Morgunblaðið - 06.03.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981
29
Skrefatalráng
Guðjón B. Baldvinsson skrifar:
„Við athugum ekki alltaf hvað
næsta skref þýðir, þegar við stígum
það. Þess vegna felur augnablikið
oft í sér ærinn sársauka, bitra
reynslu seinni tíma. Og það er ekki
alltaf auðvelt að læra af reynslunni,
en oftast mjög gagnlegt að reyna
það.
Við teljum ekki alltaf skrefin
okkar, sem betur fer. Við eigum öll
þann eiginleika að vilja gefa, vilja
þjóna, vilja færa öðrum gleði. Vissu-
lega er stundum djúpt á þessari
eigind, og hún vill stundum hverfa
bakvið eða undir eigingjarna hvöt,
sem leynist í undirdjúpunum, og á
oft greiða leið upp á yfirborðið.
Þetta eru almenn orð um skref
okkar á lífsleiðinni, sem vitanlega
verða mismörg, mislöng og misjafn-
lega affarasæl.
Þegar stigin eru skref á leið
löggjafans og stjórnvalda, þá er
raunar þörf sömu aðgæslu hvar
stigið er niður og þegar gengið er á
nýrunnu hrauni eða um óþekkt
hverasvæði. Ekki kannski vegna
þess að brenna eigin fætur, heldur
og stundum vegna þess að hætta er
á að stíga ofan á tærnar á náunga
sínum.
Ef við eygjum slíka hættu ber
okkur að vara við því „og ekki
veldur sá er varar, þó að verr fari“.
Stjórnvöld hyggja
á skrefatalningu
Auðvitað hafa stjórnvöld starað á
verðbólguskrefin án þess þó að geta
stöðvað þau. En það er nú einkum
hugað að skrefatalningu, sem vænt-
anleg er hjá Landssímanum. Fögur
orð eru notuð um réttlæti í því
sambandi. Jafnrétti milli landshluta
skal það heita. En hver er vandinn
við þessa framkvæmd?
Efnahagslegt réttlæti verður
kannski seintekið. Það er t.d. ekki
upplýst hver raunverulega lagði
fram fé til að koma upp símakerfi
um landið. Fjárfesting síðari ára er
ekki heldur opinberlega skrásett á
þann veg að við vitum hvaðan
peningarnir komu, aðeins ákveðinn
grunur fólks á þéttbýlissvæðunum
að frá því hafi peningarnir fengist,
sem liggja í fjárfestingu símans á
dreifbýlissvæðunum. Við teljum það
auðvitað ekki eftir fremur en annað,
ef það ætti svo ekki að hefna sín á
þeim þegnum þessara svæða, sem
minnst mega sín, og jafnvel haft við
orð að þetta séu óhjákvæmileg
skref, til þess að unnt reynist að ná
til þeirra stofnana, sem mest notin
hafa af símkerfinu.
Er ætlunin að milli-
færa skrefagjaldið?
Það sem öllum mun svíða sárast
er skert aðstaða eldra fólks og
öryrkja til þess að ná sambandi við
umheim sinn. í því sambandi er rétt
að vekja athygli á tvennu. Hið fyrra
er hversu erfiðlega gengur oft að ná
sambandi við opinberar stofnanir,
þ.e.a.s þá einstaklinga, sem þar fá
sitt lifibrauð af þeim starfa á
staðnum, sem flestir þurfa að leita
til. Hvernig á að ná réttlæti vegna
þeirra skrefa, sem talin eru meðan
verið er að bíða eftir viðkomanda,
leita að honum eða þeim, eða bíða
eftir að lokið sé við þá símtölum.
Hver á að greiða þessi skref? Er
kannski ætlunin að millifæra
skrefagjaldið á þann, sem ekki er
við á auglýstum tíma?
Hitt atriðið er, ef notkun símans á
vissum timum fer fram úr því
marki, sem kerfið leyfir fjölda
símtala á sama tima. Hvað er þá til
ráða?
F.S.P.H. skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Við sitjum saman fáeinir borgar-
ar yfir kaffibollum og ræðum
símamálið svonefnda og þá skugga-
legu stefnu sem það virðist vera að
taka. Vafalaust fara umræður af
þessu tagi fram í hverju húsi, en
það er bara ekki nóg að tala um
þessi mál heima, við verðum að fá
þau rædd ítarlegar á opinberum
vettvangi, af þeim sem hafa með
þau að gera og einnig hinum, sem
eru á móti þeirri breytingu sem í
ráði er að koma á. Þetta á ekki að
vera einkamál neinnar einokun-
arstofnunar. Við sem komin erum
á efri ár, eigum ekki að láta bjóða
okkur það orðalaust að milljóna-
fyrirtækjum sér rutt í framkvæmd,
hvað sem það kostar — við eigum
að láta til okkar taka. Fjöldinn er á
móti þessari skrefatalningu. Von-
andi mótmælir almenningur þessu
harðlega.
Merjíurinn málsins
Við förum fram á betri stjórn
simamála og helst samkeppni.
Kannski við verðum að fara í
mótmælagöngu, eins og nú er í
tísku, en til þess að svo geti orðið
þarf að hitta á gott veður, því að
mörg okkar geta ekki farið út í
hvaða veður sem er, heilsunnar
vegna, og það er mergurinn máls-
ins, við verðum að hafa símann.
Þetta er enginn lúxus lengur eins
og í okkar ungdæmi. Kannski eiga
þessir herrar eftir að verða gamlir
og einir. Þá munu þeir skilja þetta
betur. Við skorum á núverandi
stjórn símamála að láta ekki fyrir-
hugaða skrefatalningu koma til
framkvæmda og nota heldur þessar
óheyrilega háu upphæðir til þess að
hjálpa öldruðu og sjúku fólki.
Með þökk fyrir birtinguna."
(GretðSVu^-
Látum til okkar
taka í símamálinu
LITASJÖNVÖRP
22” — 26”
Sænsk hönnun^
Sænsk ending ★
Bestu kaupin! ★
HLJÓMTÆKJADEILD
kSxkarnabær
LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999
Utsolustaöir Karnabær Laugavegi 66 —-
Karnabær Glæsibæ — Fataval KeflaviK
Portið AKranesi — Eplið Isafiröi —
Alfhóll Siglufiröi — Cesar AKureyri —
Hornabær Hornafirði—MM h f Selfossi
qq —Eyiabær Vestmannaeyjum
Bó£'<*X*h
Hvar var
rauði
dregillinn?
Guðrún Á. Símonar skrifar:
„Ég get ekki orða bundist, þess
vegna tek ég mér penna í hönd.
Forsetinn okkar, frú Vigdís,
kom, sá og sigraði í Danmörku.
Hún stóð sig stórkostlega, var
yfirveguð og róleg, hnyttin í
svörum og hefur ríka kímnigáfu,
fallega framkomu, ég tala nú
ekki um það, að geta talað mörg
tungumál.
Frú Vigdís var eins og tízku-
dama í klæðnaði, auglýsti vel
okkar tízku, ég segi okkar tízku,
við getum ekki klætt okkur
öllum þeim tízkufyrirbrigðum
úti í heimi, vegna okkar dyntóttu
veðráttu.
Eftir alla þessa frægðarför
forsetans, hvað skeður, þegar
heim er komið?
Forsetans bíða aðeins nokkrir
háalvarlegir embættismenn,
sem voru svo teinréttir, að þeir
virtust ekki hafa nein liðamót.
Ljósmyndara og fréttamenn var
hægt að telja á fingrum annarr-
ar handar.
Hvar var rauði dregillinn, er
hanii bara fyrir erlenda þjóð-
höfðingja, ekki gat hann verið í
hreinsun af ofnotkun?
Að síðustu, hvar var allt
fólkið, sem studdi frú Vigdísi?
Það er ekki nóg að styðja fólk í
embætti, það verður að fylgja
því eftir. Stuðningsmenn forseta
Islands hefðu átt að mæta fylktu
liði og hrópa mörg húrrahróp og
færa henni stóran blómvönd. Ég
er viss um að það hefði glatt
forsetann okkar."
Ga"ialt
VVlrY"
Bókamarkadurínn
SÝNINGAHÖLLINNI
ÁRTÚNSHÖFÐA
S3? SlGtA V/GGÁ £ A/lveRau
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al (iLYSlNGA-
SÍMINN ER:
22480
WYt/)uWA«
\ Vtf'
Wfl W/W« fflllA’ST'l .
vm 'At&nj ámoi f<wum
NV Vfifj 4P KvZ.4 \WW \ vóritf/
MWtflWWWl