Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 Svarthveðnir sá, sem skipverjar á Iíásteini ÁR fengu á miðvikudag og er stærsta skepna þessarar tegundar, sem sögur fara af. (Ljósm. Rax) Ennisfiskur. Trjónufiskur Fjölbroddabakur Stóra brosma „I>ær vilja sjá ís- land og deyja síðan44 Af „furÖufiskum". sem borizt hafa Ilafrannsóknastofnun BÚRFISKA, trjónufisk, stóru brosmu, sædjöfla, ennisfisk, svarthveðnir, fjöibroddabak. ókennileg tegund af angaætt, og fleiri sjaldséða fiska hefur und- anfarið mátt finna i frystigeymsl- um Hafrannsóknastofnunar við Skúlagötu i Reykjavik. Alltaf annað slagið fréttist af þessum furðufiskum sjávarins og ef þeir berast stofnuninni eru það Gunn- ar Jónsson, Jutta og Jakob Magn- ússon, sem skoða skepnurnar eftir kúnstarinnar reglum og stundum er það þeirra hlutskipti að gefa fiskunum íslenzk nöfn ef þau hafa ekki fengið slik áður. „Það er alltaf eitthvað um það, að við fáum þessa sjaidgæfu fiska hingað til athugunar og undanfar- ið hefur verið skemmtilega mikið af þessum sendingum," sagði Gunnar Jónsson, er Morgunblaðið heimsótti bækistöðvar Hafrann- sóknastofnunar. Gunnar sagði það vera mjög gagnlegt að fá vitneskju um útbreiðslu sjaldgæfra fiska við Island og æskilegast væri að fá fiskana í hendur. Með því móti væri hægt að gera ýmsar rann- sóknir á fiskunum, en vitneskja um margar þessar fisktegundir væri af skornum skammti. Á síðasta ári rannsakaði Haf- rannsóknastofnun fjölbroddabak, en sú fisktegund hafði ekki áður fengizt við Island svo vitað sé. I bæklingi um nýjar fisktegundir á íslandsmiðum segir Gunnar Jóns- son meðal annars, að hér hafi fjölbroddabakur fyrst fundizt í leiðangri Hafrannsóknastofnunar á rannsóknaskipinu Bjarna Sæ- mundssyni djúpt undan Suðvest- urlandi í apríl 1980. Fiskur þessi hefur fundizt í vestanverðu Miðjarðarhafi, NA- Atlantshafi, við Azoreyjar, við SV-írland og hér við SV-Island, í NV-Atlantshafi, í Davíðssundi við V-Grænland, við Nýfundnaland og víðar. Fjölbroddabakur er frekar lítill fiskur, sá stærsti sem veiðst hefur var 41 cm. Litur er gráblár að ofan, en dökkblár að neðan. Hann er mjög dökkblár í kringum munninn og á tálknlokum. Hann er langvaxinn og mjög þunnvax- inn. Þá fékkst hér við land á síðasta ári fiskur af angaætt og einnig hann er nýr hér við land. Ekki var Gunnar alveg viss um hvað þarna var á ferðinni og sendi fiskinn því til kollega síns í Þýzkalandi til greiningar. Þá fékk hann einnig í fyrra í hendurnar furðulegan fisk austan af Héraðsflóa og sendi þann fisk sömuleiðis til Þýzka- lands til að fá gripinn staðsettan í kerfinu. Notar trjónuna til að róta í botninum Morgunblaðið hefur undanfarið sagt frá sædjöflum og ennisfisk- um, en einkum er sá síðarnefndi sjaldgæfur við ísland. Gunnar gaf fiski þessum nafn og var það ekki erfitt, þar sem fyrirbærið er með hátt enni og greindarlegt mjög, eins og sjá mátti á myndum í Mbl. á fimmtudag í síðustu viku. Fiskur þessi er fjórði eða fimmti ennisfiskurinn, sem feng- izt hefur hér við land samkvæmt upplýsingum Gunnars Jónssonar. Skipverjar á Faxa fengu hann í net vestur af Reykjanesi. Vestur á ísafirði er einn ennisfiskur í athugun hjá Guðmundi Skúla Bragasyni, útibússtjóra Haf- rannsóknastofnunar, og loks er að nefna ennisfisk, sem kom í net skipverja á Hvalnesi vestur af Reykjanesi aðfaranótt fimmtu- dags. Undanfarið hafa ennisfiskar því tæpast verið sjaldgæfir, en því miður skila furðufiskar sem ennisfiskar sér ekki ævinlega til fiskifræðinga. Um sædjöful er það að segja, að slíkir finnast alltaf af og til við landið, en enn þá eru þeir taldir með sjaldgæfum fiskum. Tveir sædjöflar voru í geymslum Haf- rannsóknastofnunar er Mbl. leit þar við, og á dögunum greindi blaðið frá „djöfsa", sem skipverjar á Hafeminum RE fengu í net sín vestur af Garðskaga og útibúið á ísafirði fékk fyrir nokkru sædjöf- ul í hendur. Tveir trjónufiskar fengust á síðasta ári á talsverðu dýpi sunn- an við Vestmannaeyjar. Árið 1968 skrifaði Gunnar Jónsson um trjónufisk í Náttúrufræðinginn og segir þar, að í maí 1957 hafi veiðzt nokkrir trjónufiskar djúpt úti af Reykjanesi í rannsóknarleiðangri undir stjórn dr. Jakobs Magnús- sonar, fiskifræðings. Síðan hafa nokkrir trjónufiskar veiðzt á miklu dýpi undan suðvestur- og vesturströndinni. Trjónufiskur er allstór fiskur og getur orðið 136 cm langur eða jafnvel lengri. Hann er auðþekkt- ur á oddmjórri og framteygðri trjónunni, sem hann notar til að róta eftir fæðu í botnleir. Hann er skyldur geirnyt og digurnef og telst til sama ættbálks, hámús- anna, undirflokkur hákettir. Trjónufiskur telst hins vegar til eigin ættar, trjónuættar. Trjónu- fiskar hafa fundizt á 520—1463 m dýpi í N-Atlantshafi beggja vegna, þ.e. undan ströndum N-Ameríku og vestan Irlands svo og á djúp- miðum sunnan, suðvestan og vest- an íslands. Tilraunir hafa sýnt, að trjónufiskur er vel ætur og hefur hann bæði verið soðinn og steiktur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins, snæddur þar og þótti smakkast vel. Þá brá íiskiíræð- ingnum í brún Á fimmtudag barst enn ein skepnan í hendur Gunnars Jóns- sonar og sannast sagna brá fiski- fræðingnum heldur en ekki í brún er hann sá grip þennan. Þarna var svarthveðnir á ferðinni, en í riti Bjarna Sæmundssonar, Fiskarnir, segir að svarthveðnir verði 40—70 cm á lengd. Þessi skepna var þó talsvert lengri, því hún mældist yfir 90 cm og var nema von að fiskifræðingnum brygði. Það voru Henning Fredreksen og hans menn á Hásteini ÁR 8, sem fengu þetta flykki í net á miðvikudag og Snorri Snorrason, verkstjóri í frystihúsinu á Stokkseyri, sendi fiskinn þegar til Hafrannsókna- stofnunar. Um svarthveðni segir Bjarni Sæmundsson í bók sinni, að hann sé heldur fágætur, en útbreiðslu- svæði hans nái frá Miðjarðarhafi norður að Þrándheimi og vestur til íslands. Hér við land fékkst hann fyrst af þýzkum togara árið 1948. Svarthveðnir er náskyldur bretahveðni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.