Morgunblaðið - 06.03.1981, Qupperneq 15
15
Perú:
27 fangar
brunnu inni
Lima, 5. marz — AP.
27 FANGAR létu lífið í eldsvoða,
sem varð eftir að uppreisn var
Kerð i fangelsi einu i Perú i dag.
Hafði hópur fanga læst klefum
sínum ok hellt paraffinoliu á
KÓlfið. Eldur kom upp i einum
klefanum. sem á örskammri
stundu varð eitt eldhaf. með
ofangreindum afleiðingum.
Auk þeirra 27 fanga sem brunnu
inni eru nítján aðrir illa leiknir
eftir átök, sem urðu í þessari
uppreisnartilraun. í þessu fangelsi
er gert ráð fyrir 250 föngum, en
þar hafa nær ellefu hundruð
fangar verið hafðir í haldi að
undanförnu, og urðu átökin í
framhaldi af mótmælaaðgerðum
vegna óviðunandi aðbúnaðar í
stofnuninni.
Kemst Mengele senn
undir mannahendur?
Vín. 5. mars. — AP.
SIMON Wiesenthal. sem elt
hefur uppi striðsglæpamenn
nasista um langan aldur, sagði
i dag, að hann væri þess
fullviss, að brátt tækist að
hafa hendur í hári Josefs
Mengeles. Mengele er eftirlýst-
ur fyrir stríðsglæpi en hann
var læknir í útrýmingarbúð-
unum í Aushwitz og notaði
fangana sem tilraunadýr.
í viðtali við AP-fréttastofuna
sagði Wiesenthal, að hann hefði
síðast haft fréttir af Mengele
þegar hann flúði frá Uruguay.
„Fyrir nokkrum árum fengum
við upplýsingar um ferðir hans
einu sinni eða tvisvar á ári en
nú fáum við fréttir af honum í
hverjum mánuði," sagði Wies-
enthal. Hann þakkaði þessar
auknu upplýsingar einkum því,
að mikið fé hefði verið sett til
höfuðs Mengele eða um 50.000
dollarar.
Simon Wiesenthal, sem er
gyðingur, var í útrýmingarbúð-
um nasista, fjórum alls, á
stríðsárunum en lifði samt af.
Veður
víða um heim
Akureyri 4 snjókoma
Amsterdam 3 snjókoma
Aþena 16 heiðskírt
Berlín 2 skýjað
BrUssel 5 skýjað
Chicago 3 skýjað
Feneyjar 8 þokumóöa
Frankfurt 4 skýjað
Færeyjar 0 snjókoma
Genf 6 heiöskírt
Helsinki -5 heiðskírt
Jerúsalem 18 heiðskfrt
Kaupmannahöfn 0 skýjaö
Las Palmas 20 o « ;>í JÉ • 5
Lissabon 16 skýjað
London 8 heiðskírt
Los Angeles 18 rigning
Madrid 15 heiðskírt
Malaga 17 heiðskírt
Mallorca 15 skýjað
Miami 23 skýjað
Moskva -1 skýjað
New York 5 snjókoma
París 7 skýjað
Reykjavík 4 skafr.
Ríó de Janeiro 39 skýjað
Rómaborg 13 heiðskírt
Stokkhólmur 1 skýjaö
Tel Aviv 25 heiðskirt
Tókýó 13 heiðskírt
Vínarborg 5 skýjað
Vancouver 5 skýjað
Hann hét því í fangabúðunum,
að ef hann kæmist lífs af skyldi
hann helga líf sitt því einu að
draga böðla fyrir rétt þar sem
þeir yrðu látnir gjalda glæpa-
verka sinna. Aðalstöðvar hans
eru í Vín í Austurríki þar sem
hann hefur komið sér upp
miklu skjalasafni um eftirlýsta
stríðsglæpamenn.
Jarðskjálftar
skelfa Grikki
Aþenu, 5. mars. — AP.
ÖFLUGUR jarðskjálfti varð í
Grikklandi í gær og fannst hann
víðast hvar um landið. Einn
maður lést og um 30 sa‘rðust. 1
dag varð annar skjálfti nokkru
minni og jók hann mjög á ótta
manna við meiriháttar hamfarir
en margir höfðust við úti undir
berum himni í nótt.
Skjálftinn í gær mældist 6,2 stig
á Richter-kvarða en í dag 5,8 stig.
Að sögn lögreglunnar hafa nokkur
hundruð hús á landsbyggðinni
hrunið til grunna og miklu fleiri
hafa skemmst mikið. í Aþenu var
ekkert skólahald í dag og víða
voru verslanir og skrifstofur lok-
aðar.
Upptök jarðskjálftanna eru í
Korintu-flóa, 70 km fyrir vestan
Aþenu, þau sömu og skjálftanna
24. febrúar sl. þegar 18 manns
fórust og miklar skemmdir urðu á
mannvirkjum.
Peter Keegan sést hér aka sallarólegur út í Thames-á í
London á Ford Escortinum sinum en það gerði hann til að
sýna að hann færi ekki með neitt fleipur þegar hann héldi
því fram. að LPS I væri efni, sem segði sex. LPS I hindrar
ryðmyndun og er auk þess hentugt til að verja vélarhluti
fyrir vatni. Escortinn var búinn út með auka sog- og
útblástursgrein og Keegan ók honum fram og aftur um
Thamesárbotn eins og ekkert væri. AP^imamynd.
Árás armenskra hryðjuverkamanna:
Airnar Tyrki lést í nótt
Simon Wiesenthal
Paris, 5. mars. — AP.
TILKYNNT var í París í dag,
að tyrkneskur sendiráðsmað-
ur, sem særðist í gær í árás
armenskra hryðjuverka-
manna. hefði látist í nótt á
Val de Grace-sjúkrahúsinu.
Landi hans og starfsbróðir
féll í gær í árás Armenanna.
Fimm tyrkneskir sendi-
menn hafa fallið í Frakklandi
fyrir hendi armenskra hryðju-
verkamanna síðan þeir síðar-
nefndu hófu alþjóðlega
hermdarverkaherferð fyrir
sex árum, og 17 alls víða um
heim.
Fátt hefur verið með Tyrkj-
um og Frökkum á síðustu
árum vegna þess hve armensk-
ir hryðjuverkamenn hafa leik-
ið lausum hala í Frakklandi en
nú þykir víst, að vinskapurinn
versni um allan helming.
Tyrknesk stjórnvöld kölluðu í
dag á sinn fund sendiherra
Frakka í Tyrklandi og báru
fram mjög harðorð mótmæli
við því, sem þau kalla getu-
leysi Frakka við að ráða niður-
lögum hryðjuverkamannanna.
Verðhrun
á gullinu
London, 5. mars. — AP.
MIKIÐ verðhrun varð á gulli
í gær og hefur það ekki verið
lægra síðan í desember 1979.
Dollarinn virtist hins vegar
vera á báðum áttum eftir
verðfallið síðustu tvo daga.
í London var gullverðið í
gær skráð á 475 dollara únsan
eða 10 dollurum lægra en
deginum áður. Lægst komst
gullverðið í gærmorgun í New
York þar sem únsan fór á 451
dal en það hækkað nokkuð
þegar á leið daginn.
A óvissum tímum fjárfesta
menn gjarna í gulli og hæst
komst únsan í 875 döllara í
janúar 1980 vegna innrásar
Rússa í Afganistan. Meðalverð
síðasta árs var 600 dollarar en
það hefur fallið eftir því sem
dollarinn hefur sótt í sig
veðrið.
Deilt um vinnslu úrans í Svíþjóð
Stokkhólmi. 4. marz, frá Gudfinnu
Ragnarsdóttur fréttaritara Mbl.
EIGA Sviar að nýta sitt eigið úran? bað er spurning sem rædd er af
miklum þunga og hita þessa dagana í Svíþjóð, og sem trúlega á eftir að
valda deilum innan sænsku rikisstjórnarinnar i vor. Úran er víða að
finna i sænsku bergi og i sambandi við þjóðaratkvæðagreiðsluna um
kjarnorkuver i fyrra var úranmálið mikið á dagskrá.
Talið er að þau 12 kjarnorkuver. sem ákveðið hefur verið að taka i
notkun. muni þurfa um 1400 tonn af úrani árlega. en hingað til hafa
Sviar flutt inn allt sitt úran.
Námufyrirtækið LKAB hefur nú
sótt um að fá að hefja rekstur
úrannáma í Pleutajokk í N-Svíþjóð,
en þar hafa fundist um sex þúsund
tonn af úrani. Áætlað er að árlega
megi fá fjögur til fimm hundruð
tonn af úrani úr Pleutajokknám-
unni. Andstæðingar úranvinnsl-
unnar benda á þau gífurlegu lands-
spjöll sem hún hefði í för með sér,
en úranmagnið er mjög lítið í
hverju tonni af jarðvegi.
Til þess að fá 450 tonn af úrani
þarf að sprengja sex til sjöhundruð
þúsund tonn af bergi. Auk þess
telja andstæðingar námureksturs-
ins að hann hafi í för með sér
aukna hættu á lungnakrabba sök-
uin geislavirkni úransins, bæði
fyrir þá sem vinna í námunum, og
þá sem búa í næsta nágrenni, þar
sem stór landsvæði munu verða
þakin geislavirkum úrgangsmálmi.
Umsókn LKAB að fá að hefja
námureksturinn hefur nú verið
send út til ýmissa félaga og sam-
taka til umsagnar og eru skoðanir
manna mjög skiptar.
Forráðamenn LKAB hafa bent á
að með úrannámurekstri í Pleuta-
jokk verði Svíþjóð að hluta óháð
erlendri úranframleiðslu, en úranið
í Pleutajokk mundi sjá sænskum
kjarnorkuverum fyrir um þriðjungi
þess úranmagns sem þau þurfa á
að haida.
Auk þess fengju um 200 manns
vinnu við námureksturinn, en
ástandið í atvinnumálum Norður-
Svíþjóðar er vægast sagt alvarlegt.
Aðstoðarforstjóri LKAB heldur
því einnig fram, að um leið og Svíar
ákváðu að byggja kjarnorkuver,
hafi þeir einnig ákveðið að nýta
úrannámurnar, en þar eru ekki
allir á sama máli.
Sænsk bæjarfélög hafa í dag rétt
á að stoppa námugröft og annað
álíka umrót á landi innan sinna
marka, en ekki er búist við að
viðkomandi sveitarfélag noti sér
réttinn að þessu sinni.
Ríkisstjórnin mun taka ákvörð-
un í vor, og búist er við miklum
deilum Hægri flokksins og Mið-
flokksins í þessum efnum.
Miðflokkurinn hefur frá byrjun
verið mjög á móti allri úranvinnslu
og landbúnaðarráðherra Svía,
Anders Dahlgren, sagði á fundi
með umhverfismálaráði nýlega, að
úranvinnsla í Pleutajokk kæmi
aðeins til greina ef hún yrði rekin
með gróða, og ef hægt yrði að leysa
mengunarvandamál.
Undanfarna mánuði hefur verð á
úrani á heimsmarkaði lækkað mjög
ört og mjög hefur dregið úr bygg-
ingu kjarnorkuvera undanfarin ár,
og aðeins verið lokið við um 20% af
þeim fjölda sem reiknað var með
fyrir nokkrum árum. Þetta hefur
haft í för með sér, að ekki er neinn
skortur á úrani í bráð, og verðið því
stórlækkað. Kílóverðið á úranoxíði
er nú um 270 sænskar krónur, en
var 1975 um 700 krónur.
Talið er að úranmagn jarðarinn-
ar, að austurlöndum frátöldum, sé
um fimm milljón tonn, og er þá
reiknað með því úrani sem vitað er
um og áætlað að sé fyrir hendi.
Auk þess gera jarðfræðingar ráð
fyrir, að sjö til fimmtán milljón
tonn af úrani muni koma í ljós á
næstu áratugum. Gífurleg leit að
úrani hefur farið fram undanfarin
ár og mun árlegur kostnaður við
úranleitina vera um 2.000 milljónir
sænskra króna.
Kaffibollinn indæll er
— en hvers vegna?
New York, 5. mars. — AP.
BANDARÍSKIR visindamenn
hafa nú fundið út hvers vegna
kaffibollinn er svona hressandi
og hrindir á burt drunga og
dcyfð þegar svefnhöfginn sækir
að. Ástæðan er sú, segja þeir, að
koffeinið i kaffinu heldur I
skefjum róandi efni, sem heilinn
framleiðir þegar honum finnst
likaminn vera hvíldarþurfi.
Koffeinið í kaffi, te, súkkulaði
og mörgum koladrykkjum er það
örvandi efni, sem mest er notað
um heim allan, segir dr. Solomon
H. Snyder, sem stjórnaði rann-
sóknunum við Læknadeild John
Hopkins-háskólans.
Við rannsóknirnar kom í ljós,
að heilinn framleiðir efni, sem
kallast adenosine og dregur úr
starfsemi líffæranna þegar þau
eru þreytt. Koffeinið hindrar
eðlilegan flutning þessa efnis um
líkamann og heldur honum þess
vegna gangandi oft lengur en
góðu hófi gegnir.