Morgunblaðið - 06.03.1981, Page 13

Morgunblaðið - 06.03.1981, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981 13 Stefnir í atvinnuleysi menntamanna?: Fundur menntamálanefndar Vöku fjallar um málið í kvöld í KVÖLD, föstudaKÍnn 6. mars kl. 20.30, verður haldinn umræðu- fundur um atvinnuhorfur háskóla- menntaðra manna. Þeir Guðmundur Magnússon rektor Q.I., Halldór Guðjónsson kennslustjóri H.t. ok Sigmundur Stefánsson frá BandalaKÍ Háskóla- manna munu flytja stutt erindi og svara fyrirspurnum fundarmanna um þetta efni. Fundurinn er haldinn á vegum menntamálanefndar VÖKU, félaKs lýðræðissinnaðra stúdenta við H.í. ok verður í LöKberKÍ stofu 101 kl. 20.30. Er þegar um atvinnuleysi að ræða meðal ungra menntamanna? Er Háskóli íslands að útskrifa ungt fólk sem á enga möguleika á atvinnu við sitt hæfi? Mun offramboð á ungum mennta- mönnum hafa áhrif á H.í. á kom- andi árum? Liggja fyrir upplýsingar um áætlaða þörf atvinnulífsins fyrir menntað fólk næstu árin og hvert er gildi slíkra upplýsinga? Slíkar spurningar eru ofarlega í hugum stúdenta um þessar mundir. Víða erlendis er það með stærstu vandamálum að tryggja ungu fólki atvinnu í samræmi við menntun og hæfni. Stór hluti atvinnulausra í velferðarríkjum samtimans þr ungt fólk og mikill hluti menntaðra manna stundar störf í öðrum grein- um en þeir hafa menntun til. Gífurleg fjölgun hefur orðið í öllum framhaldsskólum og margir nýir settir á stofn. Áætlaður fjöldi nýstúdenta næstu 5 árin er um 5000. Á háskólastiginu stunda nú um 5000 manns nám. Verður hægt að sjá öllum þessum fjölda fyrir atvinnu við sitt hæfi? Getur at- vinnulífið, með breyttum atvinnu- háttum, tekið við öllum þessum fjölda? Alþingi samþykkti fyrir þremur árum þingsályktunartillögu sem fói m.a. í sér „að láta gera athugun á vinnuaflsþörf íslenskra atvinnu- vega í nánustu framtíð með sér- stöku tilliti til atvinnumöguleika ungs fólks“. I greinargerð með tillögum segir m.a.: „Það er keppi- kefli sérhverrar þjóðar, að sem flestir geti notið mikillar og góðrar menntunar, en sú viðleitni getur verið unnin fyrir gýg eða haft takmarkaða þýðingu ef menntunin kemur ekki að þeim notum sem stofnað er til með löngu og erfiðu námi, auk þess sem það hlýtur að valda viðkomandi einstaklingi fjár- hagslegu tjóni og sársauka að sjá vonir ekki rætast að námi loknu. Það er því mikilvægt að jafnvægi sé milli menntunar annars vegar og atvinnumöguleika hins vegar á hverjum tima. Til þess að unnt sé að gera sér skynsamlega grein fyrir ástandi þeirra er nauðsynlegt að jafnan liggi fyrir sem gleggstar upplýsingar um eftirspurn atvinnu- veganna eftir starfskröftum". Þrátt fyrir samþykkt Alþingis hefur ekk- ert gerst í þessu máli, engar haldbærar upplýsingar liggja fyrir um áætlaða vinnuaflsþörf atvinnu- veganna næstu ár. I skýrslu Háskólanefndar segir um kannanir, þar sem reynt er að meta þörfina á háskólamenntuðum mönnum og bera hana saman við væntanlegt framboð þeirra: „Niður- staða þessara áætlana er því yfir- leitt sú, að þegar yfir lengri tíma er litið, hljóti framboð háskólamennt- aðra manna að verða langt umfram þarfir. Oft eru síðan þær ályktanir dregnar, að knýjandi nauðsyn sé á því að takmarka inngöngu í há- skóla, eða einstakar deildir þeirra og koma þannig í veg fyrir offjölg- un háskólamenntaðra manna. Reynslan hefur hins vegar leitt í ljós, að þarfirnar eru miklu sveigj- anlegri og breytilegri en menn gera sér í hugarlund og framboð há- skólamenntaðra manna lagar sig eftir þeim aðstæðum, sem þróun þarfanna felur í sér, jafnframt því, sem hún hefur áhrif á þróun þarfanna sjálfra. Þau vandkvæði, sem áætlanirnar spáðu fyrir um, hafa því yfirleitt ekki reynst raun- hæfar, néma á takmörkuðum svið- um og um skamman tíma. Eigi að síður geta áætlanir af þessu tagi haft nokkurt raungildi og skipt máli fyrir einstaka hópa háskóla- menntaðra manna, einkum þá, sem þurfa að leggja fyrir sig langt og sérhæft nám, er stefnir að störfum á skýrt afmörkuðum sviðum." Með fundinum er ætlunin að velta upp öllum hliðum þessa máls, kynna stúdentum ástand þessarra mála í dag og kanna með hvaða hætti stúdentar gætu tekið á þess- um málum. Menntamálanefnd Vöku hvetur alla stúdenta til að mæta og taka þátt í umræðunum. Fundurinn er öllum áhugamönnum opinn. (Fréttatilkynning fró mennta- málanefnd Vöku, félags lýð- ræðissinnaðra stúdenta.) EINSTÆÐ KAUP koibhi* Enn einu sinni getum við boðið fáeina Plymouth Volaré Premier 4dr árgerð 1979 á einstæðu verði sem ekki verður hægt að endurtaka. Bílarnir voru smíðaðir sam- kvæmt þýskum gæðakröfum, sem kunnar eru. Af útbúnaði má nefna sjálfskiptingu, vökvastýri, aflhemla, 318 cu. in 8 cyl. vél, pluss klædd 60/40 stólasæti, auk Ijósa- búnað, hitaða afturrúðu, rafmagnsklukku, gúmmíkant og gúmmípúða á stuðurum, styrktan undirvagn, deluxe hjólhemla og m.fl. Hér er um takmarkaða sendingu að ræða. Verð aðeins ca. kr. 122.500.- &%ökull hf. Ármúla 36 Simi: 84366 f ,tn. Islands ferma skipin sem hér segir: AMERIKA PORTSMOUTH Hofsjökull Bakkafoss Berglind Goöafoss NEWYORK Berglind Bakkafoss Ðerglind HALIFAX Hofsjökull Goöafoss 12. mars 16. mars 30. mars 31. mars 9. mars 18. mars 1. apríl 16. mars 3. apríl. BRETLAND/ MEGINLAND ROTTERDAM Álafoss 12. mars Eyrarfoss 16. mars Álafoss 23. mars Eyrarfoss 30. mars FELIXSTOWE Álafoss 10. mars Eyrarfoss 17. mars Álafoss 24. mars Eyrarfoss 31. mars ANTWERPEN Álafoss 11. mars Eyrarfoss 18. mars Álafoss 25. mars Eyrarfoss 1. apríl HAMBORG Álafoss 13. mars Eyrarfoss 19. mars Álafoss 26. mars. Eyrarfoss 2. apríl WESTON POINT Urriöafoss 18. mars Urriöafoss 1. apríl Urriöafoss 15. apríl NORÐURLOND/ EYSTRASALT BERGEN Dettifoss 9. mars Dettifoss 23. mars Dettifoss 6. apríl KRISTIANSAND Mánafoss 16. mars Mánafoss 30. mars Mánafoss 13. apríl MOSS Dettifoss 10. mars Mánafoss 17. mars Dettifoss 24. mars Mánafoss 31. mars GAUTABORG Dettifoss 11. mars Mánafoss 18. mars Dettifoss 25. mars Mánafoss 1. apríl KAUPMANNAHÖFN Dettifoss 12. mars Mánafoss 19. mars Dettifoss 26. mars Mánafoss 2. apríl HELSINGBORG Dettifoss 13. mars Mánafoss 20. mars Dettifoss 27. mars Mánafoss 3. apríl HELSINKI Múlafoss 16. mars Múlafoss 2. aprí) VALKOM Múlafoss 17. mars Múlafoss 3. apríl RIGA Ðifröst 9. mars Múlafoss 19. mars Múlafoss 5. apríl GOYNIA Bifröst 10. mars Múlafoss 20. mars Múlafoss 5. apríl Frá REYKJAVÍK: á mánudögumtil AKUREYRAR ÍSAFJARÐAR EIMSKIP NÝTT: FRÁ ÍSAFIRÐI TIL AKUREYRAR OG REYKJAVÍKUR ALLA þRIÐJUDAGA. FRÁ AKUREYRI TIL REYKJAVÍKUR ALLA FIMMTUDAGA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.