið föstudag
til kl. 8 -
Vörumarkaðurinn hf.
sími 86112.