Morgunblaðið - 22.03.1981, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981
+
Móðir mín,
SIRGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kleppsvegi 34,
andaöist í Borgarspitalanum 20. marz.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Árni Jón Baldursson.
Gíslína Björg Ólafs-
dóttir - Minning
+
Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaöir og afi,
HAFSTEINN GÍSLASON,
vörubifreiöastjóri,
Ölduslóö 19, Hafnarfiröi,
andaöist 16. marz sl. Útför hins látna fer fram frá ÞJóökirkjunni í
Hafnarfiröi mánudaginn 23. marz kl. 14.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Sigríóur Guóbjörnsdóttir,
Guöfinna Hafsteinsdóttir, Pétur Ingibergsson,
Guóbjörn Hafsteinsson, Elsabet Baldursdóttir,
Gísli Hafsteinsson
og barnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, stjúpfööur og afa
JÓNS MATTHIASSONAR,
Bjarnhólaatíg 8, Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 24. marz kl. 3 e.h.
Guórún Þóróardóttir,
Aóalbjörg Jónsdóttir,
Lilja Jónsdóttir, Ægir Geirdal,
Sigurborg Hjartardóttir, Hrefne Matthiasdóttir,
Nói Marteinsson, Frlóa Siguróardóttlr,
bórdfa Marteinadóttir, Ólafur Daviósson,
Þóróur Marteinsson, Guórún Halkfórsdóttir
og bamabörn.
Fædd 12. júni 1895.
Dáin 15. marz 1981.
Aðfaranótt sunnudags 15. marz
andaðist á Borgarspítalanum
Gíslína Björg Ólafsdóttir eftir
erfiða sjúkralegu, á áttugasta og
sjötta aldursári. Þrátt fyrir háan
aldur var Gíslína ávallt heilsu-
hraust, utan síðustu sex mánuðina
sem hún lifði.
Við fráfall þessarar góðu konu
er mér ljúft að minnast hennar og
þakka ánægjuleg og eftirminnileg
kynni þau tuttugu og átta ár sem
ég hef fengið að njóta þess að vera
í návist hennar, en hún bjó í næsta
húsi við foreldra mína.
Gíslína var fædd að Ólafsbakka
við Bakkastíg 12.06. 1895. Foreldr-
ar hennar voru þau ólafur Björns-
son útgerðarmaður og Þorbjörg
Málfríður Jónsdóttir. Gíslína var
næstyngst af sex systkinum, en
yngsta systir Gíslínu, Jónína, and-
aðist fyrir rúmum átta árum, þá
74 ára gömul. Var það mikill
missir fyrir GíslLnu því þær systur
höfðu búið saman alla tfð og voru
mjög samrýndar.
Árið 1922 sigldi Gíslína út til
Kaupmannahafnar á Kunstflids-
forenings handavinnuskóla og var
þar í 6 mánuði. Eftir heimkomuna
vann hún við ýmis störf en árið
1954 réðist Gíslína að saumastofu
Þjóðleikhússins, og vann þar við
saumaskap í 15 ár.
Ekki er hægt að minnast Gísl-
fnu án þess að nefna heimili þeirra
systra sem bar öll einkenni þess
hve gífurlega mikla vinnu þær
höfðu lagt við útsaum og aðra
markaour
Nú er mikið um aö vera í Blómaval við
Sigtún. Skoðiö hið fjölbreytta úrval
okkar af allskonar ungplöntum á
mjög hagstæðu verði. Veitið
ungplöntunum áframhaldandi
ræktun heimafyrirog látið þærvaxa.í
höndum ykkar.
Hafsteinn Hafliðason,
garðyrkjufræðingur, leiðbeinir
viðskiptavinum þessa helgi um
pottaplöntur, meðferð þeirra,
umpottun og staðsetningu.
Það er margt að sjá í Blömaval.
Opið frá kl. 9—21
blériMmllfða
Gróðurhúsinu við Sigtún:Símar36770-86340
handavinnu. Móðir mín átti því
láni að fagna að kynnast Gíslínu á
unglingsárum sínum. Þróaðist sá
vinskapur með árunum, en árið
1944 buðu foreldrar mínir þeim
systrum í mat á aðfangadagskvöld
og hélst sá siður allt fram að
síðustu jólum er Gíslína dvaldi á
sjúkrahúsi, eða í samfleytt 35 ár.
Eftir að þær systur fluttu á
Bárugötu 37 var það okkur systk-
inunum sem annað heimili, enda
vorum við þar daglegir gestir og
hlutum við þar alltaf hlýjar mót-
tökur. Sérstaklega voru þær syst-
ur hrifnar af elsta bróður mínum,
Jóhannesi Inga, enda dvaldi hann
margar stundirnar hjá þeim.
Einnig er mér ljúft að minnast
ársins 1965, en þá var Gíslina 70
ára, kom hún til móts við okkur
fjölskylduna til London, en við
vorum á heimleið úr Evrópuferð.
Dvöldum við í Englandi næsta
hálfa mánuðinn. Var þá komið
víða við og margt skoðað. Og naut
Gíslína ferðarinnar í hvívetna. Nú
þegar leiðir skilja viljum við,
fjölskylda mín og litlu dætur
okkar hjóna, foreldrar mínir og
bræður og fjölskyldur þeirra
þakka Gíslínu fyrir allar góðu
samverustundirnar sem hún deildi
með okkur.
Guð blessi hana.
Sigfriður Friðþjófsdóttir
Á morgun, mánudaginn 23.
mars, munum við kveðja Gíslínu
B. Ólafsdóttur, en útför hennar fer
þá fram frá Dómkirkjunni kl.
13.30.
Gíslína Björg, eins og hún hét
fullu nafni, var fædd 12. júní 1895,
en lést aðfaranótt 15. þ.m. á
Borgarspítalanum og var því á 86.
aldursári.
Hún var ein af sex börnum
hjónanna Þorbjargar Jónsdóttur
frá Hurðarbaki í Kjós og Ólafs
Björnssonar útvegsbónda frá
Bakka við Mýrargötu hér í
Reykjavík. Systurnar voru fjórar,
en bræðurnir tveir. Ólafur var
sonur Guðfinnu Gísladóttur og
Björns Guðlaugssonar er bjuggu í
Björnsbæ við Mýrargötu. Hafði
hann stundað sjóinn, en hóf síðar
eigin útgerð og saltaði sinn fisk
sjálfur, eins og þá tíðkaðist. Einn-
ig var Ólafur fátækrafulltrúi hér í
Reykjavík.
Það var oft mannmargt í litla
timburhúsinu á Bakka. Fyrir utan
sjálft heimilisfólkið og vinnufólk
voru oft margir vermenn, sem
komu víða að. Þá voru oft leigð út
eitt eða tvö herbergi uppi á lofti.
Þær urðu því snemma að taka til
hendinni, systurnar á Bakka, bæði
við þjónustustörf, fiskvinnu og
garðrækt. Það var því lítill tími til
útsláttar.
Gíslína var spengilega vaxin,
kvik í spori og það var reisn yfir
framkomu hennar. Henni fylgdi
jafnan hressilegur andblær og
hún fór ekki í neinar grafgötur
með skoðanir sínar. Snyrti-
mennska var henni í blóð borin og
hennar aðal kappsmál var sjálf-
stæði og að standa á eigin fótum.
Fljótlega kom í ljós áhugi Gísl-
ínu á hannyrðum og saumum og
lærði hún því hjá systur Klemens-
ínu í Landakoti og síðan lá leiðin á
listaskólann í Kaupmannahöfn.
Vann hún síðan mikið við sauma-
skap, bæði heima hjá sér og í
Haraldarbúð og eftir opnun Þjóð-
leikhússins á saumastofu þess, þar
til hún hætti vegna aldurs.
Elsta systir Gíslínu var Guð-
finna, en hún vann lengst af hjá
+
Útför fósturmóöur okkar,
ÖNNU GUÐRÚNAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
Sörlaskjóli 18,
fer fram frá Dómklrkjunni í Reykjavík, mánudaginn 23. marz kl. 3
e.h.
Fyrir hönd ættingja og vandamanna,
Björgvin Þorbjörnsson,
Sigurbjörn Þorbjörnsson, Betty Þorbjörnsson,
Þorsteinn Þorbjörnsson, Guöný Jóhannsdóttir.
+
Útför systur okkar,
GULLVEIGAR VALTÝSSON,
sem lést 14. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 24.
mars kl. 10.30.
Þeim, er vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á líknarsjóöi.
Svanfrid Diego,
Svarre Valtýsson.
+
Faöir okkar,
STEINGRÍMUR PÁLSSON,
fyrrverandí alþingismaóu',
Brú, Hrútafiröi,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunnl þriöjudaginn 24. marz kl.
1.30.
Helgi Steingrímsson,
Hólmfrföur Steingrímsdóttír,
Þórir Steingrfmsson.
+
SKÚLI G. BJARNASON,
fyrrv. póstmaöur,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 23. marz kl. 3.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeir, sem vildu minnast hins látna,
láti góöfúslega kristniboöiö í Konsó njóta þess.
Vandamann.