Morgunblaðið - 06.03.1981, Page 18

Morgunblaðið - 06.03.1981, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981 Edda Kvaran rit- símaritari - Minning í dag verður vinur minn Edda Kvaran kvödd hinstu kveðju. Edda var ekki nema sextug að aldri, og þótt hún hafi ekki ætíð verið heilsuhraust, þá kom dauðans kall óvænt og fyrirvaralítið. Edda Kvaran var fædd 21. ágúst 1920. Foreldrar hennar voru Ág- úst Kvarn leikari og síðar útibús- stjóri á Akureyri og Soffía Guð- laugsdóttir leikkona. Edda giftist 6. febrúar 1944 Jóni Þórarinssyni tónskáldi og áttu þau þrjá syni. Þeir eru Þórarinn starfsmaður á Álafossi, Ágúst dómarafulltrúi og Rafn skrifstofumaður. Þau Jón og Edda skildu 1959. Edda stundaði nám í Verzlun- arskólanum og lengst af starfaði hún sem ritari hjá símstöðinni í Reykjavík. En alla tíð stóð hugur hennar fyrst og fremst til leik- hússins og leiklistarinnar. Kom þar fram sá góði jarðvegur sem hún var sprottin úr. Ágúst faðir hennar var mjög virkur leikari um langa hríð og Soffía móðir hennar er talin ein allra glæsilegasta leikkona sem þetta land hefur eignast. Þegar þau Jón og Edda dvöldu í Bandaríkjunum lagði hún stund á leiklistarfræði við Yale- háskólann og eftir heimkomuna tók hún þátt í sýningum Leikfé- lags Reykjavíkur og sat í stjórn félagsins um skeið. Edda var leiftrandi skemmtileg heim að sækja og var einstaklega lagin að hrífa fólk með sér. Gleði hennar var smitandi og sönn. Ég átti því láni að fagna á æsku og unglingsárum að verða heima- gangur hjá henni í krafti vináttu okkar Ágústs sonar hennar. Ég hafði ekki oft komið á hennar heimili, er við þóttumst eiga hvert bein hvort í öðru. Hún var fljót- tekin en jafnframt vinaföst og trygg. Ég býst við að Edda hafi átt marga drauma sem ekki rættust einsog gengur og hún hafi fengið óskertan hlut af mótlæti í lífinu. Samt var hún hvorki beizk eða bitur og átti reyndar töluvert afgangs af bjartsýni á lífið og tilveruna handa öðrum. Ég er því viss um að fleirum sé farið einsog mér, að þegar nafn Eddu Kvaran er nefnt, kallast um leið fram góðar minningar um rismikla konu, sem gott var að eiga að vini. Davíð Oddsson í dag verður frú Þórdís Edda Kvaran jarðsett, en hún lést aðfaranótt laugardagsins 21. febrúar sl. Edda Kvaran fæddist í Reykjavík 21. ágúst 1920, þannig að það eru aðeins 6 mánuðir síðan hún hélt upp á 60 ára afmæli sitt. Foreldrar hennar voru þau hjónin Ágúst Kvaran og Soffía Guðlaugs- dóttir, svo hún átti ekki langt að sækja áhuga sinn á leikhúsi. Hún lagði stund á leiklistarnám, fyrst hjá móður sinni, síðan hjá Lárusi Pálssyni og loks í Yale University Drama Department í Bandaríkj- unum árin 1945 til 1947. — Hún var aðeins 16 ára þegar hún lék sitt fyrsta hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en það var Nonny Lawrence í „Æska og ástir" eftir C.L. Anthony, sem var frumsýnt 24. apríl 1936, og lék eftir það mikið með Leikfélaginu, að undan- skildum námsárunum erlendis. Hún tók m.a. þátt i leikför Leikfé- lagsins með „Gullna hliðið" til Helsingfors sumarið 1948, þó hef- ur hún leikið minna hin síðari ár. Þá stundaði hún lengi skrifstofu- störf fyrir Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhúsið, Ríkisútvarpið og Bandalag íslenskra leikfélaga. — Hún gerðist félagi í Félagi ís- lenskra leikara 1949 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir fé- lag sitt um tíma, var m.a. gjald- keri félagsins frá 1956 til 1957 og í stjórn Leikfélags Reykjavíkur á sama tíma. Um leið og við þökkum Eddu fyrir störf hennar í þágu félags okkar og ævinlega dyggan stuðn- ing við það, færum við börnum hennar og fjölskyldu allri innileg- ar samúðarkveðjur. F.h. Félags íslenskra leikara. Gísli Alfreðsson. Þegar vinnufélagi fellur frá mitt í önn dagsins, koma að sjálfsögðu ýmis leiftur liðinna ára upp í hugann, leiftur er geyma minningar um þá persónu, er menn hafa kynnst og umgengist í áraraðir. Edda Kvaran var þannig mann- eskja sem menn gleyma ekki svo fljótt. Hún var fædd í Reykjavík 21.8. 1920 og lést að heimili sínu hér í borg þann 21. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Eddu voru Soffía Guðlaugsdóttir leikkona og Ágúst Kvaran. Hún ólst upp í miðbæ Reykjavíkur, nágrenni Tjarnarinnar og fylgdist með borginni vaxa úr bæ og í þá borg er við þekkjum í dag og minntist hún oft liðinna æskudaga með sinni lifandi hógværð og róman- tíska ívafi. Edda var alin upp á miklu menningar- og listunnendaheimili og þar drakk hún í sig með móðurmjólkinni þann mikla lista- og sérílagi leiklistaráhuga er hún hafði alla tíð. Er fram liðu stundir giftist Edda Jóni Þórarinssyni tónskáidi. Þau eignuðust þrjá syni er nú eru uppkomnir menn. Jón og Edda slitu samvistum seinna. Á sínum tíma bjuggu þau Edda og Jón meðal annars í Bandaríkjun- um og Austurríki. Minntist Edda oft þessara liðnu tíma með mikilli gleði og þá sérstaklega hins mikla leik- og tónlistarlífs í hinni fögru borg Vín, og hvarflaði hugur hennar oft til þeirra tíma. Edda hóf störf á ritsímanum í Reykjavík sem ung stúlka og starfaði þá allnokkur ár. Seinna hóf hún störf aftur á sama stað og hafði starfað þar nú er hún lést í tugi ára. Edda var frábær starfs- kraftur er mátti ekki vamm sitt vita í neinu er að starfi hennar laut, hún var hrein og bein, stór í lund, en undir sló gott hjartalag sem menn fundu og mátu. Það fer ekki hjá því að á vinnustað, sem menn starfa saman á í áratugi nær daglega, sé margt skrafað og skeggrætt um lífsins gátur. Vissu- lega var oft fjör í þeim umræðum og kynnast menn því allnáið hver öðrum og viðhorfum hver annars. Edda var vissulega oft veitandi á sinn kímna og græskulausa hátt. Við vinnufélagarnir á ritsíman- um í Reykjavík sendum sonum Eddu okkar innilegustu samúð- arkveðjur, svo og öðrum aðstand- endum. Við þökkum góðri konu samfylgdina og óskum henni Guðs blessunar í nýjum heimkynnum. Starfsfólk ritsímans í Reykjavík. Guðrún Vilhjálms- dóttir frá Siglufirði Fædd 5. mars 1932. Dáin 9. febrúar 1981. Mig langar til að minnast með nokkrum orðum frænku minnar Guðrúnar Vilhjálmsdóttur, er lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri, þann 9. febrúar sl. Ekki datt mér í hug, þegar ég heimsótti hana á Sjúkrahúsið að kvöldi 1. des. og hún sagði mér, að hún ætti að gangast undir upp- skurð eftir nokkra daga og að hún yrði komin heim fyrir jól, að ég ætti eftir að sitja við banabeð hennar rúmum tveimur mánuðum seinna. Oft þegar ég heimsótti hana á kvöldin, rifjuðum við upp gamlar minningar frá Siglufirði og lifðum okkur inn í glauminn og gleðina sem þar ríkti á síldarárunum, þegar við vorum að alast upp, eða skíðaferðir fram á fjörð, að kvöldi til, þegar hjarn var yfir öllu og tunglskinið fyllti fjörðinn og bjart var sem á degi. Eða aðfangadagskvöldin heima hjá henni, þegar við frændsystkin- in á báðar hliðar, vorum boðin þangað heim til að ganga í kring um jólatréð, sem var svo stórt að það náði upp í loft í skálanum, allt ljósum prýtt og skreytt með ís- lenskum fánum og alla vega litum kúlum. Vilhjálmur gekk með okkur í kring um tréð og söng með okkur jólasálmana og önnur lög sem tilheyra jólunum, á meðan Auður hitaði súkkulaði og svo var sest að veisluborði. Þetta var yfirleitt hápunktur jólanna. Mikill samgangur var á milli heimila okkar og fannst mér þessar litlu frænkur mínar alltaf vera mér mjög nátengdar. Guðrún var fædd á Siglufirði 5. mars 1932, dóttir hjónanna Auðar Sigurgeirsdóttur og Vilhjálms Hjartarsonar, útgerðarmanns. Rúna, eins og hún var kölluð af frændfólki sínu, ólst upp hjá foreldrum sínum ásamt þrem systrum, á storu og fallegu heim- ili, þar sem háttprýði og reglusemi voru í hávegum höfð. Sem barn var Rúna sérlega kátur og fjörugur krakki, sem erfitt var að hemja, ekki síður en ljósu lokkana á höfði hennar. En um sex ára aldur verður hún fyrir þeirri sáru reynslu að veikj- ast og mörg sín bernsku- og æskuár verður hún að láta sér nægja að horfa á jafnaldra sína leika sér, en sjálf að sitja hjá. Þó gerðu foreldrar hennar allt sem í þeirra valdi stóð, til að leita henni lækningar. En þrátt fyrir að hún næði aftur heilsu, voru örin eftir á bæði á sál og líkama. Þrátt fyrir þetta tók hún gagn- fræðapróf og fór síðan í Hús- mæðraskólann að Laugalandi og ber handavinna hennar þaðan fagurt vitni um listræna hæfileika hennar og framúrskarandi vand- virkni við allt sem hún snerti á. Um tvítugt fer Rúna til Reykja- víkur og vinnur í nokkur ár í Bókaverslun Isafoldar. í Reykjavík kynnist hún eftirlif- andi manni sínum, Sigurpáli Óskarssyni, sem þá var við guð- fræðinám í Háskólanum. Giftu þau sig árið 1959 og fluttu til Bíldudals, þar sem hann verður prestur. Eftir nokkurra ára dvöl þar flytjast þau til Hofsóss og hafa búið þar síðan. Það var mikil ánægja fyrir foreldra hennar að fá þau svona í nábýli við sig, þar sem þau voru farin að eldast og dæturnar farnar að heiman. Þau Sigurpáll eignuðust þrjá syni, Vilhjálm, sem er giftur og á eitt barn og Baldvin og Hjört, sem á viðkvæmum aldri verða fyrir því að missa móður sína. Rúna skapaði manni sínum og sonum fallegt heimili, þar sem myndarskapurinn og reglusemi fóru saman. Ekki vantaði heldur kökur í kassana ef mann bar að garði, var þá slegið upp veislu- borði og voru húsbændur reglu- lega skemmtilegir heim að sækja. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég frænku mína og þakka henni fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman frá bernsku til fullorðinsára. Megi góður Guð styrkja eiginmanninn, synina, systur hennar og aldraða foreldra og minningin um hana lýsa sem ljós í myrkrinu. Helga Torfadóttir Hjónaminning: Arnbjörg Stefánsdótt ir og Jón Hafliðason Arnbjörg Fædd 29.12.1895. Dáin 22.2. 1981. Jón Fæddur 8.3. 1891. Dáinn 24.1.1981. I dag er til moldar borin Arn- björg Stefánsdóttir. Það er skammt stórra högga á milli, það liðu aðeins 28 dagar á milli andláts þeirra hjóna, Arnbjargar og Jóns Hafliðasonar. Trúin var þeirra vegvísir í gegnum lífið og ástin sem felst í trúnni, að við eigum að elska „alla“ eins og trúin boðar okkur. Aldrei minnist ég þess í gegn um öll árin að þau hafi hallmælt nokkurri persónu hvernig sem hún var af Guði gerð, þau sáu alltaf eitthvað gott í hverri mannveru. Arnbjörg var sterk !:ona vegna þess að hún var sterk í trúnni. Hún þurfti að sjá á bak tveimur sonum sínum, fyrst Eyþóri, síðan Óla Þór — trúin hjálpaði henni í gegn um það. Það hefur alla tíð verið íslensku þjóðinni í blóð borin gestrisni ef gest bar að garði. Gömlu hjónin áttu þessa gestrisni til í miklu ríkari mæli en flestir aðrir, ekki aðeins kaffi og kökur eins og tíðkast hjá svo mörgum, heldur aftur á móti óvenju mikla hjarta- hlýju í garð annarra og velvilja. Það hefur verið einstaklega giftusamt fyrir mig og mína fjölskyldu að hafa verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa kynnst þeim og getað notið þeirrar ánægju að geta sótt þau heim. Éggleymi aldrei hversu fróðlegt og skemmtilegt var að ræða við Jón. Seglbátar gamla tímans og gömlu árabátarnir var Jóni ætíð ánægjulegt umræðuefni, því Jón hafði kornungur verið í sjóróðrum á árabát. Gömlu dagarnir í heild voru honum kærkomið umræðuefni eins og aldinna karla er vísa. Þess vegna var mér, unga Reykvíkingn- um, sem þyrsti í að heyra allt það gamla um Reykjavík, kærkomið að hlusta á hann tala um „Gömlu Reykjavíkina“ og lýsingar hans á mönnum og málefnum var unun að hlusta á, því hann bókstaflega þekkti alla og gat ættfært þá, einnig hvaða ættir höfðu tengst blóðböndum en hann sagði frá hlutunum á sinn góðmannlega hátt, glettinn og gáskafullur. Gömlu hjónin voru óvenju giæsileg hjón, allir vita að það er gnótt glæsilegra hjóna hér á landi en fyrir utan ytri glæsileik gömlu hjónanna var innri glæsileikinn mikilfenglegur — innri hlýjan er yljaði ölium um hjartaræturnar. Ég hefði aldrei trúað því að óreyndu að fólk fram á háan aldur gæti verið eins og nýtrúlofað fram að dánarbeði. Nú hef ég sannreynt það. Slíka sambúð hef ég ekki séð hjá neinum þeim hjónum er ég þekki sem komin voru á þennan aldur. Þetta er svo einstætt dæmi í mínum augum að ég tel þau vera stórkostlegustu hjón er ég hef kynnst um dagana. Kynni mín og gömlu hjónanna hófust með þeim hætti að bræð- urnir ÓIi Þór og Gunnar, synir Arnbjargar, voru nánir vinir mín- ir, Óli Þór er látinn fyrir tæpum tveimur árum. Þannig þróuðust þessi kynni á þann hátt að ég fór að heimsækja þau án þess að þeir væru með í förinni vegna þess að ég hreifst af gömlu hjónunum, síðan slóst konan mín í hópinn og börnin. Synirnir voru reyndar fleiri: Eyþór, sem er látinn fyrir nokkuð mörgum árum, og Örn og eru þeir allir synir Arnbjargar frá hennar fyrra hjónabandi. Einstakt er einnig að vita hversu mikla hlýju Jón sýndi sínum stjúpsonum því það er ekki alltént slíkt með stjúpbörn al- mennt, ekki að minnsta kosti eins og hjá Jóni. Jón átti börn frá sínu fyrra hjónabandi, en hann missti konu sína fyrir 41 ári. Börn hans eru Kristín og Hafliði og tveir drengir er dóu kornungir. Eg efa ekki að Kristín og Hafliði hafa sýnt Arn- björgu mikla hlýju því ég er viss um að þau hafa erft hugarfar föður síns. Títt var að fólk nefndi Jón „Jón í Völundi" því í hugum fólks var Jón og Völundur „eitt“. í hugum fólks voru þau Jón og Arnbjörg „eitt“. Óli Þór hafði rétt fyrir sér þegar hann sagði oft er við ræddum um þessi heiðurshjón: „Hvort þeirra sem deyr á undan, mun trúlega verða skammt á milli þeirra, slík er ást þeirra." Ég og fjölskylda mín vottum ættingjum og venslamönnum okkar dýpstu samúð. Jón Kúnar Oddgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.