Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 39
Birni Sigurðssyni bankastjóra og konu hans. Sú næstelsta, Guðríð- ur, giftist Guðjóni Gamalíelssyni, fiskimatsmanni. Yngstu systurn- ar, Gíslína og Jónína, voru mjög samrýndar og bjuggu saman alla tíð. Eftir lát föður þeirra héldu þær heimili með móður sinni, þar til hún lést 1939. Naut hún góðrar umhyggju þessara dætra sinna, en hún var blind síðustu fjórtán árin. Ég á margar góðar minningar frá heimsóknum mínum til þeirra systra og gömlu konunnar á Bakka og mun ætíð minnast þeirr- ar hlýju, sem þar var ætíð að finna. Mikil eftirsjá er eftir gamla húsinu með fiskireitunum og kart- öflugörðunum í kring. Bræðurnir tveir, þeir Ólafur og Guðlaugur, voru sjómenn en þeir drukknuðu báðir í aftakaveðrum. I minnisblöðum um minnisverð tíð- indi, sem ég hef skrifað þegar ég var þrettán ára, stendur m.a.: „Föstudaginn 28. febrúar 1941 geisaði mikið illveður við Island. Mikið tjón varð af völdum veðurs- ins. Járnplötur fuku af húsum, rúður brotnuðu í gluggum og menn dóu og slösuðust. Tveir vélbátar sukku á innri höfninni og nokkrir smábátar brotnuðu í spón. Tvö útlensk skip strönduðu á ytri höfninni. Um hádegi var búið að bjarga öllum mönnunum af skip- unum. Tveir breskir hermenn fuku í sjóinn af garðinum sem liggur út í vitann, annar bjargaðist, en hinn drukknaði. íslenski togarinn Gullfoss hefur ekki komið fram síðan fyrir óveðrið, þar fórust 8 menn, fullvaxnir dugandi sjómenn og var einn þeirra frændi minn, Ólafur Ólafsson fiskilóðs frá Ólafsbakka. Lætur hann eftir sig konu, Margréti Guðmundsdóttur, og 6 börn.“ MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 39 Ég minnist enn þeirra tára er hrundu af hvörmum móður minn- ar á þeirri kvöldstund, er tilkynn- ing um þetta sjóslys var lesin í útvarpinu og öllum var hugsað til frændfólksins á Bræðraborgar- stígnum, sem hafði misst svo mikið. Eigi er ólíklegt að henni hafi þá verið hugsað til annars svipaðs atburðar, er faðir hennar, Björn Gíslason skipstjóri frá Bakka, drukknaði, þegar kútter „Emelíe" fórst með allri áhöfn í apríl 1906. í skipsrúmi hjá Birni var ungur frændi hans, Guðlaugur, sonur hjónanna á Bakka, en þeir Björn og Guðlaugur voru bræðrasynir og uppeldisbræður. „Emelíe" hafði komið inn til hafnar nokkru fyrir óveðrið með bilað stýri, sem gert var við til bráðabirgða, því kappið var mikið og eigi langt til vertíðarloka. Kannski réði stýrið úrslitum um líf eða dauða 24 vaskra sjómanna. Björn hafði misst föður sinn, Gísla Björnsson, þegar hann var á fermingaraldri, er Gísli drukknaði í sjóróðri og ólst Björn síðan upp með móður sinni, Jórunni, og systur, Björgu Gísladóttur, er síðar giftist Isleifi Guðmundssyni fiskimatsmanni í Hafnarfirði. Einnig var Björn mikið undir verndarvæng þeirra Bakkahjóna, Þorbjargar og Ólafs föðurbróður síns. Mikill harmur var aftur kveðinn að ekkjunni og systkinunum á Bræðraborgarstígnum, þegar eldri sonurinn, Olafur Björn, drukknaði í sjóróðri nokkrum árum síðar hér á Faxaflóanum. Ekki er ólíklegt að eiginkonur, mæður, dætur og syst- ur þessara sjómanna hafi oft hugsaö líkt og stendur í sálmi Valdimars V. Snævarr: BreiðÍKt. Guð, þin biessun yfir bát á miði, skip á sjó. Leiddu aftur heilu ok hðidnu heim til lands hvern unnarjó. Forsjón þinni felum vér fiskimanna djarfan her. Sú eina sem eftir lifir af þessum ættlið er hálfsystir þeirra Björns og Bjargar, sæmdarkonan Gísl- anna Gísladóttir. Hún er nú há- öldruð en vel ern, þótt hún sé komin vel á tíræðisaldur. Nýtur hún nú góðrar umhyggju dóttur sinnar, Jónu Þórðardóttur. Þeim bræðradætrunum, Gíslínu og Gíslönnu, var mjög vel til vina. Minnist ég ánægjulegrar samveru með þeim báðum á heimili Gísl- önnu og Jónu. Nokkrum árum eftir að Bakki var seldur, eignuðust systurnar fallegt og ánægjulegt heimili að Bárugötu 37 og áttu þær því láni að fagna að eignast gott sambýlis- fólk, bæði í húsinu sjálfu og sérstaklega í næsta nágrenni og á ég þar við hjónin Sigríði og Friðþjóf Jóhannesson. Vil ég flytja þeim og börnum þeirra alúðarþakkir fyrir frábæra vin- áttu, umhyggju og tryggð við þær systur, sérstaklega nú síðustu árin í veikindum Gíslínu. Þá vil ég einnig minnast og þakka áratuga vináttu Valgerðar Kristinsdóttur, við þær systur, svo og annarra vina, skyldra og óskyldra, sem réttu Gíslínu hjálparhönd í veik- indum hennar. Um leið og við kveðjum Gíslínu og þökkum henni samfylgdina vil ég að lokum færa öllu starfsfólki Borgarspítalans alúðarþakkir fyrir afbragðs umönnun á liðnum mánuðum. Björn Vilmundarson t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát eiginkonu minnar, móöur okkar, dóttur og systur, BIRNU MAGNÚSDÓTTUR, Alfhólsvegi 45. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliös, samstarfsfélaga og feröafélaga. i Sævar Björnsson, i Björn Sævarsson, Sæunn Þ. Sævarsdóttir, Ingveldur Sævarsdóttir, Magnús Sveinbjörnsson, Ingveldur Guömundsdóttir og systkini. j t Þökkum innilega samúö og vináttu viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, STEINUNNAR SIGURJÓNSDÓTTUR, frá Hátúni, Skagafiröi. Sigurjón Jónasson, Sigrún Júlíusdóttír, Gunnlaugur Jónasson, Ólina Jónsdóttir, Hallur Jónasson, Jónas S. Jónasson, Ólafur Jónasson, Guórún Jónasdóttir, Bjarní Jónasson, barnabörn og barnabarnabörn. Aöalbjörg Jónsdóttir, Ásta Pjetursdóttir, Einar P. Kristmundsson, Guóný Jónsdóttir, Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug, viö andlát og jaröarför móöur okkar, fósturmóöur, tengdamóöur og ömmu, GEIRÞRUOAR GEIRMUNDSDÓTTUR, Ytri-K narrartungu, Breiöuvík, Snæfellsnesi. Jón Kristinsson, Guöjón Kristinsson, Kristgeir Kristinsson, Hulda Kristinsdóttir, Fjóla Kristinsdóttir, Eliveig Kristinsdóttir, Bjarni Th. Kristinsson, Laufey Jónsdóttir, barnabörn og barnaba Anna Guölaugsdóttir, Björg Jónsdóttir, Ólafur Kjartansson, Birkir Skarphéðinsson, Sólveig Ingvarsdóttir, Kristinn Arnberg, JÓHANNES GÚSTAF NIELSEN, lést í Landspítalanum mánudaginn 16. mars. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu, mlövlkudaginn 25. mars kl. 10.30. Vandamenn. t Móöir mín og tengdamóöir, SESSELJA VALDIMARSDOTTIR, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 24. marz kl. 15.00. Ingibjörg Haraldsdóttir, Jóhann Briem. + Þökkum af hjarta samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför mömmu okkar, ÖNNU ÞORKELSDÓTTUR, Njálsgötu 59. Þóröur H. Teitsson, Haraldur Teitsson, Elin Teitsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö við andlát EGGERTS BACHMANN. Guöbjörg Bachmann, Helga Bachmann, Björgúlfur Bachmann. + Þökkum innilega samúð og vináttu viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, EINRUNAR ÍSAKSDÓTTUR, frá Siglufiröi. Edda ísaks, Rafn Sigurbergsson, Hanna Marfa ísaks, . . _ B1 . _ „ barnabörn oo barnab Þorstemn Birgir Eg,|.,ont

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.