Morgunblaðið - 08.03.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1981
15
Drake-
leiðangurinn
1. grein
Eftir
Úlfar Daníelsson
Á úlföldum
í fótspor
Rudolfs gamla
Operation Drake er íarin á vegum breska vísinda-
og landkönnunarfélagsins. Ferðin er farin í minn-
ingu þess að 400 ár eru liðin frá því að Francis Drake
fór í kringum hnöttinn. 22. október 1978 lagði
seglskipið Eye of the Wind af stað í kringum
hnöttinn í leiðangur sem nefndist Operation Drake.
Eye of the Wind er 150 tonna briggskip. Ferðin í
heild tekur tvö ár og var skipt niður í 10 áfanga.
Leiðangurinn leyfir yfir 200 sérstaklega völdum
ungmennum (Young Explores) frá um 28 löndum að
taka þátt í dagsskrá leiðangursins. sem saman
stendur af margskonar vísindaverkefnum.hjálpar-
starfi og litlum leiðöngrum. Frá íslandi tóku þátt í
leiðangrinum Guðjón Arngrímsson (Reykjavík),
Hrafnhildur Sigurðardóttir (Garðabæ), Börkur Arn-
viðarson (Húsavík), Bjargey Ingólfsdóttir (Akur-
eyri), ásamt mér frá Vestmannaeyjum.
Kenya
Ég tók þátt í leiðangrinum í
Kenya, þar sem ég átti að vera
skipstjóri á um 15 tonna bát á
Lake Turkana vatni. Skömmu
eftir komu mína til Kenya 25.
júlí var mér boðin ný staða en
það var að vera vaktarformaður,
„watch leader", á Eye of the
Wind.
Höfuðstöðvar Operation
Drake í Kenya voru í breskum
æfingaherbúðum „BATSLK"
rétt fyrir utan Nairobi. Þegar
þangað kom fóru að renna tvær
grímur á mannskapinn. Spurn-
ingin var hvort við værum á
vegum Operation Drake eða
komnir í breska herinn. Allt sem
Operation Drake notar er fengið
að láni frá hernum. Karlmenn-
irnir sváfu í 12 manna hertjöld-
um á óþægilegum herrúmum
sem gerð eru úr vírum og striga
og yfir okkur höfðum við græn
ljót moskítónet til varnar gegn
moskítóflugunum. Kvenfólkið
svaf í heimavistarskóla skammt
frá.
Maturinn sem við fengum í
búðunum var dósamatur frá
hernum en herinn notar ekki
dósamat nema þegar þeir eiga í
stríði, svo við borðuðum gamlan
mat þar sem dagssetningin var
útrunnin. Matarílátin okkar
voru svokallaðar „messtin"-
matarkrúsir sem við notuðum til
að borða, drekka og elda úr. í
allt vatn sem við drukkum þurft-
um við að setja klór anti klór
„Puritaps“-töflur en þá bragðast
drykkjarvatnið eins og sund-
laugarvatn.
Seinnipart annars dags fórum
við í útilegu, „survival camp“.
Galvaskur hópur í útilegu ( Kenya.
Farið var í Ngong-fjöllin rétt
fyrri utan Narobi. Þar var slegið
upp tjöldum og sváfu 2 og 2
saman í tjaldi. Yfirmennirnir
skiptu sér niður í kennsluhópa
og kenndi hver sína sérgrein, t.d.
lærðum við á hertalstöð og
talstöðvar yfirleitt, undirstöðu-
atriði í hvernig á að lifa einn af
náttúrunni, lesa af korti, skyndi-
hjálp o.fl.
Á þriðja degi fórum við í
ratleik. Við vöknuðum kl. 6.30,
elduðum og lögðum af stað í
gönguna sem var um 30 km.
Gangan tók um 8 tíma og
þurftum við að ganga upp 1000
m hátt fjall. Margt torveldaði
gönguna, við áttum t.d. að finna
vatn, en fundum það ekki, því
það þornaði upp fyrir mörgum
árum. Hitinn var alveg að drepa
okkur og loftið var þynnra en við
áttum að venjast. Við gengum
Bjargey Ingólfsdóttir ásemt víni sínum sem hún fann í Afríku.
þetta matarlaus og með aðeins
1 V4 lítra af vatni. Þegar við loks
komum til tjaldbúðanna vorum
við úrvinda af þreytu, matar- og
vatnsskorti því vatnið kláraðist
fljótt í göngunni. Daginn eftir
tókum við upp búðirnar og
fórum til BATSLK en þá um
kvöldið fékk hver þátttakandi
(Young Explorers) að vita hvaða
verkefni hann átti að starfa við í
Kenya. Nú þegar allir voru búnir
að vita sín verkefni var ekkert
annað að gera en að bíða.
Flutningar voru vandamál í Op.
Drake í Kenya og því þurftu allir
að vera í startholunum, tilbúnir
að stökkva upp í flutningabíl
með dótið sitt. Biðin hjá sumum
var allt upp í eina viku.
Þau verkefni sem voru á
boðstólum í Kenya voru: Lake
Turkana: Ýmsar grasa-, dýra- og
mannfræðilegar rannsóknir
voru gerðar úr fiskibát sem
sigldi um vatnið og svo var Lake
Turkana þjóðgarðurinn girtur.
Ulfaldaleiðangur: Farin var
sama ferð og Rudolf gamli fór
þegar hann fann vatnið Lake
Rudolf öðru nafni Lake Turkana.
Ferðin var farin á úlföldum eins
og hann fór.
Köfun: Við ströndina var hóp-
ur að kafa, markmið hans var að
finna fallega staði sem kunna að
laða ferðamenn að sér.
Kenyafjail: Year endurreistu
útsýnispall fyrir ferðamenn en
hann hrundi fyrir nokkrum ár-
um.
Mass-Avara: Dýr flykkjast nú
yfir landamæri Kenya frá Tans-
aníu vegna þurrka, til vatnsbóla
í Mass-Avara. Hlutverk leiðang-
ursins á þessu svæði var að telja
dýrin, tegundirnar, athuga kyn,
aldur og hvernig tegundirnar
umgangast hver aðra. Einnig
var farið á loftbelg yfir Mass-
Avara og dýrin talin og voru
notaðar myndavélar og tölvur
við aðstoðina.
Susua Crater (eldgígur): Gerð-
ur var leiðangur til Susua-
svæðisins en þar eru þrír eld-
gígar sem eru hver inni í öðrum.
I miðjunni í innsta gígnum er
svolítil háslétta og átti að kanná
lífið á henni. Enginn lifandi
maður hefur komist inn á há-
sléttuna en þangað hafa verið
gerðir út nokkrir leiðangrar.
Mjög erfitt er að komast að
hásléttunni því stórgrýtt hraun
eru umhverfis hana og ekkert
vatn þar að finna.
Moska í Nairobi.
Einn snarvilltur, eins og sjá má af svipnum, íratleik ( Kenyafrumskógi.