Morgunblaðið - 06.03.1981, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.03.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981 23 vera bæði góður nemandi í krefj- andi námi og vera góð móðir. Birna útskrifaðist frá MR 1976 með góðum árangri, sem er erfitt, þegar gæta þarf lítils barns sam- hliða náminu. En Birna átti góða að. Ömmur barnsins hennar hjálpuðu henni mikið. Eftir stúdentspróf réðst Birna sem kennari að Laugalandi í Holtum, Rangárvallasýslu og dvaldist þar þrjá vetur og leysti það starf vel af hendi. Hún talaði oft um hve mikil lífsreynsla það hefði verið fyrir sig, borgarbarnið, að kynnast sveitalífinu, náttúr- unni og heilbrigðum hugsunar- hætti fólksins er sveitirnar byggðu. Birnu leið mjög vel fyrir austan og einnig fannst henni sveitalífið hafa góð áhrif á Tinnu litlu, sem henni var svo annt um. Einir aðalkostir Birnu voru fórnfýsi hennar, óeigingirni og hjálpsemi, ef henni fannst fólk eiga bágt. Man ég sérstaklega eftir einu tilviki, er Birna kom í bæinn og var þá að safna fötum fyrir fólk, er var hjálparþurfi. En Birna ákvað að koma aftur í bæinn og mennta sig meira til að tryggja framtíð sína og barnsins og settist í Kennaraháskóla íslands haustið 1979. Birna var fædd 4.8. ’56, dóttir Ólafar Pálsdóttur og Bjarna K. Bjarnasonar borgardómara. Á þessari stundu er mér efst í huga að þakka henni góða og trausta vináttu, sem mér finnst ég hafa lært svo mikið af. Megi góður Guð styrkja Tinnu litlu, foreldra hennar, systkini og aðra aðstandendur. Margrét Kaldalóns Jónsdóttir í dag er til moldar borin Birna Kristín Bjarnadóttir. Hún var, þótt ung væri, sérstæð persóna, áræðin, sjálfstæð, og sinni sann- færingu trú. Hún hafði sérstakan hæfileika til að umgangast fólk. Allir þeir sem að einhverju leyti máttu sín minna í lífinu áttu í henni öruggan málsvara. Við skiljum ekki ráðstafanir Guðs. Ég get aðeins sagt, — Guð blessi og styrki barnið hennar, foreldra og aðra sem henni þótti vænt um. — Við vinir hennar munum minn- ast hennar með virðingu og þökk. — Vertu Guði falin að eilífu. — Nafna Birna er dáin. Þessi setning hefur hljómað í huga mínum aftur og aftur. Birna, sem alltaf var svo hress, skemmtileg og hrókur alls fagnaðar. Það er erfitt að sætta sig við þegar ungt fólk deyr svo snögglega í blóma lífsins. Mig langar til að minnast þess- arar lífsglöðu frænku minnar með nokkrum orðum. Við áttum góðar minningar úr sveitinni, hjá ömmu og afa á Búrfelli, og rifjuðum oft upp skemmtilega daga, þegar leið- ir okkar lágu saman á ný í Kennaraháskólanum. Birnu var margt til lista lagt. Hún var dugnaðarforkur við allt sem hún tók sér fyrir hendur, hugmyndarík, sjálfstæð og fór oft sínar eigin leiðir. Hún hafði mik- inn áhuga á ýmsu, m.a. myndlist, leiklist, bókmenntum og stærð- fræði. Sérstaklega hafði hún gam- an af að ræða um kvikmyndun og allt sem henni viðkom. Birna var mikið í sundi og körfubolta sem stelpa og hafði alltaf áhuga á íþróttum. Þó ung væri hafði hún komið miklu í verk, bæði í handavinnu og ýmsu öðru, enda rösk og atorku- söm. Eftir stúdentspróf kenndi Birna að Laugalandi í Holtum í 3 vetur og fór síðan í Kennaraháskólann. Er ég viss um að hún hefði orðið góður kennari, áhugasöm, þolin- móð, nærgætin og vildi gera öllum gott. Birnu leið vel fyrir austan og þótti vænt um börnin og ungl- ingana sem hún kenndi þar og var góður vinur þeirra. Þó að hún væri hætt að kenna, var hugurinn alltaf þar. Birna var félagslynd og tók virkan þátt í félagslífi hvar sem hún var. Birna lætur eftir sig dótturina Tinnu Laufeyju, sem er nýorðin sex ára, og var ekki til innilegra samband milli móður og dóttur. Birna hafði mikinn áhuga á að fræða Tinnu sem best um alla hluti og lífið sjálft og er ég viss um að Tinna býr að umhyggju og ástúð mömmu sinnar alla tíð. Að lokum bið ég Guð að styrkja fjölskyldu og vini. Góðar minn- ingar um Birnu munu lifa. Ýr Elskuleg frænka er látin. Hvernig má það vera, svo ung og lífsglöð, með óteljandi framtíðar- áform? Birna Kristín var fædd þ. 4. ágúst 1956 og ólst upp hjá foreldr- um sínum, þeim Ólöfu Pálsdóttur og Bjarna K. Bjarnasyni, við mikið ástríki og kærleika. Mörg sumur dvaldi hún hjá ömmu og afa á Búrfelli. Þar lærði hún öll algengustu verk sem til falla í sveitinni, hvort heldur var úti eða inni. Enginn var viljugri né kraftmeiri en Birna Kristín, alltaf svo fljót til og rösk. Hún vildi Ijúka því af sem gera þurfti, svo frekar væri þá tími til að fara i leiki, en í öllum leikjum var hún hugmyndarík og skemmtileg. Á Búrfelli lærði hún að umgangast dýrin og náttúruna, enda var hún alla tíð mikið náttúrubarn. Vorið 1976 lauk Birna Kristín stúdentsprófi með góðum vitnis- burði, réði sig svo um haustið til kennslustarfa austur að Lauga- landi í Holtum. Þar kenndi hún næstu þrjá vetur og fórst það vel úr hendi, átti mjög gott með að umgangast og leiðbeina börnum. Fólkinu í sveitinni samlagaðist hún einnig sérlega vel, tók mikinn þátt í félagslífinu og eignaðist marga góða vini. Haustið 1979 settist Birna Kristín svo í Kennaraháskóla ís- lands. Hún var þá búin að finna að kennarastarfið féll henni vel og vildi því afla sér fyllstu menntun- ar og réttinda til þeirra starfa. Mikinn sólargeisla skilur Birna Kristín eftir sig, er það dóttirin Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, sem er fædd 1975. Sérlega skýrt og efnilegt barn. Milli þeirra mæðgna voru mjög sterk bönd. Fáa hef ég þekkt sem gáfu sér eins mikinn tíma til að hlusta og tala við barn sitt og Birnu Kristínu, er því sár harmur kveðinn að Tinnu litlu. En hún á góða að, sem verða hennar styrkur og stoð. Eitt var það er einkenndi Birnu Kristínu öðru fremur, en það var sérstök hjáipsemi og greiðvikni, hún vildi og gerði öllum gott. Hún var mjög listræn, hafði gaman af að mála og teikna og hefði vafa- laust náð langt á þeirri braut. Nú kveðjum við vinir og skyldu- lið góða stúlku hinstu kveðju langt um aldur fram, en geymum í huga og hjarta Ijúfar minningar allt frá fyrstu kynnum. Við biðjum góðan Guð að blessa og styrkja fjölskyld- una á Einimelnum og aðra vanda- menn. Blessun fylgi henni. Ragnheiður Pálsdóttir Okkur langar í nokkrum orðum að minnast Birnu Bjarnadóttur. Hún var ákaflega litrikur per- sónuleiki og fór ekki framhjá neinum sem hana umgekkst. Hún var ekki vön að sitja við orðin tóm heldur framkvæmdi það sem hún ætlaði sér. Hún var dugleg í félagslífi og tók sér margt fyrir hendur og jafnvel svo að erfitt var að fylgjast með öllu því sem hún ætlaði sér að gera og gerði. Gott dæmi um framtakssemi hennar var þegar hún heyrði í vetur fjallað um efni í útvarpinu sem hún var algjörlega ósammála og hafði gert ritgerð um. Þá lét hún sér ekki nægja neinar eldhúsum- ræður um málið heldur fór í útvarpið og færði góð rök á móti. Þannig var öll hennar fram- koma og allt hennar líf. Hún var mjög áhugasöm um allt sem hún tók sér fyrir hendur og hafði mikinn áhuga á því starfi sem hún hafði valið sér, þ.e.a.s. kenn'ara- starfinu. Hún hafði kennt áður en hún kom hingað og hafði mjög ákveðnar hugmyndir um kennslu. Hún var annar tveggja fulltrúa okkar í Kennarasambandi íslands og sat stofnþing þess auk þess sem hún tók virkan þátt í félagslífi innan skólans. Við höfum misst góðan félaga sem við munum minnast. Líf Birnu sýndi okkur að það að lifa er meira en það eitt að vera til. Við vottum Tinnu dóttur hennar og öðrum aðstandendum innileg- ustu samúð okkar. Skólafélagar í Kennaraháskóla íslands. Því verður ekki lýst, þegar inn í skóla berast þær harmafregnir að einn af þeim sem deginum áður gekk til starfa í hópi félaga sinna hafi látist. Nemendahópurinn, sem áður sat og vann verkefni dagsins er skyndilega rofinn og samband leiðbeinanda og nem- anda, sem mótast hafði í umræð- um um viðfangsefni lífs og starfs er fyrirvaralaust slitið. Samband kennara og nemenda er oft undur- samlegur vefur ofinn úr sameigin- legri reynslu, jákvæðu samstarfi og góðum vilja og er það líklega miklu oftar en margur hyggur. Birna Kristín var nemandi í Kennaraháskólanum í tæp tvö ár. Hún kom í skólann með meiri reynslu en algengt er og hafði þá starfað við skóla að Laugalandi í Holtum í þrjú ár. Hún vissi vel að hverju hún gekk með námi sínu hér og áhugi hennar fyrir marg- slungnu hlutverki kennarans var ódrepandi. Við kennararnir fórum ekki varhluta af því og við minn- umst samræðna og skoðanaskipta, sem ýttu duglega við okkur sjálf- um og fengu okkur til að leiða hugann að nýjum umhugsunar- efnum og athuga önnur betur. Fyrir þetta erum við nú þakklát. Skólinn þakkar Birnu mikið og gott starf að stjórnunar- og skipu- lagsmálum innan skólans, en hún var fulltrúi nemenda í skólaráði um skeið og sl. vor sat hún með okkur, þegar aðrir voru komnir út í sumarið við að undirbúa starfið á næsta skólaári. Það var á einum nefndafundinum þá, að hún sagði okkur frá kennaraþingi, sem hún hafði setið fyrir hönd nemenda KHÍ. Áhyggjur hennar beindust að því, hvað kennarasamtökin, sem héldu þetta þing virtust vita lítið um það sem er að þróast og mótast í KHÍ og vildi hún heldur betur taka til hendinni og bæta úr því. Við höfum margs að minnast frá samstarfinu við Birnu er seint mun gleymast. Blessuð sé minning hennar. Dóttur Birnu, Tinnu, foreldrum, systkinum og öðrum vandamönn- um votta ég dýpstu samúð. Stefán Bergmann Það er þungbært að standa andspænis því að þurfa að kveðja einn úr hópnum. Við, sem erum svo ung og hraust og hugsum til framtíðarinnar með áratuga áætl- anir í huga — eða látum hverjum degi nægja sína þjáningu, allt eftir því hvernig liggur á okkur í það og það skiptið. Tíminn er jú nægur, eða hvað? Skyndilega þarf að horfast í augu við þá staðreynd að sumum okkar hefur verið úthlutað skemmri tima en öðrum. Við kveðjum í dag Birnu Krist- ínu Bjarnadóttur, vinkonu og skólasystur, sem kunni að nota timann sinn. Gömul þjóðsaga segir frá konu nokkurri, sem gerði álfkonu greiða, eins og titt er í íslenzkum þjóðsögum. Hlaut hún að launum eina ósk til handa barni því er hún bar þá undir beltisstað. Konan óskaði þess að barnið mætti öðlast vinnugleði. Þetta virtist lötum skólakrökk- um vera heldur undarleg ósk þó að sögunni fylgdi að konunni hefði orðið að henni og barnið orðið mikil gæfumanneskja. En lífið er vinna og sjaldan næst árangur ef ekkert er lagt á vogarskálarnar. Þetta verður sumum ljóst eftir dúk og disk og ef til vill bitra reynslu, en er öðrum í blóð borið. Ef einhver átti heima meðal þeirra síðasttöldu, þá var það Birna. Hún var með eindæmum virk og skapandi manneskja, lifði lífinu lifandi og hafði hæfileika á mörg- um sviðum. Hún var sterkur persónuleiki og lét til sín taka hvar sem hún kom. Aðrir munu eflaust verða til þess að rekja æviágrip Birnu, af nógu er að taka þó að árin yrðu ekki fleiri. En það var hún, sem strax fyrir fermingu var farin að hanna og sníða sín eigin föt. Það var hún, sem skipulagði alls konar furðu- ferðir og uppátæki, sem sum hver, eftir á að hyggja, eru meðal skemmtilegustu æskuminninga þeirra sem þátt tóku í þeim. Það var Birna sem var „fjall- drottning" þeirra fyrir austan og orti síðan drepfyndnar vísur um alla kallana þegar af fjalli var komið. En að loknu stúdentsprófi var hún þrjú ár við kennslu að Laugalandi í Holturn, við góðan orðstír eins og við var að búast. Þegar vini úr Reykjavík bar að garði þar eystra, en Birna var höfðingi heim að sækja, var hún ýmist að koma frá því að þjálfa félaga ungmennafélagsins í körfu- bolta, setja upp leikrit í félags- heimilinu, eða eitthvað allt annað, sem fáum öðrum hefði til hugar komið. Því ímyndunaraflið var óþrjótandi og Birna ómissandi þegar eitthvað stóð til. Birna fór ekki alltaf troðnar slóðir, frekar en aðrir, sem for- sjónin hefur gefið góða greind og sterkan vilja. Hún hratt hugmyndum sinum í framkvæmd og lifði samkvæmt eigin sannfæringu, óháð skoðun- um annarra. Þetta var óaðskiljan- legur hluti persónuleika Birnu og eitt af því sem gerði hana svo sérstaka. Hún var hugrökk og þorði oft þegar aðrir þögðu. Smá- munasemi átti hún ekki til. Við kveðjum æskuvinkonu okkar með söknuði. Bestu minn- ingarnar og heilsteyptustu mynd- ina af góðri stúlku geymum við í hjörtum okkar um ókomin ár. Við vottum Tinnu litlu, dóttur Birnu, og fjölskyldu hennar allri okkar dýpstu samúð. Vinir og skólasystkin úr MR + Eiginmaöur minn OLAFUR EGGERTSSON, Kvíum í Þverárhlíö. veröur jarösunginn frá Norötungukirkju, laugardaginn 7. marz kl. 14.00. Ferð veröur frá Umferöarmiöstööinni kl. 10 árdegis. Sigriður Jónsdóttir. f Þökkum innilega samúö og vináttu viö andlát og útför SIGURLÍNU EBENEZERSDÓTTUR Tómasarhaga 41. Ingibjörg Ebba Magnúsdóttir, Ragnhildur J. Magnúsdóttir, Kristján Kristjánsson, Helga Magnúsdóttir, Siguröur Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu við andlát og jaröarför systur okkar KRISTÍNAR YNGVARSDÓTTUR. Ólöf Yngvarsdóttir, Árni Yngvarsson, og systkinabörn. + Viö þökkum öllum nœr og fjær fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö fráfall og jaröarför systur okkar ÖNNU SIGRÍDAR EINARSDÓTTUR, Kleppsvegi 120. Sérstakar þakkir tll sambýlisfólks hennar fyrir hlýhug og viröingu viö hina látnu. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna Jónína Einarsdóttir, Margrát Einarsdóttir, Guöbjörg Einarsdóttir, Hrefna Einarsdóttir. + Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför eiginkonu minnar, móöur okkar og tengdamóöur, LOFÍSU ELÍFASDÓTTUR. Einar Helgason, Ólafur Jón Einarsson, Hildur S. Hilmarsdóttir, Finnbogi Finnbogason, Friögeröur Danielsdóttir, Elín Rósa Finnbogadóttir, Kristján Guömundsson. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.